Tíminn - 27.07.1983, Side 4
ÁRMÚLA11 5fMIS1500
FAHR stjörnumúgavélar eru fáanlegar í fjórum
stæröum: 2,80m, 3,0m, 3,30m og 4,0m FAHR
Stjörnumúgavélarnar eru mest seldu stjörnu-
múgavélarnar.
Tire$fotte
★ Sumarhjólbarðar
★ Jeppahjólbarðar
★ Vörubílahjólbarðar
Allar almennar viðgerðir
Tíresfone
umboðið
FLATEYRI
Sigurður Sigurdórsson
sími 94-7630 og 94-7703
Bændur
Mjög lítið notaöur URSUS 335 er til sölu.
Upplýsingar í síma 93-7735.
Bæjarbókasafnið í Keflavík:
Fimmfalt fleiri
»>■
völdu Snjólaugu
en Laxness
— Kvenrithöfundar í 6 efstu sætum á utlanalistanum
Keflavík: Á meðan 47 manns óskuðu
eftir láni á bók eftir Snjólaugu Braga-
dóttur voru aðeins 9 sem fengu lánaða
bók eftir Halldór Laxness og einn bók
eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Þetta
kom m.a. fram í niðurstöðum talningar
sem fram fór á útlánum bóka í Bæjar-
bókasafninu í Keflavik í febrúarmán-
uði s.l. að beiðni Félags íslenskra
rithöfunda. Safnið á 190 bækur eftir
Laxness, 90 bækur eftir Snjólaugu og
66 eftir Ólaf Jóhann.
„Krafa rithöfunda um skráningu út-
lána í almenningsbókasöfnum og
greiðslur samkvæmt þeim virðist því
eiga fullan rétt á sér. Ef marka má
þessa talningu er um mikla sveiflu að
ræða: höfundar sem eiga mjög margar
bækur í söfnum eru sumir ákaflega lítið
lesnir", segir Hilmar Jónsson, bæjar-
bókavörður í Keflavík m.a. um niður-
stöður þessar. En samkvæmt núgild-
andi lögum fá rithöfundar greitt fyrir
eign verka í almenningsbókasöfnum,
en ekki eftir því hve mikið þær eru
lesnar.
Heildarútlán safnsins í febrúarmán-
uði reyndist 5.427 bækur, þar af 963
bækur, eða 17,7% eftir íslenska höf-
unda, 313 talsins. Næst Snjólaugu í
útlánalistanum komu: Ingibjörg Sig-
urðardóttir 32 bækur, Guðbjörg
Hermannsdóttir 31 bók, Guðrún frá
Lundi 22 bækur, Aðalheiður Karls-
dóttir 18 bækur, Auður Haralds 13
bækur og Ingólfur Margeirsson 11
bækur. Vekur athygii að 6 útlánaefstu
höfundarnir eru konur.
Hilmar bókavörður bendir einnig á
að athyglisvert sé að engin barnabóka-
höfundui sé meðal þeirra efstu. Af
þeim voru efstir Ármann Kr. Einars-
son og Indriði Úlfsson með 9 bækur
hver.
-HEI
Heyskaparhorfur slæmar á
Snæfellsnesi
„Sýnist augljóst
að einhverjir verði að
fækka fénaði“
— segir Haukur á Snorrastöðum
„Sýnt að stefnir í
gjaldþrot margra
alþýðuheimila“
llúsavík: Þó áhrifa brfiðabirgðalag-
anna sé nú rétt að byrja að gæta, þá
er sýnt að Jsað stefnir í gjaldþrot
margra aiþýðuheimila, vcrði ekki
fljótlega gripið til aðgerða til að
milda eða afnema þá kjaraskerðingu,
sem af lögum þessum leiddi", segir
m.a. í ályktun frá fundi stjómar og
trúnaðarmannaráðs Vefkalýðsfélags
Húsavíkur.
Fundurinn mótmælir harðlega
þeim ákvæðum bráðabirgðalaganna
scm svipta vcrkalýðsfélögin samn-
ingsrétti í tvö ár. Réttur þessi sé
hvarvctna talinn til sjálfsagðra mann-
réttinda meðal frjálsra þjóða og af-
nám hans sé því skýlaust mannrétt-
indabrot. Jafnframt mótmælir fund-
urinn því harðiega að umsamdar
vísitölubætur á laun skuli stórlega
skertar á sama tíma og stórfelidar
vcrðhækkanir séu heimilaðar á vöru
og þjónustu. Byrðunum sc þannig
fyrst og fremst velt yfir á herðar
launafólks, á meðan öðrum þjóðfé-
lagshópum sé hyglað.
