Tíminn - 09.01.1983, Blaðsíða 13

Tíminn - 09.01.1983, Blaðsíða 13
SUNNUDAGUR 9. JANUAR 1983 13 UM GILDI SIÐFRÆÐINNAR eftir dr. Pál S. Árdal prófessor ■ í framhaldi af viðlali Hclgar-Tímans við dr. Pál S. Árdal þótti við hæfi að birta kafla úr hinni nýju bók hans „Siðferði og mannlegt eðli“ sem Hið íslenska bókmenntafélag sendi frá sér skömmu fyrir jól. Við birtum lokakafla bókarinnar „Gildi siðfræðinnar" þar sem höfundurinn dregur saman mikil- væg sjónarmið sín í heimspekilegri siðfræði. Kaflinn er birtur með góðfús- legu leyfi útgefanda . Menn hafa ekkert gagn af lestri heimspekirits nema þeir gerist heim- spekingar með höfundinum. Hann setur fram rök sem lesandinn verður að vega og meta. Hann flytur málið, lesandinn er dómarinn. Og starf dómarans er auðveldara ef málfærslan hefur verið skipuleg, og ekki hefur verið dregin fjöður yfir neinar þær stáðreyndir sem máli skipta. En dómari í rétti dæmir sakborninginn að jafnaði annaðhvort sýknan eða sekan. Hins vegar er ekki ólíklegt að siðfræðingur sé talinn hafa að einhverju leyti rétt fyrir sér þótt ekki sé hægt að gleypa allar skoðanir hans. Þannig getur siðfræðingur breytt lífsvið- horfum manna með því að vekja þá til umhugsunar um hvort lífsviðhorf þeirra eru réttlætanleg. Hann er þó ólíkur áróðursmanni að því leyti að rök eru eina vopnið sem hann hefur til umráða. Hann er eins og laxveiðimaður sem veiðir ekki í net þótt hann geti með því móti banað fleiri löxum. Allt er þetta mjög í anda Davids Hume. Mælikvarði góðs og ills býr í tilfinningum hvers og eins okkar er við höfum lært að líta á eiginleika annarra frá hlutlausu sjónar- miði. Óvinirnir sem vinna verður bug á eru þekkingarskortur og hlutdrægni. Þeir siðfræðingar sem taka sér fyrir hendur að sýna fram á hvernig matsorð hafa merkingu og hvert sé röksamband gildishugtaka, gætu vel viðurkennt að þetta sé ekki eina viðfangsefnið sem siðfræðingar geta fengizt við. Þeim er enn frjálst að reyna að grafast fyrir um það hvað endanlega gefi mannlífinu gildi, og hverjar réttlætingar gerða okkar séu gildar. Hitt er svo annað mál að málgreinendur geta gert tilkall til að hafa leitt í ljós hvað í því felst að takast slíkt á hendur. Menn sjá nú að þeir sem gera tilkall til að lýsa „hinu góða“, eins og G.E. Moore nefndi það, eru hvorki að gefa lýsingu á yfirnáttúrlegum veruleika eins og frummyndum Platons, né heldur er nauðsynlegt að telja að yfirnáttúrlegur ciginleiki hljóti að vera, sameiginlegur öllum þeim hlutum sem gildi hafa í sjálfum sér. Þegar fylgjandi nytjastefnunnar segir okkur að ánægju- tilfinningin sé ein góð í sjálfri sér, þá er hann að gefa okkur forskrift: „Ef þú vilt vera góður maður skaltu stefna að því að auka ánægjuna í heiminum sem mest.“ Þegar menn meta sannleiksgildi þessa ■spyrja þeir sjálfa sig hvort þeir geti viljað, að þeir sjálfir og allir aðrir miði líf sitt við þetta takmark. Sumum gæti þá dottið í hug að þeim sé ómögulegt að viðurkenna að okkur beri ekki að halda loforð okkar, ef augljósl virðist að meiri ánægja mundi hljótast af því að svíkja þau. Segjum að ég lofi manni á banasænginni að færa syni hans álitlega fjárfúlgu, en ég komist síðar að því að sonurinn er vellríkur iðjuleysingi sem gerði bæði sjálfum sér og öðrum lífið leitt með óhóflegu líferni sínu. Þá gæti ég hugsað sem svo að fénu væri betur varið til þess að bæta menntun efnilegra barna minna. Ég veit einn um loforð mitt, og breytni mín er því ekki líkleg til að rýra traust manna á loforðum. En þrátt fyrir þetta mundu margir segja að mér beri að standa við orð mín. Þeir geta ekki aðhyllzt skoðanir nytjastefnu- manna vegna þess að nytjastefnuviðhorf mundi hér leiða til breytni sem þeir telja ranga. Þeir hafa þá skilið kenningu nytjastefnusiðfræðings sem forskrift. Ef heimspekileg forvitni manna hefur nú vaknað við þessar þenkingar, munu þeir nú spyrja sjálfa sig: „Hvers vegna ber okkur þá að halda loforð okkar?