Fréttablaðið - 02.02.2009, Qupperneq 24
16 2. febrúar 2009 MÁNUDAGUR
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
12
12
L
16
12
L
12
L
VALKYRIE kl. 8 - 10.15
SKÓGARSTRÍÐ 2 kl. 6
UNDERWORLD 3 kl. 10.15
VILTU VINNA MILLJARÐ kl. 8
SÓLSKINSDRENGURINN kl. 6
12
L
16
L
L
VALKYRIE kl. 5.30 - 8 - 10.30
VALKYRIE LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
SKÓGARSTRÍÐ 2 kl. 3.45
UNDERWORLD 3 kl. t8 - 10.10
VILTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.30 - 8 - 10.30
SÓLSKINSDRENGURINN kl. 5.30
AUSTRALIA kl. 8
SKOPPA OG SKRÍTLA Í BÍÓ kl. 4
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
50 KR. AFSLÁTTUR EF ÞÚ
KAUPIR BÍÓMIÐANN Á
12
L
L
L
12
L
VALKYRIE kl. 5.30 - 8 - 10.30
VICKY CRISTINA BARCELONA kl. 5.50 - 8 - 10.10
REFURINN & BARNIÐ / ÍSL. TEXTI kl. 6
SKÓLABEKKURINN / ENSKUR TEXTI kl. 10.30
REVOLUTIONARY ROAD kl. 8 - 10.30
SÓLSKINSDRENGURINN kl. 5.30 - 8
5%
5%
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000
L
16
16
12
12
SEVEN POUNDS kl. 5.30 - 8 - 10.30
UNDERWORLD 3 kl. 6 - 8 - 10
TAKEN kl. 8 - 10
AUSTRALIA kl. 5.30 - 9
QUANTUM OF SOLACE kl. 5.30
550kr.
fyrir börn
650kr.
fyrir fullorðna
- S.V., MBL
- L.I.L., TOPP5.-FBL.IS
MEÐAN AÐRIR FYLGDU
SKIPUNUM... FYLGDI
HANN SAMVISKU SINNI.
EINN MAÐUR HEFÐI GETAÐ
BREYTT SÖGUNNI!
REFURINN & BARNIÐSKÓLABEKKURINN
FRÖNSK HÁTÍÐ: AUKASÝNINGAR
Á 2 VINSÆLUSTU MYNDUNUM
5ÓSKARSVERÐLAUNA
©TILNEFNINGAR
BESTI LEIKARI Í AUKAHLUTVERKI
Philip Seymour Hoffman
BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI
Amy Adams
BESTA LEIKKONA Í AUKAHLUTVERKI
Viola Davis
BESTA HANDRIT
BESTA LEIKKONA Meryl Streep
ÁLFABAKKA SELFOSS
AKUREYRI
KRINGLUNNI
KEFLAVÍK
BLOODY VALENTINE - 3D kl. 5:50 - 8 - 10:10 16
DOUBT kl. 5:50 - 8 - 10:10 L
ROLE MODELS kl. 5:50 - 8 - 10:10 12
BEDTIME STORIES kl. 5:50 L
ROCKNROLLA kl. 10:30 16
CHANGELING kl. 8 16
CHANGELING kl. 6 - 9 VIP
YES MAN kl. ekki sýnd í dag. 7
TWILIGHT kl. 5:50 12
BLOODY VALANTINE - 3D kl. 8:10 - 10:20 16
DOUBT kl. 6 - 8:10 - 10:20 L
ROLE MODELS kl. 8:10 - 10:20 12
BEDTIME STORIES kl. 6D L
BOLT 3-D m/ísl. tali kl. 6(3D) L
DIGTAL-3D
DIGTAL-3D
DIGTAL-3D
BEDTIME STORIES kl. 8 L
CHANGELING kl. 8 16
ROCKNROLLA kl. 10:10 16
TRANSPORTER 3 kl. 10:40 16
ROLE MODELS kl. 8 - 10 12
BEDTIME STORIES kl. 8 L
TAKEN kl. 10 16
ROLE MODELS kl. 10:10 12
AUSTRALIA kl. 8 12
INKHEART kl. 8 10
- bara lúxus
Sími: 553 2075
MY BLOODY VALENTINE 3D kl. 8 og 10-POWER 16
OPEN SEASON 2 kl. 6 L
REVOLUTIONARY ROAD kl. 5.45, 8 og 10.20 12
VILLTU VINNA MILLJARÐ kl. 5.45, 8 og 10.20 12
★★★★★
- S.V., MBL
★★★★★
- L.I.L., Topp5.is/FBL
Stórbrotin og áhrifarík mynd
frá verðlaunaleikstjóranum
Sam Mendes
★★★★1/2
- K.H.G. DV
★★★1/2
- S.V. MBL
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Mánudagur 2. febrúar
➜ Opnanir
22.00 Bebop djammsessjón verður
haldið á Kaffi Kúltúr við Hverfisgötu
(gegnt Þjóðleikhúsinu) Tríóið B3 flytur
ný íslensk beboplög ásamt öðrum perl-
um bebopsins. Gestir og gangandi geta
mætt og spilað af fingrum fram.
