Tíminn - 10.02.1983, Qupperneq 9

Tíminn - 10.02.1983, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1983. 9 á vettvangi dagsins Olafur R. Dýrmundsson: Horfur f búnað arframleiðslu ■ í fyrri hluta þessa pistils voru kynnt nokkur veigamikil atriði úr nýútkominni skýrslu Búfjárræktarsambands Evrópu, varðandi nautgriparækt og sauðfjárrækt, en þar kom fram að erfiðari tímar virðast framundan að ýmsu leyti. Hér verður þráðurinn tekinn upp aftur og drepið á stöðu og horfur í öðrum búgreinum. Hrossamarkaður þröngur Efnahagsástandið á komandi árum mun hafa veruleg áhrif á getu fólks til að kaupa og eiga hross til útreiða í tómstundum. Markaður fyrir reiðhross er því ótryggur, en ljóst er að auknar kröfur verða gerðar til gæða þeirra. Markaður fyrir hrossakjöt er þröngur og eru ekki fyrirséðar neinar umtalsverðar breytingar á því sviði. í raun og veru sjást nú þegar merki þessarar þróunar. Þannig má ætla að ein ástæða sí minnkandi útflutnings íslenskra reið- hesta sé versnandi efnahagur fólks í nágrannalöndunum. Flest rök hníga nú í þá átt, að íslenski hrossastofninn sé orðinn mun stærri en þörf er á, enda hefur hrossum fjölgað gífurlega síðan um 1970. Á alifugla- og svínarækt að vera verksmiðjubúskapur? Þar sem mörg Evrópulönd eru háð verulegum innflutningi fóðurkorns er eðlilegt að framtíð þessara búgreina tengist náið kornverði á heimsmarkaði. Áætlað er, að neysla alifugla- og svínakjöts haldi áfram að aukast. Búin stækka stöðugt, en verksmiðjuvæðing þessara búgreina sætir vaxandi gagnrýni almennings erlendis, einkum hvað varð- ar mengunarhættu og meðferð dýra, t.d. í þröngum búrum. Eg tel að hér á landi sé ekki nægilega mikið rætt um þessa þróun, hvorki meðal bænda né almenn- ings. Loðdýrarækt í sviðsljósinu Þar eð markaður fyrir afurðir af loðdýrum er mjög háður tísku á hverjum tíma geta orðið sneggri og meiri breyt- ingar á markaðsverði en tíðkast þegar SÍÐARI HLUTI um nauðsynjavörur, svo sem kjöt og mjólk, er að ræða. Hér gæti versnandi efnahagsástand einnig haft tiltölulega mikil áhrif. Talin er hætta á offram- leiðslu, sérstaklega ef efnahagsástandið í heiminum versnar, en samkeppnisað- staða, t.d. í refa- og minkarækt, muni einkum byggjast á að unnt verði að halda niðri kostnaði við vinnuafl og fóðrun dýranna. Vissulega fellur mikið til af góðu og tiltölulega ódýru loðdýra- fóðri hér á landi, en kapp er best með forsjá við eflingu þessara búgreina. Kanínurækt ný búgrein hér Þótt kanínurækt í Evrópu sé einkum stunduð vegna kjötframleiðslu er einnig töluverð framleiðsla á skinnum og ull. Rúmlega fjörðungur heimsframleiðslu angóraullar af kanínum er frá Evrópu- löndum, og er markaður fyrir angóraull og ullarvörur talinn ágætur. Engu er spáð um framtíðina, en horfurnar fyrir þessa búgrein hér á landi virðast all góðar. Fiskirækt vaxandi í þessari grein hefur orðið mikil framleiðsluaukning síðustu árin, og spáð er aukinni uppbyggingu á ýmsum grein- um fiskiræktar. Talið er að verulegur markaður sé fyrir hendi, en gera þurfi stórátak til að kynna afurðirnar fyrir neytendum. Hér á landi er mikil