Tíminn - 22.07.1983, Side 5
FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1983
5
fréttir
Ríkisstjórnin fjallar um hækkunarbeiðnir opinberra fyrirtækja:
NÆKKANIR LEYFDAR EÐA
ERLEND lANlAKA AUKIN?
■ „Við fjölluðum um þessar hækkanir
á opinberum gjöldum, en það hefur
verið lögð töluverð vinna í að skoða það
mál,“ sagði Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra í samtali við Tímann,
er blaðið spurði hann fregna af síðasta
ríkisstjórnarfundi, „en það var engin
ákvörðun tekin um það mál, og málinu
var frestað.“
Samkvæmt heimildum Tímans þá
hafa þeir sem unnið hafa að könnun á
réttmæti þeirra hækkana sem ákveðnar
hafa verið, s.s. hækkun hitaveitunnarog
Landsvirkjunar nú um næstu mánaða-
mót, en það eru þeir Þórður Friðjóns-
son, efnahagsráðunautur forsætisráðu-
neytisins, Georg Ólafsson verðlagsstjóri
og Þjóðhagsstofnun, komist að þeirri
niðurstöðu að það sé nú um það að ræða,
eins og hjá Landsvirkjun og fleiri tilfell-
um, hvort bæta eigi við erlendum lánum
til þess að brúa hallareksturinn, eða
hvort leyfa beri hækkun á raforkunni.
Þá munu þessir sömu aðilar einnig hafa
tekið inn í dæmið, að verulegu máli
skiptir við hverju megi búast af hálfu
Alusuisse í komandi samningaviðræðum
- þ.e. hve mikilli verðhækkun á rafork-
unni til ÍSAL megi reikna með. Það eru
því ýmsir óvissuþættir sem gerðu það að
verkum að ríkisstjórnin frestaði því að
taka afstöðu til þessara hækkana.- AB.
Kaffitería opnuð
f Vöruhúsi
Kaupfélags
Árnesinga
■ Kaupfélag Árnesinga hefur opnað
veitingastofu í Vöruhúsi K.Á. á Selfossi.
Veitingastofan nefnist Ársel og verður
opin til kl. 22.00 alla daga fyrst um sinn.
Glerveggur skilur veitingastofuna frá
afgreiðslusal vöruhússins. Sérstök
áhersla verður lögð á grillrétti, brauð og
tertur og rétt dagsins.
Verslun verður einnig í veitingastof-
unni með algengar ferðamannavörur og
kæliborð með dagvörur sem hugsað er
m.a. sem þjónustaviðsumarbústaðafólk
í nágrenni Selfoss. Mingjagripaverslun
er staðsett í veitingastofunni í sal með
hreyfanlegum veggjum, sem verða einn-
ig notaðaðir til vörukynninga o.fl..
Á Ijósu marmaragólfi eru blómakassar
með stórvöxnum og skrautlegum blóma-
tegundum og gefa ásamt loftinnrétting-
unni veitingasalnum sérstæðan og hlý-
legan blæ. - Jól.
■ Kaffiterían Ársel í Vöruhúsi K.Á.
Tímamynd: Ari.
ASÍ stof nar
minningar-
sjód um
Eðvarð
■ Miðstjörn Alþýðusambands ís-
lands hcfur ákveðið að stofna sjóð til
minningar um Eðvarð Sigurðsson,
sem í áratugi var einn af mestu
áhrifamönnum íslenskrar verkalýðs-
hreyfingar. Er sjóðnuni ætlað það
__hlutverk að styrkja verkafólk til að
afla sér fræðslu unt málefni og starf
verkalýðshreyfingarinnar.
Eðvarð Sigurðsson lést 9. júlí s.l.
og verður jarðsettur í dag. Eðvarð
gegndi ótal trúnaðarstörfum fyrir
verkalýðshreyfinguna, var m.a. í
stjórn Dagsbrúnar í 40 ár. .
Framleidsla
mjólkur
aukist
um 2,17%
■ Fyrstu sex mánuöi þessa árs hafa
mjólkursamlögin tekið á móti 50.9
milljón lítrum af nrjólk, en það er urn
2.17% meiru en fyrstu sex mánuðina
í fyrra. Þá var mjólkurinnlegg rúm-
lega 1% minna nú í júní en í sama
mánuði í fyrra. Hjá Mjólkurbúi
Flóamanna minnkaði mjólkurinn-
leggið um 3% í júní. hjá mjólkursam-
lagi KEA minnkaðiþaðum 1,8%, hjá
mjólkursamlaginu í Borgarnesi var
samdrátturinn tæp 5% og hjá samlag-
inu í Búðardal^var samdrátturinn um
4% í júnímánuöi. Hjá flestum sam-
félðgum öðrum varð smávægilcg
aukning.
-Sjó.
Skeljungur h.f.
Nýja Shell-stöðin Kleppjárnsreykjum er engin venjuleg bensín-
stöð. Að sjálfsögðu er þar á boðstólum allt sem tilheyrir Shell-stöð;
s.s. bensín, olíur, bifreiðavörur, gas, grillvörur, öl, gos og fleira
góðgæti, en að auki er fjölbreytt úrval pottablóma og græn-
metis á mjög góðu verði. Ennfremur ýmsar vörur til blóma-
ræktunar.
Shell-stöðin Kleppjárnsreykjum er miðsvæðis í Borgarfirði,
skammt frá Reykholti og Deildartungu. Hún er því tilvalin áninga-
staður í skoðunarferðum um héraðið. Vegalendirfrá helstu sumar-
húsabyggðum eru:
Bifröst
Húsafell
Munaðarnes
u.þ.b. 31 km.
- 32 km.
- 26 km.
Skorradalur
Svignaskarð
Vatnaskógur
- 22 km.
- 25 km.
- 40 km.
Opnunartilboð:
í tjlefni opnunarinnar bjóðum við meðan birgðir endast:
40% afslátt af Vapona flugnafælum
30% afslátt af pottablómum
Shellstöðin Kleppjárnsreykjum
leaastabensínstöðin
á íslandi!