Tíminn - 08.03.1983, Qupperneq 16
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1983
dagbók
Fyrirlestur
Fyrirlestur um orkubúskap agna
■ í kvöld heldur dr. Ólafur S. Ástþórsson
fyrirlestur á vegum Líffræðifélags íslands,
sem fjallar um orkubúskap svonefndra agna
(Mysidacea). Agnir eru sviflæg krabbadýr,
oft 2-3 cm að lengd og líkjast rækjum að
útliti. Þær'eru algengar á grunnsævi um allan
heim og gegna víða mikilvægu hlutverki í
fæðukeðjum hafsins. ( erindi sínu mun
Ólafur greina frá niöurstöðum rannsókna á
þessum dýrum, sem hann hefur unnið að við
háskólann í Aberdeen. Fyrirlesturinn verður
haldinn í stofu 101 í Lögbergi og hefst kl.
20.30.
Öllum er heimill aðgangur.
Erindi í Templarahöllinni
um áfengismál
■ Hér á landi er staddur um þessar mundir
Gunnar Nelker, forstjóri Ansvar Internat-
ional í Stokkhólmi.
Gunnar Nelker er þckktur fyrirlesari um
vímuefnamál, bæði í heimalandi sínu og á
alþjóða vettvangi. Hann er einn af fyrirsvars-
mönnum Alþjóðasambandsins gegn áfengis-
og fíkniefnaböli (ICAA) sem hefur aðal-
stöðvar í Sviss og tengist með nokkrum hætti
Heilbrigðisstofnun Sameinuðu þjóðanna
(WHO).
Gunnar Nelker flutti fyrir skemmstu erindi
í sænska þinghúsinu á vegum bindindissam-
taka sænskra þingmanna. Nefndist erindið
Alkoholvanor, alkoholskador och alkohol-
politikk í internationell belysning. - Erindi
þetta, sem á íslcnsku gæti kallast Alþjóðleg
áfengisstefna, drykkjuvenjur og tjón, mun
hann ílytja í Templarahöllinni viö Kiríks-
götu, miðvikudaginn 9. inars kl. 8.30. Fyrir-
lesturinn verður fluttur á sænsku en snúið
jafnóðum á íslensku. Öllum er heimill að-
gangur meðan húsrúm leyfir.
Samvinnunefnd bindindismanna.
Fyrirlestur um áhrif félagslegra
breytinga á streitu
■ Judith Bernstein, lektor í félagsráðgjöf
við Norges Social og Kommunal Högskole
flytur opinberan fyrirlestur í boði félagsvís-
indadeildar fimmtudaginn 10. mars n.k. í
stofu 102 Lögbergi kl. 20.30.. Fyrirlesturinn
nefnist „Sociala Förándringar som orsaker til
stress“.
Fyrirlesturinn er öllurn opinn.
fundahöld
Kvennadeild
Flugbj örgunars vei tarinnar
■ Félagsfundur hinn 9. mars kl. 20.30.
Kypntar verða vörur frá Osta- og smjörsöl-
unni.
ýmislegt
Kvenfélag Langholtssóknar
■ Kvenfélag Langholtssóknar er 30 ára 12.
mars og verður afmælisins minnst með hófi í
safnaðarheimili Langholtskirkju að kvöldi
afmælisdagsins. Afmælisveislan hefst með
borðhaldi klukkan 10. Skemmtidagskrá verð-
ur og lýkur hófinu með helgistund. Allar
upplýsingar í síma 35314. Stjúrnin.
Árshátíð
Breiðfirðingafélagsins
■ Breiðfirðingafélgið heldur sína árlegu
árshátíð í félagsheimili Seltjarnarness laugar-
daginn 12. mars kl. 19.00.
Veislustjóri er Árni Björnsson, þjóðhátt-
arfræðingur. Heiðursgestir verða hjónin Sig-
urður Markússon framkvæmdastjóri og Inga
Árnadóttir.
Dagskrá hátíðarinnar: Ávarp formanns,
Eggerts Kristmundssonar, Siguröur Markús-
son heldur ræðu, Karlakór Reykjavíkur
syngur og Dóra Valdimarsdóttir fer með
gamanmál.
Lúdó og Stefán leika fyrir dansi. - Breið-
firðingar fjölmennið!
Hugleiðslunámskeið
■ Hugleiðslu geta allir stundað, ungir sern
aldnir, tæknin er nijög einföld og þarf engair
sérstakan undirbúning.
Áhrifin eru meira mótstöðuafl gegn
streitu, aukin sjálfstjórn, dýpri skynjun og
skilningur á sjálfum sér og umhverfi sínu.
