Tíminn - 26.07.1983, Síða 3
„HEYSKAPARHORFUR SLÆM-
ar nUA heiuhna uno”
— segir Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri
■ „Heyskaparhorfur eru slæmar nú á
heildina litið, vegna þess að orðið er
áliðið sumars, en heyskapur skammt á
veg kominn“, sagði Jónas Jónsson, bún-
aðarmálastjóri, spurður þar að lútandi í
gær.
Jónas kvað þetta stafa af mörgum
ástæðum. Sumrað hafi meira en mánuði
síðar en í venjulegu ári. Gífurlegir
kuldar hafi staðið allt fram í miðjan júní
og jafnvel dæmi þess að snjóar hafi
hindrað að menn haft komist um túnin
til að bera á þau fyrr en kom fram í júlí,
t.d. í Snæfjallahreppi og sums staðar á
Ströndum. Vegna kuldanna hafi menn
einnig beitt búfénaðinum lengur á túnin,
sem seinkaði sprettu.
Upp úr miðjum júní hafi hins vegar
batnað um norðan- og austanvert landið
og þar verið góð sprettutíð síðan. Par
kvað Jónas því víða komið all sæmilegt
gras og jafnvel ágætt. Þó sé þess að geta
að alvarlegt kal sé á vissum svæðum t.d.
í Þingeyjarsýslu og víðar.
Júlí hafi hins vegar verið óskaplega
kaldur og úrkomusamur um allt suðvest-
an- og sunnanvert landið og spretta þar
af leiðandi verið hæg - langt á eftir
meðallagi. Svo miklar úrkomur hafi
verið á sumum svæðum, t.d. á sunnan-
verðu Snæfellsnesi, að það hafi háð
mönnum þó þeir hafi ætlað að verka í
votheyi. Þar hafi jafnvel sums staðar
ekki verið hægt að sá í flög með
eðlilegum hætti.
„Það getur svo sem ræst úr þessu. Má
segja að horfurnar með heyskap fari
alveg eftir því sem gerist hér eftir. En
það er auðvitað orðið mjög tvísýnt með
nýtingu heyjanna, því það er orðið svo
framorðið“, sagði Jónas.
-HEI
Uffe Ellemann-Jensen utanríkisrádherra Dana:
Grænlendingum ber yfir
rád yfir eigin auðlindum
— samhliða því sem þeir fái
aðgang að fríverslunar-
mörkuðum Evrópu
■ „Ef ég segði að það væri eitthvað
nýtt á döfinni í samskiptum íslands og
Danmerkur þá hljómaði það eins og
einhver snurða hefði verið á þræðinum.
Mér er því ánægja að svara því neitandi,
samskipti landa okkar eru óbreytt, jafn-
góð og þau hafa verið um langa hríð,“
sagði danski utanrikisráðherrann, Uffe
Ellemann-Jensen á blaðamannafundi á
Hótel Sögu í gær en hann dvelst hér á
landi í opinberri heimsókn þessa dagana.
Danski utanríkisráðherrann gerði
grein fyrir viðræðum sínum við Geir
Hallgrímsson utanríkisráðherra, sem
fram fóru í gærmorgun. Kvaðst hann
hafa gert Geir grein fyrir stöðu dönsku
ríkisstjórnarinnar og stefnu hennar í
utanríkis- og efnahagsmálum, svo og
vandamálum tengdum Grænlandi. Hann
sagði að ef fylgt hefði verið fram þeirri
efnahagsstefnu sem áður var ríkjandi í
Danmörku hefði það aðeins getað endað
með stóráföllum. Hann taldi að danska
þjóðin skildi að nauðsynlegt hefði verið
að gera sársaukafullar ráðstafanir og að
stjórninni myndi takast að knýja fram
ýmsar breytingar í efnahagsmálum.
Varðandi spurninguna um afstöðu
dönsku ríkisstjórnarinnar til NATO og
uppsetningar meðaldrægu kjarnorku-
eldflauganna í Evrópu næsta vetur sagði
Ellemann-Jensen að þar fylgdu Danir
sömu stefnu og fyrri stjórn hefði markað.
