Tíminn - 16.02.1983, Side 1

Tíminn - 16.02.1983, Side 1
Islendingaþættir fylgja blaðinu í dag FJÖLBREYTTARA OG BETRA BLAÐ! Miðvikudagur 16. febrúar 1983 37. tölublað - 67. árangur Fjárhags- og viðskiptanefnd ræddi við fulltrúa aðila vinnumarkaðarins í gær: FULLTRIÍAR KRATA OG ALÞÝÐU- BANDAIAGSMANNA MÆTTll EKKI! ■ Fundur í fjárhags- og við- skiptanefnd Alþingis, vegna vísi- tölufrumvarpsins var haldinn í gær Id. 17.00, en þingflokks- formaður Alþýðubandalagsins hafði harðlega mótmælt að þetta mál væri tekið fyrir á fundi scm formaður nefndarinnar Halldór Ásgrímsson hafði boðað í gær- morgun.Á fundinn í gær komu fulltrúar hagsmunasamtaka vinnumarkaðarins, en fulltrúar Alþýðubandalags og Alþýðu- flokks í fjárhags- og viðskipta- nefnd mættu ekki. „Ástæða þess að ég taldi rétt að boða til þessa fundar í morgun var einungis sú, að það hefur orft verið venja að byrja að fjalla um mikilvæg mál til að greiða fyrir framgangi þeirra á Alþingi, þótt ekki sé búið að vísa málinu með formlegum hætti til nefndar. Ég tel að fundurinn í dag hafi verið mjög gagnlegur, því þar var hægt að koma á framfæri upplýsingum til hags- munasamtakanna og einnig var hægt að undirbúa öflun frekari gagna í þessu rnáli", sagði Hall- dór Ásgrímsson í gærkvöldi. Halldór sagði að sjálfsagt mundi reyna á það nú í dag hvort vilji sé fyrir því í þinginu að vísitölufrumvarpið fái meðferð með þeim hætti að það geti komið að gagni í því alvarlega efnahagsástandi sem þjóðin stendur nú frammi fyrir. „Ég vildi reyna mitt til að svo mætti verða. En sé sá vilji ekki fyrir hendi í þinginu, verður ekki við það ráðið og aðrir verða þá að bera ábyrgð á því“, sagði Halldór. -HEI Loðnuleidangur Bjarna Sæmundssonar: ,EKKI RJART- ARI HORFUR’ — segir Hjálmar Vilhjálms- son, leidangursstjóri ■ „Það er sjáanlegt að það verða engar þýðingarmiklar breytingar á þeim tölum sem þegar hafa komið fram um stærð hrygningarstofnsins, þ.e. um 220 þúsund tonn. Því eru horfumar því miður ekkert bjartari en þær voru í janúurlok," sagði Hjálmar Vilhjálmsson, flskifræðingur, í samtali við Tímann, en hann er nýkominn í land eftir mánaðar loðnuleiðangur með rannsókn- arskipinu Bjarna Sæmundssyni. Auk mælinga á hrygningar stofninum var í leiðangrinum reynt að slá máli á ókynþroska smáloðnu, sem veiðanleg verður næsta vetur. Að sögn Hjálmars fannst nokkuð af slíkri loðnu fyrir austan land og sömuleiðis úti af Melrakkasléttu og við Kolbeinsey. Mikill hluti Sudurlands símasam- bandslaus ■ Símastrengurinn milli Reykjavíkur og Selfoss um Hellisheiði bilaði í gær og missti Suðurland þá mikinn hluta af símasambandi st'nu við aðra staði á landinu. Að sögn Kristjáns Helgá- sonar umdæmisstjóra þá var samt ekki alveg símasam- bandslaust við svæðið því hægt var að nota mikrósend- inn til Hvolsvallar og streng þaðan til Selfoss. Hann vissi ekki fyrir víst hvað olli bilun- inni í gær en símasamband var komið á að nýju um kvöldið. -FRI „Langmestur hluti smáloðn- unar hefur gengið á svæðið úti af Vestfjörðum, en þegar við komum þangað var allt orðið fullt af ís eftir áhlaupin sem gerði um daginn. Þess vegna náðist ekki að rannsaka loðnuslóðir fyrr en komið var vestur í Víkurál. Þar var talsvert af smáloðnu, en þó sýnist mér að stærstur hluti hennar hafi verið undir ís. Svo að þessu sinni komum við ekki með neinar marktækar tölur um smáloðn- una,“ sagði Hjálmar. Ætlunin var að nota mæling- . arnar á smáloðnunni til viðmið- unar í tillögum Hafrannsóknar- stofriunar um bráðabirgðaveiði- kvóta fyrir næsta haust og vetur. Vegna íssins verður það ekki unnt, en þó sagði Hjálmar að með hliðsjón af þeim upplýsing- um sem fyrir lægju, væri útlit fyrir að hægt yrði að veiða einhverja loðnu á næsta tímabili. í leiðangrinum var jafnframt hugað að hrygningarloðnu á Vestfjarðasvæðinu, sem hugsan- lega gæti bæst í hrygningarstofn- inn fyrir sunnan, en að sögn Hjálmars fannst sáralítið af henni. Aðspurður um loðnuna sem Vestmannaeyjabátar hafa orðið varir við fyrir Suðurströndinni sagðist Hjálmar telja, að þar væri á ferðinni sama loðnan og vart varð úti af sunnanverðum Austfjörðum í upphafi leiðang- urs Bjarna Sæmundssonar og leiðangursmenn á Árna Friðriks- syni, sem einnig var í loðnuleið- angri, mældu þegar hún var á svæðinu frá Ingólfshöfða og aust- ur á Lónsvík. -Sjó. ■ Framtíðin, málfundafélag Menntaskólans í Reykjavík, var 100 ára í gær. í tilefni af því efndu nemendur til ýmissa hátíðarhalda og m.a. var þessi loftbelgur látinn stíga til himins, afmælisbaminu til heiðurs. Myndin er tekin við íþöku, bókasafn Menntaskólans í Reykjavík, sem einnig hefur löngum verið samastaður Framtíðarinnar. (Tímamynd Ámi). Skodana- könnun Framsóknar- manna á Vestfjörðum: GÖGNIN FÓRU TIL REYKJA- VÍKUR! — „póstur frá Japan berst á skemmri tíma en frá Patreks- firði”! ■ „Þetta er algjört vandræða- ástand með póst frá Patreksflrði. Maður fær t.d. póst frá Japan á miklu skemmri tíma en frá Patreksfirði, þaðan eru bréf jafnan viku til 10 daga að berast“, sagði Guðmundur Sveinsson á Isafirði í gær. En þótt hálfur mánuður sé nú liðin frá skoðanakönnun framsókn- armanna á Vestfjörðum hefur ekki verið hægt að telja atkvæðin ennþá vegna þess að kjörgögnin sem sett voru í ábyrgðarpóst frá Patreksflrði höfðu enn ekki bor- ist til ísafjarðar í gærkvöldi. Kristinn Jón Jónsson á ísafirði sagði ljóst o.ðið að gögnin hafi villst til Reykjavíkur, en hafi ekki komið þaðan enn, þótt flogið hafi verið vestur um helgina. í því flugi komu m.a. kjörgögn frá Árneshreppi á Ströndum. Kristinn kvað menn verða að vona að þessi gögn frá Patreksfirði bíði næsta flugs í Reykjavík og komi þá með næstu ferð, sem áætluð er í dag. -HEI

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.