Tíminn - 08.03.1983, Síða 17

Tíminn - 08.03.1983, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 8. MARS 1983 umsjón: B.St. og K.L. andlát Sigurrós Scheving Hallgrímsdóttir lést 3. mars á heimili sínu Suöurgötu 79, Hafn- arfirði. Jóhanna Guömundsdóttir frá Indriða- stööum lést í sjúkrahúsi í Kaupmanna- höfn þann 1. mars sl. Guðrún Marín Guðjónsdóttir frá Fram- nesi, Vestmannaeyjum, Sporðagrunni 2, Reykjavík er látin. Víkingur Sævar Sigurðsson lést 25. febrúar í sjúkrahúsi í London. Olöf Sóley Guðmundsdóttir, Hraunbæ 50, iést 24. febrúar. Guðmundur Jónsson heiðraður á 40 ára söngafmæli ■ S:unnudag 27. febrúar var fertugasta og jafnframt síðasta sýning íslensku óper- unnar á óperunni Töfraflautunni eftir W.A. Mozart. Húsfyllir var og sýningunni mjög vel tekið. í sýningarlok kvaddi Garðar Cortes sér hljóðs og kvað það ilit að þurfa að hætta sýningum fyrir fullu húsi. Hann kvað ástæðu þess vera þá að Lydia Ruecklinger, söngkon- an unga sem sungið hefur hlutverk Nætur- drottningarinnar og stjórnandinn Marc Tar- due þurftu að hverfa af landi brott til annarra starfa. Þakkaði hann þeim fyrir þeirra hlut í því að gera veg þessarar sýningar jafn mikinn og raun varð á. Því næst sagði Garðar: f febrúar síðast liðinn voru liðin fjörtíu ár frá því Guðmundur Jónsson hóf söngferil sinn. Það var einmitt hérna í Gamla bíói í Árstíðunum eftir Hydn. Þar voru einsöngvar- ar með Guðmundi: Guðrún Ágústsdóttir, Daníel Þorkelsson, Söngfélgið Harpan, Hljómsveit Reykjavíkur og stjórnandi var dr. Robert Abraham Ottoson. Garðar kvað ekki ástæðu til að rekja feril Guðmundar í smáatriðum, en einkennilegt væri og jafn- framt ánægjulegt að á 39. söngári hefði Guðmundur unnið einn af sínum stærstu sigrum á óperusviði sem var s.l. vor í Silkitrommunni. Garðar þakkaði honum framlag hans til íslenskrar sönglistar og kvaðst vonast til að við mættum eiga hann að sem lengst. Guðmundi voru síðan færð blóm og hylltu áhorfendur hann lengi og innilega. Guðmundur sté að lokum fram og þakkaði fyrir sig og gat þess jafnframt að hann gleddist yftr því að sjá að til væru söngvarar í landinu til þess að taka við af gömlu hrossunum, eins og hann komst að orði. sundstadir Reykjavík: Sundhöllin, Laugardalslaugin og Sundlaug Vesturbæjar eru opnar frá kl. 7.20-20.30. (Sundhöllin þó lokuð á milli kl.13-15.45). Laugardaga kl. 7.20-17.30. Sunnudaga kl. 8-17.30. Kvennatímar í Sundhöllinni á fimmtudagskvöldum kl. 21-22. Gufuböð i V^stubæjarlaug og Laugar- dalslaug. Opnunartima skipt milli kvenna og karla. Uppl. í Vesturbæjarlaug í síma 15004, í Laugardalslaug í sima 34039. Kópavogur: Sundlaugin er opin virka daga kl. 7-9 og 14.30 til 20, á laugardögum kl. 8-19 og á sunnudögum kl. 9-13. Miðasölu lýkur klst. fyrir lokun. Kvennatímar þriðjudaga og miðvikudaga. Hafnarfjörður: Sundhöllin er opin á virkum dögum kl. 7-8.30 og kl. 17.15-19.15 á laugardögum 9-16.15 og á sunnudögum kl. 9-12. Varmárlaug-Í Mosfellssveit er opin mánud. til föstud. kl. 7-8 og kl. 17-18.30. Kvennatími á þriðjud. og fimmtud. kl. 19-21.30. Karlatím- arámiðvikud. kl. 19-21.30. Laugardagaopið kl. 14-18, sunnudaga