Tíminn - 08.03.1983, Page 15
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1983
19
krossgáta
bridgel
Austur
S. KD8653
H. D10765
T. —
L. 87
■ Nýlega lauk meistaramóti Austur-
landa fjær. Indónesía vann og tryggði
sér þar með farseðil til Stokkhólms í
haust þar sem heimsmeistaramótið í
sveitakeppni verður haldið.
Á þessu móti gerðist heimssögulegur
viðburður þegar spilarar frá Taiwan og
kínverska Alþýðulýðveldinu mættust í
fyrsta sinn við spilaborðið. Kínvcrjar
eru ört vaxandi bridgeþjóð og það kæmi
ekki á óvart þó þeir verði brátt stórveldi
í bridgeheiminum.
Taiwanbúar unnu leikinn með
minnsta mun þrátt fyrir að þeir væru
með sitt sterkasta lið. en þeir hafa
nokkrum sinnum spilað á heimsmeist-
aramótum. Þetta spil er frá leiknum:
Norður
S. A10974
H. KG84
T. 4
L. A42
Vestur
S. G
H. 2
T. KD9632
L. G9653
Suður
S. 2
H. A93
T. AG10875
L. KD10
Við bæði borð voru spiluð 3 grönd í
NS. Kínverjar töpuðu þeim en við hitt
borðið sat C.H. Kuo, einn leikreyndasti
maður Taiwan í suður.
Vestur spilaði út laufi, sem Kuo tók á
ás í borði og spilaði tígli. Austur henti
spaða og vestur tók tíuna með drottn-
ingu og spilaði meira laufi.
Kuo tók heima og þar sem hann gat
nokkurn veginn reiknað út skiptingu
AV handanna tók hann laufadrottningu
líka til að austur þyrfti að henda einu
spili í viðbót.
Ef austur hefði hent spaða gat Kuo
spilað spaða á ás og síðan spaða tíu. Þá
hefði austur orðið að gefa einn slag með
útspilinu og 9. slagurinn hefði síðan
komið á 5. spaðann í borði.
Austur henti því hjarta. En Kuo átti
svar við því. Hann spilaði spaða á ás og
síðan spaðatíu. Austur tók á kóng og
spilaði hjarta sem Kuo fékk á níuna
heima. Hann tók nú tígulásinn og henti
spaða í borði og tók síðan ás og kóng í
hjarta og spilaði síðasta hjartanu. Aust-
ur fékk á drottninguna og spaðadrottn-
ingu en varð síðan að gefa blindum 9.'
slaginn á spaðaníu.
11 l /tfrrm
Svalur
——
Kubbur
Með morgunkaffinu
- Ég var dæmdur vegna mannáts
FRYZBL
MK.sxA.Fux
- Annað hvort ertu með þursabit eða of
þunga ermahnappa