upp- bygging á þessu sviði eins og annars staðar, enda víða góð skilyrði, en nokkur óvissa er um markaðsmálin. Hagnýtt gildi skýrslunnar Hér að framan hefur aðeins verið drepið á fáein atriði skýrslunnar, sem telur á 4. hundrað blaðsíður. Þeir, sem að henni stóðu, telja að sú umfjöllun sem hinar ýmsu greinar búfjárræktar fá þar, geti orðið til að örva umræður um þörf fyrir ýmiss konar búfjárrannsóknir, um framleiðslu og markaðsmál, svo og um þátt ýmissa greina búfjárræktar í landnýtingu og viðhaldi dreifðra byggða. Eðlilegt er að þeir aðilar, sem móta stefnur í landbúnaði Evrópuríkja, færi sér í nyt þær margvíslegu upplýsingar sem hér eru dregnar saman í aðgengilegu formi. Vissulega eru margir þættir óljósir, forsendur geta breyst og ný vandamál skotið upp kollinum. Engu að síður þarf að vega og meta þær vísbendingar sem fyrir liggja, t.d. í sambandi við hæfilegt framleiðslumagn í hverri grein. ísland er eitt þeirra fáu Evrópulanda sem standa utan hinna stóru markaðs- bandalaga, Efnahagsbandalags Evrópu í vestri og COMECON í austri, og hefur því nokkra sérstöðu, m.a. vegnasmæðar sinnar og hinnar miklu langvarandi verðbólgu. Það er ljóst að samkeppni á útflutningsmörkuðum fer harðandi og við þurfum að horfa til lengri tíma en gert hefur verið, ekki aðeins að leysa vandamál líðandi stundar. Svo er það ekki nóg að geta selt afurðir á erlendum mörkuðum, ef verðið sem fyrir þær fæst er ekki viðunandi, jafnvel svo lágt að bóndinn fái ekkert í sinn hlut þegar upp er gert. Bjartsýni er góðra gjalda verð, en ég vil þó vara við þeirri óskhyggju, sem mér finnst bera töluvert á, t.d. varðandi möguleika á útflutningi dilka- kjöts. Ég tel að gefa þurfi framtíðar- stefnu í framleiðslu- og markaðsmálum meiri gaum og leggja raunsærra mat á aðstæður með hliðsjón af þeim upplýs- ingum sem fyrir liggja. Ólafur R. Dýrmundsson Jón Ármann Héðinsson: Opið bréf til séra Jóns Einarssonar Opið bréf til séra Jóns Einarssonar, Saurbæ, Hvalfirði. Heill og sæll. ■ Ég sé, að þú gerir kröfur til almennings með þessum orðum í laugar- dagsblaði Tímans 5.2. „Krefjumst þess að mannvirkin verði nýtt áfram.“ Þessi krafa er reist á þeirri tilfinningu, að alþjóð hafi skyldur við ykkur vegna þess, að meirihluti þingmanna höfnuðu því að mótmæla fyrirhuguðu banni við hvalveiðum um ákveðinn tíma. Vissu- lega er það „blóðtaka" fyrir hreppsfélag- ið, ef Hvalur hf. hætti störfum. Enginn dregur í efa dugnað og atorku þeirra Hvalsmanna í gegnum árin. Þeir bera af um dugnað, hagsýni og gætni í rekstri. Þess vegna ber þeim lof og prís. En er dæmið svo einfalt, sem þú gefur í skyn? Ég held varla og þess vegna sendi ég þér þetta bréf til umhugsunar. í fyrsta lagi fellur mér illa við orðbragðið „krefjast“. Er ekki nóg af slíku og minna af þakklætinu til náttúr- unnar og þess alls, er þar lifir og deyr. Hvað áttum við að gera, þegar síldin hvarf? Á hverja áttum við að gera kröfur? Nokkur undanfarin ár höfðum við, sem vorum á kafi í veiðum og söltun, karlar og konur, ungir sem gamlir, „skaffað'4 í þjóðarbúið rétt um 30% af gjaldeyristekjum frá sjónum (sjávarafurðum). En síldin hvarf og ekki gátum gert kröfur á neinn, nema á okkur sjálf, þar sem þetta var „sjálfskaparvíti“ undir vísindalegu eftirliti og ráðgjöf. Ekki meira um það. Þú segir, að frá hvalveiðum komi 1,37% af þjóðartekjum. Þetta er alrangt og fjarstæða ein. Kannski sum árin af gjaldeyri, sem kemurfrásjávarafurðum. Viss viðmun er sveiflukend vegna marg- víslegra breytinga frá ári til árs. Mest er um vert, að fyrirtækið Hvalur hf. hefur veitt um eða yfir 200 manns mikilvæga vinnu í fjölda mörg ár og það verður að tryggja með einu eða öðruni hætti að hliðstæður hópur missi ekki vinnuna. Svo er þetta með „að láta undan hótunum". Það finnst þér hin mesta lágkúra og mátt vart mæla af vandlæt- ingu. En ég vil spyrja þig og Eið Guðna, sem heldur því sama fram, hvernig ætlið þið að neyða þessar kerlingar til þess að borða fiskinn okkar? Fái þær andúð á íslendingum vegna hvaladrápsins, er ekkert grín að tryggja áframhaldandi góða sölu á fískinum í Bandaríkjunum. Einnig munu þessi áhrif ná til allra landa í Vestur-Evrópu, og hvað er þá skeð fyrir okkar afkomu? Hvaða kröfur eigum við þá að gera. Koma skríðandi og segja? Við mótmæltum svona til þess að sjá hvað myndi ske, en úr því þið eruð svona þráar og illvígar, drögum við bara mótmælin til baka. Þetta er bara ekki svona einfalt. Áhrif mótmælanna og allur áróður, sem þau hefðu leitt af sér, hlyti að vera með þeim hætti, að gagnslaust væri að biðja um grið. Eðli áhættunar er sem sagt með þeim hætti að alls ekki var unnt að taka hana. Þess vegna var ákvörðun meirihluta þing- manna, að mínu mati, ful!komlej>a rökrétt. Mig langar að forvitnast um það hjá þér, hvers vegna hættu menn að veiða steypireyðina hér? Einnig hnúfubakinn og búrhvalinn er nú hætt að veiða. Þó hefur búrhvalurinn verið hinn mikilvæg- asti í gegnum árin hjá Hval hf. Til fróðleiks vil ég fræða þig um það, að ég „flensaði44 síðasta búrhvalinn, sent hér var veiddur, og við það tækifæri lét ég taka mynd af mér, sem varð merkilegri en mig grunaði þá. Það er einnig undarleg tilviljun, að frá dýraverndunarsamtökum í Vestur- Evrópu fékk ég í pósti sama dag og Alþingi tók þess merku afstöðu, tilboð í að kaupa myndir af tveimur víðfrægum spendýrum, sem mannskepnan er nú næstum búin að útrýma. Mér hrýs hugur við því, ef þessi samtök hefðu sent út í mörg milljóna eintökum mynd af hval í dauðastunu, alblóðugan með íslenska fánann yfir sér og þá viðeigandi orðum um okkur öll. Hvort sem einhverjum líkar betur eða verr nú hér á landi er gerbreytt viðhorf til lífsins allt í kringum okkur og það er grjóthörð staðreynd að hvalastofninn hefur verið ofveiddur næstum tillitslaust í fjöldamörg ár. Þrátt fyrir, að við hér höfum farið gætilega, gerir almenningur út um allan heim sér enga grein fyrir því og þeirri afstöðu erum við ekki í aðstöðu til að breyta á næstunni. Ég ætla að vona það, að við getum öll um langan tíma lifað hér í sátt og samlyndi við lífið í sjó og á landi, þó með heilbrigðri nýtingu í huga. Með bestu kveðjum Jón Árm. Héðinsson

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.