Tíminn - 08.03.1983, Page 11

Tíminn - 08.03.1983, Page 11
MtlÐJUDAGUR 8. MARS 1983 menningarmál selló- svítur ■ Sagt er aö Erling Blöndal Bengtsson láti aldrei svo ár líöa í Kaupmannahöfn að hann flytji ekki allar sex knéfiðlusam- stæöur Bachs. Stundum hefur hann korn- ið hingað og flutt þær, á tónleikum eða í útvarpið. Á háskólatónleikum 23. febrúar flutti svo Gunnar Kvaran, fyrrum nemandi og samstarfsmaður Er- lings Blöndal Bengtsson, tvær þessara samstæða, nr. 1 í G-dúr og nr. 2 í d-moll. Gunnar lék þessa upphöfnu tónlist af mikilli snilli og vonandi lætur hann verða framhald á; bestværi ef hann tæki Erling Blöndal Bengtson sér til fyrirmyndar og flytti allar einleikssvíturnar árlega hér í bænum. í rauninni er ekkert um þessa tónleika annað að segja en það, að þeir voru áheyrendum til mikillar gleði og vafalaust göfgunar. því í þessari tónlist Jóhanns Sebastíans Baeh rís mannsandinn hátt og nálgast guðdóminn. söngkona Tónlistarfélagið lætur skantmt stórra högga á milli í Ijóðasöng, og munu þar vega þungt óbein tengsl við Gerard Souzay og vini hans. Nú síðast, laugar- daginn 5. mars, söng argentínska mezzósópran-söngkonan Margarita Zimmcrmann í Háskólabíói við undir- leik Daltons Baldwin, og hefi ég vart heyrt annan eins flutning. Þær fregnir bárust frá grassins rót, að Margarita Sinfóníuhljómsvcitin, Söngsveitin Fíl- harmónía og einsöngvarar flutlu óper- una Tosca eftir Puecini miðvikudaginn 2. mars í Háskólabíói. Þctta var „kon- scrtuppfærsla'", þ.e. aðeins sungin en ekki leikin, en sumir segja, að þannig sé Tosca miklu betri en á Ieiksviði. Um það ætla ég ekki að dæma, enda hefi ég aldrei séð hana á sviði. Þetta var mjög glæsilegur flutningur, en eftirminnilegastur og athyglisverðast- ur var einsöngur þcirra Sieglinde Kahmann, sem söng Toscu, og Kristján Jóhannssonar (Cavaradossi listmálari). Sieglinde Kahmann er nú um stundir í fullkomnum sérflokki hér á landi sem dramatísk söngkona - til þess hefur hún volduga rödd, ntikið skap og frábæra rcynslu og kunnáttu. En Kristján ætlar að fara fram úr þeim vonum, sem aðdáendur hans hafa við hann bundið hingað til: hann söng stórkostlega vel. Það er kannski lýgi, en ég heyrði það einhvcrs staðar haft eftir Stefáni Islandi að hann hefði ekki heyrt svona vel sungið síðan hann var sjálfur upp á sitt besta. Hvort sem það er rétt cftir haft eða ekki, þá hefði það a.m.k. verið alveg hárrétt. Þrátt fyrir glæsisöng þeirra Sieglinde Kristján Jóhannsson og Kristjáns var mjög góður heildarsvip- ur yfir llutningnum. Robert Bccker barytonsöngvari frá Bandaríkjunum söng hið stóra hlutverk Scarpia lögreglustjóra og gerði það ágætlega. Tónleikaskráin segirfrann núnabúsettan í Reykjavík, svo alltaf bætast okkur listkraftarnir. Gaman hefði verið að Kristni Sigmundssyni í þessu hlutverki. í minni hlutverkum voru Guðmundur Jónsson, Kristinn Hallsson, Már Magn- ússon og Elín Sigurvinsdóttir og stóðu sig vel. Róbert A. Ottósson stofnaði Söng- sveitina Fílharmóníu á sínum tíma til að styrkja Sinfóníuhljómsveitina til flutn- ings stórverka fyrir kór og hljómsveit. Til þessa hcfur Söngsveitin dugað vel og brást ekki heldur núna. Stjórnandi henn- ar er Guðmundur Emilsson, en Jacq- uillat stjórnaði uppfærslunni og á vafa- laust sinn þátt í því hversu vel tókst til, enda er hann margreyndur óperustjóri. Að mínum dómi og annarra áheyrenda var þessi flutningur meiri háttar listvið- burður hér í bæ. Brahms- sónata Á 14. Háskólatónleikum vetrarins 2. mars (í hádeginu í Norræna