➜ Dans
20.30 Útskriftarnemar Laban list-
dansskólans í London bjóða á sýningu
í húsakynnum Klassíska listdansskólans
við Grensásveg 14. Nánari upplýsingar á
www.ballet.is
➜ Sýningar
Í Þjóðmenningarhúsinu við Hverfisgötu
eru meðal annars sýningarnar Surtsey -
jörð úr ægi, Handritin - Saga handrita og
hlutverk um aldir og Síðbúin sýn sem er
sýning á einkaljósmyndum Halldórs Lax-
ness. Opið alla daga frá 11-17, aðgangur
ókeypis á miðvikudögum. Nánari upplýs-
ingar www.thjodmenning.is
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Vinsælasta lagið á Íslandi í dag er
„Human“ með The Killers frá Las
Vegas. Texti lagsins hefur vald-
ið ruglingi og deilum, sérstaklega
línan „Are we human or are we
dancer?“ – „Erum við mennskir
eða erum við dansari?“. Þegar lagið
kom út kallaði Entertainment Week-
ly textann „heimskulegasta texta
ársins“ enda „eru flestir dansarar
mennskir“. Rolling Stone kallaði
línuna „klassíska Killers þvælu“.
Á heimasíðu Killers má lesa að
texti lagsins sé undir áhrifum frá
ummælum Hunters S. Thompsons
sem skrifaði „við erum að ala upp
kynslóð dansara“ og meinti að fólk
dansaði bara sporin sem væri búið
að kenna því. Brandon Flowers
söngvari bandsins er pirraður yfir
ruglingnum. „Ég tók þessa tilvitn-
um frá Hunter og fór á flug með
hana. Líklega pirrar það fólk að
textinn sé ekki málfræðilega rétt-
ur en ég geri bara það sem mér
sýnist.“
Í textanum segir á einum stað:
„Sometimes I get nervous when
I see an open door“. Brandon er
sem sagt að syngja um hversu erf-
itt sé að ganga gegn þeim hefðum
og venjum sem þjóðfélagið hefur
kennt okkur. - drg
Dansarar eru mennskir
UNDIR ÁHRIFUM FRÁ HUNTER Brandon
Flowers syngur vinsælasta lagið á Íslandi
um þessar mundir.
Bob Justman er eitt af aukasjálf-
um Kristins Gunnars Blöndal, en
hann hefur komið víða við í tónlist-
arlífinu undanfarin ár, m.a. sem
meðlimur í hljómsveitunum Ens-
ími og Botnleðju, sem plötusnúð-
urinn KGB og sem einherji undir
nöfnunum Unsound og Phil Stadi-
um.
Bob Justman hefur spilað af og
til á tónleikum undanfarin ár og
hefur verið lengi að vinna þessa
fyrstu plötu sína sem inniheldur
12 frumsamin lög. Tónleikarnir
hans hafa satt best að segja valdið
mér nokkrum vonbrigðum hingað
til þannig að þegar ég setti þessa
nýju plötu í tækið þá átti ég ekkert
endilega von á miklu. Platan kom
mér hins vegar verulega á óvart.
Bob er góður lagasmiður og fer
um víðan völl í útsetningum. Á
Happiness & Woe eru m.a. trúba-
dúraballöður, blús-slagarar og indí-
popp-smellir. Hljómur og vinnsla
eru til fyrirmyndar, en platan er
tekin upp undir stjórn múm-lið-
ans Gunnars Tynes. Fjölmargir
frábærir hljóðfæraleikarar koma
við sögu, m.a. hljómborðsleikar-
ar, gítarleikarar, bassaleikarar,
trommarar, strengjaleikarar og
blásarar.
