Tíminn - 16.04.1983, Side 4
4
LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1983
Auglýsing
frá ríkisskattstjóra
Frestur til skila á skrám vegna sérstaks
eignarskatts skv. lögum nr. 20 frá 23. mars
1983 á fasteignir sem nýttar voru við verslun-
arrekstureðatilskrifstofuhalds í árslok 1982:
Samkvæmt 5. grein laga nr. 20 frá 23. mars 1983 ber
eigendum þeirra fasteigna sem nýttar voru við verslunar-
rekstur eða til skrifstofuhalds, að fylla út sérstaka skrá
um þessar eignir. Skrám þessum ber að skila til
viðkomandi skattstjóra.
Eyöublöð til skrárgerðar er hægt að fá hjá skattstjórum.
Framtalsfrestur er sem hér segir:
a. fyrir framtalsskylda menn til og með hádegis 16. maí
1983,
b. fyrir lögaðila til og með 31. maí 1983
Athygli er vakin á ákvæðum 4. gr. laga nr. 20/1983 sem
eru svohljóðandi:
„Við ákvörðun á því, hvaða eignir myndi stofn sérstaks
eignarskatts, skal miða við raunverulega notkun fast-
eignanna í árslok 1982.
Sé sama eignin notuð við verslunarrekstur eða til
skrifstofuhalds, en einnig til annarra nota, skal við
ákvörðun á skattstofni skipta verðmæti eignarinnar
hlutfallslega."
Reykjavík, 14. apríl 1983
Ríkisskattstjóri
Jörð til leigu eða sölu
Við Breiðafjörð er góð Tjarjörð laus til ábúðar í vor
ef um semst
Upplýsingar í síma 93-4799
+
Viö þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför
Ingunnar Árnadóttur
Valþjólsstöðum.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og barnabarnabörn
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi
Sveinn Ellertsson
fyrrverandi mjolkurbusstjori
lést á Héraðshælinu á Blönduósi þann 14. apríl.
Alma Ellertsson,
Bragi Sveinsson, Brynhildur Sigmarsdóttir,
Eva Sveinsdóttir, Jóhann Aadnegard,
Ida Sveinsdóttir, Ríkharður Kristjánsson,
og barnabörn.
Geir Benedikt Benediktsson
Hvammsgerði 6
lést í Borgarsþítalanum miðvikudaginn 13. apríl
F.h. aðstandenda.
Oddur Geirsson
Benedikt Geirsson
Gunnar Geirsson.
f réttir
Ópera í lands-
byggöarreisu
I
fyrsta sinn
■ Hópur á vegum íslensku óper-
unnar hefur nú lagt upp í leik- og
söngför út um land með barnaóper-
una „Búum til óperu" öðru nafni
„Litla sótarann", eftir Benjamin
Britten, í íslenskri þýðingu Tómasar
Guðmundssonar. Er þetta í fyrsta
sinn sem lagt er í slfka ferð á vegum
íslensku óperunnar og meira en það,
því þetta mun vera í fyrsta sinn sem
farið er með heila óperu í ferð um
landið, samkvæmt frétt frá fslensku
óperunni.
Fyrsta sýningin var á Varmalandi í
Borgarfirði í gærkvöldi. Síðan er
ráðgert að heimsækja uppsveitir
Árnessýslu og að iokum ráðgerir
íslenska óperan ferð norður í land
þar sem söngfólkið verður væntan-
lega kærkomnir gestir hjá söngelsk-
um Skagfirðingum og Þingeyingum
og svo auðvitað í sjálfum höfuðstaðn-
um, Akureyri.
Alls eru í hópnuin 20 manns,
söngvarar, lcikarar, hljómsveit og
aðstoðarfólk. Leikstjóri er Þórhildur
Þorleifsdóttir, en hún endursamdi og
staðfærði hluta verksins. Stjórnandi
cr Jón Stefánsson. Litli sótarinn
hefur verið sýndur í vetur við prýði-
lcgar undirtektirog hafa á milli 13 og
14 þús. börn og fuliorðnir séð óper-
una og tekið sýningunum almennt
mjög vel. -HEI
Neytendafélag
Borgarfjardar
5 ára
BORGARNES: Aðalfundur
Neytendafélags Borgarfjarðar var
haldinn í Borgarnesi s.l. sunnudag. f
skýrslu stjórnar kom fram að félagið
hafði afskipti af nokkrum kvörtunum
frá neytendum á síðasta ári.
Hjá félaginu var mikil áhersla lögð
á fræðslu- og upplýsingastarf. Haldin
voru námskeið um neytendamál í
samvinnu við MFA og stéttarfélögin
á svæðinu. Gefin voru út fréttabréf,
þar sem b i rtar voru greinar og ýmsar
upplýsingar m.a. verðkannanir.
