Tíminn - 22.07.1983, Side 9

Tíminn - 22.07.1983, Side 9
FÖSTUDAGUR 22. JULI1983 á vettvangi dagsins Árleg sumarferð framsóknarfélaganna í Reykjavík farin á morgun: „SAMBLAND AF NÁTTÚRU- SKOÐUN OG FRÓÐLEIK UM MANNLÍF Á SUÐURNESJUMM ■ „Þessi ferð verður nukkurskunar sambland af náttúruskuðun á Reykja- nesi ng fróðleik um fyrirtæki ug mannlíf á Suðurnesjum“, sagði Valdimar Kr. Jónssun, furmaður Framsóknarfélags Reykjavíkur, spurður um hina árlegu sumarferð framsnknarfélaganna í Reykjavík sem farin verður á murgun laugardag. Valdimar kvað þessa ferð verða ólíka fyrri ferðum að því leyti að minna verður um akstur en uftast áður, en hins vegar kumið við á mörgum stuðum þar sem betri timi gefst því til að sknða sig um. Áætlað er að leggja af stað frá Rauðar- árstíg 18 kl. 9.00 á iaugardagsmorgun- inn. Fyrsti áfangi ferðarinnar er Krísu- vík. Þar mun m.a. Eysteinn Jónsson, fyrrv. ráðherra miðla fólki af þekkingu sinni á Reykjanesfólkvangi, sem liggur í belti þaðan og inn á Bláfjöll. Á þessu svæði er sagt að nánast megi finna þverskurð af landslagi og gróðurfari íslands. Næsti áfangi ferðarinnar verður Svartsengi, þar sem orkuverið og Bláa lónið verður skoðað. Þess má geta að Félag framsóknarkvenna fór þangað eftirmiðdagsferð í vor sem leið. Að sögn Sigrúnar Magnúsdóttur formanns félags- ins kom þá í Ijós að fólk ætlaði ekki að geta slitið sig frá staðnum - svo margt og merkilegt var þar að skoða. Það hafi átt sinn þátt í því að ákveðið var að halda aftur á þessar slóðir þar sem fólk hefði meiri tíma til ráðstöfunar. Grindavík er þriðji áfangi leiðarinnar. Þar munu heimamenn fræða Reykvík- inga um staðinn, m.a. höfnina og menn- ingarlífið í bænum. Að því loknu er áætlað að fólk komi sér fyrir á fögrum skjólgóðum stað utan bæjarins og snæði nesti sitt. Þar munu formaður Framsókn- arflokksins, Steingrímur Hermannsson og Haraldur Ólafsson, varaþingmaður Reykvíkinga ávarpa ferðafélagana. Hvíldir og mettir halda menn næst á Reykjanes. Þar verður hin nýja saltverk- smiðja skoðuð undir leiðsögn Baldurs Líndals, efnaverkfræðings. Jafnframt mun Sigurður Steinþórsson, jarðfræð- ingur segja frá jarðsögu Reykjaness. Frá Reykjanesi liggur leiðin á Garð- skaga. Þar mun Birgir Guðnason frá ■ Komið verður við á Svartsengi og Bláa lónið skoðaö. Ketlavík m.a. segja frá staðháttum og byggðarlögum í grcnndinni. Frá Garð- skaga verður svo haldið heim á leið, um Keflavík og Njarðvík og áætlað að komið verði til Reykjavíkur um sjöleytið um kvöldið. Þótt segja megi að Reykjanesskaginn sé næsta nágrenni höfuðborgarbúa og flestir þeirra hafi sjálfsagt ekið um aðalleiðina til Keflavíkur, kváðust þau Valdimar og Sigrún nokkuð viss um að fæstir þcirra hafi raunverulega skoðað sig um á þessum slóðum. Hjá þeim sem ætli í stuttar ferðir út í náttúruna verði Borgarfjörðurinn eða leiðin austur fyrir Fjall oftast fyrir valinu, en færri leggi leið sína á Reykjanesskagann, þar sem fjölmargt bæði fróðlegt og fallegt sé að finna. Þau búast því við að fjöldi manns muni að vanda slást í hópinn í sumarfcrð framsóknarfélaganna að þessu sinni sem cndra nær, en oftast hafi þátttakendur verið a.m.k. 500-600 manns. Hinir mörgu áningarstaðir og fremur stuttu akstursleiðir ættu einnig frckar að höfða til þeirra scm veigrað hafa sér við mjög löngum akstursleiðum. -HEI Athugasemd f rá Náttúruverndarraði: Villandi frásögn um hvala- stofna ■ í fréttatíma sjónvarpsins þann 4. júlí sl. las Ólafur Sigurðsson fréttamaður pistil um sjávarspendýr í tilefni greinar, sem birtist í júníhefti tímaritsins „Scient- ific American", um lífeðlisfræði hvala, en grein þessa skrifa tveir bandarískir lífeðlisfræðingar, þeir John W.Kanwis- her og Sam H. Ridway. í þessum pistli sjónvarpsins var lagt á þann veg út af þessari grein, að ekki verður hjá því kornist að gera við hann alvarlegar athugasemdir, jafnframt því sem tónn pistilsins gefur tilefni til þess, en hann hófst á þessum orðum: „Það sem kemur mest á óvart í þessari grein er hvað mikið er til af hvölum og öðrum spendýrum í sjó. í greininni segir orðrétt: „Það er almenn trú að alger útrýming vofi yfir mörgum hvalategund- um. Þessi niðurstaða er byggð á röngu mati á fjölda hvala". Þetta eru vissulega fróðlegar upplýsingar, þegar yfir stendur þriðja síðasta hvalveiðivertíðin, sem verður hér á landi og veiðum á að hætta fyrir áróður náttúruverndarmanna, sem telja öll stórhveli vera í útrýmingar- hættu“ Um þetta er það að segja, að Alþjóðahvalveiðiráðið styðst að sjálf- sögðu við bestu fáanlegu upplýsingar þegar það tekur ákvarðanir