- Námskeiðið hefst mánudag 14. mars kl.
20.30 í Aðalstræti 16,2. hæð. Upplýsingar og
skráning á námskeiðið er í versluninni Korn-
markaðurinn, Skólavörðustíg 21 eða í síma
27638.
Yogaleikfimi fyrir konur
■ Kennari frá Filipseyjum sem er sérþjálf-
aður í YOGA er leiðbeinandi á þessu
námskeiði og er það eingöngu fyrir konur.
Það byrjar laugardag 12. mars kl. 16 á
Frakkastíg I2a, 3. hæð th. Upplýsingar og
skráning an ámskeiðið er í versluninni Korn-
markaðurinn, Skólavörðustíg 21, cða í síma
27638.
■ Árni Árnason. ■ Sveinn Kr.
Pétursson
Hafskip opnar skrifstofur
í Hamborg og Kaupmannahöfn
■ Á síðasta ári opnaði Hafskip hf. 2 eigin
skrifstofur til að annast umboðsrekstur fyrir
félagið erlendis. Var það í Ipswich í Bretlandi
og New York í Bandaríkjunum.
Á næstu vikum munu tvær nýjar erlendar
skrifstofur bætast við.
Þann 1. mars opnar félagið í Kaupmanna-
höfn og verður forstöðumaður skrifstofunnar
Árni Árnason, viðskiptafræðingur, en hann
hefur dvalið við störf og framhaldsnám í
Danmörku undanfarin ár. Verður skrifstofa
félagsins staðsett að Skudehavnsvej 2 í
Norðurhöfninni, en á sama fima verður
vöruafgreiðsla félagsins flutt í samliggjandi
vörugeymslur úr Fríhöfninni, þar sem Haf-
skip hefur haft aðsetur um árabil.
Mánuði seinna eða þann 1. apríl mun
Hamborgar skrifstofa félagsins opna form-
lega. HenniveitirforstöðuSveinn Kr. Péturs-
son fyrrum deildarstjóri markaðsdeilar fé-
lagsins. Hefur Sveinn veriðá vegum félagsins
í vetur í Hamborg þessu til undirbúnings.
Verður skrifstofan staðsett í Chilehus, þar
sem er miðstöð ýmissa flutningaþjónustufyr-
irtækja við jaðar hins umfangsmikla hafnar-
svæðis í Hamborg.
Eins og kunnugt er lesta skip félagsins í
hverri viku í þessum höfnum og hafa erlend
umboðsfyrirtæki séð um þjónustuna hingað
til.
Tilgangur Hafskips hf. með eigin
skrifstofurekstri er að auka á þjónustu við
viðskiptamenn sína, stuðla að lækkuðum
erlendum kostnaði og að þjálfa íslendinga til
starfa tengt íslenskum hagsmunum á erlendri
grund.
RAUÐAKROSSDEILD KÓPAVOGS:
Námskeiö í aukinni skyndihjálp
■ Rauðakrossdeild Kópavogs gefur bæjar-
búum og þeim sem hafa áhuga kost á
námskeiði í aukinni skyndihjálp.
Námskeiðið verður í Víghólaskóla og
DENNIDÆMALA USI
„Við hvern ert þú að tala Wilson gamli? Og
hvers vegna þarft þú meiri styrk?“
hefst 8. mars kl. 20.00. Það verður 8 kvöld,
samtals 32 kennslustundir. Námskeiðið er
opiðöllum 16 áraogeldri. Þátttaka tilkynnist
ísíma41382dagana7.og8.marskl. 13-16. ,
Á námskeiðinu verður reynt að veita sem
mesta verklega þjálfun. Einnigverða sýndar
kvikmyndir um hina ýmsu þætti skyndihjálp-
ar. Auk þess verða kenndar nýjungar en
þeirra merkust er „MUNN-VIÐ-HÁLS AÐ-
FERÐIN". Það er aðferð sem notuð er við
endurlífgun fólks sem andar um op á hálsi
vegna þess að barkakýlið hefur verið numið
brott oftast vegna illkynjaðrar meinsemdar.
Á liðnum árum hefur Kópavogsdeild RKÍ
haldið mörg námskeið í almennri skyndi-
hjálp. Það er mun styttra en það námskeið
sem nú verður haldið. Þessi námskeið hafa
verið nokkuð vel sótt.
