Fréttablaðið - 02.02.2009, Side 13
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Mér þykir óskaplega vænt um
þessa lágmynd af Jóni Sigurðs-
syni. Hún var í eigu ömmu minn-
ar og afa og alltaf á áberandi stað
í stofu þeirra enda mikil virðing
borin fyrir Jóni á því heimili, sem
og öðrum íslenskum alþýðuheim-
ilum þeirra tíma, ekki ósvipað og
ameríski fáninn er í heiðurssessi
á bandarískum heimilum þeirrar
þjóðar,“ segir Óðinn Bolli Björg-
vinsson vöruhönnuður um eftir-
lætis innanstokksmuninn í sínum
fórum. Þegar vel er gáð má sjá að
lágmyndin af Jóni er bæði háls-
og nefbrotin. „Eftir að gömlu
hjónin héldu á vit feðra sinna
hálsbrotnaði styttan og lenti uppi
á háalofti, þar sem hún fannst á
unglingsárum mínum, en þá átti
að henda henni. Ég gat ekki hugs-
að mér að sjá á eftir henni á haug-
ana svo ég hirti hana og poppaði
upp með því að sprauta hana silf-
urlita. Eftir það hefur hún nef-
brotnað í tvígang en alltaf verið
tjaslað saman og fundinn öndveg-
isstaður á heimili mínu,“ segir
Óðinn Bolli og játar að lýðveldis-
hetja Íslendinga veki enn aðdáun
gesta hans.
„Þeim sem hingað koma þykir
hún flott svona silfruð, enda
stílhrein og nútímaleg, en upp-
runalega var Jón gulbrúnn á lit,
sem mér hugnaðist ekki,“ segir
Óðinn Bolli og veltir fyrir sér
hvort kannski sé kominn tími
til að steypa nýjan Jón eins og
nýtt lýðveldi í stað þess að flikka
endalaust upp á lágmynd for-
feðra okkar. „Jón forseti er vita-
skuld tákn fyrir lýðveldið Ísland
og gaman að reynt sé að tjasla
honum saman eins og lýðveldinu
okkar, því þannig passar hann vel
inn í samtímann, en auðvitað þarf
reglulega að endurskoða öll gildi
og kannski hreinlega kominn tími
á nýja þjóðhetju?“
thordis@frettabladid.is
Silfurpoppuð þjóðhetja
Jón forseti Sigurðsson var í virðingarsessi íslenskra stássstofa hjá eldri kynslóðum síðustu aldar, þar
sem traustur vangasvipur hans veitti staðfestu og ábyrgð í hátíðlegu heimilishaldi þjóðar í nýju lýðveldi.
Lágmyndinni af Jóni Sigurðssyni svipar mjög til þeirrar sem prýðir legstein þjóðhetjunnar í Hólavallakirkjugarði og gæti verið
eftirmynd hennar, en sú var gerð af norska myndhöggvaranum Brynjúlfi Bergslien. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FALLEG LÝSING skapar notalega stemningu. Þetta skemmtilega
ljós heitir Stjörnubjartur og er hannað af Hildi Héðinsdóttur og Troels
Jörgensen. Það fæst í Kraum og kostar 37.000 krónur.
UPPLÝSINGAR O
s
ng Mjódd
Næsta
námskeið
hefst
6. feb. n.k.
FERÐATÖSKURGóðar ferðatöskur á góðu verðiVerð frá 7.200 kr.