Fréttablaðið - 02.02.2009, Qupperneq 6
„Í verkefnaskránni kemur fram
að haft hafi verið samráð við for-
mann Frjálslynda flokksins, en ég
vil frekar segja að mér hafi verið
gefnar upplýs-
ingar. Ég sé
ekki að margt
af því sem ég
lagði til við þá
sé þarna inni,
til dæmis í sam-
bandi við sjáv-
arútvegsmálin,“
segir Guðjón
Arnar Kristj-
ánsson, formað-
ur Frjálslyndra,
um verkefnaskrá nýrrar ríkis-
stjórnar.
Guðjón segist hafa viljað sjá
einhver skref í þá átt að leyfa
fleirum að taka þátt í útgerð á
jafnréttisgrundvelli en verið
hefur. „En ég óska stjórninni vel-
farnaðar og tek undir mörg af
markmiðum hennar, þótt ég sakni
nákvæmari útfærslna á leiðun-
um,“ segir Guðjón Arnar. - kg
6 2. febrúar 2009 MÁNUDAGUR
Ný ríkisstjórn tekur við völdum
Þau Ragna Árnadóttir og Gylfi
Magnússon eru sjöundi og áttundi
utanþingsráðherrann í ríkisstjórn
síðan lýðveldi Íslands var stofnað
árið 1944. Hinir sex voru:
■ Eysteinn Jónsson, menntamála-
ráðherra frá 4. febrúar 1947 til
23. júní 1947.
■ Kristinn Guðmundsson, utan-
ríkisráðherra frá 11. september
1953 til 24. júlí 1956.
■ Bragi Sigurjónsson, iðnaðarráð-
herra frá 15. október 1979 til 8.
febrúar 1980.
■ Geir Hallgrímsson, utanríkisráð-
herra frá 26. maí 1983 til 24.
janúar 1986.
■ Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra frá 28. september
1988 til 20. apríl 1991.
■ Jón Sigurðsson, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra frá 15. júní
2006 til 24. maí 2007. - kg
Skipan utanþingsráðherra:
ÁTTA FRÁ STOFN-
UN LÝÐVELDISINS
„Ég fagna því sérstaklega að það
standi til að gera veigamiklar
breytingar á gjaldþrotalöggjöfinni
og varðandi greiðsluaðlögun heim-
ila,“ segir Gylfi Arnbjörnsson,
forseti ASÍ. „Áhersluatriði nýrr-
ar stjórnar fara vel saman við það
sem við hjá Alþýðusambandinu
höfum lagt áherslu á á undanförn-
um vikum. En ríkisstjórnin hefur
skamman tíma til stefnu. Því
ríður á að fulltrúar ríkisstjórn-
ar og aðilar vinnumarkaðar snúi
bökum saman og finni leiðir út úr
því skelfilega ástandi sem ríkir í
atvinnumálum landsmanna.“ - hhs
Forseti Alþýðusambandsins:
Ánægður með
nýjar áherslur
GUÐJÓN ARNAR
KRISTJÁNSSON
Ráðherrar nýrrar ríkisstjórnar
Félags- og
tryggingamála-
ráðherra
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Samgöngu-
ráðherra
Kristján
Möller
Forsætisráðherra
Jóhanna
Sigurðardóttir
Utanríkis- og
iðnaðarráðherra
Össur
Skarphéðinsson
Dóms- og kirkju-
málaráðherra
Ragna
Árnadóttir
Heilbrigðis-
ráðherra
Ögmundur
Jónasson
Umhverfis-
ráðherra
Kolbrún
Halldórsdóttir
Katrín
Jakobsdóttir
Menntamála-
ráðherra
Fjármála-, sjávar-
útvegs- og land-
búnaðarráðherra
Steingrímur J.
Sigfússon
Viðskiptaráðherra
Gylfi
Magnússon
Guðjón Arnar Kristjánsson:
Tek undir mörg
markmiðin
GYLFI ARNBJÖRNSSON Nú ríður á að
ríkisstjórn og aðilar vinnumarkaðar snúi
bökum saman að mati forseta ASÍ.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
„Fyrstu mál mín verða að und-
irbúa lagabreytingar sem snúa
að greiðsluaðlögun og lögum um
gjaldþrotaskipti,“ segir Ragna
Árnadóttir, nýr dóms- og kirkju-
málaráðherra og annar tveggja
utanþingsráðherra í nýrri ríkis-
stjórn Samfylkingar og Vinstri
grænna. „Ég er ópólitísk og
óflokksbundin og er fengin til
þessa verks á grundvelli minn-
ar þekkingar. Það verður mitt
hlutverk að koma að þeim málum
sem heyra undir mitt málefna-
svið með mína fagþekkingu og
setja þau í þann búning til að
þau njóti tilskilins stuðnings á
Alþingi.“ - hhs
Nýr dómsmálaráðherra:
Fyrsta verkið að
breyta lögum
„Það sem ég sakna helst í verk-
efnaskránni er ákvörðun um að
hverfa frá ríkisbankafyrirkomu-
laginu,“ segir
Vilhjálmur
Egilsson, for-
maður Samtaka
atvinnulífsins.
