Tíminn - 22.07.1983, Síða 3
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1983
3
fréttir
Landburður af gráðlúðu hjá BÚR:
UNNH> MG OG
NÖTTI HOSINU
■ „Við höfum fengið svo mikið af
grálúðu að undanförnu að við höfum
þurft að vinna fram á kvöld til að hafa
undan - nú þurfum við meira að segja
að fá nokkra til að vinna á nóttunni,“
sagði Magnús Magnússon, yfirverkstjóri
hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur, í samtali
við Tímann í gær.
Að sögn Magnúsar hafa tveir togarar,
Otto N. Þorláksson, og Bjarni Bene-
diktsson, landað samtals 255 tonnum í
þessari viku. „Ég gæti trúað að við
fengjum enn meira í næstu viku. Þá
koma fjórir til löndunar og ég veit að
einn þeirra að minnsta kosti er þegar
búinn að fá mikið af grálúðu," sagði
Magnús.
Hann sagði ennfremur að mikið hefði
verið að gera í fiskvinnslustöðvum út-
gerðarinnar í allt sumar. Frá 1. júní
hefði fengist undanþága til að vinna þrjá
laugardaga - og þeir vissu að ekki þýddi
að sækja um undanþágu nú á laugardag-
inn, því fólkið væri hreinlega búið að fá
nóg og kærði sig ekki um meiri vinnu.
- Tekst ykkur að klára það sem er í
móttökunni fyrir helgi?
„Við náum kannski ekki að klára allt,
en það verður lítið eftir. Ég hef hins
vegar meiri áhyggjur af næstu helgi ef
ekki verður unnið þá,“ sagði yfirverk-
stjórinn.
Loks sagði hann að þótt eitthvað yrði
eftir í móttökunni nú um helgina lægi
það ekki undir skemmdum. Hins vegar
mætti vart tæpara standa. - Sjó.
Sérstæðir tón-
leikar í Nor-
ræna húsinu
■ Breski tónlistarmaðurinn Steve Ber-
esford heldur tónleika í Norræna húsinu
föstudaginn 22. júlí kl. 20.30. Tón-
leikarnir eru haldnir á vegum MOB
SHOP (Mobile summer workshop) sem
starfar í annað sinn í sumar.
í fyrra skiptið sem sumarvinnustofan
starfaði sumarið 1981 tóku um 60 manns
þátt í starfinu sem fór fram í Reykjavík
og Snæfellsnesi. Haldnir eru tónleikar
og myndlistarsýningar og er ætlunin að
út komi bók, hjá útgáfufyrirtækinu Kal-
ejdoskop í Svt'þjóð, sem er heildarúttekt
á því sem þá var á ferð. Magnús Pálsson
myndlistaimaður átti hugmyndina að
MOB SHOP.
Að þessu sinni er framkvæmd MOB
SHOP mun smærri í sniðum. 10 manna
hópur listamanna mun vinna saman að
gerð teikninga og tónlistar. Afraksturinn
verður kynntur með sýningarhaldi síðast
í haust og einnig með útkomu bókar og
hljómplötu. Steve Beresford er gestur
MOB SHOP og mun starfa með hópnum
í 10 daga við tónlistarhliðina.
Steve Berseford er einn áhugaverðasti
tónlistarmaður í Bretlandi. Hann hefur
leikið margs konar tónlist við ýmis
tækifæri og leikið jafnt með spunahreyf-
ingunni og rokkhljómsveitum. Hann
hefur m.a. unnið með Derek Bailey,
The Flying Lizardsm Majora Orchestra,
Lindsey Cooper og David Toop en með
þeim síðastnefnda gefur hann út tímarit-
ið „Collusion".
Steve er afbragðs píanóleikari en auk
þess leikur hann á fjölda annarra hljóð-
færa og leikfanga. í tónlist hans ægir öllu
saman: þekkt stef, reggie, gríntónlist og
ýmislegt broslegt athæfi. Tónleikar hans
eru því ávallt mjög skemmtilegir. GSH
Fundur norrænna stangveiöifélaga:
„Margar hættur steója nú
að ferskvatnsfiski”
■ „Mesta hætta sem nú steðjar að
ferskvatnsfiski er mengun í ám og
vötnum Skandinavíu og stafar hún fyrst
og fremst af „súrri rigningu" og öðrum
efnaúrgangi frá iðnaðarsvæðum Evrópu
og veldur fiskdauða í ám og vötnum,"
segir m.a. í nýlegri fréttatilkynningu frá
Landsambandi Stangaveiðifélaga, en
Samband norrænna stangaveiðifélaga
hélt árlegan aðalfund sinn í Ulstrup í
Danmörku þar sem saman voru komnir
fulltrúar allra Norðurlandanna.
A ráðstefnunni voru m.a. flutt erindi
um veiðilöggjöf hvers lands, framkvæmd
hennar og þær hættur sem nú steðja að
ferskvatnsfiski. íslensku fulltrúarnir
fluttu tvöerindi ogfjölluðu þeirm.a. um
þá könnun þá sem gerð var s.l. vetur á
vegum félagsvísindadeildar Háskóla
íslands, en þar kom fram að tæpar
fimmtíu þúsundir íslendinga segjast
stunda stangaveiði fleiri en tvo daga á
ári.
Formaður Landsambands Stanga-
veiðifélaga á íslandi er Birgir J. Jóhanns-
son tannlæknir. - ÞB
OLLUM ŒRUM FRAMAR
Nissan Cherry 1500 GL 5 dyra.
Gerðu bestu bflakaupin
Líttu á staðreyndirnar
Vid bárum saman verð svolítið sportlegra bíla með vélarstærðinni
1300 cc. - 1600 cc. og með fimm gíra gírkassa þar sem það fékkst.
(Samanburður gerður 11.7. ‘83)
Alfasud I500cc. 5 gíra. 4radvra, kr. 310.000.00
Ford Escort lóOOcc. 5 gíra. 3jadvra, kL. 420-430.000.00
Honda CivicS 1335cc. 5 vfra. 3jadvra, kr. 293.000.00
Mazda323 I500cc. 5 yíra. 3jadvra, kr. 2Z2.00P.PP
Mitsubishi Cordia SR lóOOcc. 4ra qíra, 3ja dvra. kt\ 307.000.00
Toyota Tercel 1300cc. 5 gíra. 3jadvra, kr. 275.000.00
Volvo 343 1400cc, 4ra gíra, 3ja dyra, kr, 346.000.00
OG LOKS Á LANGBESTA VERÐINU
NISSAN CHERRY 1500cc,
5 gíra, 3ja dyra á aðeins kr. 257.000.00
Samt er CHERR Yríkulega búinn. Hann er t.d. með snúningshraða-
mæli, lituðu gleri, útvarpi, skottlok, bensínlok og báða afturglugga
má opna úr ökumannssæti, veltistýri, rafmagnsklukku, hitaðri
afturrúðu með rúðuþurrku og rúðusprautu, 6-12 sekúndna stillan-
legum biðtíma á þurrkum, framhjóladrifi, 84ra hestafla vél og margt
margt fleira.
Munið bílasýningar okkar um helgar kl. 2-5.
Tökum allar gerðir eldri bifreiða
upp í nýjar
VERIÐ ÓHRÆDD VIÐ AÐ GERA
SAMANBURÐ - ÞAÐ ERUM VIÐ
NISSAINI LANG-LANG MEST
FYRIR PENINGANA
INGVAR HELGASON s,m,335eo
SÝNINGARSALURINN/RAUÐAGERÐI