Fyrsta tölublað Fréttabréfs er nú
nýlega komið út, þar sem m.a. er
grein um „notandann og opinber
þjónustufyrirtæki“ eftir Gísla
Jónsson, prófessor.
í ræðu formanns félagsins, Bjarna
Skarphéðinssonar, kom m.a. fram
að gerður hefur verið samstarfssamn-
ingur milli Neytendafélags Borgar-
fjarðar og Verkalýðsfélags Borgar-
ness um samvinnu þessara félaga
m.a. á sviði fræðslumála. Telja fé-
lagsmenn þar um merkan áfanga að
ræða í sögu neytendasamstarfs hér á
landi, þar sem þetta sé fyrsti samn-
ingur er gerður er milli launþega-
félags og neytendafélags.
Félagið hefur nú starfað í fimm ár.
Auk Bjarna formanns skipa stjórn
félagsins þau: Ragnheiður Jóhanns-
dóttir, Jón Finnsson og Ágúst Guð-
mundsson í Borgarnesi og Jakobína
Jónasdóttir á Hvanneyri.
Alltaf stemmning og stuð í
kringum Sæluvikuna:
Böll þrjú kvöld íröð”
ndur Valtýsson
11
— sagði Geirmu
SKAGAFJÖRÐUR: Þessi Sæluvika
okkar er alveg sér á parti - þaö er alltaf
einhver stemmningog stuð í kringum
hana. Aðal stuðið er þó eiginlega að
byrja í kvöld. Að vísu byrjaði þetta
með forsæludansleik á föstudaginn var
og síðan unglingadegi á laugardegin-
um. En nú verða dansleikir þrjú kvöld
í röð. Gömlu dansarnir í kvöld og
síðan ball á föstudagskvöld og loka-
dansleikur á laugardagskvöldið, sem
er venjulega alveg sérstakur. Þá er
m.a. opnaður Græni-salurinn í Bifröst,
þ.e. niðri í kjallaranum.og þar er alltaf
alveg sérstök stemmning.Þar er sungið
- hinir og þessir standa þar uppi á stól
og stjórna söngnum“. Það er Geir-
mundur Valtýsson á Sauðárkróki sem
lýsir svo fyrir okkur Sæluviku-
stemmningunni, en það er einmitt hann
og hljómsveit hans sem heldur uppi
stuðinu á böllunum á Króknum. Hann
kvað böllin hefjast klukkan 11 á
kvöldin ogstanda til kl. 3-4 á nóttunni.
-Formlega lýkur Sæluvikunni þó
ekki fyrr en á sunnudagskvöldið. Þá
verður bæði leiksýning og síðan endar
þetta með jass-kvöldi á sunnudags-
kvöldið. Tríó Guðmundar Ingólfsson-
ar kemur þá að sunnan. En það var
einmitt stofnaður hér jassklúbbur í
vetur.
Jú, ég er ekki frá að einhver verði
orðinn þreyttur á sunnudagskvöldið -
en maður verður nú að mæta samt,
sagði Geirmundur. Hann kvað öll
atriði Sæluvikunnar hafa verið vel sótt
- fullt hús á öllu. „Það var fullt á
kirkjukvöldum bæði mánudags- og
þriðjudagskvöld. Síðan hefur gengið
hér revía úr bæjarlífinu - bæði verið
haldnar sýningar að deginum og mið-
nætursýningar og oftast fullt hús held
ég. Eins hefur það verið með leiksýn-
ingu Leikfélagsins, sagði Geirmundur.
-HEI
■ Björgvin Sveinsson og Sigfús Sigfússon í hlutverkum sínum.
Mynd Stefán Pedersen
„Gripid í tómt” sýnt á Sæluviku:
Góð skemmtun
SAUÐARKRÓKUR: Leikfélag
Sauðárkróks frumsýndi sl. sunnudag
gamanleikinn Gripið í tómt eftir Derek
Benfield. Leikstjóri Guðjón Ingi Sig-
urðsson. Leikendur eru alls tíu sem
allir skila hlutverkum sínum með ágæt-
um svo heildar svipur sýningarinnar er
mjög góður, enda þótt sumir þeirra
séu nýliðar á leiksviðinu eins og t.d.
Björgvin Sveinsson, Sigfús Sigfússon
og Óttar Bjarnason, sem fóru mjögvel
með sín hlutverk.
Aðrir leikendur eru aftur á móti
sviðsvanir og vel þekktir á fjölunum
hér á Sauðárkróki, Haukur Þorsteins-
son, Helga Hannesdóttir, Friðrika
Hermannsdóttir, Guðbjörg Bjarman
og Hafsteinn Hannesson, Elín Jóns-
dóttir og Helga Björk Sigurðardóttir
fara með minni hlutverk.
