Fréttablaðið - 30.01.2009, Side 20
2 föstudagur 30. janúar
núna
✽ vertu í massamiklu stuði
þetta
HELST
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Ritstjóri Marta María Jónasdóttir martamaria@365.is
Penni Alma Guðmundsdóttir alma@frettabladid.is Forsíðumynd Stefán Karlsson
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
augnablikið
HELVÍTIS FOKKING FOKK
Öðlast algerlega nýja merkingu
þegar það er búið að bródera það
á húfu. Skerjafjarðarskáldið Kristj-
án Hreinsson er ekki vanur að fara
hefðbundnar leiðir og auðvitað er
betra að hafa þetta bróderað á fatn-
að heldur en burðast með skilti, það
gefur auga leið.
ÞÓREY EDDA ELÍSDÓTTIR STANGASTÖKKVARI
Í dag er ég að þjálfa og æfa. Á morgun fæ ég vini mína í morgunkaffi, kíki á æf-
ingu, horfi líklega eitthvað á mótið og slaka svo bara á restina af deg-
inum. Á sunnudaginn er ég að þjálfa fjóra stangarstökkvara sem
eru að fara að keppa á Meistaramóti Íslands fyrir 15 til 22 ára. Svo
verður bara fylgst með fréttum.
G
uðfríður Lilja Grétarsdóttir,
framkvæmdastjóri þingflokks
Vinstri grænna og skákdrottn-
ing, á von á sínu fyrsta barni
með unnustu sinni, Steinu H. Blöndal
ljósmóður. Það kemur í hlut Steinu
að ganga með barnið og er það vænt-
anlegt 10. apríl. Það er skemmtilegt
að segja frá því að Steina á einmitt
afmæli þann sama dag. Það væri því
ekki úr vegi að fá barn í afmælisgjöf.
Mikill spenningur er hjá þeim stöll-
um fyrir komu erfingjans.
„Þetta er himnasending og guðs-
gjöf og við erum í skýjunum yfir
þessu. Þó svo allt sé að hrynja þá
er þetta óendanleg gleði sem held-
ur okkur gangandi,“ segir Guðfríður
Lilja og bætir því við að með fæð-
ingu barnsins muni gamall draum-
ur rætast. „Þetta verður lítið bylt-
ingarbarn,“ segir hún og hlær. Að-
spurð hvort hún viti kynið segir
hún svo ekki vera. - MMJ
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir á von á barni
Alveg í skýjunum
S
vava Johansen kaupmaður
í Sautján og unnusti henn-
ar, Björn Sveinbjörnsson, láta
efnahagsástandið ekki stoppa
sig. Síðsumars keyptu þau hús
að Kvistalandi 1 en fyrir áttu þau annað
hús í götunni að Kvistalandi 12. Eftir að
þau keyptu húsið sóttu þau um leyfi til að
stækka það um rúma 100 fermetra og í okt-
óber fengu þau leyfi fyrir því hjá bygginga-
fulltrúa. Meðan flestir aðrir halda að sér
höndunum er allt komið á fulla ferð hjá
Svövu og Birni.
„Þetta er eitthvað sem við vorum búin að
ákveða fyrir löngu. Við keyptum húsið fyrir
hrunið og settum allt á „hóld“ fyrir nokkr-
um mánuðum. Við erum bara búin að vera
róleg og skynsöm með þetta og erum núna
að byrja að grufla í þessu. Við lítum svo á að
það megi ekki stoppa atvinnuhjólin alveg
og með þessu erum við að tryggja átta til
tíu iðnaðarmönnum vinnu. Við erum að
reyna að tryggja 150 manns vinnu í fyrir-
tækinu okkar og þegar iðnaðarmenn voru
að hringja og spyrja hugsuðum við með
okkur að við gætum tryggt þeim vinnu
með þessu. Við komum okkur ekki upp
úr þessu ástandi nema að fólk sem hefur
aðstöðu til og er til dæmis með fyrirtæki,
láti hjól atvinnulífsins halda áfram að snú-
ast,“ segir Svava sem lætur ekkert stoppa
sig. Þegar búið verður að byggja við húsið
verður það alls 412,6 fermertrar og því ætti
ekki að væsa um parið.
