Tíminn - 12.08.1983, Blaðsíða 11

Tíminn - 12.08.1983, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 1983 FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 1983 Havlík kominn til Víkings ■ Tékkneski handknattleiksþjálfarinn Rudolf Havlik hefur hafiö störf hjá Víkingi í Reykjavík. Hann kom til lands- ins um síðustu helgi, oger þegar tekinn til við að undirbúa titilvorn Víkinga. Havlík tekur við crfiðu hlutverki, Vík- ingar eru íslands- bikar og Reykjavíkur- meistarar, og hafa verið helsta stórveldi íslensks handknattleiks undanfarin 5 ár, undir stjórn Pólverjans Bogdans Kowalc- zyk. Nú hafa margir af gömlu jöxlunum í Víkingi lagt skóna á hilluna, og ungt lið stendur eftir. Frjálsíþróttamót þroskaheftra á Kópavogsvelli í dag: ■ í dag verður haldið á Kópavogsvelli frjálsíþróttamót fyrir þroskahefta. Mótið er á vcgum íþróttasambands Fatlaðra. „Keppnisgreinar á mötinu eru: 60 m hlaup, 400 m hlaup, 800 m hlaup, boltakast, langstökk og reiptog. Keppt verður í fjórum flokkum, flokkum kvcnna og karla 16 ára @g eldri og yngri en 16 ára. Keppendur á mötinu eru skráðir 85 frá 6 félögum. og cru skráningar alls um 160. !>aö er stefnan hjá íþróttasambandi Fatl- aðra aö þetta mót verði árviss'viðburður í framtíðinni. Ulfar sigraði á Nissanmótinu ■ Úlfar Jónsson GK sigraði á Nissan- mótinu í golfi sem haldið var nýlega í Grafarholti hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Keppnin var fyrir drcngi 18 ára og yngri. Úrslit uröu þessi: Úlfar Jónsson GK..... 85 högg Arnar M Ólafsson GK.. 89 högg Karl Ó Karlsson GR... 93 högg Með forgjöf: Sigurður Sigurðarson GR . 99-22=77 högg Gunnar Sigurðsson GR . 94-15=79 högg Úifar Jónsson GK...... 85-4=81 högg / Hafsteinn og Svan unnu öMungakeppninni H Opið öldungantót-parakeppni var haldið í Grafarholti nýlega. Hafstcinn Þorgeirsson GK og Svan Friðgeirsson GR sigruðu á 66 höggum, Jóhann Benedikts- son GS og Baldvin Haraldsson GR urðu í öðru sæti á 66 höggum og Sverrir Norland og Guðmundur Ófeigsson báðir GR í þriðja sæti á 67 höggum Fullt af knatt- spymuleikjum í kvöld: .■ Einn leikur er í annarri deild íslands- mótsins í knattspyrnu í kvöld. KA og Víðir keppa á Akureyri, og hefst leikur klukkan 19.00 í þriðju dcild eru þrír leikir, HV og Víkingur Ólafsvík á Akra- nesi, ÍK og Grindavík í Kópavogi, og Huginn og Austri á Seyðisfirði. í fjórðu deild cru fjórir leikir, Haukar og Aftureld- ing í Hafnarfiröi, Stjarnan og Grótta í Garóabæ, Eyfellingur og Stokkseyri á Heimalandsvelli og Árvakur og Hvera- gerði á Melavclli Reykjavík. Pá er leikið í úrslitum4. flokks og5. flokks, Í5. flokki er leikiö ( Kópavogi, og í 4. flokki á KR velli og Melavelli eftir því sem við kom- umst næst. VALSMENN MÆTA ÞRÚTTI Ahiímrenda fyrsti leikur Reykjavíkurliðs á alvöru heimavelli í 1. deild Hart barist í leik Breiðabliks og Víkings í fyrst deild kvenna í gærkvöld, ein Víkingsstulknanna spymir með svakalegum tilburðum, og svipur Magneu H. Magnúsdóttur ber ekki vott um hrifningu, en er þó dálítið óræður, ef spáð er vandlega í. Ásta María Reynisdóttir, sem átti stórgóðan leik með Breiðabliki í gær, snýr sér bara undan. (Tímamynd Ari) ■ Valsmenn ætla að leika sinn fyrsta heimaleik í fyrstu deild á laugardag. Að vísu hafa Valsmenn leikið heimaleiki eins og öll önnur félög, en öll Reykjavtk- urliðin hafa leikið heimaleiki sína á Laugardalsvelli eða Melavelli hingað til, og lið í fyrstu deild karla ekki notað eigin velli undir kappleiki. í fyrstu deild kvenna hafa félögin aftur á móti leikið á eigin völlum. En Valsmenn ryðja nú brautina, leika á heimavelli, á Hlíöar- enda, við Þrótt. Grasvöllurinn á Hlíðarenda mun verða strikaður í stærðinni 73x110 metrar, en það er 10 metrum breiðara og 5 metrum lengra en Valbjarnarvöllur í Laugardal. Það að leika fyrstu deildarleik á heimavelli útheimtir að félagið þarf að inna af hendi alla þjónustu, sem starfs- fólk Laugardalsvallar innir af hendi þar. En vallarleigan fellur um leið út. Spurn- ingin er sú, hvort