„Það þarf að
virkja erlenda
kröfuhafa til að
koma að eign-
arhaldi bank-
anna. Ég hefði
viljað sjá nýja
ríkisstjórn gefa merki um að það
verði gert og að ekki verði byggt
hér upp nýtt ríkisbankakerfi.“
Hann er ánægður með áform
um lækkun vaxta. „En ég hefði
viljað sjá yfirlýsingu um að
gjaldeyrishöftin verði afnumin
að fullu.“ - hhs
Vilhjálmur Egilsson:
Ánægður með
lækkun vaxta
Nýr viðskiptaráðherra í stjórn
Samfylkingar og Vinstri grænna,
Gylfi Magnússon, segir sín fyrstu
verk í starfi óhjákvæmilega
verða tengd fjármálamarkaðin-
um enda vandamálin á þeim vett-
vangi fjölmörg. „Fyrst og fremst
þarf að manna Fjármálaeftirlit-
ið,“ segir Gylfi. „Þá þarf að hraða
vinnu við að gera upp gömlu
bankana og skilja milli þeirra og
þeirra nýju, svo nýju bankarnir
verði starfhæfir.“ Að auki þurfi
að leysa úr vandamálum ýmissa
smærri fjármálastofnana, sem
séu í nokkru uppnámi. - hhs
Nýr viðskiptaráðherra:
Brýnt að hraða
uppgjöri banka
STJÓRNMÁL „Eitt af því fyrsta sem
ég mun gera er að fara yfir það
hvernig við getum endurskipulagt
bankastjórn Seðlabankans,“ sagði
Jóhanna Sigurðardóttir þegar
hún kom út á Bessastöðum í flýti
til að fara í forsætisráðuneytið til
að taka þar við lyklavöldum. „Það
þarf að víkja núverandi banka-
stjórn og endurskipuleggja stjórn
bankans og ég mun athuga hvernig
það er hægt.“
Hún var spurð hvort það væri
eitthvert annað atriði í verkefna-
skrá nýrrar ríkisstjórnar sem ekki
hefði verið hægt að ná fram í sam-
starfi við gamla samstarfsflokk-
inn, Sjálfstæðisflokkinn. „Já, það
eru ýmis önnur mál sem snerta
hag heimilanna. Okkur hefur
gengið mjög treglega að ná fram
ýmsum málum sem lúta að því.
Við þurfum að halda þétt utan um
heimilin í landinu í þessu ástandi
og það voru ýmis mál þar sem erf-
itt var að ná fram með Sjálfstæð-
isflokknum. Þetta tók allt of lang-
an tíma og var svifaseint. Nú þarf
hver og einn ráðherra að vinna
mjög hratt og það verður byrjað
strax á fullum krafti. Svo þarf að
ráða úr því strax hvernig hægt er
að hjálpa atvinnulífinu og hafið
endurreisn þess. Það er grundvöll-
urinn fyrir öllu að við getum dreg-
ið úr atvinnuleysinu. Þannig að það
er þetta þrennt sem brýnast er að
einhenda sér í núna; breytingarn-
ar á Seðlabankanum og síðan hjálp
við heimilin og svo atvinnulífið.“
Spurð um hvaða tilteknu aðgerð-
ir þetta hefðu verið sem ekki tókst
að vinna með Sjálfstæðisflokknum
sagði hún: „Það var ýmislegt sem
var erfitt að ná fram með þeim
og tók svo langan tíma. Það var
aðallega það. Það voru ákveðnar
aðgerðir sem átti að grípa til fyrir
heimilin í landinu og atvinnulífið
en það var eins og það kæmi lítið
til framkvæmda í þeim efnum á
síðustu vikunum. Það sem ég vil
sjá í mínu ráðuneyti er að við séum
aðgerðarstjórn.“
Aðspurð hvort hennar tími væri
nú kominn sagði Jóhanna: „Ég ætla
nú að láta þjóðina dæma um það.“
Steingrímur J. Sigfússon, nýskip-
aður fjármála-, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, sagði að
hann myndi láta lögfræðinga skoða
það hvort „stjórnsýslulegir mein-
bugir“ væru á ákvörðun Einars K.
Guðfinnssonar, fyrrverandi sjávar-
útvegsráðherra, um að leyfa veiðar
á hrefnum og langreyði næstu fimm
árin. „Því þarna var starfandi ráð-
herra að taka ákvörðun sem bindur
hendur arftakanna fimm ár fram í
tímann.“ jse@frettabladid.is
Segir forgangsverk
að víkja bankastjórn
Nýr forsætisráðherra mun fara strax í að kanna hvernig hægt verði að koma
bankastjórn Seðlabankans frá. Nýr sjávarútvegsráðherra vill láta rannsaka
hvort ákvörðun forvera hans um að leyfa hvalveiðar standist stjórnsýslulög.
VILHJÁLMUR
EGILSSON
NÝ RÍKISSTJÓRN OG FORSETINN Á BESSASTÖÐUM Jóhanna Sigurðardóttir segir það
forgangsverk að koma bankastjórn Seðlabankans frá. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
– Lifið heil
Lægra
verð
í Lyfju
www.lyfja.is
20% verðlækkun
NERVIDIX
Segðu BLESS við taugaóróa og stress. Upplifðu
innri frið og skýrari fókus – 100% náttúruleg formúla.
1.867 kr. 1.494 kr. Gildir til 15. 2. 09
20% verðlækkun
DEPRIDIX
Segðu BLESS við depurð og tómleikatilfinningu.
Finndu lífsorkuna á ný – 100% náttúruleg formúla.
1.867 kr. 1.494 kr.
20% verðlækkun
ENERGIX
Segðu BLESS við orkuleysi. Örvaðu orkuflæðið
og einbeitinguna – 100% náttúruleg formúla.
1.867 kr. 1.494 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/L
Y
F
4
48
32
0
1/
09