Hins vegar ylli það erfiðleikum að stjórn-
arandstaðan vildi nú ekki að Danir
stæðu við þær skuldbindingar sem þeir
tóku á sig gagnvart NATO undir síðustu
stjórn. Danska ríkisstjórnin styddi upp-
setningu eldflauganna og teldi að
ósveigjanleg afstaða Sovétmanna hefði
ráðið því að ekkert samkomulag er t
sjónmáli um afvopnun.
Ellemann-Jensen sagði að danska
ríkisstjórnin, sem og sú sem var við völd
á undan henni, harmaði þá ákvörðun
Grænlendinga að hafna aðild að EBE,
en hún virti þessa ákvörðun enda hefði
hún verið tekin í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Danir berðust fyrir því innan EBE að
tryggja Grænlendingum fullan yfirráða-
rétt yfir auðlindum sínum og jafnframt
aðgang að fríverslunarmörkuðum
Evrópu. Hann taldi að mikill árangur
hefði náðst í þessari viðleitni, en helsta
ágreiningsefnið væri krafa Vestur-Þjóð-
verja og Breta til veiða við Grænland,
samkvæmt áunnum hefðum. Á það
myndu Danir aldrei geta fallist.
Ellemann-Jensen kvaðst vonast til
þess að þríhliða samningar gætu náðst
milli íslands, Noregs og EBE um loðnu-
veiðar við Jan Mayen. Umræður standa
yfir um þau mál milli embættismanna og
sagði Ellemann-Jensen ekki ástæðu til
að ætla annað en þær bæru árangur.
-JGK
■ UITe Ellemann-Jensen í veiðigallan-
um á blaðamannafundi í gær, kominn
beint af veiðum í Elliðaánum.
Tímamynd Árni Sæberg
Evrópumeistaramótið í bridge:
fslendingar í 20. sæti
— eftir 18-2 sigur yfir Luxemburg í 15. umferð
■ íslenska liðið á Evrópumótinu í
brídge vann Luxemburg 18-2 í 15. um-
ferð og var þá í 20. sæti með 112.5 stig.
Frakkar eru nú langefstir á mótinu með
239 stig, en Italir eru komnir í annað sæti
með 187 stig.
í 10. umferð töpuðu íslendingar fyrir
Belgum, 11-9 en þá voru Belgar í öðru
sæti. Guðmundur og Þórarinn spiluðu
allan leikinn en Jón og Sævar og Jón og
Símon sinn hálfleikinn hvor. í 11. um-
ferð töpuðu íslendingar 20-0 fyrir Ung-
verjum og þann leik spiluðu Jón og
Símon allan, en hin pörin skiptu meðsér
verkum. í 12. umferðtöpuðu íslendingar
síðan fyrir Sviss, 18-2 eftir að hafa verið
11 impum undir í hálfleik. Jón og Sævar
spiluðu allan leikinn en hin pörin skiptu
hálfleikjum.
I 13. umferðinni kom síðan lang-
þráður sigur yfir Líbanon, 19-1, og
spiluðu Jón og Sævar og Guðmundur og
Þórarinn allan leikinn. Líbanon hefur
komið nokkuð á óvart á þessu móti, liðið
vann t.d. Dani 15-5 í 11. umferðinni og
, er nú í 11. sæti. í 14. umferð töpuðu
íslendingar síðan naumlega fyrir Aust-
urríki, 8,5-11. Þá fengu íslendingar hálft
refsistig þegar Guðmundur Pétursson
fyrirliði var tveim mínútum of seinn með
uppstillingu í síðari hálfleik. Guðmund-
ur og Þórarinn spiluðu allan leikinn en
Jón og Sævar og Jón og Símon skiptu í
hálfleik.
í 15. umferð vann ísland síðan Lux-
emburg 18-2. Jón og Sævar og Jón og
Símon spiluðu allan leikinn. Að sögn
Jóns Baldurssonar áttu Jón og Sævar
góðan fyrri hálfeik meðan Jón og Símon
voru ekki í essinu sínu, en í seinni
hálfleiknum snérist dæmið við og Jón og
Símon skoruðu látlaust.
Af öðrum úrslitum má nefna að
Frakkar unnu Þjóðverja 18-2 í 14.
umferð. Jón sagði að Frakkarnir hefðu
lagt bifreið sinni ólöglega fyrir utan
spilahöllina meðan leikurinn við Þjóð-
verja stóð yfir og þegar þeir ætluðu að
brenna á brott hafði lögreglan fjarlægt
ökutækið. Frakkarnir fóru þá fram á að
greiða sektina með impum, en Þjóðverj-
arnir voru tapsárir og tóku það ekki í
mál.
