Tíminn - 08.03.1983, Blaðsíða 3

Tíminn - 08.03.1983, Blaðsíða 3
ÞRIÐJLDAGUR 8. MARS 1983 fréttir ■ Svipmynd frá ráðstefnunni. Álafoss borgar bænd- um 13% yfirverð fyrir ul — en hækkar ekki ullarverð meira á þessu ári „Ungir sjálfstæðis- menn eyðilögðu ráðstefn- una” — segir Sigfús Bjarnason eftir ráðstefnu ÆSÍ um helgina ■ „Ungir sjálfstæðismenn eyðilögðu þessa annars mjög merku ráðstefnu um atvinnumál ungs fólks“, sagði Sigfús Bjarnason einn af fulltrúum Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík á ráðstefnu á vegum Æskulýðssambands Islands sem haldin var í Ölfusborgum urn helgina, m.a. er hann var spurður um gang ráðstefnunnar. Sagði Sigfús sjálfstæðismennina hafa beitt neitunarvaldi gegn flestum þeim ályktunartillögum er fram komu á ráð- stefnunni, m.a. tillagna sem þeir hafi sjálfir átt þátt í að semja. Frá ráðstefnu þessari verður sagt frekar í Tímanum, á morgun. Framboðslisti framsöknar- manna í Norðurlands- kjördæmi vestra á ákveðinn ■ Framboðslisti framsóknarmanna í Norðurlandskjördæmi-vestra var endan- lega ákveðinn á sameiginlegum fundi stjórnar kjördæmissambandsins og upp- stillinganefndar s.l. sunnudag. Sem kunnugt er var haldið prófkjör um 5 efstu sæti listans á tvöföldu kjördæntis- þingi síðast í janúarmánuði s.l., en þeir sem þar völdust í 3. og 5. sæti drógu sig til baka. Prófkjörið varð þó bindandi í 3 efstu sætin, en uppstillinganefnd var falið að fullskipa listann. Að sögn Guttorms Óskarssonar, stjórnarformanns kjördæmissambands- ins var listinn samþykktur með öllum atkvæðum fundarmannna á sunnudag- inn, þar á meðal Húnvetninganna Gríms Gíslasonar á Blönduósi og Gunnlaugs Sigmarssonar á Skagaströnd. En þeir eru báðir í hópi hinna svokölluðu „göngumanna“. Framboðslistinn er þannig skipaður: Páll Pétursson, alþm. Höllustöðum, Stefán Guðmundsson, alþm. Sauðár- króki, Sveinn Sveinsson, veitustjóri á Siglufirði, 4. Brynjólfur Sveinbergsson, oddviti á Hvammstanga, 5. Pétur Arnar Pétursson, deildarstjóri á Blönduósi, 6. Sigurbjörg Bjarnadóttir, húsfreyja í Bjarnargili, 7. Gunnar Sæmundsson, bóndi í Hrútatungu, 8. Magnús Jónsson, kennari á Skagaströnd, 9. Skarphéðinn Guðmundsson, kennari Siglúfirði og 10. Gunnar Oddsson, bóndi í Flatatungu. -HEI ■ „Við höfum ákveðið að borga bxnd- um 13 prósent hærra verð fyrir ullina en sex manna nefndin ákvað 1. mars, „sagði Pétur Eiríksson, forstjóri Ála- foss, í samtali við Tímann í gter. Pétur sagði að Álafoss hygðist síðan greiða sama verð fyrir ullina út allt þetta ár, sem þýddi væntanlega að þeirra borgun yrði einhverju lægri en almennt gerist þegar líða tekur á árið. „Þetta er fyrst og fremst gert til að jafna á móti verðbólgunni. Við vitum það, eins og reyndar allir aðrir, að fyrsta júní verður verð ullar hækkað að nýju hjá sex manna nefndinni." - Þýðir þetta ekki að þið fáið enga ull þegar líða tekur á árið? „Það er besta ullin sem kemur fyrri hluta ársins svo það er um að gera að hvetja bændur til að vera fljóta að koma henni frá sér, „sagði Pétur. Tíminn sneri sér til Hjartar Eiríksson- ar, verksmiðjustjóra í Sambandsverk- smiðjunum á Akureyri og spurði hann hvaða áhrif þessi ákvörðun Álafoss hefði á þeirra starfsemi. „Ég álít að þetta komi ekkert við okkur, hvorki á einn né annan hátt. En hins vegar skil ég ekki hvernig þetta er framkvæmanlegt því auðvitað hlýtur Álafoss að verða að hækka sitt verð í samræmi við ákvarðanir sex manna nefndar, „sagði Hjörtur“. - Sjó Reisum saman sjúkrastöð Þrjú úr þessum hópí dæmdúrleík i h F i VÁ xTTTWrgf Ryðjum hættunum úrvegi þeirra Ýmsar hættur leynast á vegi uppvaxandi kynslóðar. Ein sú skæðasta fylgir ofneyslu áfengis og annarra fíkniefna. U.þ.b.tíundi hver einstaklingur lendir í erfiðleikum - jafnvel hörmungum af þessum sökum. Þetta jafngildir þremur einstaklingum í meðal skólabekk. íslendingar þúsundum saman standa nú íbaráttu viðað losa sig úrgreipumáfengis- sýkinnar. Margfalt fleiri standa í skugga þeirrar baráttu: börnin, makarnir, ætt- ingjarnir, vinirnir. Árangurinn er háður markvissu hjálpar- starfi. Brýnasta verkefnið í því er að Ijúka byggingu nýrrar sjúkrastöðvar SÁÁ við Grafarvog í Reykjavík. Þar fá áfengis- og fíkniefnasjúklingar hvaðanæva af landinu tækifæri til að stíga fyrstu skrefin á nýrri lífsbraut. Jafnhliða eflum við fræðslu- og varn- aðarstarf í skólum landsins. Baráttan er hörð og hana verður að heyja á öllum víg- stöðvum. Við minnum á gjafabréf SÁÁ — framlag þitt til betra lífs í þessu landi.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.