Tíminn - 05.02.1983, Blaðsíða 20
Opið virka daga
9-19.
Laugardaga 10-16
H
HEDD
Skemmuvegi 20 Kopavogi
Simar (91)7 75-51 & 7 80 30
Varahlutir
Mikiö úrval
Sendum um land allt
Ábyrgö á öllu
Kaupum nýlega
bíla til niðurrifs
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
.1
---------abriel
HÖGGDEYFAR
GJvarahlutir Sf'
Lögreglumadur slasaðist í átökum vid 60 unglinga á Hlemmi:
ST1INGU LOGANM StGARETTUM
(BAMD A LðGREGLUMðNNUNUM
— átökin virðast hafa verið skipulögð. Kannað er samband milli þeirra
og handtöku þriggja ungmenna sem voru að höndla með valíum-
töflur á Hlemmi um klukkutíma áður en átökin áttu sér stað
■ Einn lögreglumaður slasaö-
ist er tæplega 60 manna hópur
ungmenna á aldrinum 14 til 20
ára efndu til óeirða í biðskýlinu
á Hlemmi í fyrrakvöld. Þeir
lögreglumenn sem fyrstir komu
á vettvang lentu í alvariegum
átökum við hópinn og var spark-
að hvað eftir annað í höfuð og
andlit lögreglumanns þess sem
slasaðist. Meiðsli hans eru ekki
alvarleg og mætti hann til vinriu
í gær. Allt tiltækt lið sem til
staðar var á vakt á lögreglustöð-
inni, um 10 manns var kallað út
en auk þess hjálpuðu til við að
hafa hemil á hópnum og hand-
taka þá er verst létu strætisvagn-
astjórar þeir er lausir voru svo
og fullorðið fólk sem statt var í
skýlinu.
Að sögn Guðmundar Her-
mannssonar hjá Rannsóknar-
deild Reykjavíkurlögreglunnar
beittu unglingarnir m.a. logandi
sígarettum og stungu þeim í bak
þeirra lögreglumanna sem
reyndu að stilla til friðar þannig
að einkennisbúningar þeirra eru
stórskemmdir.
Það tók nokkurn tíma að ráða
niðurlögum unglinganna en svo
virtist sem óeirðirnar hafi verið
skipulagðar. Forsprakkar þeirra,
þrír unglingar 15, 16 og 19 ára
gamlir hafa áður komið við sögu
lögrcglunnar, en þeir tóku ung-
art lögreglumann í Breiðholti
í íyrra og börðu með þeim
afleiðingum m.a. að hann nef-
brotnaði.
Guðmundur sagði að klukku-
tíma áður en til óeirðanna kom
hafi lögreglumaður á gangi um
Hlemm tekið eftir því að þrjú
ungmenni, ein stúlka og tveir
piltar, voru að höndla með
valíumtöflur á Hlemmi. Hann
tók þá á stöðina og krafði þau
um skýringar en töflurnar voru í
ómerktum glösum. Skömmu síð-
ar kom í Ijós að brotist hafði
verið inn í Austurbæjarapótek
og þessum töflum stolið. Lög-
reglumaðurinn fékk engar
skýringar og var ungmennunum
stungið inn.
„Nú er ekki þar með sagt að
hópurinn hafi vitað um þesa
handtöku rétt áður en uppþotin
hófust en óneitanlega læðist sá
grunur að manni og að þarna
hafi veirð um hefndaraðgerðir
að ræða. Þetta er mál sem verður
að kanna“ sagði Guðmundur.
Hann sagði að málinu hefði
svo verið vísað til Rannsóknar-
lögreglunnar enda hefðu for-
sprakkarnir haft uppi ýmsar al-
varlegar hótanir svo sem morð-
hótanir gegn lögreglunni og að-
standendum lögreglumannanna.
Þórir Oddson vararannsókn-
arlögreglustjóri ríkisins sagði í
samtali við Tímann að rannsókn
þessa máls væri í fullum gangi en
að hún væri það skammt á veg
komin enn að ekki væri hægt
að greina frá henni.
-FRI
AlvarSeg
matar-
eitrunar-
tilfelli í
Húna-
vatns-
sýslu
■ Alvarleg matareitrun kom
upp á bæ í Húnavatnssýslum í
fyrradag og var um að ræða
svonefnda Botulin eitrun, sem
veldur lömun tauga er stjórna
augnhreyfingum , kyngingu,
tali og öndun. Liggja tveir
sjúklingar nú á sjúkrahúsi í
Reykjavík af þessum sökum.
Ólafur Ólafsson, landlækn-
ir, sagði í viðtali við blaðið í
gær að þessi eitrun væri mjög
sjaldgæf og að í fæstum tilvik-
um væri unnt að grafast fyrir
um orsakir. Slík eitrun var að
sögn Ólafs síðast geind árið
1981 hér á landi, er fimrn
manns i Skagafirði sýktust.
Miililandavél Flugleida fór
frá Akureyri með 104 laus
sæti:
Nær tvöhundruð
manns biðu flugs
— mikill hiti f fólki á Akur-
eyri vegna þessa
■ Mikill hiti er nú í fólki á
Akureyri vegna þess að þegar
Boeing 727-200 þota Flugleiða,
sem þurfti að lenda á Akureyri
vegna veðurs í Keflavík, fór
aftur suður var hún með 104 sæti
laus en á Akureyri bíða nú fjórar
fullbókaðar vélar flugs, eða nær
tvö hundruð manns.
Að sögn Sveins Kristinssonar
umdæmisstjóra Flugleiða á
Akureyri var ekki hægt að taka
farþega í lausu sætin vegna þess
að þá hefði þurft að taka inn
farangur þeirra 60 manna sem
voru með vélinni og tollskoða
hann, vélin væri síðan komin í
innanlandsflug og því ekki
mögulegt fyrir farþega hennar
að fá fríhafnarafgreiðslu.FRI/g.k.
