Fréttablaðið


Fréttablaðið - 30.01.2009, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 30.01.2009, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Þórgunnar Oddsdóttur Í dag er föstudagurinn 30. janúar, 30. dagur ársins. 10.14 13.41 17.09 10.12 13.26 16.40 Geir settist fyrir framan tölv-una og opnaði fésbókina. Best að breyta um hjúskaparstöðu strax, hugsaði hann með sér og skráði sig úr sambandi í „einhleyp- an“. Hann sá að Solla hafði gert slíkt hið sama og í leiðinni þegið vinarbeiðni frá Steingrími sem var greinilega nýr á Facebook-vefn- um. Nú stóð þarna á skjánum að þau væru trúlofuð svo eflaust biðu þau aðeins færis á að geta uppfært stöðuna sem fyrst. Honum fannst þetta ótrúlega ómerkilegt og var kominn á fremsta hlunn með að skrifa andstyggilega athugasemd á vegginn hennar Sollu en sá sem betur fer að sér. Lét sér nægja að fussa og sveia yfir hamingjuósk- unum sem hafði rignt yfir turtil- dúfurnar þegar þau opinberuðu þarna á vefnum. AUÐVITAÐ hafði Geir lengi vitað í hvað stefndi. Það var samt ekki fyrr en hann sá á tölvuskjánum tilkynninguna „Geir og Solla eru ekki lengur í sambandi“ að hann áttaði sig á að þetta hafði í raun og veru gerst. Einhvern veginn varð það ekki raunverulegt fyrr en það var komið inn á Facebook. HANN gat alls ekki haft sig í hátt- inn. Sat bara límdur við skjáinn og skoðaði síður allra vina sinna og óvina. Hann sá að Jóhanna hafði uppfært statusinn sinn og nú stóð þar stórum stöfum að hennar tími væri kominn. Það fór hrollur um Geir en um leið mundi hann eftir að uppfæra sinn eigin status. Þar stóð enn og hafði staðið í rúma 100 daga: „Geir er að vinna í mál- unum.“ Hann breytti þessu sem snöggvast í „Geir er orðinn þreytt- ur á ruglinu í Samfylkingunni“ en skipti svo um skoðun og skrifaði „Geir lætur ekki bugast“. SVO tók hann nokkur tilgangs- laus sjálfspróf og fletti mynd- um sem flokksfélagarnir höfðu tekið í samkvæmum meðan allt lék í lyndi. „Dagar víns og rósa“ hafði fjármálaráðherra nefnt eitt albúmið og Geir vöknaði um augun þegar hann rifjaði upp dýrðlegar veislur þar sem kampavínið draup af hverju strái og menn böðuðu sig áhyggjulausir upp úr kavíar og humarhölum. HANN var við það að slökkva á tölvunni þegar hann sá að í póst- hólfinu beið hans ný vinarbeiðni. „Dabbi kóngur hefur gert þig að vini sínum á Facebook“ las Geir og brosti út að eyrum. Hann þáði beiðnina með djúpu þakklæti. Með Davíð á fésbókinni hlyti allt að fara á besta veg. „Status updates“ Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi OPIÐ 8-24 ALLA DAGA - Lifið heil OPIÐ VIRKA DAGA 10 – 18 LAUGARD. 11 – 16 www.utivistogsport.is Reykjavík Faxafen 12 S. 533-1550. Keflavík Hafnargata 25 S. 421-3322

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.