Tíminn - 22.07.1983, Page 20

Tíminn - 22.07.1983, Page 20
Opiö virka daga 9-19 Laugardaga 10-16 HEDDf Skemmuveg' 20 Kopavogi Simar (91)7 75 51 & 7 80 30 Varahlutir Mikiö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu Kaupum nýlega bíla til niöurrifs SAMVINNU TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 ■>at>g£ abriel r HÖGGDEYFAR yQJvarahlutir s“ma1 FÖSTUDAGUR 22. JÚLÍ 1983 i/romru Ritstjorn 86300 - Augiysingar 18300 - Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306 Deilt um birtingu Hæstaréttardóms í fógetarétti Akureyrar: útburðarmAunu SKOTIÐ A NÝ TIL HÆSTARÉTTAR! — Fógeti synjaði með úrskurði um leyfi til vitnaleiðslna ■ Frá fógetaréttinum á Akureyri í gaer. Lengst til vinstri situr Olafur Rafn Jónsson og við hlið hans Gissur Kristjánsson lögmaður hans. Við borðsendann situr Sigurður Eiríksson dómari en lengst til hægri en Örn S. Arnaldsson, lögmaður gerðarbeiðanda. Tímamynd Gylfi Kristjánsson. ■ Jóhannes Nordal, Paul Miiller og Kurt Wolfensberger hittu blaðamenn í gærkvöldi en kváðust engar upplýsingar geta gefið um gang viðræðnanna. Tímamynd Ari. Álviðræður áfram í dag Frá Gylfa Kristjánssyni, Akureyri ■ Enn um sinn verður bið á því að þau hjónin Daniella Sommers og Ólafur Rafn Jónsson ásamt 5 börnum þeirra hjóna þurfi að yfirgefa íbúð sína við Þingvalla- stræti 22 á Akureyri. Hæstiréttur kvað upp þann úrskurð í mars s.l. og var úrskurður Hæstaréttar birtur þeim hjónum þann 9. apríl. Var þeim gert að verða brott úr íbúð sinni í byrjun júlí. Ólafur Rafn og Daniclla halda því fram að birting dóms Hæsta- réttar til þeirra hafi ekki verið lögum samkvæmt. Hafi aðeins einn stcfnu vottur birt þeim dóm- inn en þeir eiga; að vera tveir saman. í fógetarctti við bæjarfógeta- embættið á Akureyri í gær var ■ „Við höfum áður séð netaför á laxi úr Laxá í Aðaldal en það hefur verið meira um það nú í sumar - raunar það mesta sem við höfum séð,“ sagði Vigfús Jónsson, bóndi á Laxamýri. Kvað hann hafa komið fyrir að laxinn væri svo illa farinn að hann væri ekki markaðshæfur. Vigfús kvað menn rekja þetta til þess að sjómenn á Húsavík fengu í vor leyfi sjávarútvegs- ráðuneytisins til ýsuveiða í net á Skjálfandaflóa. Feikilegur neta- stóll hafi verið í Flóanum framan af sumri og riðillinn í ýsunetun- um sé mjög svipaður og í laxa- netum. Greinilegt sé að þessi mikli netastóll liggi á gönguleið laxins og því auðvelt að ímynda sér að þetta trufli göngurnar eitthvað að fara þar í gegn. En hafa sjómenn þá ekki feng- ið eitthvað af laxi í netin - kannski þá stærstu? „Maður hefur haft spurnir af nokkrum löxum. En ég hef ekki trú á að það hafi verið nein mikil brögð að því. Þeir stærstu eru nú sterkir og rífa sig því kannski gjarnan úr netunum. En við lítum svo á að þetta sé mjög slæmt, en hins vegar erfitt við að fást. Það væri sjálfsagt viókvæmt mál fyrir sjómenn ef þeir ættu að færa net sín til fyrir okkur á göngutíma laxins“, sagði Vigfús. Laxveiðina í Laxá sagði hann hafa verið afar lélega í sumar, þá lökustu sem þar hefði verið á undanförnum árum þó hún hafi að vísu heldur verið að glæðast að undanförnu. - HEI ■ Viðræður fulltrúa Alusuisse og íslensku ríkisstjórnarinnar um málefni álversins í Straums- vík hófust kl. 14 í gær og stóðu fram á kvöld. Frekari fundahöld eru fyrirhuguð á morgun, og á þessu stigi vilja aðilar engar upplýsingar gefa um gang við- mál þetta tekið fyrir en því hafði verið frestað um eina viku vegna þess að lögmaður hjónanna vildi skila greinargerð um málið. Gerði hann það í gær og var hún í nokkrum liðum. I fyrsta lagi greinargerð og í öðru lagi úr- klippur og myndir úr Tímanum, Degi og Morgunblaðinu. Kom ekki annað fram í frásögnum þessara blaða frá 12. júlí en einn maður hefði birt þeim hjónum dóm Hæstaréttar. Gerði Gissur Kristjánsson, lögmaður hjón- anna, þá kröfu að 5 menn yrðu kallaðir fyrir dóminn til vitna- leiðslu varðandi þetta efni, og hafði Örn S. Arnaldsson, sem mættur var fyrir hönd mótaðila, ekkert við það að athuga. En Sigurður Eiríksson dómari synj- aði því. Rökstuddi hann þá synjun sína á þann hátt m.a. að vottorð stefnuvotta um að á ræðnanna. Formaður íslensku nefndar- innar er dr. Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri og fyrir samn- inganefnd Svisslendinga fer dr. Paul Múller, forseti fram- kvæmdastjórnar Alusuisse. - GM lögmætan hátt hefði verið farið að lægju fyrir. Gerðinni skyldi því fram haldið. Þegar hér var komið sögu kvaðst Gissur Kristjánsson, lög- maður Daniellu og Ólafs Rafns, kæra þennan úrskurð til Hæsta- réttarog frestaði Sigurður Eiríks- son dómari að því loknu málinu þar til Hæstiréttur hefði afgreitt þá kæru. Reiknað er með að það verði innan eins mánaðar. GSH „ÚRSKURÐ- URINN FOR- SENDULAUS OG FflSINNA” — segir Ólafur Rafn, sem bera á út ■ „Ég hef ekkert um þetta að segja annaö en það, að nú verður beðið eftir því að Haestiréttur fjalli um málið“, sagði Orn S. Arnaldsson en hann mætti í fógetarétt á Akureyri í gær fyrir hönd Grímu Guðmundsdóttur sem krefst þess að farið verið að dómi Hæstarétt- ar og Ólafur Rafn og fjölskylda verði úr hús- næði sínu að Þingvalla- stræti 22. Ólafur Rafn hafði hins vegar þetta um málið áð segja: „Synj- unin á því að lögmaður minn mætti kalla fyrir réttinn vitni til staðfestingar á því að ekki var farið að lögum er okkur var birtur dómur Hæstaréttar, er forsendulaus og fásinna, en hann er í tgkt við aðra máls- meðferð fógetaembættisinshér varðandi þetta mál allt frá upphafi. Það vakti nokkra undrun viðstaddra að Sigurður Eiríks- son dómari skyldi ekki lesa greinargerð lögmanns Ólafs Rafns áður en hann kvað upp þann úrskurð að vitni skyldu ekki kölluð fyrir varðandi birt- ingu dóms Hæstaréttár. „Ég hef aldrei upplifað það að dóm- ari þurfr ekki að lesa greinar- gerðir í málum áður en hann kveður upp dóm sinn“, sagði Gissur Kristjánsson lögmaður Ólafs Rafns Jónssonar. - GK/GSH dropar Hunda- og kattasálfræði! ■ Ýmsar kenningar hafa um aldaraðir verið á lofti um upp- eldismál, en einkum hafa þær þó snúist um uppeldi barna. Kenningar af þessu tagi geta þó tekið til fleiri aðila, t.d. katta og hunda, svo eitthvaö sé nefnt, og hefur meira að segja verið gefinn úr vandaöur litteratúr um þetta efni. Þannig fá flestir þeir sem versla sér- hannaðan mat o.fl. fyrir fyrr- ncfndar skepnur oft í hendum- ar bæklinga þar sem línurnar eru lagðar í þessum efnum, eða eins og segir í formála eins þeirra: „Þessi bæklingur leið- beinir fólki, sem vill gera dýrin sín að góðum grönnum.“ Meðal heilræða í þessum bæklingi má nefna þetta: „Þú skalt ekki refsa kisa þó hann hafi hegðað sér illa. Kisi skilur ekki refsinguna. Haldir þú áfram að refsa honum gæti hann orðið óviðráðanlegur að nokkmm tíma liðnum. Suss- aðu á köttinn ef hann hegðar sér illa. Talaðu strangri röddu - það skilur kötturinn. Kettir og hundar skynja mismunandi blæbrigði raddarinnar.“ Flciri gullkorn: „Hundinum er mjög eðlilegt að gera ekki stykki sín í sínum eigin garði. Hann leitar annað í því skyni, jafnvel í garð nágrannans. Slíkt ergir skiljanlega hið vinsamleg- asta fólk. Það er skaði að fá í garðinn hund, sem gerir þar stykki sín, rótar blómabeðum o.þ.h.“ Bónusmálin krufin til mergjar... ■ Það kemur fyrir foringja Alþýðubandalagsins að þeir ramba inn á vinnustaði, þó frekar sé það fátítt. Svo bar einmitt til á Húsavík um daginn, að Svavar Gestsson átti þar leið um, og leit við á nokkram vinnustöðum í bæn- um og stiklaði þar sólbrcnndur og sætur innan um hinn launa- lága verkalýð í hvítum sumar- fötum. A.m.k. þótti þetta því- iíkum tíðindum sæta að sér- stakur Ijósmyndari Þjóðviljans var sendur með til að festa atburðinn á filmu. Eins og sjá má af meðfylgj- andi mynd mun Svavar ekki hafa haft erindi sem erfiði, því þessi starfsmaður sem hann er að ræða við hafði ekki fyrir því að taka niður heyrnarhlífarnar meðan Svavar braut bónus- málin til mergjar eins og sagði í myndatexta. Krummi .. .sjaldan era bónusmálin brot- in til eymamergjar ef heym- arhlifar eru til staðar...!

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.