Tíminn - 09.01.1983, Blaðsíða 19

Tíminn - 09.01.1983, Blaðsíða 19
18 SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1983 99Rauðu herdeild- íniar” hafa ruuuið skeið sitl á enda en „Byltingar-sellurnar” starfa áfram og teljast stórum hættulegri ■ Fyrir utan stúlhliðið við dómsalinn standa lögrcglumenn mcð vclbyssur. A ganginum fyrir innan scm liggur að biðherbcrgjum í kjallaranum, standa einnig lögrcglumenn með alvæpni. I einu þcssara nær galtómu hcrbcrgja sat víðfrægasti hryðjuverkamaður i l’ýska- landi á öðrum tvcggja trcstóla þar inni. Þegar móðir hans birtist skyndilcga í heimsókn stóð Christian Klar á fætur og breiddi við henni faðminn: „Hvernig líður pabha?" spurði hann. Þessi þrítugi maður, sem hér hitti móður sína í fyrsta sinn í þau sex ár sem hann hafði verið í felum, - fölur, úttaugaður og klæddur bláum fanga- klæðnaði, - hafði augljóslega gefið upp alla mótspyrnu. Það hafði þó ekki gcrst þennan umrædda miðvikudag, 24 stund- um eftir að hann var handtekinn í Sachsenwald við Hamborg. Það gerðist ekki heldur þegar honum var lcsið fyrir ákæruskjalið, sem handtaka hans var byggð á. Lestur þess tók 45 mínútur: Hann var sterklega grunaður um að hafa verið viðriðinn morðið á bankastjóran- um Júrgen Ponto, morðið á Hans Martin Schleyer og eldflaugaárás á stöðvar saksóknara ríkisins. Enn fremur var hann grunaður um að hafa átt hlut að sprengjuárás á aðalstöðvar bandaríska hersins í Ramstein, árásina á Kroesen hershöfðingja, morðið á svissneskum landamæralögreglumanni og bankarán í Darmstadt. Þessi maður, sem í sex ár hafði verið nefndur á undan öllum öðrum, þegar rætt var um „Rauðu herdeildirnar" (RAF), var þcgar búinn að vera. Þegar hann gekk í greipar lögregludeildum þeim sem handtóku hann, þá féll hann inn í gildruna sem þeir höfðu búið honum á svo auöveldan hátt að þrátt fyrir ánægjuna yfir að hafa náð honum, þótti lögrcglumönunum að sem fag- mönnum, hefði þeim hvergi veist tæki- færi til að sýna getu sína. Ríkissaksókn- arinn Kurt Rebmann segir: „Christian Klar hefur framið alveg ótrúleg glappaskot, þegar þess er gætt að eitt sinn var þetta útsmoginn hryðjuverkamaður. Eftir að lögreglunni hafði tekist að ráða dulmál RAF, þar sem merktir voru þeir staðir þar sem flokkurinn geymdi vopn sín, hefði hann aldrei átt að voga sér nærri felustaðnum við Hamborg.“ En þangað hélt Christian Klar. Hann var klæddur bláum íþróttagalla og undir honum bar hann sjálfvirka colt 45 skammbyssu, kíki og litla skóflu. En áður en hann gat byrjað að grafa höfðu lögreglumenn, sem biðu átekta í jarðbyrgjum, umkringt hann. Klar reyndi ekki að grípa til byssunnar, heldur varpaði hann sér mótspyrnulaust til jarðar og gafst upp átakalaust. Á lögreglustöðinni og á meðan verið var að flytja hann í þyrlu til Karlsruhe, sýndi hann heldur ekki neina mótspyrnu. Hann ruddi ekki úr sér neinum skömmum við lögregluþjónana, hafði ekki yfir nein slagorða RAF og steytti ekki hnefann. Hann var aðeins uppgef- inn og heillum horfinn. ■ Eftir að Klar fór i felur hefur móðir hans aldrci getað sofið án svcnlyfja. Hún kom í hcimsókn til hans í fangelsið klukkustund eftir að hann var kominn þangað. SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1983 19 ■ Christian Klar á ýmsum aldursskeið- um. Efst má líta hann á unglingsárum, þá sem róttækan stúdent í Heidelberg, næst sem eftirlýstan hryðjuverkamann og loks eftir handtökuna í nóvember sl. í jarðholu í Sachsenwald