Þess má geta að námskeiðinu lýkur með
verkefni sem hægt er að fá metið í fjölbrauta-
skólum og iðnskólunt.
tónleikar
Lúta og blokkflautur
á Háskólatónleikum
■ 15. Háskólatóleikar vetrarins verða í
Norræna húsinu í hádeginu á miðvikudaginn
kl. 12.30. Camilla Söderberg og Snorri Örn
Snorrason leika á blokkflautur og lútu í
hálftíma. Þau eru sem kunnugt er potturinn
og pannan í félaginu Musica Antiqua, sem
undanfarið hefur leitast við að kynna ögn
eldri músík, en þá sem venjulega er kölluð
klassík.
Á þessum stuttu tónleikum flytja þau verk
eftir Tékkann Gottfried Finger, f. 1660,
Daniel Demoivre, sem ekkert er vitað um
nema nafnið, en er líklega franskur frá líkum
tíma, og loks eftir tvo völunda barokktímans.
Joh. Seb. Bach og Georg Ph. Telemann.
Öllum er heimill aðgangur.
apótek
■ Kvöld- nætur- og helgidagavarsla apó-
teka i Reykjavík vikuna 4. til 10. mars er í
Apóteki Austurbæjar. Einnig er Lyfjabúð
Breiöholts opin til kl. 22.00 öll kvöld vikunnar
nema sunnudagskvöld.
Hafnarfjörður: Hafnarfjarðar apótek og
Noröurbæjar apótek eru opin á virkum dögum
frá Kl. 9-18.30 og til skiptis annan hvern
laugardag kl. 10-13 og sunnudag kl. 10-12.
Upplýsingar I símsvara nr. 51600.
Akureyri: Akureyrarapótek og Stjörnuapó-
tek eru opin virka daga á opnunartíma búða.
Apótekin skiptast á sína vikuna hvort að sinna
kvöld-, nætur- og helgidagavörslu. A kvöldin
er opið I þvi apóteki sem sér um þessa vörslu,
til kl. 19 Á helgidögum er opiðfrákl. 11-
12, og 20-21. Aöðrum tímumerlyfjafræð -
ingurábakvakt. Upplýsing ar eru gefnar i
isima 22445.
Apótek Keflavíkur: Opið virka daga kl.
9-19. Laugardaga, helgidaga og almenna
frídaga kl. 10-12.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga
frá kl. 8-18. Lokað í hádeginu milli kl. 12.30
og 14.
löggæsla
Reykjavik: Lögregla sími 11166. Slökkvilið
og sjúkrabíll sími 11100.
Seltjarnarnes: Lögregla simi 18455.
Sjúkrabíll og slökkvilið 11100.
Kópavogur: Lögregla sími 41200. Slökkvi-
lið og sjúkrabíll 11100.
Hafnarfjörður: Lögregla simi 51166.
Slökkvilið og sjúkrabill 51100.
Garðakaupstaður: Lögregla 51166
Slökkvilið og sjúkrabíll 51100.
Keflavík: Lögregla og sjúkrabíll I síma 3333
og í símum sjúkrahússins 1400, 1401 og
1138. Slökkvilið simi 2222.
Grindavik: Sjúkrabíll og lögregla sími
8444. Slökkvilið 8380.
Vestmannaeyjar: Lögregla og sjúkrabíll
sími 1666. Slökkviliö 2222. Sjúkrahúsið sími
1955.
Selfoss: Lögregla 1154. Slökkvilið og
sjúkrabíll 1220.
Höfn í Hornafirði: Lögregla 8282. Sjúkrabíll
8226. Slökkviliö 8222.
Egilsstaðir: Lögregla 1223. Sjúkrabíll 1400.
Slökkvilið 1222.
Seyðisfjörður: Lögregla og sjúkrabíll 2334.
Slökkvilið 2222.
Neskaupstaður: Lögregla sími 7332.
Eskifjörður: Lögregla og sjúkrabíll 6215.
Slökkvilið 6222.
Húsavik: Lögregla41303,41630. Sjúkrabíll
41385. Slökkvilið 41441.
Sjúkrahúsið Akureyri: Alla daga kl. 15 til
kl. 16 og kl. 19 til kl. 19.30.
Akureyri: Lögregla 23222, 22323. Slökkvil-
ið og sjúkrabíll 22222.
Dalvík: Lögregla 61222. Sjúkrabíll 61123 á
vinnustað, heima: 61442.
Ólafsfjörður: Lögregla og sjúkrabill 62222.
Slökkvilið 62115.
Siglufjörður: Lögregla og sjúkrabíll 71170.
Slökkvilið 71102 og 71496.
Sauðárkrókur: Logregla 5282. Slökkvilið
5550.
Blönduós: Lögregla sími 4377.
isafjörður: Lögregla og sjúkrabill 4222.
Slökkvilið 3333.
Bolungarvrk: Lögregla og sjúkrabíll 7310.
