Fréttablaðið - 30.01.2009, Síða 34

Fréttablaðið - 30.01.2009, Síða 34
18 30. janúar 2009 FÖSTUDAGUR timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Þrjátíu ár eru síðan samningur um afnám allrar mismununar gagnvart konum, eða kvennasamningurinn, var samþykktur af allsherjarþingi Samein- uðu þjóðanna en það var gert hinn 18. desember 1979. Hann var undirritað- ur fyrir Íslands hönd árið 1980 en full- giltur af Alþingi árið 1985. Í tilefni af- mælisins hefur Jafnréttisstofa gefið út dagatal þar sem ákvæði samningsins eru tíunduð. „Samningurinn átti sér langan að- draganda en barátta fyrir jafnrétti kynjanna hafði staðið yfir árum saman hjá Sameinuðu þjóðunum og þar áður hjá Þjóðabandalaginu. Samningurinn var síðan ekki staðfestur á Alþingi fyrr en árið 1985. Það var gert eftir mikinn þrýsting frá kvennasamtökum því sátt- málinn felur í sér ýmsar skuldbinding- ar,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir, fram- kvæmdastjóri Jafnréttisstofu. Nú eru 185 ríki aðilar að samningn- um og því skuldbundin að gera nauð- synlegar ráðstafanir til að framfylgja ákvæðum hans. „Aðildarríkin verða reglulega að leggja fram skýrslur um gang mála fyrir sérstaka eftirlitsnefnd. Á Íslandi er það í höndum félagsmála- ráðuneytisins en auk þess hefur Mann- réttindaskrifstofa Íslands skilað svo- kallaðri skuggaskýrslu þar sem reynt er að koma gagnrýni á framfæri.“ Kristín var ein þeirra sem fór á fund eftirlitsnefndarinnar síðastliðið sumar og lýsti nefndin meðal annars ánægju sinni með nýlegar lagabreytingar á Ís- landi sem eru til þess fallnar að styrkja stöðu kvenna almennt og eins með ýmis smærri og sértækari verkefni sem stuðla að jafnrétti kynjanna. Helstu áhyggjuefni og tilmæli snúa sérstaklega að ofbeldi gagnvart konum. Þar lýsir nefndin áhyggjum sínum af vægum refsingum í kynferðisbrota- málum. Þá er talað um að skortur sé á upplýsingum um mansal og lögleiðingu vændis. Nefndin lýsir einnig áhyggjum sínum af lágu hlutfalli kvenna í stjórn- unarstöðum, sérstaklega hjá hinu op- inbera og í dómskerfinu, og af stöðug- um umtalsverðum launamun kynjanna, sem er að jafnaði um sextán prósent. Eins bendir hún á að verulega skorti á að unnið sé eftir fjórðu grein samn- ingsins um afnám mismununar gagn- vart konum þar sem kveðið er á um að íslenska ríkið eigi að flýta fyrir, jafnvel með sérstökum bráðabirgðaráðstöfun- um, því að raunverulegt jafnrétti karla og kvenna náist. „Það má til dæmis benda á að hlut- fall kvenna á Alþingi er rúmlega þrjá- tíu prósent. Ef samningnum væri fylgt eftir hefðu stjórnvöld fyrir löngu grip- ið til aðgerða til að jafna þessa stöðu,“ segir Kristín, sem er þeirrar skoðun- ar að baráttuhreyfingar hafi ekki sýnt sáttmálanum næga athygli og ekki nýtt hann sem baráttutæki í nógu ríkum mæli. „Þetta er eitt af grundvallar mannréttindaskjölum heimsins sem hefur nýst konum víða um heim í sókn til mannréttinda.“ Kristín segir Ísland standa vel á heimsvísu. „Hér eru lífskjör meðal þeirra bestu. Víða er gífurleg fátækt, uppblástur, vatnsskortur og ófriður. Slíkar aðstæður draga úr mannréttind- um og veikja þar með stöðu kvenna. Það er því gífurlegt verk að vinna. Heim- urinn þarf á fyrirmyndum að halda og þess vegna á að gera þá kröfu til þjóða sem standa vel að vígi að þær gangi á undan með góðu fordæmi. Þar mættum við standa okkur betur.