fann lögregl- an vélbyssu, riffil, tvær skammbyssur og skotvopn, auk 90 falsaðra og stolinna skilríkja. Þarna voru líka ellefu þúsund mörk í peningum. Þarna fannst og seðill þar sem skráð var dagsetning síðasta bankaráns RAF í Bochum. Sjálfur bar Klar danskan passa með nafninu Martin Barbarossa Wymand. Honum hafði verið stolið frá fóstrunni Karin Barbara Nymand á Spáni og kvennafninu breytt í karlmannsnafn. Á lögreglustöðinni í Reinbeker, sem Klar var fyrst fluttur til, gátu menn nú þetta kvöld strikað með rauðum blýanti yfir myndina af honum á auglýsingunni sem hengd var upp um allt land vegna leitar að hryðjuverkamönnunum. Fimm dögum áður höfðu þeir getað strikað út tvær aðrar myndir, - myndir þeirra Adelheid Schulz og Birgitte Monhaupt. Þær voru teknar fastar í skógi nærri Offenbach og gerðist það einmitt er þær voru á leiðinni að birgja sig upp af útbúnaði úr öðru neðanjarðarbyrgi RAF: Líkt og Christian Klar voru þær báðar í innsta hring stjórnenda RAF. Birgitte Monhaupt var talin „hug- myndafræðingur" hreyfingarinnar, en Adelheid Schulz var einskonar „stöðvar- stjóri“. Auk þess var hún lífsförunautur Christian Klar, en þau þekktust frá skólaárum í Karlsruhe. Varðhún honum samferða í felur árið 1977. „Það var ákaflega kært með þeim,“ segja þeir sem stjórnað hafa leitinni. „Undir vanalegum kringumstæðum hefðu þau tvímælalaust orðiðhjónfyrir löngu.“ Þetta hefut orðið til þess að menn leiða getum að því að þegar unnustan hafði verið handtekin, hafi Klar misst löngunina til þess að halda baráttunni áfram og kært sig kollóttan, þótt hann yrði einnig handtekinn. En einnig er uppi skýring, sem ekki er jafn rómantísk: Klar varð að fara til Hamborgar, því hann þurfti á nýjum skilríkjum og meiri peningum að halda, en án þessa hefði hann hvort eð var brátt verið handtekinn. Það var tekið að hitna f kringum RAF-hópinn. Eftir að innanríkisráð- herrann Baum hafði hækkað verðlaunin fyrir upplýsingar sem leiddu til handtöku fjögurra æðstu manna RAF í 100 þúsund mörk og lét í veðri vaka að samstarfs- menn þeirra gætu einnig hreppt þetta fé, sleit forystan sambandi við flesta hjálp- arkokka sína. Urðu fjórmenningarnir nú sjálfir að annast allar sendiferðir, útvega sér íbúðir og bíla og þó einkum peninga. Eftir að lögregla hafði fundið megin- birgðastöð RAF í skógi við Frankfurt, var nú tekið að grafa upp fleiri felustaði samtakanna. „Þar með var allt birgðaút- vegunarkerfi RAF gengið úr skorðum," segir einn leitarmanna. „Þá var ekki lengur neinnar hvíldar að vænta fyrir hópinn." Eftir sem áður lék Klar þó áfram sinn gamla leik, - vogun vinnur og vogun tapar. Eftir að hafa verið í felum í sex ár var ferill hans sem hryðjuverkamanns á enda. Eitt sinn leit út fyrir að þessi embættis- mannssonur frá Baden-Wúrtemberg mundi eiga vel heima í góðri og gildri borgarastétt, líkt og faðir hans sem er varaformaður skólaráðsins í Karlsruhe og móðir hans, sem kennir eðlisfræði og stærðfræði. Systkini hans fjögur hafa líka öll orðið nýtar manneskjur. Christian Klar var næstelstur systkina sinna og hann var góður nemandi og talinn vel gefinn. Hann hafði áhuga á líffræði og skrifaði góða stíla. í listasögu fékk hann alltaf bestu einkunn og hann málaði myndir í anda Salvador Dali. Hann lék prýðilega á gítar og var mikill dýravinur. „Hann var tilfinninganæm- astur barna minna,“ segir faðir hans „og hann var alltaf tilbúinn til hjálpar.