Slökkvilið 7261.
Patreksfjörður: Lögregla 1277. Slökkvilið
1250.1367,1221.
Borgarnes: Lögregla 7166. Slökkvilið 7365.
Akranes: Lögregla og sjúkrabill 1166 og
2266. Slökkvilið 2222.
Hvolsvöllur: Lögreglan á Hvolsvelli hefur
símanúmer 8227 (svaeðisnúmer 99) og
slökkviliðið á staðnum síma 8425.
heimsóknartími
Heimsóknartimar sjúkrahúsa
eru sem hér segir:
Landspítalinn: Alla daga kl. 15 til kl. 16 og
kl. 19 til kl. 19.30.
Kvennadeild: Alla daga frá kl. 15 til kl. 16 og
kl. 19,30 til kl. 20.
Sængurkvennadeild: Kl. 15 til kl 16.
Heimsóknartimi fyrir feður kl. 19.30 til kl. 20.30.
Barnaspítali Hringsins: Alla daga kl. 15 til
kl. 16 og kl. 19 til kl. 19.30.
Landakotsspitali: Alla daga kl. 15 til 16 og
kl. 19 til kl. 19.30.
Borgarspítalinn Fossvogi: Mánudaga til
föstudag kl. 18.30 til kl. 19.30. Á laugardögum
og sunnudögum kl. 15-18 eða eftir samkomu-
lagi.
Hafnarbúðir: Alla daga kl. 14 til kl. 17 og
kl. 19 til kl. 20.
Grensásdeild: Mánudaga til fostudaga kl.
16 til kl. 19.30. Laugardagaog sunnudagakl.
14 til kl. 19.30.
Heilsuverndarstöðin: Kl. 15 til kl. 16 og kl. _
18.30 til kl. 19.30.
Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga
kl. 15.30 til kl. 16.30.
Kleppsspítali: Alla daga kl. 15.30 til kl. 16
og kl. 18.30 til kl. 19.30.
Flókadeild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17.
Hvitabandið - hjúkrunardeild
Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15 til kl.
17 á helgidögum.
Vífilsstaðir: Daglega kl. 15.15 til kl. 16.15
og kl. 19.30 til kl. 20.
Vistheimilið Vífilsstöðum: Mánudaga til
laugardaga frá kl.20 til kl. 23. Sunnudaga frá
kl. 14 trl kl. 18 og kl. 20 til ki. 23.
Sólvangur, Hafnarfirði: Mánudaga til laug-
ardaga kl. 15 til kl. 16 og kl. 19.30 til kl. 20.
Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: Alla daga
kl. 15 til 16 og kl. 19 til 19.30.
Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15.30
til 16 og kl. 19 til 19.30.
heilsugæsla
Slysavarðstofan i Borgarspitalanum.
Sími 81200. Allan sólarhringinn.
Læknastofur eru lokaðar á laugardögum
og helgidögum, en hægt er að ná sambandi
viö lækna á Göngudeiid Landspitalans alla
virka daga kl. 20-21 og á laugardögum frá
kl. 14-16. Sími: 29000. Göngudeild er lokuð
á helgidögum. Á virkum dögum kl. 8-17er
hægt að ná sambandi við lækni i síma
Læknafélags Reykjavikur 11510, en þvi
aðeins að ekki náist i heimilislækni.Eftir kl.
17 virka daga til kl. 8 að morgni og frá kl. 17
á föstudögum til kl. 8 árd. á mánudögum er
læknavakt í síma 21230. Nánari upplýsingar
um lyfjabúðir og læknaþjónustu eru gefnar
I simsvara 13888.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Islands er i
Heilsuverndarstöðinni á laugardögum og
helgidögum kl. 17-18.
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn
mænusótt fara fram i Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur á mánudögum kl. 16.30-17.30.
Fólk hafi með sér ónæmisskírteini.
SÁÁ. Fræðslu- og leiðbeiningarstöð Síðu-
múla 3-5, Reykjavik. Upplýsingar veittar i
síma 82399. — Kvöldsímaþjónusta SÁÁ
alla daga ársins frá kl. 17-23 í sima 81515.
Athugið nýtt heimilisfang SÁÁ, Síðumúli 3-5.
Reykjavik.
Hjálparstöð dýra við skeiðvöllinn i Víðidal.