húsinu) fluttu svo Einar Jóhannesson klarinettu- leikáriog Anna Málfríður Sigurðardóttir píanóleikari Es-dúr sónötu Brahms óp. 120 nr. 2. Þessi sónata, ásamt systur hennar í F-dúr, er eitt síðasta verk Brahms og samið undir áhrifum klari- nettusnillingsins Richard Múhlfeld, og eins og önnur klarinettuverk Brahms frá þessum tíma er hún með því allra besta sem skrifað hefur verið fyrir þetta hljóð- færi (Brahms og Mózart eru sér í flokki á því sviði). Ég cr þeirrar skoðunar, að Es-dúr sónatan verði ekki öllu betur flutt cn hún var á þessurn tónleikum: Einar Jóhannesson er að sjálfsögðu einn þeirra fáu tónlistarmanna okkar, sem mundi sóma sér hvar í heimi sent væri - í stuttu máli í fremstu röð. En Anna Málíríður kont mér á óvart meö ntjög fínni spilamennsku: Brahms sjálfur var rnikill píanisti og skrifaði þvkkt og snúið fyrir píanóið, en Anna Málfríður spilaði þetta snilldarlega. leikandi létt þegar við átti, en þykkt og þungt á milli. Á undan Brahms-sónötunni fluttu þau Einar og Anna Málfríður raunar Fjögur smálög eftir Howard Ferguson. breskan tnann. Þetta eru lagleg lítil stykki en ekki merkileg, þótt hinu verði ekki neitað að miklum listamönnum verður jafnvcl hinn rýrasti efniviður tilefni til að skapa góða kúnst. Á Háskólatónleikum nk. miðvikudag mun Camilla Söderberg og Snorri Örn Snorrason flytja barokk-tónlist fyrir blokkflautur og Iútu. Sigurður Steinþórsson skrifar um tónlist Zimmermann væri að vísu frá Argen- tínu, en af rússnesku bergi brotin; að hún væri aðallega óperusöngkona nteð höfuðstöðvar í París hin síðustu ár. Aldrei var mér ljósara en þegar í fyrsta laginu.Selve amicheeftirCaldara. hve óumræðilegt hljóðfæri röddin er. hve langt af öllum öðrurn hljóðfærum hún ber í tjáningarmætti. Þessi söngkona nýtir öll brögð til að flytja sönginn: rödd sem ýmist er voldug eða veik, hörð eða mjúk; svipbrigði, hreyfingar, augnaráð og fas. Fyrri hluti> tónleikanna söng Margarita Zimmermann söngva eftir ítölsk, frönsk og rússnesk tónskáld, en seinni hlutann vcrk spænskra tónskálda, Granados og De Falla. Ég ætla ekki að reyna að segja að eitt hafi verið betra en annað - mér fundust þessir söngleikir með hinum albestu sem ég hefi heyrt og nefni aðeins tvenna til samanburðar: Flutning Souzay á Vetrarferð Schubcrts, og tónleika Williams Parker í fyrra. Dalton Baldwin er tíður gestur hjá Tónlistarfélaginu og raunar e.k. fyrir- fram gæðastimpill á tónleika, því hann starfar með hinum fremstu Ijóðasöngv- urum í heimi. Sem þessirsíðustu tónleik- ar voru gott dæmi um. 6.3. Sigurður Stcinþórsson Margarita Zimmermann Félagsfundur Skipulagsmál verkalýðs- hreyfingarinnar Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur almennan félagsfund um skipulagsmál verkalýðshreyfingarinnar þriðjudaginn 8. mars n.k. að Hótel Esju 2. hæð kl. 20:30. Framsögumenn: Hannes Þ. Sigurðsson varaform. Vfí Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir form. Sóknar. Fundarstjóri: Magnús L. Sveinsson. Félagsmenn eru hvattir til þess að mæta á fundinn og taka þátt í umræðum um þetta þýðingamikla mál. Hannes Asmundur Aðalheiður Magnús Verið virk í VR Verslunarmannafélag Reykjavíkur gEDRUSHUSGOGN g£DRUSHy§GO£N ■:* - - y ~ 9 .. arnskrók eða stolu. Fast i stoll meb háumTot- Hornsófi í sl°"varpS um 09 nt)úku s*tu ýmsum staerbum. h*>mleair fVr,r ,ota um 09 miúku sætt. pægilegir fVr,r ,ota' SKS5i«ssaia» bókurrn Mhugið- 0 iný. á sann. “ “ gjörnu verði. CCHDI ICUl'lCr*rif'M

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.