“ En faðir hans tók einnig brátt eftir enn einu einkenni í eðli hans: Christian hafði óvanalega sterka réttlætistilfinningu, sem nálgaðist ofstæki. Þegar hann var 17 ára gamall stakk hann upp í sig sígarettu fyrir framan augu kennara sinna, til þess að mótmæla algjöru reykingabanni í menntaskólan- um sem hann var í. Hann stóð og að útgáfu skólablaðs, þar sem barist var fyrir ýmsum heimsumbótahugmyndum og var blaðið undirrót ýmissa árekstra við kennarana. Klar uppgötvaði Che Guevara og dáðist ákaflega að skæru- liðahreyfingunni í S-Ameríku, sem barðist gegn ranglátu stjórnvaldi. Þegar hann var við nám í stjómmálafræðum í Heidelberg braut hann einkum heilann um „þær breytingar sem orðið höfðu á auðvalds og heimsveldissinnaða iðn- þjóðfélaginu.“ 1972 tók hann að sjá mestu fyrirmyndir sínar í stofnendum RAF, þeim Andreas Baader og Ulriku Meinhof.“ Árið 1974 var hann í hópi þeirra sem tóku stöðvar Amnesty International í Hamborg herskildi. Þar kynntist hann og kunningjar hans, þeir Knut Folkerts og Gúnter Sonnenberg, lögfræðingnum Siegfried Haag frá Heidelberg. Talið er að Siegfried Haag hafi bent þeim á það að verulegra breytinga á þjóðfélaginu væri einkum að vænta með tilstyrk nakins ofbeldis. Stuttu eftir handtöku Haags í lok nóvember 1976 fóru þeir Klar, Folkerts og Sonnenberg í felur. Stuttu síðar skutu tveir ungir menn svissneskan landa- mæravörð við Lörrach. Lögreglan bar kennsl á mennina sem Christian Klar og Gúnter Sonnenberg. Hið blóðuga ár 1977 var ú upp runnið. Móðir Klar skildi ekkert í þeirri breytingu sem á syni hennar var orðin. Hún hafði glaðst vegna sambands eftir- , lætissonarins við Adelheid Schulz: „Aðrir ungir menn skiptu um kvenfólk eins og sokka, en Christian var ætíð tryggur og trúr.“ Móðir hans hafði iðulega heimsótt hann á stúdentaheimavistina í Heidel- berg, til þess að þvo af honum og hygla honum á annan hátt. Á skáphurðinni í herberginu hans hékk ætíð seðill þar sem skráð var áætlun þeirra lesta sem hann gat farið með heim til sín, - til móður sinnar í Ittersbach. Seðillinn bar yfirskriftina: „Lestir heim til mömmu.“ Sumarið 1976, þegar hann fór í felur, lét hann það boð út ganga í upphafi að hann væri á leið heim til móður sinnar í frf. Hún hitti hann þó í október og eldaði þá mat handa þeim syni sínum og Knut Folkerts og Gúnter Sonnenberg. Upp frá því átti frú Klar fáar áhyggjulausar stundir. Hún hefur ekki getað sofnað án svefnlyfja upp frá því. Ekki snýr hún þó baki við honum: „Hann er mér allt. Þótt hann verði dæmdur til lífstíðarfangavistar, þá mun ég ætíð standa með honum.“ Christian Klar, - var hann mömmu- drengur og ofstækismaður í senn, sem þurfti að slíta sig undan áhrifavaldi myndugleika föður síns? Þótt hann teldi sig vera að umbylta þjóðfélaginu, var hann þá ekki aðeins að leitast við að rífa sig undan borgaralegum uppruna sínum með afkáralegum aðferðum? Sál- fræðingar, sem sérhæft hafa sig í hugarheimi hryðjuverkamanna, halda því fram. Þetta getur að hluta skýrt þörfina fyrir að fremja ofbeldisverk að hætti stjórnleysingja. En sá vegur er félagar RAF völdu sér var einnig ruddur af þjóðfélagslegum öflum. Eftir 1970 gerðust Rauðu herdeildirn- ar öflugar, þótt lengi vel væri meirihluti stúdentahreyfingarinnar frá 1968 and- vígur árásarhneigð og glæpaverkum gömlu forystumannanna. Þau Ulrike Meinhof, en einnig þau Andreas Baader og Gudrun Ensslin, voru talin pólitískir leiðtogar baráttumanna gegn heimsvaldastefnunni. Þau gátu tekið inn nýja félaga í samtökin og það enn á meðan þau sátu í fangelsi. Margir álitu mikinn boðskap upp kominn, þegar RAF lét frá sér fara eftirfarandi rökfærsl- ur: „12 þúsund manns fremja sjálfsmorð á ári hverju, þar sem þau fá ekki afborið kúgun kapitalismans." Ulrike Meinhof sagði: „Auðvitað verður að skjóta.