Sími 76620. Opið er milli kl. 14-18 virka daga.
gengi íslensku krónunnar
Gengisskráning nr. 44 - 07. mars 1983 kl.09.15
Kaup Sala
01-Bandaríkjadollar ................20.000 20.260
02-Sterlingspund ...................30.654 30.745
3-Kanadadollar ..................... 16.538 16.587
04-Dönsk króna...................... 2.3653 2.3724
05-Norsk króna...................... 2.8551 2.8636
06-Sænsk króna...................... 2.7340 2.7421
07-Finnskt mark .................... 3.7757 3.7869
08-Franskur franki ................. 2.9897 2.9986
09-Belgískur franki................. 0.4303 0.4316
10- Svissneskur franki ............. 9.9373 9.9668
11- Hollensk gyllini ............... 7.6527 7.6764
12- Vestur-þýskt mark .............. 8.4785 8.5037
13- ítölsk líra .................... 0.01455 0.014601
14- Austurrískur sch....'........... 1.2063 1.2099
15- Portúg. Escudo ................. 0.2208 0.2214
16- Spánskur peseti ................ 0.1558 0.1563
17- Japánskt yen.................... 0.08606 0.08631
18- írskt pund...................... 28.078 28.161
20-SDR. (Sérstök dráttarréttindi)... 22.0005 22.0659
bilanatilkynningar
Rafmagn: Reykjavík, Kópavogur og Sel-
tjarnarnes, simi 18230, Hafnarfjörður, sími
51336, Akureyri sími 11414, Keflavík simi
2039, Vestmannaeyjar, sími 1321.
Hitaveitubilanir: Reykjavík, Kópavogur og
Hafnarfjörður, simi 25520, Selt|arnarnes,
sími 15766.
Vatnsveitubilanir: Reykjavík og Seltjarn-
arnes, sími 85477, Kópavogur, simi 41580,
eftir kl. 18og um helgarsími41575, Akureyri,
sími 11414. Keflavík, símar 1550, eftir lokun
1552. Vestmannaeyjar, símar 1088 og 1533,
Hafnarfjörður sími 53445.
Símabilanir: í Reykjavík, Kópavogi, Sel-
tjarnarnesi, Hafnarfirði, Akureyri, Keflavík og
Vestmannaeyjum, tilkynnist í 05.
Bilanavakt borgarstofnana: Simi 27311.
Svarar alla virka daga frá kl. 17 síðdegis til
kl.,8 árdegis og á helgidögum er svarað allan
sólarhringinn. Tekið er við tilkynningum um
bilanir á veitukerfum borgarinnar og í öðrum
tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa á
aðstoð borgarstofnana að halda.
söfn
ÁRBÆJARSAFN: Opið samkvæmt umtali.
Upplýsingar í síma 84412 milli kl. 9 og 10 alla
virka daga.
Strætisvagn no: 10 frá Hlemmi.
LISTASAFN EINARS JÓNSSONAR: Opiö
sunnudaga og miðvikudaga frá kl. 13:30 til kl.
"I6.
ÁSGRÍMSSAFN, Bergstaðastrætl 74, er
opið daglega nema laugardaga kl. 13.30 til
kl. 16.
Borgarbókasafnið
AÐALSAFN - Útlánsdeild, Þingholtsstræti
29a, sími 27155. Opið mánud. til föstud. kl.
9-21, einnig á laugard. í sept. til apríl kl.
13-16.
AÐALSAFN - Lestrarsalur, Þingholtsstræti
27, sími 27029. Opið alla daga vikunnar kl.
13-19. Lokað um helgar í mái, júní og ágúst.
Lokað júlímánuð vegna sumarleyfa.
SÉRÚTLÁN - afgreiðsla í Þingholtsstræti
29a, sími 27155. Bókakassar lánaðir skipum,
heilsuhælum oq stofnunum.
SÓLHEIMASAFN - Sólheimum 27, sími
36814. Opið mánud. til föstud. kl. 14-21,
einnig laugard. sept. til apríl kl. 13-16.
BÓKIN HEIM - Sólheimum 27, simi 83780.
Símatími: mánud. til fimmtud. kl. 10-12.
Heimsendingarþjónusta á bókum fyrir fatlaða
og aldraða.
HLJÓÐBÓKASAFN - Hólmgarði 34, simi
86922. Opið mánud. til föstud. kl. 10-16.
Hljóðbókaþjónusta fyrir sjónskerta.
HOFSVALLASAFN - Hofsvallagötu 16.
simi 27640. Opið mánud. til föstud. kl. 16-19. *
Lokað I júlimánuði vegna sumarleyfa.
BÚSTAÐASAFN - Bústaðakirk|u, sími
36270. Opið mánud. til föstud. kl. 9-21, einnig
á laugardögum sept. til apríl kl. 13-16.
BÓKAÐÍLAR - Bækistöð í Bústaðarsafni.
sími 36270. Viðkomustaðir víðs vegar um
borgina.