SVAVA JOHANSEN OG BJÖRN SVEINBJÖRNSSON KAUPMENN Í SAUTJÁN
LÁTA HJÓL ATVINNU-
LÍFSINS SNÚAST
Kvistaland 1 Allt komið á fulla
ferð. Gröfurnar eru byrjaðar
að grafa fyrir viðbyggingunni.
Svava segir að það megi ekki
stöðva hjól atvinnulífsins þótt á
móti blási. MYND/ANTON BRINK
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
Er alsæl yfir væntanlegri fjölgun í fjölskyld-
unni en um leið rætist gamall draumur.
Svava Johansen og Björn
Sveinbjörnsson Hlakka til
að flytja í Fossvoginn en fram-
kvæmdir við húsið hófust aftur í
vikunni eftir langt hlé.
Klifur og safarí í Afríku
Stephan Stephense, betur þekkt-
ur sem President Bongo úr hljóm-
sveitinni GusGus og frú, voru
að koma frá Afríku. Þar klifu þau
meðal annars hið fræga fjall í Tans-
aníu, Kilimanjaro, en á því er hæsti
tindur Afríku sem
er hvorki meira né
meinna en 5.891,8
metrar á hæð. Parið
mun ekki hafa verið
svikið af náttúru-
fegurð lands-
ins því eftir sex
daga klifur tók
við safaríferð
áður en hald-
ið var aftur heim á
klakann.
„Spice Girls“ á Q-bar
„Við ákváðum að vera með svona
„reunion“,“ segir Óli Hjörtur Ólafs-
son sem treður upp ásamt fríð-
um flokki á Q-bar annað kvöld.
„Skjöldur Eyfjörð er Ginger Spice,
Atli Freyr er Baby Spice, Omel er
Victoria, Georg er Scary Spice og
ég er Sporty Spice. Við vorum
að vinna saman fyrir tólf árum
þegar við ákváðum að halda
nokkrar sýningar á Ingólfs-
café, en nú verður þetta bara
„one night only“,“ bætir hann við.
Draggkóngur Íslands 2008 verður
kynnir og fyrstu gestir kvöldsins fá
fordrykk í boði hússins, svo það er
um að gera að mæta tímanlega.
helgin
MÍN
YOGASTÖÐIN HEILSUBÓT
Síðumúla 15, s. 5885711 og 6946103
YOGA YOGA YOGA
Líkamsæfingar, öndunaræfingar
slökun og hugleiðsla
Sértímar fyrir barnshafandi
og kraftyoga
Allir yoga unnendur velkomnir
www.yogaheilsa.is • yogaheilsa@yogaheilsa.is
„Ég get ekki sagt annað en að hún sé sannspá,“ segir kvennagullið Fjölnir Þor-
geirsson um spákonuna Sigríði Klingenberg sem spáði því síðasta
sumar að Fjölnir myndi finna þá einu réttu innan skamms.
Ekki leið á löngu þar til spáin rættist því ástin tók að
blómstra á milli Fjölnis og Sjafnar Sæmundsdóttur á
Landsmóti hestamanna í júlí. Um áramótin trúlofuðu þau
sig og segir Fjölnir brúðkaup ekki vera langt undan.
„Ef allt gengur eftir giftum við okkur innan tveggja ára.
Það verður ekki næsta sumar, heldur líklegast eftir eitt og
hálft ár,“ segir Fjölnir sem er búsettur ásamt Sjöfn í
Hveragerði. „Við erum bæði í hestunum, erum að
temja, rækta og selja. Við vinnum saman alla daga,
sem hefur sína kosti og galla, en það er góð leið
til að henda sér út í djúpu laugina og þannig er
maður fljótur að sjá hvort hlutirnir eru að ganga,“
segir Fjölnir brosandi. - ag
Fjölnir Þorgeirsson og Sjöfn Sæmundsdóttir:
Gifting innan tveggja ára
Ástfangin Fjölnir og Sjöfn eru bú-
sett í Hveragerði, eru bæði í hesta-
mennskunni og vinna saman alla daga.