“ Við höfum séð hér að framan að Hume taldi einungis réttlætanlegt að rjúfa loforð við mjög sérstakar aðstæður, vegna þess að gervidyggðin orðheldni sé höfuðdyggð í hverju þjóðfélagi. En jafnvel þótt menn komist að sömu niðurstöðu og brezki heimspekingurinn H.A. Prichard að eina svarið við spurningunni um réttlætingu orðheldni sé að okkur beri að standa við orð okkar af því að okkur beri að standa við þau, þá hefur þó nokkuð á unnizt. Þeir hafa nú myndað sér rökstudda skoðun. Heimspekingur telur að rökstudd skoðun sé ætíð æskilegri en blind trú, að meginmáli skipti hvers vegna við trúum því sem við trúum. Ef sálfræðingur grefst fyrir um þetta leitar hann orsaka, en heimspekingur leitar raka og vill vita hvers vegna rétt er að trúa því sem við trúum, ef rétt er að trúa því. Oft geta vísindin svarað spurningum okkar. En ekki alltaf, því að heimspekingurinn vill líka vita hvers vegna rétt er að treysta vísindunttm. Og vísindin geta ekki heldur leyst úr því hvað endanlega geft mannh'f- inu giidi, og ef til vill er þess vegna réttlætanlegt að telja þetta vandamál heimspekilegt. Að lokum er ekki úr vegi að geta þess að á síðustu tveimur áratugum hafa æ fleiri siðfræðingar snúið sér frá einbern málgreiningu að athugun á raunveru- legum siðferðilegum vandamálum í leit að rökstuddum forskriftum. Sem dæmi um slík vandamál má nefna líknardráp, fóstureyðingar og þá skyldu manna að spilla ekki umhverfi manna og dýra. Hume mundi líta með velþóknum á þessi viðfangsefni, einkum þar sem allt hjal um yfirnáttúrleg öfl og eiginleika er nú að mestu úr sögunni. Sjálfur ritaði hann um réttlætingu sjáfsntorða . skírlífi og meinlæti. Og hann taldi miklu minni mun á mönnunt og dýrum en almennt var að telja á hans dögum. Hugmvnd hans um gervidyggðir hefur einnig gert sitt til að vekja athygli nútímasiðfræð- inga á þeim flóknu venjum og hefðum sem liggja til grundvallar einstökum dyggðum og löstunt. Allt mat er fólgið í náttúrlegum viðbrögðum manna, og manneðlið breytist lítt frá einni öld til annarrar. En þar sem mannleg náttúra einkennist mjög af sveigjanleika og ímyndunarafli, þarf enginn að undrast fjölbreytnina sem sjá má í menningu, siðum og venjum frá einu þjóðfélagi til annars og einni öld til annarrar. O nokkun ••• í aö vera aö troðast inn á vini og kunningja þegar skroppið er í bæinn? Er ekki nær aö láta dekra viö sig á þægilegu hóteli, á besta staö í bænum? Vöruhússtjóri — innkaupafulltrúi Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki, óskar að ráða vöruhússtjóra og innkaupafulltrúa sem fyrst. Starfið er meðal annars fólgið í yfirstjórn á nýju vöruhúsi félagsins og erlendum og innlendum vörukaupum. Umsóknarfrestur er til 20. jan. n.k. Umsóknir, sem greini aldur, menntun og fyrri störf, sendist Ólafi Friðrikssyni, kaupfélagsstjóra, sem veitir nánari upplýsingar. SAUÐÁRKRÓKI - HOFSÓSI - VARMAHLÍÐ - FLJÓTUM Skrifstofu- húsgögn Allar gerðir Sendum um allt land. Leitið eftir verði og greiðslukjörum íslensk húsgögn inn á íslensk fyrirtæki HUSGOGN Skemmuvegi 4, Kópavogi, Sími73100

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.