■ í fyrrakvöld sendi óútreiknanleg forsjónin Reykvikingum
dágóða dembu af snjó, sem svo tók til að bráðna ákaft í gær. Víða
þurftu ökumenn því að stefna bflum sínum út á víðáttumikil
stöðuvötn sem mynduðust hér og þar um bæinn. (Tímam Róbert)
Oánægðir framsóknarmenn í norðurlandi
Ihuga möguleika á sérframboði
■ „Við erum fjölmargir framsókn-
armcnn hér í Húsavatnssýslunum,
sem erum það óánægðir með niður-
stöðurnar í skoðanakönnuninni á
kjördæmisþingi Framsóknarflokks-
ins í Miðgarði um síðustu helgi, að
við erum að kanna áhuganna og
möguleikana sem við hefðum ef við
ákvæðum að vera með sérframboð
í næstu alþingiskosningum," sagði
Gunnar Richardsson, formaður
Framsóknarfélagsins á Blönduósi í
samtali við Tímann í gær.
Ástæðuna sagði Gunnar fyrst og
fremst vera óánægju með að Páll
Pétursson skipaði efsta sætið. Þessir
óánægðu framsóknarmenn munu
nú um helgina funda bæði á
Blönduósi og í vestur-sýslunni að
sögn Gunnars. -ab
Um ÍOO manns þurftu að
gista f Bláfjöllum vegna
óveöursins:
„Neyðarástand
ef nýi skál-
inn hefði ekki
verið kominn”
■ „Þetta kom geysilega snöggt
yfir en við áttum von á því og
þetta bjargaðist. Allir komust í
hús eða rútur. Ég vil taka það
fram að ef nýi skálinn hafði ekki
verið þá hefði skapast neyðarást-
and“ sagði Víðir Jónasson verk-
stjóri í Bláfjöllum í samtali við
Tímann en fjölmennur hópur
skíðafólks varð að láta fyrirber-
ast í Bláfjöllum í fyrrinótt vegna
óveðurs sem skall óvænt á.
Síðasta fólkið fór úr Bláfj-
öllum í gærmorgun en Víðir
áætlaði að alls um 100 manns
hefðu orðið að gista hjá þeim.
Hann sagði að tvær rútur
hefðu verið farnar áleiðis til
Reykjavíkur. Rúturnar voru
með um 70 krakka innanborðs
og urðu þær stopp við Rauð-
uhnjúka í um 8 km. fjarlægð frá
Bláfjallasvæðinu og biðu þær
þar þar til veðrinu slotaði. Kom
sá hópurinn í bæinn um 6 leytið
um morguninn.
„Við þurftum að hjálpa fólki
úr smábílum hér og inn í skálann
eða í rútur en veðrið varð svo
slæmt að við gátum undir lokin
ekki einu sinni hreyft snjótroðar-
ann hjá okkur“ sagði Víðir.
Nokkur hópur fólks varð að
láta fyrirberast í Hveradölum.
Að sögn Helga Hermannssonar
í Hveradölum þá tók fólkið að
berast inn upp úr kl. 2 um
nóttina. Alls leituðu 16 manns
undan veðrinu til þeirra í Hver-
adölum.
FRI
dropar
„Þessi stóru
sjóslys...“
■ Kosningahitinn er farinn
að færast í líf og taugar margra
í kring um prófkjörin, enda
hafa þau verið fyrirferðarmikil
í ijölmiðlum að undanförnu og
myndir frambjóðenda fyllt
heilar síður í dagblöðum.
Af því tilefni riljum við hér
upp gamla sögu af aldinni
heiðurskonu í sveit, sem nokk-
uð var farin að tapa sjón, en
reyndi þó að fyigjast mcð
þjóðmálum eftir sem áður í
dagblöðum. Var hún áköf
sjálfstæðiskona og las ísafold
og Vörð reglulega. Nokkru
fyrir kosningar barst henni
blaðið í hendur og var þá öli
forsíða þess lögð undir myndir
af frambjóðendum. Sú gamla
sá ekki glöggt hvað þama var
á ferðinni en sagði stundarhátt
og andvarpaði um leið:
„AUtaf em þau jafn hræði-
leg þessi stóru sjóslys!“
„Ógnað af
stórveldi“
■ Garðar Sigurðsson alþing-
ismaður Alþýðubandalagsins
greiddi atkvæði sitt með þvi að
banninu við hvalveiðum yrði
ekki mótmælt, er málið kom
til atkvæðagreiðslu á Alþingi.
Garðar gerði jafnframt grein
fyrir atkvæði sínu, og var
greinagerð hans einhvernveg-
inn á þessa leið: Hann sagði að
það væri Ijóst að ekki væri hér
um náttúruverndarmál að
ræða, hins vegar væri íslend-
ingum ógnað af stórveldi og
viðskiptahagsmunir væru svo
miklir í veði, að hann nauðugur
sæi sér ekki annað fært en
mótmæla því að banninu væri
mótmælt. Er það furða þótt
menn velti þvi nú fyrir sér,
hvað Garðar og aðrir allahallar
segðu í hersetumálum, ef þeir
hefðu aðstöðu til þess að segja
þar af eða á um hvort herinn
væri áfram í landinu? Myndi
þá nægja eitt bréf eða svo frá
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna eða aðstoðarmanni hans
V |"i um það að markaðir íslendinga
í Bandaríkjunum væru í hættu,
ef að herinn fengi ekki að vera
í friði á Miðnesheiðinni?
Krummi ...
...sér að mörgum er farið að
þykja nóg um rafmagnsreikn-
ingana hans Hjörleifs!