Tíminn - 10.02.1983, Blaðsíða 5

Tíminn - 10.02.1983, Blaðsíða 5
Saltvinnsla ad hefjast: llla gengur að selja hlutabréf Stefnt að 8 þúsund tonna framleiðslugetu í ár ■ Um miðjan þennan mánuð hefst framleiðsla salts í Sjóefnavinslunni á Reykjanesi. Til að byrja með verður framleiðslan 5 tonn á dag, en í árslok er stefnt að þvi að framleiðslan verði sem nemur 8 þúsund tonnum á ári. I lok ársins verður einnig tekinn í notkun gufuhverfill til raforkuframleiðslu. Þetta kom fram í svari Hjörleifs Guttormssonar iðnaðarráðherra við fyrirspurn frá Karli Steinari Guðnasyni um sjóefnavinnsluna h.f. Síðar á árinu verður einnig farið að framleiða svokallað fínsalt og verður byrjunarframleiðslan á því sem nemur 2 þúsund tonnum á ári. Næsta ár hefst síðan framleiðsla á fleiri salttegundum. Þegar verksmiðjan verður fullbúin verð- ur framleiðslugetan 40 þúsund tonn af salti á ári. Um áramótin 1981-’82 var farin aug- lýsingarherferð til að safna hlutafé til verksmiðjunnar. Iðnaðarráðherra skýrði svo frá að safnast hafi 1. millj. kr. frá sveitarfélögum, tæp 170 þús. kr. frá einstaklingum og 105 þús. kr. frá félagasamtökum. Auglýsingaherferðin kostaði rúml. 90 þús. kr. Á þessu ári verður varið 30 millj. kr. til verksmiðj- unnar, en áætlaður kostnaður við 8 þús. tonna verksmiðju er 85.8 millj. kr. en með fínsaltsdeild verður kostnaðurinn 150 millj. kr. Iðnaðarráðherra taldi að engin vand- kvæði væru á að selja allt það grófsalt sem verksmiðjan kemur til með að framleiða. Karl Steinar kvað vafasamt að sveitar- félög hefðu áhuga á að leggja mikið fé í verksmiðjuna og væru allar upplýsingar frá stjórn fyrirtækisins í bjartsýnasta lagi. Hann kvað það enga von að fiskverkendur keyptu dýrara salt sem framleitt er innanlands en ódýrara frá útlöndum. Hann sagði það álitið dýrara að flytja salt milli verksmiðjunnar á Reykjanesi og Þorlákshafnar en að flytja sams konar vöru frá Spáni. Hjörleifur sagði að sveitarfélög og einkaaðilar hafi ekki lagt fram það fé til verksmiðjunnar sem vonast var eftir og um nýiðnað sem þennan væri aldrei 100% vissa um hvernig til tækist með framleiðslu og markaði, en reynt væri að vanda undirbúning eins vel og kostur væri á. Husavik? Viö eigum nánast allt sem þú þarfnast til húsbygginga, jafnt áhöld sem efni. Pr byggingarvömr Husavík. Sírni (96) 41444 Samvinnuferðir-Landsýn kynna sumaráætlun: SUMARHÚS í H0LLANDI og Vmis afslAttarkjör ■ í gær kynntu Samvinnuferðir-Land- sýn sumaráætlanir sínar og kom þar frara að gert er ráð fyrir hliðstæðum Qölda farþega á næsta sumri og s.l. sumar. Erfiðari efnahag margra verður hins vegar mætt með ýmis konar hagræðingu, nýjum greiðslukjörum og afsláttarmöguleikum að því er fram kom á fundinum. Sögðu forráðamenn ferða- skrifstofunnar að með því að hagnýta sér alla möguleika til afsláttar gæti fjögurra manna fjölskylda hæglega lækkað ferða- kostnað sinn um fjórðung. Helsta nýjung hjá Samvinnuferðum- Landsýn í sumar er að skrifstofan efnir til vikulegra ferða til sumarhúsa í Hollandi, nánar tiltekið í þorpinu Eem- hof sem er rétt hjá Amsterdam. Húsin eru ný, og þar er fullkomin aðstaða, - inni- og úti sundlaugar, ljósaböð, nudd- pottar saunaklefar og fleira tilheyrandi. Vikuferð í sumar kostar frá 7.600 fyrir fullorðna og um páskana verðúr boðið upp á sérstakar kynningarferðir til Hollands fyrir kr. 5.800 fyrir fullorðna. Hinir ýmsu afsláttar möguleikar koma jafnt til greina í Hollandsferðunum sem öðrum. Eins og undanfarin sumur halda Samvinnuferðir Landsýn uppi ferðum til Rimini á Italíu, Portoroz í Júgóslavíu, Grikklands og Danmerkur þar sem viðskiptavinir eiga kost á að leigja sumarhús. Ýmsir fleiri möguleikar eru fyrir hendi varðandi ferðir á vegum Sam- vinnuferð-Landsýnar, t.d. til Sovétríkj- anna, Flórída, Hawai o.s.frv. Þá verður boðið upp á leiguflug til Toronto og rútuferðir um mið-Evrópu. Aðildarfélög Samvinnuferða-Land- sýnar eru m.a. ASÍ, BSRB, BHM, Landsamband íslenskra samvinnustarfs- manna, Stéttarsamband bænda og Sam- band íslenskra bankamanna. Allir sem á einhvern hátt eru tengdir þessum félags- samtökum fá aðildarfélagsafslátt er gild- ir fyrir alla fjölskyldu viðkomandi. Nemur hann 1.200 krónum fyrir full- orðna og kr. 600 fyrir börn. Einnig á fólk kost á 5% staðgreiðsluafslætti ef greitt er að fullu a.m.k. hálfum mánuði fyrir brottför. Landsbyggðarfólk fær ókeypis flug til og frá Reykjavík í tengslum við utanlandsferðirnar og einn- ig er fólki gefinn kostur á sérstökum lafborgunum sem dreifa kostnaði á langan tíma. ■ Eysteinn Helgason forstjóri og Helgi Jóhannsson sölustjóri kynna sumaráætl- un Samvinnuferða-Landsýnar (Tímamynd Róbert) Ævintýraheimurinn ★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★☆★ Erum með: VHS - og 2000 með ogántexta VIDEOSPORT Miðbæ Háaleitisbraut 58-60 Sími 33460. Opiðalladaga kl. 13.00-23.00

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.