Tíminn - 22.07.1983, Qupperneq 2
Sirkusinn fær undanþágu frá söluskatti eins og Tfvoliið:
„HINAR VfÐIÆKU UNDANÞAGUR
SKAPA ORDID MIKINN VANDA”
— segir Árni Kolbeinsson, deildarstjóri f fjármálaráðuneytinu
■ „Undanþágur frá söluskatti eru
orönar gífurlega margar samkvæmt gild-
andi lögum og reglugeröum og skilin á
milli hinna skattskyldu og óskattskyldu
vöru- og þjónustuflokka því ákaflcga
óskýr orðin í fjölmörgum tilvikum. Hinar
víðtæku undanþágur skapa orðið mikinn
vanda við framkvæmd söluskattsins og
því ekki skrítið þó mikið komi upp af
vandamálum, deilumálum og ákvörðun-
aratriðum varðandi túlkun á þeim
undanþágum sem fyrir hendi eru. En í
söluskattslögunum er einnig ákvæði í 20.
grein þess efnis að fjármálaráðherra geti
veitt undanþágu frá söluskatti séu sér-
stakar ástæður fyrir hendi. Ætli við
verðum ekki að líta svo á að ákvarðanir
um niðurfellingu, umfram það sem felst
í túlkun á hinum beinu atriðum, byggist
á þeirri heimild," sagði Arni Kolbeins-
son, dcildarstjóri í fjármálaráðuneytinu
spurður um reglur þær sem farið er eftir
við niðurfellingu söluskatts og hvers
konar starfsemi njóti hennar einna helst.
Undanþágur þær sem í gildi eru sam-
kvæmt lögum og reglugerð kvað Arni
allt of langan lista til að telja upp.
Spurningin sé oftast um túlkunina, þ.e.
hvað falli undir þær undanþágur sem
fyrir hendi eru og hvað ekki. Ekki síst
cigi þetta við um alls konar skemmti-
starfsemi og blaðaútgáfu.
Tónleikahald og leiksýningar eru t.d.
undanþegnar söluskatti. Oft koma því
upp spurningar hvað falli undir þessi
hugtök. í sambandi við niðurfellingu
söluskatts af sirkusi þeim sem heldur
sýningar hér á landi um þessar mundir
kvað Árni um að ræða túlkun á hugtak-
inu „leiksýning". Það hafi að undan-
förnu verið túlkað vítt þannig að margs
konar „upptroðsla“ sé talin falla undir
leiksýningaundanþáguna. Má einnig
nefna dávald þann sem hér er á ferð um
landið.
En undantekning er líka á þessum
undanþágum, sem Árni nefndi sem
dæmi um þann vanda sem skapast getur.
Sé t.d. dansleikur haldinn í beinu fram-
haldi af tónleikum eða leiksýningu verð-
ur allt söluskattsskylt, þ.e. bæði að-
gangur að leiksýningunni og ballinu.
„Söluskattskerfið er satt að segja orð-
ið óhemju flókið og snúið. Segja má að
á þessum 23 árum sem söluskatturinn
hefur verið við líði hafi þessum undan-
þágum alltaf smám saman verið að
fjölga og framkvæmdavandinn því verið
að vaxa að sama skapi, jafnframt því
sem hækkandi skatthlutfall hefur bæði
aukið ásóknina í undanþágur og örugg-
lega líka hættuna á því að menn undan-
þiggi sjálfa sig skattinum án þess að
spyrja nokkurn - skila honum bara
ekki,“ sagði Árni. Stærsta stökkið í/
undanþágunum kvað hann hafa verið
niðurfellingu söluskatts af matvælum.
Ekki er það síður snúið en annað. Sé um
að ræða svokallaðan tilbúinn mat, þá
er hann söluskattsskyldur, jafnvel þótt
réttur sé yfir sama búðarborðið og sá
ótilbúni. Jafnframt verður þá spurning
um það hvenær matur telst „tilbúinn" og
hvenær ekki.
„Allt skapar þetta auðvitað gífurlegan
eftirlitsvanda, því gera þarf orðið upp
heilu atvinnugreinarnar, eftir óbeinum
hætti. Og því fleiri sem undanþágurnar
eru, því erfiðari verður framkvæmdin,"
sagði Árni. - HEI
Kvöldvökur
óperunnar
■ íslenska óperan heldur kvöldvökur
föstudags- og laugardagskvöld kl. 21 í
Gamla bíói fyrir Reykvíkinga og gesti
þeirra, jafnt innlenda sem erlenda. Kór
íslensku óperunnar syngur íslensk þjóð-
lög undir stjórn Jóns Stefánssonar og
með kórnum koma fram tveir einsöngv-
arar, þau Elín Sigurvinsdóttir og Halldór
Vilhelmsson. Lára Rafnsdóttir spilar
undir á píanó. í hléi er síðan myndlistar-
sýning þar sem sýndar eru landslags-
myndir eftir þá Ásgrím Jónsson, Jón
Stefánsson og Jóhannes Kjarval. Einnig
er sala á kaffi og rjómapönnukökum í
hléinu. Þá verður sýnd kvikmyndin
„Days of destruction", sem Kvik h.f.
gerði árið 1973 um Vestmannaeyjargos-
ið. Auk þessarar kvöldvöku eru kvik-
myndir á föstudögum og laugardögum
kl. 18 og sunnudag, mánudag, þriðjudag
og fimmtudag kl. 21.