“ 1975 var gerð blóðug árás á þýska sendiráðið í Stokkhólmi. 1976 framdi Ulrike Meinhof sjálfsmorð í fangaklefa sínum í Stammheim. Mótmælafundir voru haldnir í 23 þýskum borgum eftir dauða hennar. Nýir hryðjuverkamenn komu fram á vegum RAF árið 1977. Þeir myrtu ríkissaksóknarann Buback, Ponto bankastjóra og vinnuveitandann Schleyer. Ránið á Schleyer var upphafið að endalokum RAF. Þar sem ríkisstjórn- in var treg til að láta ellefu hryðjuverka- menn lausa úr haldi í staðinn fyrir hann, tók palestínskur skæruliðahópur upp á því að ræna þotu, RAF til stuðnings, á Mallorca með þýsku ferðafólki innan- borðs. í Mogadischu frelsaði sérþjálfuð her- deild fangana og morguninn á eftir fundust þau Baader, Raspe og Gudrun Ensslin dauð' í fangaklefa sínum. Þar með var stórárás RAF á samfélagið hrundið. Glæpadeild rannsóknarlögreglunnar tók að miða æ betur áfram við eftir- grennslanir sínar og leit að hryðju- verkamönnunum og gat um síðir króað Rauðu herdeildirnar af. Vinir Klar, þeir Knut Folkers og Gúnter Sonnenberg, voru þegar fangelsaðir. Willy Peter Stoll var skotinn árið 1978. Peter Júrgen Boock gekk úr samtökunum 1980 og lýsti því yfir að hin vopnaða barátta væri „röng og heimskuleg." Þá gekk Susanne Albrecht, sem tekið hafði þátt í morðinu á Ponto, úr samtökunum. Árangurslaust reyndu þeir Klar og félagar hans að fylkja öðrum fjand- mönnum þjóðfélagsins saman í órofa fylkingu. „Skæruliðasamtök afa gamla," var það nafn sem andstæðingar kjarn- orkuvopna og hópar sem settust að í stjórnarbyggingum til mótmæla, völdu RAF hernum. Þegar fyrir þann tíma er þau Klar, Adelheid Schulz og Birgitte Monhaupt voru handtekin, var leitar- mönnum orðið Ijóst að ekki ríkti eining innan RAF. Óeining var ríkjandi á milli þeirra skæruliða sem í fangelsum sátu, þeirra sem enn voru í felum og nokkurra stuðningsmanna. „Þetta verður banabiti RAF,“ sagði einn stjórnenda leitarinnar, „því skipulagsmálin eru úr skorðum gengin og þá tekur við innri sundrung. Slíkt verður samtökunum skeinuhættara en það þótt þrír meðlimanna séu handteknir, jafnvel þótt þeir heiti Klar, Monhaupt og Schulz.“ Þar með áttu yfirvöld ekki von á fleiri skipulögðum hermdarverkum í bráð, en þau óttuðust að menn færu að hætta að óttast hópinn. „Aldrei er að vita nema einhver óhæfuverk verði framin af einstak- lingum, sem tilbúnir eru til sjálfsmorðs." En endalok RAF þýða þó ekki endalok hryðjuverkastarfseminn- ar.Glæpadeild rannsóknarlögreglunnar og ríkissaksóknarinn hafa í átta ár orðið að berjast gegn öðrum samtökum hryðjuverkamanna, sem minna eru þekkt. Þar eru meðlimirnir fleiri og starfsamari og tiltæki þeirra hættulegri en aðgerðir RAF. Um það bil 139 hryðjuverk er kunnugt um, sem þessi samtök eru talin hafa framið. Ekkert þeirra ódæða sem framin voru á árinu 1981 hafa verið upplýst. Þær skemmdir sem orðið hafa á ýmsum eignum nema minnst fjórum milljónum marka. Efna- hagsmálaráðherrann í Hessen, Heinz Herbert Karry, var myrtur og 19 Bandaríkjamenn stórslasaðir. Þegar áður en nokkur árangur varð af eltingar- leiknum við þá RAF menn sögðu yfirmenn lögreglunnar: „Byltingar-sell- urnar“ (Revolutionáren Zellen) eins og samtökin nefna sig, eru hættulegustu skæruliðasamtökin í Þýskalandi." Hér er ekki um að ræða neina sporgöngumenn RAF. Meðlimirnir eru nær alls ókunnir. Þá er ekki að líta á neinum myndum, þar sem lýst er eftir glæpamönnum og að hverju óhæfuverki loknu hverfa þeir út í buskann án þess að skilja eftir sig nein ummerki. Meira að segja sérfræðingar lögreglunnar í öryggismálum trúðu því lengi vel ekki að um skipulagða starfsemi væri að ræða. Þeir töldu að þetta væru „frí- stunda-hryðjuverkamenn.“ RAF undirbjó skipulega meiriháttar aðgerðir, en „Byltingar-sellurnar" (hér eftir nefndar BS) völdu sér minni viðfangsefni. í blaði þeirra „Reiði bylt- ingarinnar" segir að þeir einbeiti sér að „smádjöflum alþýðunnar," persónulega, svo sem verkstjórum, iðnverktökum, læknum, byggingarverktökum, húsleigj- endum og fleirum. Hver aðgerð verður að njóta samúðar alþýðunnar að þeirra sögn. Þeir gera því árásir á atvinnufyrirtæki og keppa að því að eyðileggja byggingar- vélar, krana, skrifstofur byggingaverk- taka og lagera, til þess að koma rekstrinum í örðugleika. Með öðrum athöfnum sínum hyggjast hóparnir gæða almenning nýjum skiln- ingi á réttu og röngu. Þeir dreifðu fölsuðum farmiðum strætisvagnanna í þúsundatali í Dortmund og hvöttu fólk til að svindla, stela og koma sér hjá að greiða fargjöld eða rafmagnsreikninga, með því að tengja inn á leiðslur til almannanota. Einnig lögðu þeir að mönnum að nota veikindadaga eins vel og helst væri hægt. Tilþrifamesta aðgerð BS var morðið á Heinz Herbert Karry þann 11. maí 1981. í opnu bréfi vegna þessa atburðar gagnrýndu þeir sjálfa sig nokkuð: „Dauði Karry var ekki markmið okkar, heldur var hann slys. Áætlað var að koma því til leiðar með því að hæfa hann nokkrum skotum í fæturnar að hann hreyfði sig ekki úr rúminu að sinni. Þessi aðgerð fór úr böndunum, þar sem Karry lést.“ Glæparannsóknadeildin segir að BS sé sterkasta ofbeldishreyfingin sem um er að ræða í V-Þýskalandi. Glæpaverk þeirra eru að fjölda til miklu meiri en RAF, eða „2. júní hreyfingarinnar". Þá verður að viðurkennast að BS hefur tekist að forðast nær fullkomlega allar snörur lögreglunnar. Á átta árum hefur lögreglunni tekist að handsama einn kennara, einn sálfræðing og eina banda- ríska konu sem sannast hefur að tengd voru þessum samtökum. Glæparann- sóknadeildin telur að um það bil 30 „sellur“ séu starfandi í landinu og að meðlimir séu um 150. BS félagar gegna vanalegum störfum og haa ekki átt í útistöðum við lögregl- una. Þeir hafa þvífastartekjurog byggja ekki afkomuna á bankaránum, eins og RAF og þeir hafa engar miðstöðvar í einhverjum íbúðum hér og þar. Á níunda áratugnum eru horfur á „verulegum árangri" að sögn BS manna. f leynilegu blaði þeirra, „Guerilla Diff- usa“, því eintaki sem út kom í júlí 1981, er starfsaðferðum lýst svo: „Upp rísa litlir hópar sem starfa alveg einangraðir og upp á eigin ábyrgð. Þeir vinna að skipulagningu, og framkvæmd hverrar atlögu. Þegar atlaga hefur verið gerð, bíða þeir eftir bergmálinu af hvellinum. Þeir hlusta eftir því hvort þeir hljóta lof eða last fyrir framtakið. Hver „sella“ er sjálfstæð og hefur ekki nafn, en hefur lauslegt samband við aðra hópa um reynslu þeirra. í „sellunum“ tíðkast engin embættaskipting. Af þessum or- sökum er svo erfitt fyrir lögregluna að ná taki á þeim. í áróðursblaðinu „Reiði byltingarinnar“ hælast BS félagar líka um: „Takist okkur að starfa óskipulega