Pólverjar virðast vera heillum horfnir
því þeir tapa nú hverjum leiknum á
fætur öðrum. í 14. umferð töpuðu þeir
20-3 fyrirTyrkjum og 19-1 fyrir ítölum í
15. umferðinni. Þá unnu Frakkar íra
20-0 og Svíar töpuðu fyrir Bretum, 18-2
Staðan eftir 15 umferðir er sú að
Frakkar hafa 239 stig, Ítalía 187, Belgar
185,5, Þjóðverjar 184 stig og Hollend-
ingar 180,5. Norðmenn eru í 6.-7. sæti
með 177,5, Svíar í 9. sæti með 169,
Danir í 14. sæti með 148 stig, en Finnar
eru neðstir með 76 stig. í gærkvöldi
spilaði Island við Danmörku, en í dag er
frídagur og þá verður farið í bátsferð á
Rín. GSH.
Sýndi helsta
Mstolt sittM
vid Hljóm-
skálann
■ Tvær konur - frönsk og íslensk -
kvörtuðu til lögreglunnar í gærkvöldi
vegna manns er sýnt hafði af sér
ósæmilega hegðun í Hljómskálagarð-
inum í Reykjavík. Ekki kváðu þær
manninn hafa sýnt sér ofbeldi, en
þær vildu að reynt yrði að koma í veg
fyrir að hann héldi áfram athæfi sínu
og þá jafnvel við börn.
Lögreglan sendi menn til að svipast
um eftir náunganum í hverfinu, en
þeim hafði ekki tekist að hafa hendur
í hári hans síðla í gærkvöldi þrátt
fyrir að konurnar gátu gefið af hon-
um nokkuð góða lýsingu. Lögreglan
taldi æskilegt að fólk láti hana vita'ef
það verður vart við eitthvað svona-
lagað. Ef t.d. faraldur kæmi upp,
eins og stundum hafi gerst, sé gott að
fólk láti vita og gefi lýsingu á
viðkomandi þannig að lögrcglan geti
þá betur áttað sig á hvort um sama
manninn sé að ræða í mögum tilvik-
um eða fleiri.
, -HEI
Nemar í flug-
umferdarstjórn
teknir í þjálfun
f haust
■ Flugmálastjórn hefur ákveðið að
taka nýja nema til þjálfunar í haust sem
er ári fyrr en ætlað var. Er þessi
ákvörðun tekin til þess að unnt verði að
draga úr vinnuálagi flugumferðarstjóra.
Til að tryggja nægilega mönnun við
flugumferðarstjórn á Keflavíkurflugvelli
og í Reykjavík verða skipulagðar bak-
vaktir flugumferðarstjóra og greitt fyrir
þær samkvæmt kjarasamningi aðila frá
5. nóvember 1982.
- JGK
Togarinn á
Patreksfirdi
enn stopp:
Hráefnið
dugir út
þessa
viku -
en síðan stööv-
ast rekstur
frystihússins
■ „Ef ekki tekst að koma togaranum
út á allra næstu dögum er fyrirsjáanlegt
að öll vinnsla í frystihúsinu stöðvast
fljótlega. Við höfum að vísu hráefni út
þessa viku en þegar það þrýtur verður af
litlu að taka, „sagði Jón Kristinsson,
forstjóri Hraðfrystihússins á Patreks-
firði, í samtali við blaðið í gær.
Togari Hraðfrystihússins, Sigurey,
hefur legið bundinn við bryggju í rúma
viku og ekki fengið afgreidda olíu vegna
fyrri skulda við olíufélögin. Einnig vant-
ar eitthvað á að áhöfn togarans hafi
fengið laun stn greidd, en þó hefur
ekkert komið fram sem bendir til að hún
muni stöðva skipið fáist olían afgreidd.“
Þeir hafa hingað til sýnt okkur skilning
og verið mjög hjálplegir," sagði Jón
Kristinsson.
Hann sagði ennfremur, að málefni
fyrirtækisins væru nú í skoðun hjá
Framkvæmdastofnun ríkisins, í við-
skiptabönkum og víðar.
- Sjó