Tíminn - 10.02.1983, Qupperneq 1

Tíminn - 10.02.1983, Qupperneq 1
o * Sársauki eða svefn — sjá leikdóm llluga Jökulssonar bls. 13 O 3 C FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Fimmtudagur 10. febrúar 1983 32. tölublað - 67. árgangur Einnig ágreiningur í þingflokki Alþýðubandalagsins um kjördæmamálið: y „ER EKKI REWUBUINN AD SAMÞYKKJA ÞESSI DRÖG” segir Ragnar Arnaids fjármálaráðherra um samkomulagsdrögin ■ „Ég hef mjög alvarlegar athugasemdir að gera við þessi drög sem voru rædd núna um helgina og er ekki reiðubúinn að samþykkja þau og það gildir raunar um minn flokk líka,“ svaraði Ragnar Amalds, fjár- málaráðherra spurningu okkar um það hvort hann og Alþýðu- bandalagið væra sátt við þau frumvarpsdrög sem fyrir liggja í kjördæmamálinu. - Vankantamir eru í fyrsta lagi þeir, að í þessari síðustu útgáfu er gert ráð fyrir þessari „niðurskotaaðferð“. I t.d. 5 manna kjördæmum úti á landi þá gildir ekki niðurstaða kosn- inganna í kjördæminu um það hverjir eru kosnir, heldur er opnað fyrir það að 5. maðurinn geti komið til flokksins sem alls ekki hefur unnið fyrir því í kosningunum í viðkomandi kjör- dæmi, þ.e. kosningíkjördæminu er ekki látin ráða. Þetta getur t.d. komið þannig út, að einn flokkur með 2.000 atkvæði fái 1 þingmann en annar flokkur með 1.000 atkvæði fái 2 þingmenn, vegna þess að kosningin í kjör- dæminu er ekki látin gilda, getur stærri flokkurinn þannig fengið 1 þingmann en sá minni 2 þingmenn. Þetta er bein afleið- ing af því menn ganga svo langt, að það er ekki aðeins verið að færa uppbótarþingmennina hingað suður, heldur er raun- verulega verið að fækka þeim þingmönnum í kjördæmunum úti á landi, sem kjósendur í viðkomandi kjördæmum eiga að kjósa. í raun og veru má orða þessa tilllögu sem verið var að ræða um nú um helgina á annan veg, þ.e.a.s. að samkvæmt henni er verið að fækka kjördæmakosn- um mönnum, niður í fjóra í kjördæmunum út um land og síðar er einn uppbótarmaður. Ég hef hins vegar talið það grundvallaratriði í samkomulagi flokkanna að kjördæmakosnu mennirnir í fámennustu kjör- dæmunum væru að minnsta kosti 5 og við höfum bundið okkur við það sagði Ragnar. Aðspurður kvað hann alveg Ijóst að ekki væri samstaða í flokkunum um þessa tillögu þótt skrifað hafi verið um það í blöð. Á fundi þingflokks og fram- kvæmdastjórnar Alþýðubanda- lagsins í fyrradag hafi þessi útgáfa verið hárðlega gagnrýnd. „Og niðurstaðan varð sú, að við héldum okkur fast við fyrri hugmyndir um að láta kosning- arnar gilda í kjördæmunum. Við höfum aftur á móti bent á aðra leið sem gefur alveg sömu niður- stöðu hvað snertir flokkajafn- vægi og búsetuhlutföll, en er án þessara vankanta sem við sjáum á þessari síðustu útgáfu, sem eru fleiri en ég hef þegar nefnt,“ sagði Ragnar. Flkniefna- lögreglan: Umfangs- mikid fíkniefna- mál í rannsókn ■ Fíkniefnalögreglan er nú með til rannsóknar nokkuð umfangsmikið fíknicfnamis- ferli sem snýst um innflutning á talsvert ntiklu magni af fíkniefnum, aðallega kanna- bisefnum. Að sögn Gísla Björnssonar hjá fíkniefnalögreglunni hefur gæsluvarðháld yfir einum aðila verið framlengt um 15 daga en hann hcfur setið inni undan- farna viku vegna málsins. Enn- fremur var gerð krafa um gæsluvarðhald yfir öðrum aðila sem tcngist þessu máli. DEILT UM DYRA LAX- VEIÐIFERÐ Á ÍSLANDI ■ Hríðarveður skall á vestur- og norðurland í gærmorgun og varð að aflýsa skólum á Sauð- árkróki í yngstu deildunum. Veðrið skall á á Sauðárkróki um 10 leytið og stóð fram yfir hádegi. Á Akurcyri skall hann á um kl. 11.30 og var dimmviðri með blindbyl í nær tvær klukku- stundir. Þar vora svo éljabyljir fram eflir deginum. Austar, svo sem á Húsavík, urðu menn minna varir við vcðurapp- hiaupið, en þar var hins vegar versta veður nú fyrir síðustu helgi. Myndin hér að ofan var tekin á Húsavik. (Tíraamynd — Þröstur) -A.M. ■ „Stjórnarfundir í Norræna menningarmálasjóðnum eru haldnir einu sinni á ári í aðildar- löndum sjóðsins og það þykir hlýða að hafa einhverja risnu, halda fulltrúum í stjórninni veislu eða eitthvað í þeim dúr. Stjómarfundur var haldinn hér á landi, að Bifröst í Borgarfirði, að mig minnir í júlí 1981, og í stað þess að bjóða til hádegis eða kvöldverðar var ákveðið að bjóða í laxveiði í Norðurá sagði Birgir Thorlacius ráðuneytis- stjóri og annar fulltrúi íslands í stjórn Norræna menningarmála- sjóðsins í gær í samtali við Tímann. I hádegisfréttum út- varpsins í gær var sagt frá athugasemdum endurskoðenda vegna þessarar veiðiferðar en þeim þótti hún nokkuð dýr. „Það er danska ríkisendur- skoðunin sem sér um endur- skoðun á reikningum menning- armálasjóðsins og þeir segja í athugasemdum sínum að þeir telji ekki ráðlegt að svo mikið sé viðhaft í framtíðinni varðandi risnu fyrir stjórnarmenn,“ sagði Birgir. Hann sagði að mennta- málaráðuneytið hefði borið hluta kostnaðarins af veiðiferð- inni á móti sjóðnum sjálfum, en endurskoðendum hefði eigi að siður vaxið kostnaðurinn í aug- um. JGK Gísli vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið þar sem rannsókn þess væri ckki að fullu lokið. FRl Málflutn- ingur í skaða- bótamáii fjórmenn- inganna ■ Málflutniogur vegna bóta- krafa fjögurra einstaklinga vegna frelsisskeröingar þeirra meðan á rannsókn stóð í hinu svonefnda Geirfinnsmáli, hófst í Hæstarétti i gærmorgun. Krefst ríkissjóður þess að bætur fjórmenningunum til handa verði lækkaðar verulega frá því sem ákvcðið var í héraðsdómi sem upp var kveð- inn í lok apríl árið 1980. Það er fjármálaráðherra fyr- ir hönd .ríkissjóðs og ríkissak- sóknara scm er atytláfrýjandi skaðabótamálanna fyrir Hæstarétti. Gagnáfrýjendur eru Einar.Bollason, Valdimar Olsen, Magnús Leopoldsson og Sigurbjöm Eiríksson. Þrír þeirfyrstnefndu sá tu í varðhaldi t 105 daga að ósekju, en Sigurbjöm í 90 daga. Fréttaritari Tímans fylgdist nteð málflutningnum í gær og er frásögn hans að finna á blaðsíðu 3 í blaðinu í dag.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.