Fréttablaðið - 30.01.2009, Síða 22
4 föstudagur 30. janúar
núna
✽ leyfðu skvísunni að blómstra
Getur þú lýst þínum stíl?
Dagsdaglega kýs ég að
klæðast þægilegum fötum í
mildum tónum. Ég er mest
í gallabuxum, aðsniðnum
skyrtum, bómullarbolum og
þunnum mjúkum peysum
undir blazer-jakka. Svo nota
ég mikið stígvél, belti og
klúta. Mér finnst gaman að
blanda saman flaueli, satíni
og/eða silki, blúndu, mjúk-
um bómullar-, kasmír- og
ullarblöndum, ég pæli mikið
í smáatriðunum.
Uppáhaldslitapalletta?
Grár, brúnn, beige, vínrauð-
ur, kóngablár, ólívugrænn og
túrkís.
Hvað keypt-
ir þú þér
síðast?
Gráa hné-
háa sokka með grárri flauels-
slaufu.
Hvert er skuggalegasta fata-
tímabilið þitt? 8.bekkur í
Hagaskóla, þegar ég klæddist
Russell Athletic-íþróttafötum frá
toppi til táar.
Í hvað myndir þú aldrei fara?
Jakka með axlapúðum, föt í
skærum litum eða skræpótt.
Uppáhaldsmerki? Massimo
Dutti, Zara, Adolfo Dom-
inguez, Victorio & Lucchino,
Oscar de la Renta.
Hverju ertu veikust fyrir
þegar kemur að fatakaup-
um? Fíngerðum og mjúkum
peysum, brúnum leðurstígvélum
og hælaskóm.
Eru einhver tískuslys í fata-
skápnum þínum? Ekkert sem
ég man eftir. Ég hef passað að
grisja fataskápinn minn reglu-
lega þannig að ég losni við
kjánahrollinn sem fylgir því að
finna eitthvað sem ég hefði
aldrei átt að kaupa.
Af hvaða líkamsparti ertu
stoltust af og hvernig undir-
strikar þú hann með klæða-
burði? Engum sérstökum.
Reyni bara að klæða mig þannig
að fötin samsvari sér vel.
Silvia Santana Briem nemi
Pælir mikið í
smáatriðum
1 Dökkbláar gallabuxur, Zara, teinótt skyrta og peysa, Mass-
imo Dutti, hælaskór, Aldo, blazer, Massimo Dutti, belti, Mass-
imo Dutti x og hálsmen, Agatha 2 Brúnir hálfopnir leðurskór,
Hugo Boss 3 Hálsmen m/marglitum steinum, Agatha 4 Ljós-
bleik kasmírpeysa, Sand 5 Silfurgrár teinóttur blazer, Mass-
imo Dutti 6 Ljósbrúna kápan er frá Benetton 7 Gráar galla-
buxur úr Topshop, bleik silkiskyrta, Sand, dökkbrún stígvél,
Kron, perluhálsfesti, Agatha.
SMART VETRARSTÍGVÉL Þessi rúskinnsstígvél henta sérlega vel
í febrúarsnjóinn og svo eru þau undurfögur í þokkabót. Þessi stígvél gera
hvert dress að megaskvísufötum. Þau fást hjá Þráni skóara.
1
3
4
5
2
6
7
SagaMemo