kl. 10-12.30. Sauna, kvennatímar á þriðjud. og fimmtud. kl. 17-21.30, karlatímar miðvd. kl. 17-21.30 og laugard. kl. 14.30-18. Almennir saunatímar I baðfötum sunnud. kl. 10.30-12.30. Sundlaug Breiðholts er opin alla virka daga frá kl. 7.20-9 og 17-20.30. Sunnudaga kl.8-13.30. áætlun akraborgar Frá Akranesi Kl. 8.30 kl. 11.30 ki. 14.30 kl. 17.30 Frá Reykjavik Kl. 10.00 kl. 13.00 kl. 16.00 kl. 19.00 I apríl og október verða kvöldferðir á sunnudögum. — I mai, júní og september verða kvöldferðir á föstudögum og sunnu- dögum. - I júlí og ágúst verða kvöldferðir alla daga nema laugardaga. Kvöldferðir eru frá Akranesi kl. 20.30 og frá Reykjavík kl. 22.00. Afgreiðsla Akranesi simi 2275. Skrifstof- an Akranesi sími 1095. Afgreiðsla Reykajvik, simi 16050. Sim- svari í Rvík, sími 16420. FÍKNIEFNI - Lögreglan í Reykjavík, mót- taka upplýsinga, sími 14377 Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Reykjavík heldur fund aö Hótel Heklu Rauöarárstíg 18 þriðjudaginn 8. mars n.k. kl. 20.30. Lagðar verða fram tillögur uppstillinganefndar um skipan sæta á framboðslista framsóknarmanna í Reykjavík vegna næstu alþingis- kosninga. Stjórn Fulltrúaráðs Framsóknarfélaganna í Reykjavík. Reyknesingar Framsóknarmenn í Reykjaneskjördæmi efna til flokksfunda með frambjóðendum á eftirgreindum stööum: 3. Húsnæði flokksins að Hverfisgötu 25 Hafnarfirði fimmtudaginn 10. mars kl. 20.30. 4. Húsnæði flokksins að Hamraborg 5 Kópavogi laugardaginn 12. mars kl. 13.30. 5. Félagsheimili Seltjarnarness mánudaginn 14. mars kl. 21.30. Meðal þess sem rætt verður á þessum fundum er kosningaundirbún- ingurinn. Áríðandi er að sem flest áhugafólk flokksins mæti á þessa fundi. Seltirningar Aðalfundur framsóknarfélags Seltjarnarness verður haldinn i Félags- heimili Seltjarnarness mánudaginn 14. mars kl. 20.30. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Frambjóöendur flokksins í Reykjaneskjördæmi ræða kosninga- undirbúning. 3. Önnur mál. Félagar fjölmennið, nýir félagar velkomnir. Stjórnin. Vesturland - kosningaskrifstofa Opnuð hefur verið kosningaskrifstofa fyrir. Vesturlandskjördæmi að Brákarbraut 1 Borgarnesi. Starfsmaður á skrifstofu er Egill Ólafsson. Opið verður fyrst um sinn frá kl. 13—17 sími 93-7633. Reykjaneskjördæmi Framsóknarflokkur hefur opnað kosningaskrifstofu fyrir Reykjanes í Hamraborg 5 (3. hæð) Kópavogi. Opið veröur fyrst um sinn kl. 17-19 virka daga sími 41590 Kosningastjóri er Þráinn Valdimarsson. Akureyri og nágrenni Framhaldsstofnfundur Félags ungra Framsóknarmanna á Akureyri og nágrenni verður. haldinn á Hótel KEA laugardaginn 12. mars og hefst kl. 14. Dagskrá: Lög félagsins. Önnur mál Áhugafólk á aldrinum 14-35 ára á Akureyri og nágrenni er hvatttil að mæta. Stjórnin. Viðtalstímar borgarfulltrúa og varaborgarfulltrúa N.k. laugardag 12. mars verða til viðtals að Rauðarárstíg 18. kl. 10.30-12 Sigrún Magnúsdóttir og Jósteinn Kristjánsson. Sigrún á sæti í stjórn Innkaupastofnunar Reykjavíkur og Jósteinn í Heilbrigðismálaráði. Kynningarferð FUF félaga til Akraness FUF félögin í Reyfkjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Keflavík, Mosfells- sveit