Fréttablaðið - 30.01.2009, Page 37
FÖSTUDAGUR 30. janúar 2009 21
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 30. janúar 2009
➜ Tónleikar
12.15 Tríó Reykjavíkur heldur hádeg-
istónleika Á Kjvarvalstöðum við Flóka-
götu. Aðgangur er ókeypis.
20.00 Davíð
Ólafsson verður
með tónleika í
Langholtskirkju
þar sem ásamt
honum koma fram
Karlakórinn Fóst-
bræður, Jóhann
Friðgeir, Garðar
Thor Cortes, Hulda
Björk, Gissur Páll,
Stefán Helgi og
fleiri. Allur ágóði mun renna til hjálpar-
starfs ADRA.
22.00 Retro Stefson spilar á Prikinu,
Bankastræti 12 auk þess sem Danni
Deluxxx þeytir skífum.
22.00 Matti, Magni og Beggi verða
með tónleika á Græna hattinum, Hafn-
arstræti 96, Akureyri. Húsið opnar kl.
21.00.
➜ Leiklist
20.00 Leikverkið Dubbeldusch eftir
Björn Hlyn Haraldsson er sýnt í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu, Strandgötu 50,
Hafnarfirði.
➜ Dans
21.00 Ugly Duck productions frum-
sýnir fjögur ný dansverk á Skúlagötu
26 (inngangur við
Vitastíg).
➜ Fyrirlestrar
12.00 iPod-inn
sem menningar-
fyrirbæri í síðkap-
ítalisma Mirko M.
Hall flytur erindi
á Háskólatorgi,
Sæmundargötu
4, stofu 103.
➜ Sýningar
Hulda Halldór hefur opnað sýningu
í Tjarnarsal Ráðhússins í Reykjavík.
Opið virka daga kl. 8-19 og um helgar
kl. 12-18.
Ásdís Kalman sýnir í Listasal Mosfells-
bæjar, Kjarna, Þverholti 2, Mosfellsbæ.
Opið virka daga kl. 12-19 og laugardaga
kl. 12-15.
Í glugganum á Gallerí Marló við Lauga-
veg 82, stendur yfir sýning á listaverka-
bókum eftir nemendur í Myndlista-
skólanum í Reykjavík. Einnig stendur
þar yfir ljóðasýningin „Með þinni skrift“
sem samanstendur af handskrifuðum
ljóðum eftir nokkrar af helstu skáldkon-
um okkar tíma. Báðum sýningin lýkur 4.
febrúar. Opið virka daga 13-18. Laugar-
daga kl. 14-17.
➜ Síðustu forvöð
Sýningu Kolbrúnar Hjörleifsdóttur Ull er
gull á Geysi bistro/bar við Aðalstræti,
lýkur í dag. Þar sýnir Kolbrún myndverk
unnin úr íslenskri ull. Opið í dag kl.
11.30-22.30.
➜ Söngleikir
20.00 Nemendaópera Söngskólans
frumsýnir söngleikinn The Show Must
Go On í Íslensku óperunni við Ingólfs-
stræti.
➜ Dansleikir
Spútnik spilar á Players í Bæjarlind í
Kópavogi.
➜ Pub Quiz
19.00 Pub Quiz verður haldið á Dillon
Sportbar Trönuhruni 10. Frosti Gringo
verður spyrill. Seinna um kvöldið mun
hljómsveitin Ink spila.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is.
Þrettán ára gamalt breskt leikrit
sem á sínum tíma hristi upp í leik-
ritun Vesturálfu verður loksins
frumsýnt hér á landi í kvöld. Höf-
undurinn Sara Kane var við frum-
flutning verksins óþekkt stærð í
samtímanum en varð á einni nóttu
víðfræg. Verk hennar, Blasted eða
Rústað, er nú orðinn minnisvarði
í samtímaleikritun Vesturlanda.
Það verður frumsýnt í kvöld á Nýja
sviði Borgarleikhússins.
Rústað er löngum talið eitt upp-
hafsverka bylgju sem skall á leik-
húsi Vesturálfu á miðjum tíunda
áratugnum. Hópur höfunda sem
var á svipuðu aldurskeiði var fljótt
dreginn í dilka og við hann kennd-
ur skóli ofbeldisfullra og opin-
skárra verka og kallaður Uppí opið
geðið – In yer face – þótt þeir ættu
raunar fátt sameiginlegt stíllega.
Sara Kane var þar framarlega í
flokki. Hún sendi frá sér nokkra
fleiri leiktexta sem komust á svið
en ferill hennar var skammur: hún
svipti sig lífi 1999 og síðasta verk
hennar var frumsýnt að henni lát-
inni.
Miðaldra blaðamaður er stadd-
ur í stórborg á fínu hóteli og hefur
kallað til fundar við sig skjól-
stæðing sinn og ástkonu. Samvera
þeirra er full af þrá og endar í
ofbeldi. Þegar hótelið verður fyrir
árás eru þau ofurseld ofbeldi að
utan. Frumsýning Rústað á efri
hæð Royal Court vakti heiftarleg
viðbrögð og fordæmingu 1995, ekki
ósvipaða og dæmi eru um. Þegar
Hjálp eftir Edward Bond var frum-
sýnt 1965 eða Rómverjar í Bret-
landi eftir Howard Brenton var
frumsýnt 1980 var það ofbeldi sem
vakti óhug og andstyggð. Kane við-
urkenndi á sínum tíma sterk áhrif
frá Bond á höfundarverk sitt. Verk
Kane var samið í miðjum ófriði
Balkanskagans. hroðaverk sem þar
voru unnin á stríðsmönnum og sak-
lausum borgurum komust í hámæli
á Vesturlöndum, ólíkt því sem nú
viðgengst í hinum lokuðu stríðum
Asíu og Afríku. Kane heimfærir
ofbeldið, hún upphefur tímann í
verkinu og hrörnun siðlegra gilda
er hröð í framgangi verksins.
Leikstjóri á sviðsetningu í Borg-
arleikhúsi er Kristín Eysteinsdótt-
ir. Þýðingu vann Guðrún Vilmund-
ardóttir, leikmynd gerir Börkur
Jónsson, en Þórður Orri Péturs-
son lýsir. Leikarar í sýningunni eru
þau Ingvar E. Sigurðsson, Björn
Thors og Kristín Þóra Haraldsdótt-
ir. Í tengslum við sviðsetninguna
verða leiklestrar á öðrum verkum
Kane, Ást Fedru verður lesin 10.
febrúar, Hreinsun 17. febrúar, Þrá
24. febrúar og loks 4.48 geðtruflun
þann 3. mars. pbb@frettabladid.is
Rústað frumsýnt í kvöld
LEIKLIST Ofbeldið kemur óvænt inn
á fínt hótelherbergi. Hermaðurinn er
leikinn af Birni Thors.
MYND LEIKFÉLAG REYKJAVÍKUR/GRÍMUR BJARNASON