“ vera@frettabladid.is KVENNASAMNINGUR SAMEINUÐU ÞJÓÐANNA: ÞRJÁTÍU ÁRA Baráttutæki sem nýta má betur ÆTTUM AÐ VERA FYRIRMYNDIR Kristín vill sjá að Íslendingar gangi á undan með góðu fordæmi í jafnréttismálum en finnst ýmislegt skorta í þeim efnum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR GSA-samtökin, sem er skammstöfun á Greysheeters Anonymous eða Gráu Síð- unni á Íslandi, verða með opinn fund í safnaðarheimili Vídalínskirkju í Garða- bæ á morgun milli klukkan 10 til 16. Til- efni hans er níu ára starfsafmæli sam- takana á Íslandi. GSA-samtökin eru tólf spora samtök fyrir matarfíkla, sem hittast á regluleg- um fundum til að deila reynslu sinni í von um að hjálpa sér og öðrum að ná stórn á matarfíkn og þar með bata. Fundurinn hefst með fyrirlestri Banda- ríkjamannsins Joels H., sem er sérstak- ur gestafyrirlesari og hefur viðhaldið stöðugu fráhaldi af Gráu síðunni í fjór- tán ár. Að svo búnu situr hann fyrir svörum. Kvennafundur og karlafund- ur verða svo haldnir frá klukkan 12 til 13. Eftir það, eða milli klukkan 14 til 16, munu Joel og tveir íslenskir meðlimir í GSA-samtökunum segja sögu sína. Nánari upplýsingar má nálgast á vef- síðunni www.gsa.is. Fráhald, umbreyting og bati GSA-samtökin verða með opinn fund í Vídal- ínskirkju á morgun milli klukkan 10 til 16. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL Listasafn Íslands var opnað í gamla íshúsinu, á Fríkirkjuvegi 7, þennan dag árið 1988. Húsið var hannað af Guðjóni Samúelssyni árið 1916 fyrir fyrirtækið Herðubreið. Síðar hýsti það Framsóknarhúsið og frá árinu 1961 Glaumbæ sem brann 1971. Eftir það fékk listasafnið það í sínar hendur en það þurfti þó algerrar endurnýj- unar við og flutti safnið ekki inn í húsið fyrr en 1988. Safnið er í eigu íslenska ríkisins en það var stofnað í Kaupmannahöfn árið 1884 af Birni Bjarnasyni. Árið 1916 var listasafnið gert að deild í Þjóðminjasafni Íslands. Safnkosturinn var þá geymdur víðs vegar og lánaður til opinberra stofnana og skóla um allt land. Árið 1950 var fyrsti forstöðumaður safnsins, Selma Jónsdóttir, ráðinn og því fenginn staður á efstu hæð nýja hússins sem hafði verið reist yfir Þjóðminjasafnið við Suðurgötu. Þá var safnkost- urinn endurheimtur alls staðar að og fékkst að mestu leyti til baka. Með nýjum lögum 1961 varð safnið svo sjálf- stæð stofnun sem heyrir beint undir mennta- málaráðuneytið. ÞETTA GERÐIST: 30. JANÚAR 1988 Listasafn Íslands opnaðDICK CHENEY ER 67 ÁRA Í DAG „Afdráttarlausar ógnir útheimta af- gerandi viðbrögð.“ Cheney var 46. vara- forseti Bandaríkj- anna. Hann tók við embættinu af Al Gore hinn 20. janúar 2001 en seinna kjörtíma- bili hans lauk 20. janúar síðastliðinn. MERKISATBURÐIR 1933 Adolf Hitler er settur í embætti kanslara Þýska- lands. 1969 Bítlarnir spila opinberlega í síðasta sinn. 1971 Frost mælist 19,7 gráð- ur í Reykjavík sem var það kaldasta síðan 1918. 1974 G. Gordon Liddy er dæmdur sekur í Water gate-málinu. 1981 Sjöunda hrina Kröfluelda hefst með gosi í Éthóla- borgum í Gjástykki. Gosið stóð í fimm daga. 2003 Giftingar samkynhneigðra eru lögleiddar í Belgíu. 2005 Fyrstu frjálsu þingkosning- arnar frá árinu 1958 eru haldnar í Írak. 2006 Snjór fellur í Lissabon í fyrsta skipti í 52 ár. Bróðir minn og frændi, Sigurður Marelsson Vífilsstöðum, áður Njarðargötu 43, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 2. febrúar kl. 13.00. Sigurbjörg Marelsdóttir Sigurður Már Hilmarsson og fjölskylda. Ástkær systir okkar og frænka, Þóra Magnúsdóttir Kumbaravogi, áður Engjavegi 75, Selfossi, andaðist fimmtudaginn 22. janúar. Útför hinnar látnu fer fram laugardaginn 31. janúar kl. 13.30 í Selfosskirkju. Systkin og systkinabörn. Dóttir mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðný Alberta Hammer frá Brekkum í Holtum, Lækjarbraut 2, Rauðalæk, er látin. Jarðarförin verður auglýst síðar. Herdís Albertsdóttir Kristjana Sigurðardóttir Gunnlaugur Gunnlaugsson Herdís R. Þorgeirsdóttir Davíð B. Sigurðsson Sigríður S. Jónasdóttir Ragnheiður Jónasdóttir Sigurður Jónasson Ásdís G. Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Sveinsdóttir Múlasíðu 24, Akureyri, lést á heimili sínu þriðjudaginn 27. janúar. Júlíus Björgvinsson Anna Óðinsdóttir Hafsteinn Hinriksson Rúnar Júlíusson Olga Sigurðardóttir Aníta Júlíusdóttir Hjalti Gestsson Gréta Júlíusdóttir Tómas Karl Karlsson Viðar Júlíusson Margrét Ösp Stefánsdóttir barnabörn og barnabarnabarn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.