Fréttablaðið - 30.01.2009, Side 17

Fréttablaðið - 30.01.2009, Side 17
Humarmedalíur 18 humarhalar Humarinn pillaður og snyrtur, settur á pinna og steiktur í 1 mínútu á hvorri hlið á sjóðandi heitri pönnu. Blómkálstoppar 100 g blómkálstoppar, skornir snyrti- lega 10 ml olía 20 ml vatn 10 g smjör Salt Sykur Topparnir steiktir í olíu á pönnu, vatni bætt út í. Þegar sýður er salti og sykri stráð yfir, smjöri bætt út í og soðið niður þar til blómkálið er orðið gljáð. Mangó-vinaigrette 100 g mangómauk 20 ml hvítvínsedik 150 ml olía salt sykur Mangómaukið og edikið hrært vel saman. Olíunni blandað rólega út í. Smakkað til með salti og sykri. Sítrus- og mangósalsa ½ mangó, skrælt 1 appelsína, skræld 1 mandarína, skræld 1 lime-börkur og -safi 50 ml ólívuolía 1 msk. hunang ½ chilipipar lítill engifer saxað kóríander og salt Ávextirnir skornir í teninga og chili- piparinn og engiferið skorið mjög smátt. Öllu blandað vel saman í skál og kryddað til með kóríander og salti. Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Ég útskrifaðist fyrir þremur árum sem kokkur frá Hótel Sögu, síðan þá hef ég unnið á veitinga- staðnum Grillinu á milli þess sem ég fer utan í matreiðsluferð- ir, ef svo má segja,“ segir Þrá- inn Freyr Vigfússon, aðstoðar- yfirmatreiðslumaður á Grillinu á Hótel Sögu. „Ég byrjaði á því að fara til Suður-Frakklands fyrst eftir að ég útskrifaðist og vann á veitinga- stað þar í nokkra mánuði, sneri síðan aftur heim en hef verið að fara utan með mislöngu millibili til að kynna mér nýjar hugmyndir í matreiðslu. Núna síðast fór ég til Chicago í Bandaríkjunum og var þar í mánuð en ég kom aftur til Íslands rétt fyrir jól,“ segir Þrá- inn. Uppskriftin sem Þráinn ætlar að deila með lesendum Frétta- blaðsins er að humarmedalíum með mangói og blómkáli, en hana fékk hann af matseðli í Chicago. „Á veitingastaðnum sem ég var að vinna á í Chicago fékk ég nokkrar skemmtilegar hugmyndir sem ég tók með mér til Íslands, enda allt- af gaman að koma með eitthvað nýtt á matseðilinn hérna á Grill- inu.“ agnesosk@frettabladid.is Gómsætir humarpinnar Þráinn Freyr Vigfússon, meðlimur kokkalandsliðsins og matreiðslumaður ársins 2007, lumar á girnilegri uppskrift að humri, en hugmyndina fékk hann þegar hann vann á veitingastað í Chicago. Þráinn hefur unnið á veitingastöðum víðs vegar um heiminn en snýr þó alltaf aftur til Íslands, oftar en ekki með nýjar og ferskar hugmyndir á matseðilinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM HUMARMEDALÍUR með mangói og blómkáli FYRIR 6 SKAUTAFERÐ með fjölskyldunni er tilvalin helgar- skemmtun. Í Egilshöll er til dæmis boðið upp á sérstakt fjölskylduverð sem miðast við tvo fullorðna og tvö börn og skautaleiga er á staðnum. H rin gb ro t 2. janúar -28. febrúar Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207 Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is Hinn árvissi 4ra rétta „Allt í steik“ seðill gleður bragðlaukana. Skyldumæting fyrir alla sem unna góðum mat á góðu verði. Tilvalið fyrirárshátíðina! HRÁSKINKA „PROSCIUTTO“ með fíkjum, salati og ferskum parmesanosti RJÓMALÖGUÐ HUMARSÚPA með humarfrauði MARINERAÐUR KÁLFAHRYGGUR Á BEINI með ristuðu grænmeti, kartöflumauki og hunangskryddsósu (4.590 kr.) ÖND með appelsínusósu og kartöfluköku (5.590 kr.) NAUTALUND Béarnaise með grilluðu hvítlauksristuðu spínati og sperglum (6.590 kr.) LOGANDI CRÈME BRÛLÉE með súkkulaði ís 1 2 3 4 VELDU MILLI ÞRIGGJA AÐALRÉTTA

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.