Tíminn - 05.02.1983, Qupperneq 4
4
LAUGARDAGUR 5. FEBRÚAR 1983
Ódýrar bókahillur
Fyrir heimili og skrifstofur
Stærð: 184x80x30
Fást í furu, eik og bæsaðar.
Verð kr. 1.990.— án hurða
Tré- og glerhurðir fáanlegar
Húsgögn oa ,
. . . Suðurlandsbraut 18
mnrettingar simi se 900
Lausar stöður
VII Hjúkrunarfræðingar
Lausar eru stöður á eftirtöldum deildum:
DEILDARSTJÓRI B-ÁLMA
Laus til umsóknar er staöa deildarstjóra á nýrri hjúkrunardeild fyrir
aldraða í B-álmu (B-6). Umsóknarfrestur til 20. febrúar n.k.
Á sótthreinsunardeild, afleysingastaða, vinnutími 4 klst. virka daga.
Á gjörgæsludeild, full vinna, hlutavinna.
Á skurðdeild, full vinna, hlutavinna kl. 8.00-14.00 virka daga.
Á svæfingadeild, full vinna, hlutavinna.
Á skurðlækningadeild A-5, full vinna, hlutavinna.
Á lyflækningadeild A-6, full vinna, hlutavinna.
Á geðdeild A-2, full vinna, hlutavinna.
Á hjúkrunar- og endurhæfingadeild Grensás, full vinna og
hlutavinna, næturvakt.
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða til vetrarafleysinga á
spítalann. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og störf sendist
hjúkrunarforstjóra. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu
hjúkrunarforstjóra í sima 81200.
Sérstök athygli er vakin á því að Borgarspítalinn býður
hjúkrunarfræðingum, sem ekki hafa verið í starfi undanfarin ár
upp á 3ja vikna starfsþjálfun. Laun verða greidd á starfsþjálfun-
artíma.
SÉRFRÆÐINGUR í LUNGNALYFLÆKNINGUM
Staða sérfræðings i lungnalækningum við lyflækningadeild Borgar-
spítalans er laus til umsóknar. Staðan er hlutastaða (75%) og henni
fylgir ákveðin kennslukvöð.
Staðan veitist frá 1. júní n.k. eða eftir samkomulagi. Upplýsingar um
stöðuna veitir yfirlæknir lyflækningadeildar Borgarspítalans. Umsókn-
ir um stöðuna, ásamt upplýsingum um námsferil og fyrri störf, sendist
til stjórnar sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar fyrir 6. mars n.k.
Reykjavík, 4. febr. 1983
Borgarspítalinn
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 70., 77. og 83. tbl. Lögbirtingablaðsins 1982 á
Kveldúlfsgötu 18 1. hæð t.h. Borgarnesi þinglesinni eign stjórnar
Verkamannabústaða Borgarnesi fer fram að kröfu Veðdeildar
Landsbanka íslands ofl. á eigninni sjálfri fimmtudaginn 10. febr. 1983
kl. 15.00.
Sýslumaður Mýra og Borgarfjarðarsýslu.
Rafvirki
Viljum ráða rafvirkja strax.
Upplýsingar gefur Ólafur Ólafsson kaupfélags-
stjóri sími 99-8121.
Kaupfélag Rangæinga.
fréttir
Fullbúin tannlækningastofa bídur
á Dalvík — en tannlæknir fæst enginn:
,,Til skammar fyrir tannlæknastéttina”
— segir Hjörtur E. Þórarinsson á Tjörn
SVARFAÐARDALUR:„Við bjóð-
um upp á góða aðstöðu í glænýrri
heilsugæslustöð og meira en næg
verkefni. En þrátt fyrir ítarlegar til-
raunir ráðamanna hcr mánuðum sam-
an hefur ekki tekist að fá hingað
tannlækni. Það er eins og þessir
háskólaborgarar okkar geti ekki hugs-
að sér að deila kjörum með almenningi
út um byggðir þessa lands", sagði
Hjörtur E. Þórarinsson á Tjörn í
Svarfaðardal, sem ásamt fleirum
norður þar er orðið þungt í skapi yfir
því að gcta með engu móti fengið
tannlækni til þjónustu í stóru lækni-
shéraði.
- Geta menn láð okkur þótt við
séum sárir og reiðir að geta ekki - þótt
nóg sé af tannlæknum í landinu -
fundið einn einasta sem er fús til að
starfa hér meðal okkar, þótt gull sé í
boði. Ekki þyrfti hann að óttast
verkefnaskort, því hér eru um 2000
manns í læknishéraðinu og um 3000
manns á Ólafsfirði þar sem líka er
tannlæknislaust. Okkur þykir það
óþarfa viðbótarkostnaður og mikil
fyrirhöfn að þurfa að aka 100 kíló-
metra til Akureyrar þurfi að láta bora
í holu í barnstönn. Raunar tel ég það
tilháborinnarskammarfyrirtannlækn-
astéttina að láta þetta viðgangast. En
það er eins og þeim finnist hvergi
búandi nema í höfuðborginni - aðrir
landsmenn megi því eiga sig.
Hjörtur sagði tannlækni hafa starfað
á Dalvík samfleytt í um 20 ár, en sá
síðari þeirra hafi flutt til Selfoss s.l.
vor. Bæjarstjórnini hafi keypt af
honum ný og ágæt tæki sem komið hafi
verið fyrir í góðri tannlæknastofu sem
innréttuð var í nýrri heilsugæslustöð á
staðnum. „Þar hafa þau síðan staðið -
vantar ekkert nema manninn til að
stjórna þeim“, sagði Hjörtur. Hann
kvaðst nýlega búinn að spyrja bæjar-
stjórann hvort eitthvað væri að rætast
úr þessu, en svarið hafi veri „því miður
sama sorgarsagan". Einhverjar vonir
sem hann hafði um tíma hefðu
brugðist.