-HEI
Snæfellsnes: „Við erum heldur á-
hyggjufull, sveitafólkið, yfir heyskap-
arhorfunum. Það hefur verið afar úr-
komusamt og lítil spretta, enda ákaf-
lega kalt, þannig að hiti fór niður undir
frostmark í langan tíma, alveg þangað
til nú í júlí. Hér var ákafiega lítið um
fyrningar í vor og ég hef ekki trú á að
fólk heyi mikið í sumar. Mér sýnist því
augljóst að einhverjir verði að fækka
fénaði í haust“, sagði Haukur Svein-
björnsson, bóndi á Snorrastöðum,
spurður um heyskaparhorfur þar um
slóðir.
„Þó erum við líklega betur settir hér
í Kolbeinsstaðahreppi heldur en vestar
á Nesinu. Ég hef haft spurnir af bæjum
þar, þar sem allt upp í helmingur af
túninu sé hvítur af kali. Ég hef að vísu
ekki séð þetta sjálfur, en þó ekki væri
nema um þriðjung af túninu að ræða
væri það ægilegt", sagði Haukur.
Hann kvað votheysverkun vera tölu-
verða og fara vaxandi þar um slóðir.
Hluti bænda sé byrjaður að heyja í
vothey, en aðrir hafi ekki enn byrjað
slátt. Mjög slæmt sé þó að heyja í
vothey nema að veðrið hangi þurrt.
Þeir sem séu byrj aðir verði þó stundum
að láta sig hafa það, því heyið skemm-
ist enn meira af að bíða í ófylltum
hlöðunum heldur en þótt blautu sé
bætt ofaná. En þetta leiði bæði til verri
verkunar og verði heldur ekki eins gott
fóður.
Annað kvað Haukur líka koma illa
við bændur, þ.e. hve allur reksturs-
kostnaður hækki mikið meira en af-
urðaverðið. „Svo lengi sem ég man
eftir held ég að það hlutfall hafi aldrei
verið óhagstæðara en nú“, sagði Hauk-
ur á Snorrastöðum.
-HEI
Nær eingöngu
votheysverkun
í Hrútafirði
Hrútafjörður: „Hér í Hrútafirðinum
litu túnin út með besta móti í vor, ég
held að það sé nánast ekkert nýtt kal.
En sprettan hefur verið ákaflega hæg
og aðeins byrjað að slá á fáum bæjum.
Það háði líka hve 1 úrfellasamt var,
sem hafði þau áhrif að á raklendum
túnum áttu menn í erfiðleikum með að
koma áburðinum á. Klaki fór líka seint
úr jörð og er jafnvel ekki allstaðar
farinn ennþá. Það hefur t.d. komið í
ijós þegar verið er að vinna með
jarðýtu að komið er niður á klaka“.
Það er Jónas Jónsson á Melum í
Hrútafirði sem hér segir frá, en við
spurðum hann um sprettu og heyskap-
arhorfur þar um slóðir.
Jónas kvað menn nánast bíða eftir
að geta byrjað að slá. Við vestanverð-
an Húnaflóa sagði hann votheysverkun
nú víða komna yfir 90% af hey-
skapnum í heilu hreppunum. Nokkrir
bændur séu jafnvel alveg hættir að
þurrka hey, og gefist ágætlega að
fóðra á votheyi eingöngu. En þar sem
flestir séu með flatgryfjur sé nauðsyn-
legt að geta haldið stöðugt áfram þar
til lokið sé við að fylla hverja hlöðu.
Þar af leiðandi sé ekki hægt að byrja
slátt fyrr en tún séu öll orðin fulisprott-
in - ekki nóg að það séu komnir slægir
blettir. Og þó menn þurfi ekki beinltnis
þurrk þá þurfi veðrið að hanga þurrt,
nánst útilokað sé að stunda heyskap í
rigningu.
Auk þess að menn eru ekki eins
bundnir þurrki kvað Jónas votheys-
verkun hafa þann kost að auðveldara
sé að hafa samvinnu um heyskapinn og
töluvert sé um að menn geri það í
Hrútafirði - fari raunar vaxandi. Það
þýðir svo líka að vélar og tæki nýtist
betur.
Við spurðum Jónas hvað slíkur hey-
skapur taki langan tíma.
Ef t.d. þrír bændur sem samtals eiga
svona 6 dráttarvélar eru í samvinnu
um heyskapinn þá hygg ég að það sé
ieikur að slá og alhirða 5-6 hektara á
dag í meðal grasi og þokkalegri tíð.
Það á því að vera hægt að heyja
meðaltún eins og þau gerast hér -
30-40 ha. - á svona einni viku. En það
verður þá líka að vera nokkuð stíft
áframhald, sagði Jónas.
Hann kvað þetta þó hafa þann
annmarka að hætt væri við að grasið
verði orðið heldur ofsprottið hjá þeim
sem síðast er slegið hjá, ef beðið er
eftir að fullsprottið sé hjá þeim fyrsta
í röðinni.
-HEI