Eins og áður segir er platan
nokkuð fjölbreytt og skemmtileg.
Lögin eru mörg fín og það hefur
verið mikið lagt í útsetningarn-
ar. Hún nær samt aldrei alveg að
heilla mann. Það vantar herslu-
muninn, kannski af því að þrátt
fyrir augljósa hæfileika og mikinn
metnað hefur Bob enn ekki tekist
að búa sér til sinn eigin hljóm. Það
kemur vonandi næst. Trausti Júlíusson
Hæfileikar og metnaður
TÓNLIST
Happiness & Woe
Bob Justman
★★★
Það eru bæði trúbadúraballöður,
blússlagarar og indípoppsmellir á
þessari fjölbreyttu frumsmíð Bob
Justman.
Ólöglegt niðurhal hefur sett
strik í reikning plötubúða
um allan heim. Stórum
plötubúðum með mikið og
breitt úrval hefur fækkað
á meðan litlar sérhæfðar
plötubúðir þrauka. Á Íslandi
er Skífan í hlutverki ris-
ans á meðan búðir eins og
Smekkleysa og 12 tónar eru
litlu sérhæfðu búðirnar.
„Úrvalið skánaði mikið eftir
að Sena tók Skífuna aftur yfir.
Ástandið var satt að segja alveg
hörmulegt á meðan Árdegi rak
Skífubúðirnar. Það var enginn
metnaður. Það tók til dæmis heil-
an mánuð fyrir nýjustu Metallica-
plötuna að komast í rekkana hjá
okkur þótt það væri mikill áhugi
fyrir plötunni og við hefðum getað
mokað henni út,“ segir starfsmað-
ur í Skífunni. Hann segir allt á
uppleið nú og Höskuldur Hös-
kuldsson hjá Senu tekur undir
það. „Þetta voru orðnar handónýt-
ar búðir þegar við tókum við þeim
um miðjan nóvember. Okkar fyrsta
verkefni var að dæla plötum í búð-
irnar því það var hreinlega ekkert
til í þeim.“
Fréttablaðið skoðaði úrvalið í
síðustu viku og var hálfdapurlegt
um að litast. Af plötunum á topp
10 í Bretlandi voru til þrír titlar,
af topp 10 í Bandaríkjunum voru
til fjórir titlar. Tímaritið Roll-
ing Stone bjó til frægan lista yfir
bestu plötur allra tíma og Skífan
átti ekki nema þrjár af tíu efstu
plötunum. Meistaraverk eins og
London Calling með Clash, Revol-
ver og Sgt. Pepper‘s með Bítlunum
og Blonde on Blonde og Highway
61 Revisited með Bob Dylan voru
ekki til. Staðan var þó aðeins betri
með innlendar plötur. Bestu plötur
Íslandssögunnar (samkvæmt kosn-
ingu í bókinni Eru ekki allir í stuði)
voru allflestar til. En Hösk uld-
ur kann skýringar á þessu. „Það
eru búin að vera jól og svo byrj-
uðu útsölurnar. Það er bara verið
að fylla á rekkana núna.“
„Minn metnaður liggur í því að
eiga allt það sem plötubúð þarf að
eiga,“ segir Halldór Gunnar Páls-
son, framkvæmdastjóri Skífunnar.
Hann gerir sér grein fyrir því að
Skífan er flaggskip íslenskra plötu-
búða. „Við erum náttúrlega bara
með ákveðið mikið pláss, en það
þarf að vera til góður „back-cata-
logue“ og líka eitthvað sem eng-
inn þekkir svo fólk geti gramsað
og uppgötvað eitthvað nýtt. Allar
gömlu íslensku plöturnar eiga að
vera til hjá okkur, það sem á annað
borð er til hjá útgefendum. Sjálf-
ur vil ég geta labbað inn í plötu-
búð og fengið Lifun, The Wall og
Sumar á Sýrlandi og þannig skal
það vera.“
drgunni@frettabladid.is
Tómlegt í plötubúðum
Í SKÍFUNNI Á LAUGAVEGI Halldór Gunnar er annar frá hægri. Lay Low vinnur ekki
lengur í búðinni.
PLATAN MEÐ DUFFY Ein af þeim þrem-
ur á breska topp 10 listanum sem var til
í Skífunni í síðustu viku.