Tíminn - 23.07.1983, Page 1
Verður hámarksaldur slökkviliðsmanna 60 ár? — Sjá baksíðu
Blað Tvö
1 blöd
1 í dag
IHelgin 23.-24. júlí 1983
168. tölublað - 67. árgangur
Siðumúla 15—Pósthólf 370Reykjavík—Ritstjorn86300—Augiýsingar 18300— Afgreiðsla og askrift 86300 — Kvöldsímar 86387 og 86306
Bjartsýni ríkjandi eftir álviðræðurnar undanfarna daga:
ER MOGULEGT AD SAMKOMUUG
NAlST A NÆSIA FUNM OKKAR”
segir dr. Paul Múller einn aðalforstjóri Alusuisse
■ Heldur kvað nú við nýjan tón hjá þeim álviðræðumönnum undir
kvöldmat í gær, er álviðræðum lauk, því mikillar bjartsýni gætti í
máli manna, og sagði dr. Muller einn aðalforstjóra Alusuisse m.a.s.
eftir fundinn: „Við kunnum að þurfa einn fund í viðbót eftir fundinn
sem við höfum ákveðið síðarihluta ágústmánaðar, áður en við náum
endanlegu samkomulagL"
Dr. Paul Miiller sagði
jafnframt: „Við höfum, þessa
tvo daga, rætt hugsanlega stækk-
un álversins, nýjan hluthafa og
svo að sjálfsögðu endurskoðun
orkuverðsins, og ég er þeirrar
skoðunar að við höfum náð mikl-
um árangri á þessum tveimur
fundum sem við höfum átt með
nýju, íslensku viðræðunefnd-
inni.“ Er dr. Miiller var spurður
hvert væri aðalágreiningsefni
viðræðnanna svaraði hann
þá: „Ég vil ekki nota orðið
ágreiningsefni, heldur skiptar
skoðanir."
Er dr. Muller var spurðut)
hvort hann teldi líklegt að sam-
komulag næðist á næsta fundi,
sagði hann: „Það er mögulegt að
við náum samkomulagi á næsta
fundi, en ekki öruggt. Jafnvel
þótt vilji sé fyrir hendi, hjá
báðum aðilum, þá kann svo að
fara að við þurfum enn einn
fund, eftir þann næsta.“
Dr. Jóhannes Nordal Seðla-
bankastjóri, formaður íslensku
viðræðunefndarinnar, sagði eftir
fundinn í gær: „Það þarf að leysa
þessi vandamál öll sameiginlega
og á þessum fundi höfum við
komist þónokkuð áfram, en þó
vantar ýmislegt ennþá upp á að
við séum búnir að ná samkomu-
lagi. Við erum vongóðir um að
það geti orðið verulegur árangur
af næsta fundi.“
Tíminn spurði dr. Jóhannes
Nordal hvort ekki væri verulegur
áherslumunur á milli aðila í þess-
um viðræðum, og sagði hann þá:
„Að sjálfsögðu - þegar menn
eru að semja um atriði eins og
verðlag eða laun, eða eitthvað
þess háttar. Menn vilja alltaf
kaupa ódýrt og selja dýrt. Við
höfum rætt málin og umræður
hafa ekki strandað á neinu
ennþá.“
Dr. Jóhannes Nordal sagði er
hann var spurður hvort mestur
tími þessara tveggja daga hefði
farið í að ræða orkuverðið að
mjög mikill tími hefði farið í að
ræða önnur atriði eins og með-
ferðina á deilumálunum, hugs-
anlega stækkun álversins og
mögulegan nýjan eignaraðila.
Er Tíminn spurði dr. Jóhannes
Nordal hversvegna ekki hefði
einu sinni náðst samstaða um
það á þessum tveggja daga fundi,
með hvaða hætti gömlu deilu-
málin yrðu afgreidd í einfaldari
gerðardómum, sagði hann: „Við
viljum ekki fara að setja deilu-
málin útúr þeirri gerð sem þau
eru í núna, fyrr en við erum
búnir að ná samkomulagi um
önnur atriði líka. Það er verið að
tala um að gera bráðabirgðasam-
komulag um vissa hluti og síðan
verður farið í langtímasamninga
þar á eftir.“
-AB
Fulltrúar beggja aðila ræddu við fréttamenn að loknum viðræðu fundinum í gærkveldi.
Tímamynd - Árni Sæberg
VERÐSTRÍÐ Á
VÍDEÓMARK-
AÐI í AÐSIGI?
■ Samkeppnin á markaði
myndbandaleiganna hefur
sjaldan verið harðari en ein-
mitt þessa dagana, og virðist
verðstríð vera í hraðri uppsigl-
ingu. Er þegar farið að bera á
undirboðum í þessari at-
vinnugrein eins og í ferða-
mannaiðnaðinum. Flestar
myndbandaleigumar eru á
svipuðum báti hvað verðlag
snertir með myndbandsspólur
til útleigu á verðbilinu 70-90
krónur fyrir sólarhringinn, og.
myndbandstæki á 300-350
krónur fyrir sama tímabil. Nú
bregður hins vegar svo við að
einn aðili auglýsir kjör sem eru
miklu lægri en gengur og gerist,
alit að 40-100% undir meðal-
verði. Tímanum þótti eðlilegt
að kanna stöðuna á mynd-
bandamarkaðinum og við-
brögð annarra myndbanda-
leiga við þessum undirboðum.
Sjá nánar bls 2.
Nidurstaða Alþjóðahvalveiðirádstefnunnar í Brighton:
fSIAND FÆR AÐ HALDA
NÆR ÓBREYTTUM KVÚTA
Hrefnum fækkað um níu en aðrar veiðar halda sér
■ „Það má segja að okkar
hlutur hafi orðið betri en við
þorðum að vona. Við héldum
okkar kvóta svo aðsegja óbreytt-
um, sagði Halldór Agrímsson,
sjávarútvegsráðherra, sem nú er
á Alþjóðahvalveiðiráðstefnunni
í Brighton á Englandi, en henni
lýkur væntanlega í dag.
Eina breytingin sem gerð var
á kvóta Islendinga var að hrefn-
um var fækkað úr 300 niður í
291. Við fáum næsta sumar að
veiða 167 langreyðar og 100
sandreyðar, sem er sami fjöldi
og í sumar. Að sögn Halldórs
lagði vísindanefnd ráðsins til að
langreyðarkvótinn yrði minnk-
aður, en þær hugmyndir náðu
ekki fram að ganga í ráðinu,
vegna mótmæla íslensku nefnd-
arinnar.
Halldór sagði ennfremur að
nokkur deilumál á ráðstefnunni
hefðu enn ekki verið leyst í
gærkvöldi. Til dæmis legði vís-
indanefndin til að hrefnuveiðar
Norðmanna yrðu minnkaðar um
sem næst %, en það ættu Norð-
menn erfitt með að sætta sig við.
Einnig var deilt um veiðar
Alaskamanna á Bohead-hvali.
Perúmenn drógu mótmæli sín
gegn allsherjarhvalyeiðibanni til
baka, gegn því að fá að veiða 165
hvali, en því lagðist vísinda-
nefndin gegn, áður en mótmælin
voru dregin til baka.
-Sjó.