sínar og skiptir ekki máli í því sambandi hver trú almennings er. Hitt er annað mál að ýmsir stofnar (en ekki allir) stórhvala eru það litlir að þeir mega teljast í útrýmingarhættu, og þegar hafa stofnar stórhvala liðið undir lok vegna ofveiða. Og það eru ekki einungis náttúruvern- darmenn, sem telja ýmsa hvalastofna í hættu, því hafa verður í huga að það voru ríkisstjórnir mikils meirihluta að- ildarríkja Alþjóðahvalveiðiráðsins, sem samþykktu að hætta hvalveiðum um ákveðinn tíma, en ekki náttúruverndar- menn, nema ríkisstjórnir þessara ríkja séu eingöngu skipaðar náttúruverndar- mönnum, svo þetta er einnig álit við- komandi ríkisstjórna og utanríkisstefna þeirra á þessu sviði. í framhaldi af þessu las svo fréttamaðurinn eftirfarandi: „Höfundar greinarinnar í Scientific American segja einnig að búrhvalir séu að minnsta kosti tíu sinnum fleiri en dýrategundir á landi, sem í hættu eru eins og orangutan apar og risapöndur". Umræddar landdýrategundir eru afar sjaldgæfar og gæti dýrategund auðveld- lega talist í hættu þótt stofn hennar væri tíu sinnum stærri en stofnar þessara landdýrategunda. í greininni er raunar talað um steypireyð en ekki búrhval. Fréttamanni varð síðan tíðrætt um fjölda hvala, sem hann taldi greinilega úr hófi fram. Og það fer ekkert milli mála að ýmsir hvalir,einkum tegundir sem maðurinn hefur lítt eða ekki veitt, eru mjög algengir. Hins vegar er það svo, eins og höfundar greinarinnar í Scientific Amcrican benda á, að mat á stofnstærð þeirra er miklum erfiðleikum háð, og verður að taka alla útreikninga, t.d.hvað varðar það fæðumagn sem hvalir innbyrða, með mikilli varúð. Um búrhveli sagði svo í pistli fréttamanns: „Hann (þ.e. breski hvalafræðingurinn Malcolm R. Clarke) áætlar að búrhveli éti um hundrað milljónir tonna af sjávar- dýrum á ári. Það er vissulega athyglisvert að hafa í huga að þessi eina tegund af hval skuii éta svo mikið, eða miklu meira en þær 60 til 70 milljónir tonna, sem allur fiskveiðifloti heimsins veiðir". Hér gat fréttamaðurinn þess ekki, þótt það komi fram í greininni, að fæða búrhvala er nær eingöngu djúpsjávar- smokkfiskur, sem maðurinn hefur hing- að til alls ekkert nýtt. Engin samkeppni er því á milli búrhvala og manna. Og áfram segir: „Bandaríski vísindamaðurinn Mic- hael Filson áætlar að sjávarspendýr, sem koma á land til að fæða afkvæmi, svo sem selur og rostungur, séu alls um 60 milljónir talsins. Hann áætlar að þeir éti á ári hverju um 60 milljónir tonna af nytjafiski, eða álíka mikið og alla fisk- veiði mannkynsins." í greininni er alls ekki talað ,um nytjafisk í þessu sambandi og er það því tilbúningur fréttamanns, heldur aðeins um fisk, og er alls ekki Ijóst að hversu mikli leyti þessi dýr eiga í samkeppni við manninn. Stuttu síðar kemst svo frétta- maður svo að orði: „í Ijósi þessa telja höfundar greinar- innar að veiðar manna hafi ekki umtals- verð áhrif á fæðukerfið í hafinu, þar sem veiðar eru smávægilegar miðaðar við neyslu spendýra í sjó“. Hér er mjög villandi sagt frá. Eins og alkunna er og fram kemur í greininni hafa fjölmargir fiskistofnar verið alvar- lega ofveiddir og sama máli gildir um ýmsa hvalastofna. Greinarhöfundar, sem eins og áður segir eru lífeðlis- fræðingar en ekki stofnvistfræðingar segja hins vegar að líklega muni fiskveið- ar víðast hvar ekki hafa haft alvarleg áhrif á heildarflæði næringarefna og munu sjávarspendýr örugglega ráða hér miklu meira um. í lokin klykkti frétta- maðurinn út með eftirfarandi orðum: „Þessar tölur stangast alvarlega á við þær tölur, sem náttúruverndarmenn nefna til stuðnings hvalveiðibanni og hlýtur því að verða að meta þeirra rök frá tilfinningalegu sjónarmiði frekar en vísindalegu. En eftir sem áður stöndum við frammi fyrir því að verða innan skamms að hætta að nýta eina af auð- lindum, sem hafið umhverfis okkur hef- ur að bjóða“. Ekki er ljóst hvaða tölur fréttamaður- inn á við, en hér skal ítrekað að Alþjóðahvalveiðiráðið styðst að sjálf- sögðu við bestu fáanlegu gögn og engum (fréttamaðurinn kann þó að vera undan- tekning) blandast hugur um að margir stofnar hvala hafi verið alvarlega of- veiddir, þó vissulega séu það ekki allir. Að lokum telur Náttúruverndarráð ekki hjá því komist að benda á, að þessi sami fréttamaður hefur oftar fjallað um náttúruverndarmálefni og náttúruvern- darmenn í svipuðum tón og á fremur óhlutlægan hátt í fréttaspistlum sínum í sjónvarpi, þó það hafi ef til vill ekki verið á eins villandi hátt og í þessu síðasta tilviki.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.