-HEI
■ Þegar 5 aura snúðar voru í boði léf unga Eyjakynslóðin sér ekki happ úr
hendi sleppa - jafnvel þótf það kostaði 2ja klukkutíma bið.
Magnúsarbakarí íEyjum 60 ára
,Þetta var al-
veg ævintýri”
Soffanías
sendi hreppn-
um mats-
kostnaðinn
GRUNDARFJÖRÐUR:Eitt af þeim
málum sern lá fyrir síðasta hrepps-
nefndarfundi í Grundarfirði var bréf
frá Soffaníasi Cecilssyni, útgerðar-
manni ásamt 14.500 kr. peningaupp-
hæð. Fulltrúar Alþýðubandalagsins í
hreppsnefndinni höfnuði endanlega í
janúar tilboði frá Soffaníasi um kaup
á húsi hans fyrir væntanlegt elliheimili
á þeim kjörum að helmingur húsverðs-
ins - eftir mati - væri greiddur en hinn
helminginn fengi hreppurinn gefins,
eins og komið hefur fram. Fyrir
úttektina á húsinu hafði hreppurinn
greitt 14.500 krónur. í bréfi Soffanías-
ar kveður hann það aldrei hafa verið
hugmynd sína að sveitarfélagið bæri
kostnað af þessu tilboði sínu og því
sendi hann upphæðina - 14.500 kr. -
með bréfinu.
Um svipað leyti og tilboði Soffanías-
ar var hafnað var stofnað sjálfseignar-
félag um rekstur dvalarheimilis aldr-
aðra í Grundarfirði. Hyggst það fara
af stað mcð nýbyggingu væntanlegs
dvalarheimilis. Fyrir sama hrepps-
nefndarfundi lá einnig bréf frá félaginu
þar sem leitað er svara við því hvað
sveitarfélagið vilji fyrir það gera varð-
andi fjárvcitingar á þeirri fjárhagsáætl-
un sem unnið er að fyrir árið 1983.
-HEI
VESTMANNAEYJAR:„Þetta var al-
veg ævintýri. Við vorum búnir að baka
einhver reiðinar ósköp, en það hrein-
lega fauk út á innan við klukkutíma.
Já, og svo var bara allt tómt - við
stóðum bara og hlógum”, sagði Andrés
Sigmundsson, bakari í Magnúsarbak-
aríi í Vestmannaeyjum. En Magnúsar-
bakarí hélt upp á 60 ára afmæli sitt
með nokkuð skemmtilegum hætti á 10
ára gosaamælinu - sunnudaginn 23.
janúar s.l.
- Við seldum eftir verðlista frá árinu
1923. Rjómakökurnar kostuðu t.d. 23
aura og snúðarnir 5. aura. (samt hefur
krónan verið minnkuð hundraðfalt
síðan) Þótt ekki ætti að opna fyrr en
kl. tvö eftir hádegi voru krakkarnir
farnir að bíða strax um hádegi. Um
leið og við opnuðum fylltist allt svo við
réðum eiginlega ekki neitt við neitt.
Það er t.d. stórt og þungt kæliborð
þarna inni, en það fór á fleygiferð
undan þrýstingnum af fólkinu. Þetta
var hreint ótrúlegt, sagði Andrés. Var
auðheyrt að han hafði þó haft gaman
af þessu „ævintýri" og væntanlega þeir
sem fyrstir komust í 23ja aura rjóma-
kökurnar.
-HEI
Safnað fyrir Patreksfirdinga íEyjum:
„Ekki vegna upphæðar-
innar heldur hjartans”
VESTMANNAEYJAR:„Ekki vegna
upphæðarinnar, heldur hjartans. Við
skorum á alla samborgara okkar -
Fyllurn nú bæjarleikhúsið einu sinni
ærlega", sagði í auglýsingu Leikfélags
Vestmannaeyja í síðustu viku, um
fjáröflunarsýningu á leikritinu Eldfær-
unum til stuðnings heimilislausum á
Patreksfirði.
„Við fylltum húsið", sagði Unnur
Guðjónsdóttir leikkona í Eyjum er við
spurðum hana um árangurinn. „Við
vorum búin að hafa 8 sýningar og þetta
var bara aukasýning. Við seldum á 100
kr. miðann, en fólk tók rækilega við
sér. Sumir t.d. sem keyptu 2 eða 3
miða vildu ekki taka til baka af 500
krónunt. Það var líka fólk úti í bæ sem
búið var að sjá sýninguna, en sendi
okkur peninga í staðinn.
Seldir miðar þarna niðurfrá voru
fyrir rúmar 21.500 krónur, en síðan
borguðum við leikararnir okkur inn
með mismunandi háum upphæðum og
auk þess bættist við það sem fólk sendi
utan úr bæ'\ sagði Unnur.
Og þetta er ennþá að koma. Ég var
t.d. beðin fyrir 500 kr. frá einni konu
og 100 kr. frá annarri. Ég veit líka að
verið er að safna á netaverkstæðinu
þar sem maðurinn minn vinnur.
Drengur kom líka til mín í gær og bað
um eitthvað á tombólu. „Við ætlum að
safna fyrir þá á Patreksfirði", sagði
hann. Þetta er um allt í bænum.
„Já, það er hugsað til Patreksfirð-
inga hér - enda okkur málið skylt. Við
erum sjálf búin að lenda í þessu, þótt
ekki hafi það verið eins slæmt því hér
töpuðust þó ekki mannslíf. Við vitum
að það er ekki endilega upphæðin sem
mestu skiptir. heldur hugurinn að
baki, sem maður metur", sagði Unnur.
-HEI