og haga aðgerðunum á óútreiknanlegan hátt, mun hið nákvæma kerfi glæpadeild- arinnar halda áfram að safna í kring um sig stórum stöflum af „óupplýstum málurn". í því verður öryggi okkar á níunda áratugnum fólgið." BS félagar gagnrýna RAF herinn harðlega: „Þeir eru haldnir sjúklegri löngun eftir að komast í sviðsljósið. Baráttumarkmið þeirra eru byggð á röngum forsendum." Því er ekki að undra þótt BS neiti að líta á RAF sem einhverja forystusveit. Markmið fyrstu hópanna var það að styðja menn af öðrum litarhætti en hvítum í liði Banda- ríkjanna til þess að gerast liðhlaupar. Hermenn þessir þökkuðu svo fyrir á ýmsa vegu, - til dæmis með því að útvega hjálparmönnum sínum vopn. Byssan sem varð Karry að bana var til dæmis fengin úr vopnabúri Ayers-her- búðanna við Butzbach. Félagi úr „Black Panthers" hafði stolið henni þar og fengið hana vinum sínum í hendur. Hinn frægasti allra hryðjuverka- manna, Venesúelamaðurinn Iljitsch Ramires-Saches, nefndur „Carlos'* er í miklum metum hjá BS. Þegar leitað var í íbúð Carlos í París, fundust þar fleiri hundruð flugfarseðlar að verðmæti 6 milljónir ísl. króna og voru þeir frá austurríska flugvélaginu AUA. Sér- fræðingar lögreglunnar telja að BS menn hafi útvegað Carlos miðana. Þegar Carlos flúði úr íbúðinni við Rue des Saussaies, skildi hann eftir sjö rafeindatæki til þess ætluð að hleypa af stað sprengingu. Voru þau í öllum smáatriðum cins og þau tæki sem lögreglan hafði áður fundið í íbúð í Wiesbaden. Þar fundust líka 18 kassar með handsprengjum, vélbyssum, skil- ríki, sprengiefni og hárkollur. Þetta er eina vopnabúr BS, sem fundist hefur. í aðeins eitt einasta sinn hefur glæpadeildinni tekist að fá eitthvað upp frá fyrstu hendi um skipulag og meðlimi BS. Það gerðist í júní árið 1978 að stúdentinn Hermann Feiling í Heidel- berg, kveikti af vangá í heimatilbúinni sprengju. Hann hafði í hyggju að láta sprengjuna springa í argentínska sendi- ráðinu í Múnchen. Fehling slasaðist svo voðalega að taka varð af honum báða fætur við mjaðmarlið og auk þess missti hann bæði augu. 24 stundum eftir aðgerðina á sjúkrahúsinu var hann yfirheyrður af tveimur mönnum frá glæpadeildinni og frá ríkissaksóknara. Ein tilraun lögreglunnar til þess að smeygja sér inn í raðir BS mistókst herfilega. Tveir lögreglumenn í Stuttgart blönduðu sér í hóp áheyrenda sem árið 1980 voru að fylgjast með réttarhöldum yfir hryðjuverkamönnum þar í borg. Þeir komust í kynni við 21 árs gamlan Kölnarbúa og ræddu við hann um vopnaðar aðgerðir. Sögðust þeir vilja stofna BS hóp ásamt honum. Höfðu þeir samband við piltinn í hálft ár. Lögreglu- mennirnir sem kölluðu sig „Hiller“ og „Krauth“ ræddu um að rétt væri að gera árás á skrifstofuna sem fer með höf- undarréttarmál í Köln. En pilturinn varð loks tortrygginn og sagði lögfræð- ingi einum frá þessum róttæku vinum sínum. Varð það til þess að báðir voru lögreglumennirnir Ijósmyndaðir á laun. í mars 1982 sagði Berlínarblaðið „Tageszeitung" frá öllu saman og birti myndir af „hryðjuverkamönnunum." BS hóparnir gera óspart grín að lögreglunni, sem ekki hefur orðið neitt ágengt í leitinni að þeim. í einu blaði þeirra segir: „Löggan hefur engin ráð til þess að komast að því hvernig við skipuleggjum starf okkar. Þeim þýðir ekki að setja upp nein leitartæki. Það eina sem gæti orðið okkur skeinuhætt eru grófustu mistök eða þá eitthvert bölvað óhapp.“

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.