- Jól.
Umferðarslysið
í Ármúla:
Konan
látin
■ Konan sem varð fyrir bíl í Ármúlan-
um í síðustu viku lést á Borgarspítalan-
um aðfaranótt miðvikudags. Konan hét
Ragnhildur Briem Ólafsdóttir og var 70
ára gömul.
■ „Undanfarin Ivö ár hef ég stundaö
líkamsrækl, hlaupið og gert líkamsæf-
ingar á hverjum degi. í þelta fer um það
bil klukkustund á hverjum morgni. Það
er auövelt að telja sér trú um að ekki sé
tími fyrir líkamsrækt af þessu tagi. En sú
slund sem í þetta fer skilar sér margfald-
lega,“ sagði Sigrún Stefánsdóttir, frétta-
maður og iþróttakennari, á blaðamanna-
fundi hjá bókaforlaginu Vöku, scm nú
cr að gefa út bókina „I fullu fjöri", eftir
Sigrúnu.
Ólafur Ragnarsson, bókaútgefandi,
sagði á fundinu, að nú væri komin út
fyrsta alhliða heilsuræktarbókin á ís-
lensku. Hún hefði vcrið við það miðuö,
að þjóna jafnt ungum sem öldnum,
konum og körlum, hverjar sem óskir
þess fólks 'eða sérþarfir væru í heilsu-
ræktinni.
I frétt Vöku um bókina segir: Fólk
getur valið sér æfingar eftir þörfum
sínum um þessar mundir, bætt síðan við
öðrum æfingum og fikrað sig þannig
áfram skref fyrir skref undir leiðsögn
Sigrúnar. Æfingaþörfin breytisteraldur-
inn færist yfir fólk, og er fyrir því séð í
bókinni, þannig að hún á aö nýtast ár
eftir ár.
I inngangi bókarinnar kemur fram, að
hægt er að iðka æfingarnar inni eða úti,
heima cða á vinnustað, í leikfimisölum
eða á heilsuræktarstöðvum. Þar eru
æfingar fyrir byrjendur í leikfimi og
trimmi, fyrir þá sem komnir eru nokkuð
á veg í líkamsræktinni og einnig fyrir þá
scm stundað hafa þjálfun árum saman.
Sumar æfingarnar eru miðaðar við að
lesendur geri þær cinir, aðrar cru fyrir
þá sem vilja æfa með öðrum.
Bókin er í stóru broti, innbundin með
plasthúðaðri kápu. 1 henni eru hundruð
teikninga, skýringarmynda og Ijós-
mynda. Ljósmyndirnar tók Jóhannes
Long, en teikningarnar eru unnar af
starfsmönnum Diagram visual Informat-
ion Ltd. í Englandi, en það fyrirtæki
hefur sérhæft sig í gerð myndræns fræðslu-
■ Ólafur Ragnarsson frá Vöku og Sigrún Stefánsdóttir, fréttamaður, handleika nýju
bókina „I fullu fjöri" sem kom út í gær.
Tímamynd: Róbert.
efnis fyrir bókaútgáfu, fjölmiðla og fræðinga á sviði heilbrigðismála og
skóla. Æfingarnar hafa allar hlotið heilsuræktar.
viðurkenningu lækna og annarra sér- - Sjó.
Heilsuræktarbók Sigrúnar
Stefánsdóttur:
„TlMINN SEM f ÞETTA FER
SKILAR SÉR MARGFALDLEGA”
- segir Sigrún, sem sjálf hefur
trimmað reglulega f tvö ár
%Vf.Uv’
laugardag og sunnudag í Skipasmíðastöðinni, Suðurtanga 2,
kl. 1-5 báða daga. Sími 94-3139.
Sýnum þá allra glæsilegustu í dag.
Tökum alla eldri bíla upp í og göngum
frá kaupum nýja bílsins á staðnum.
NISSAN PATROL diesel, 7 manna jeppi með stórri 6
strokka diesel vél, vökvastýri og 24ra volta rafkerfi.
Patrol - jeppinn sem aðrir jeppar eru sniðnir eftir.
SUBARU 1800 4WD GLF. Langmest og best reyndi
fjórhjóladrifni fjölskyldubíllinn á íslandi. Reynsla
annarra á Subaru kemur þér til góða.
NISSAN SUNNY - Traustur og öruggur en líka lipur
og sparneytinn. Hið hagstœða verð á framhjóladrifnum
Sunny á eftir að koma þér í opna skjöldu.
NISSAN CHERRY- Sá nýjastifrá Nissan, framhjóla-
drifinn, sparneytinn og rúmgóður á frábæru, frábœru
frábœru verði.
INGVAR HELGASON HF