og Akranesi gangast fyrir skoðunar og kynningarferð til Akraness laugardaginn 12. mars. n.k. Farið verður með Akraborg kl. 10.00. Fyrst verður farið að Grundartanga en síðan í Sementsverksmiðju ríkisins. Nánari upplýsingar hjá Áskeli á skrifstofu SUF í síma 91-29380 og 91-24480. Undirbúningsnefnd. Skákmót Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavík heldur skákmót sunn- udaginn 13. mars 1983. Mótið verður haldið í húsnæði Framsóknar- félaganna í Kópavogi að Hamraborg 5 og hefst kl. 14 (10 min mót). Veitt verða þrenn verðlaun. Aðgangur ókeypis. FUF Reykjavík. Borgarnes-nærsveitir Spilum félagsvist í samkomuhúsinu í Borgarnesi föstudaginn 11. mars kl. 20.30. Annað kvöldið í 3ja kvölda keppninni. Framsóknarfélag Borgarness. Norðurlandskjörd. eystra Framsóknarflokkurinn hefur opnað skrifstofu i Norðurlandskjördæmi eystra, að Strandgötu 31, Akureyri, sími 21180. Kosningastjóri fyrir komandi kosningar hefur verið ráðinn Tryggvi Sveinbjörnsson, heimasími 23219. Fyrst um sinn verður skrifstofan opin frá kl. 13.00.-17.00 virka daga. Framsóknarfólk er hvatt til þess að hafa samband við skrifstofuna. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 32., 37. og 41. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á húseigninni Lyngdalshús, neðri hæð, á Svalbarðseyri, S.-Þingeyjar- sýslu, þingl. eign dánarbús Geirs Þorsteinssonar, fer fram eftir kröfu Sveins H. Valdimarssonar hrl. á eigninni sjálfri þriðjudag 15. mars. nk. kl. 14. Sýslumaður Þingeyjarsýslu Nauðungaruppboð sem auglýst var í 95., 97. og 99. tbl. Lögbirtingablaðs 1982 á Síldarverksmiðjunni á Þórshöfn, þingl. eign Hraðfrystistöðvar Þórs- hafnar hf., fer fram eftir kröfu Jóns Olafssonar hrl. f.h. Síldarverk- smiðja ríkisins á eigninni sjálfri fimmtudaginn 17. mars. n.k. kl. 14. Sýslumaður Þingeyjarsýslu. t Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma Ingibjörg Jónína Ásgeirsdóttir Kirkjubæjarklaustri lést að heimili sonar síns HafnarfTrði föstudaginn 4. mars. Minningar- athöfn verður i Fossvogskirkju fimmtudaginn 10. mars kl. 10.30 f.h. Jarðsett veröur að Prestbakka á Síðu laugardaginn 12. mars kl. 14. Björn V. Jónsson Ásgeir Jónsson Birgir Jonsson Gunnar Jónsson Jón Björnsson ÞóraSen Drífa Ingimundardóttir Bryndís Guðgeirsdóttir Sveinbjörg Pálsdóttir barnabörn og aðrir vandamenn Eiginmaður minn Jónatan Halldór Benediktsson, fyrrum kaupfélagsstjóri á Hólmavlk andaðist að heimili okkar Rauðalæk 21, laugardaginn 5. mars. Utför verður gerð frá Fossvogskirkju, föstudaginn 11. mars kl. 10.30 f.h. Þuríöur Samúelsdóttir. Mínar bestu þakkirfæri ég öllum þeim sem auðsýndu mér, bræðrum og venslafólki samúð og vináttu við andlát og jarðarför sambýlis- manns mins, bróður og vinar Jónasar Björgvins Eiríkssonar bónda, Höfðatuni, Fáskrúðsfiröl Ennfremur færi ég mínar bestu þakkir til alls starfsfólks á B deild 2, Landakoti og lækna hans fyrir alla samúö og hlýhug sem mér var sýnd við dánarbeð hans, þó sérstaklega Elísabetu og Guðrúnu. Megi Guð blessa ykkur öll. Valgerður Vagnsdóttir.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.