Fullt hús var á sýningunni og frum-
sýningargestir þökkuðu leikurunum
fyrir góða skemmtun með áköfu lófa-
taki. -G.Ó.
Héraðsvaka á Héraði:
Kabarett og dans í kvöld
FLJÓTSDALSHÉRAÐ: í gærkvöldi
hófst „Héraðsvaka“ á vegum Menn-
ingarsamtaka Fljótsdalshéraðs með
kvöldvöku í Menntaskólanum á Egils-
stöðum. Að kvöldvökunni lokinni var
opnuð fjölbreytt sýning, sem hlotið
hefur nafnið „Alþýðulist“. Þar eru
sýndir fjölbreyttir gripir eftir níu aðila,
olíumálverk, vatnslitamyndir, stein-
myndir, teikningar, tréskurður, vefn-
aður og fleira. Flestir sýnendur eru
sjálfmenntað alþýðufólk en sumir í
hópnum þó menntaðir í myndlist.
Áformað er að sýningar verði árlegur
viðburður á Héraði, að því er segir í
frétt frá Menningarsamtökum Fljóts-
dalshéraðs.
Skólar héraðsins voru kynntir á
unglingadansleik sem haldinn var í
Valaskjálf í gærkvöidi. í kvöld verður
síðan kabarett í Valaskjálf, sem Leik-
félag og Tónkór Fljótsdalshéraðs sjá
um. Að kabarettinum loknum verður
síðan almennur dansleikur þar sem
Skruggurnar leika fyrir dansi. Vökunni
lýkur á sunnudagskvöld. -HEI
Mikið um að vera á Húnavöku
HÚNAÞING: Myndlistinni er gert
hátt undir höfði á Húnavöku 1983.
Sunnudaginn 17. apríl verður sýning í
fræðsluskrifstofu Norðurlands-vestra
á málverkum, grafík, vatnslitamynd-
um og teikningum í samvinnu við
Menningarsamtök Norðlendinga. Þeir
sem sýna eru: Óli G. Jóhannsson,
Ólafur Torfason og Rut Hansen. Um
30 myndir verða á sýningunni.
Samband Austurhúnverskra kvenna
heldur heimilisiðnaðarsýningu í Fél-
agsheimilinu á Blönduósi. Þar verða
sýndir ýmsir munir sem unnir eru í
tómstundum fólks í A-Húnavatnssýslu
fyrrpg nú.
í Héraðsbókasafni Austur-Hún-
vetninga á Blönduósi verður opin
grafíksýning frá Færeyjum á vegum
Norræna félagsins í A-Hún.
Næsta þriðjudagskvöld frumsýnir
Leikfélag Blönduóss leikritið
„Tangó“. Leikstjóri er Jóel Einarsson.
Tvær aðrar sýningar verða á Húna-
vöku, en leikfélagið ráðgerir að ferðast
með leikritið til nágrannabyggða.
Á morgun verður haldinn borgara-
fundur um ferðamannaþjónustu í
Austur-Húnavatnssýslu. Annað kvöld
sér karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps
um kvöldskemmtun þar sem m.a.
Jóhann Már Jóhannsson syngur ein-
söng.
Síðasta vetrardag verður húsbænda-
vaka. Þar mun herra Sigurbjörn Ein-
arsson biskup m.a. rabba við
samkomugesti. Einnig verða þar úrslit
í „sveitarstjórnirnar svara“ og margt
fleira.
Á sumardaginn fyrsta verðursumar-
skemmtun Grunnskólans á Blönduósi,
þar sem dagskrá verður fjölbreytt.
Lúðrasveit Blönduóss leikur nokkur
lög áður en samkoman hefst og í
anddyri Félagsheimilisins verður sýning
á dúfum. Að lokinni skólaskemmtun-
inni verður Hjálparsveit skáta á
Blönduósi með ýmsa útileiki.
Á kosnsingadag - lokadegi Húna-
vöku - verður skemmtun á vegum
UFAH fyrir börn og unglinga. Barna-
ball um miðjan dag og kosningadans-
leikur fram á rauða nótt, þar sem m.a.
verður spilað bingó um glæsilega ferða-
vinninga frá Ferðaskrifstofunni Útsýn.
Hljómsveitin Upplýfting leikur á
þrem almennum dansleikjum á Húna-
vökunni og einnig á unglingadansleik
1. sumardags. Margar kvikmyndasýn-
ingar verða á Húnavöku og má nefna
sýningu á myndinni „Húsið - trúnað-.
armál“.