liðin auka áhorfenda- fjöldann hjá sér með þessu, því fólk úr viðkomandi hverfi á þá hægara með að fara á völlinn. Stærri knattspyrnuvöllur á að gefa af sér skemmtilegri fótbolta, þar sem meira rými er, en allt þetta kemur í Ijós, þegar knattspyrnufélögin fara að leika á eigin völlum, og jafnvel stærri völlum, og ekki sannast neitt fyrr en á reynir. SKAGASTELPtlRNAR SKELLTU VAL Hörð barátta um stigin í 1. deild kvenna - Breiðablik vann Víking og KR lagdi Vlði ■ Valsstúlkurnur, sem stöðvuðu sig- urgöngu Breiðabliks í 1. deild kvenna í knattspyrnunni um daginn, voru stöðv- aðar á Skaganum í gærkvöld. Skaga- stúlkurnar sýndu annan og betri leik cn fyrir viku þegar þær steinlágu á KR-vcll- inum, og sigruðu nokkuð örugglega nú 2-0. Þá sigraði Breiðablik Víking á Víkingsvelli 3-1 og KR-stúlkurnar sóttu stig í Garðinn, 6-0. Ekki tókst stúlkunum að setja mark í fyrri hálfleik á Skaganum, en í síðari hálfleik fóru hjólin að snúast hjá Skaga- liðinu. Kristín Aðalsteinsdóttir skoraði þá laglega beint úr aukaspyrnu rétt í byrjun hálfleiks. Þannig var staðan uns Laufey Sigurðardóttir, landsliðsfram- herji og aðalmarkaskorari Skagastúlkn- anna skoraði með öflugu skoti frá vítateig um miðjan síðari hálfleik. Vals- stúlkum tókst ekki að bæta stöðu sína í leiknum, og Skagastúlkur bættu engu við. Víkingsstúlkurnar eru í mikilli fram- för í fótboltanum, og getur liðið spilað ágætan fótbolta þegar það ieggur sig fram. Þannig var nokkurt jafnræði með þeim og Breiðbliksstúlkunum á Víkings- vellinum í gær fyrra hálftímann, en þá brast stíflan. Breiðabliksstúlkurnar tóku leikinn í sínar hendur, og skoruðu þrjú mörk. Magnea H. Magnúsdóttir varð fyrst til, þá Ásta B. Gunnlaugsdóttir og 4. flokkur IK til Englands: að lokum Erla Rafnsdóttir. Staðan 3-0 f hálfleik. Fljótlega í síðari hálfleik skoruðu Víkingsstúlkurnar, ValdísBirg- isdóttir gaf inn fyrir Breiðabliksvörnina, þar sem Thelma Björnsdóttir beið 6-8 metrum fyrir innan. Hún hafði nógan tíma og skoraði, en eitthvað var línu- vörðurinn úti á þekju þarna, venjulega dæmd rangstaða við þessar aðstæður. í Garðinum var jafnræði framan af fyrri hálfleik, en þá fór reynsla KR-liðs- ins og úthald að segja til sín. KR-stúlk- urnar skoruðu 2 mörk fyrir leikhlé, og bættu við fjórum í síðari hálfleik, þegar úthaldið fór að bresta alvarlega hjá Strákarnir spjara sig Laudruo ■ Strákarnir í 4. flokki ÍK hafa staðið þessum köppum að fara til Newcastle á SDvrnudeild stofnnð 1Q76 Strákarnir Strákarnir í 4. flokki ÍK hafa staðið sig vel í sumar, eins og reyndar allir yngri flokkar félagsins, komnir í úrslit íslands- mótsins í kanttspyrnu. Strákarnir hafa lagt hart að sér ásamt þjálfara sínum Gretari Bergssyni við æfingar og fjár- öflun í sumar, og nú stendur til hjá þessum köppum að fara til Newcastle á Englandi með MS Eddu 19. þessa mán- aðar. Þar munu piltarnir keppa og skoða sig um. Meðal þess sem þeir hafa gert sér til fjáröflunar fyrir ferðina er sala postu- línsplatta með áletruninni ÍK, knatt- spyrnudeild stofnuð 1976. Strákarnir færðu bæjarstjóra Kópavogs, Kristjáni Guðmundssyni fyrsta eintak stærri gerð- ar þessara platta, en peir eru númeraðir. Bæjarstjórinn fékk að sjálfsögðu númer 1. Verslunin Kópavogur gaf piltunum æfingabúninga í litum félagsins, og þang- að fóru strákarnir í öllum skrúða og þökkuðu fyrir sig. Piltarnir voru mynd- aðir við þessi tækifæri. Tíminn óskar strákunum góðrar ferðar... gerir lukku á Ítalíu ■ Fyrirliði 4. flokks afhendir Kristjáni Guðmundssyni bæjarstjóra Kópavogs ÍK-platta úr postulíni nr 1. ■ Hér eru strákarnir á leið inn verslunina Kópavog. ■ Michael Laudrup, hið nýja knatt- spyrnuátrúnaðargoö Dana gerir mikla lukku þessa dagana í Ítalíu. Þar mun hann í vetur leika með nýja fyrstu deildarliðinu Lazio, en er samnings- bundinn við stórliðið Juventus, aðeins lánsmaður hjá nýliðanum. Laudrup hef- ur leikið nokkra æfingaleiki með Lazio undanfarið, og í þeim fyrsta skoraði hann 2 mörk og í næsta þrjú. í þriggja marka leiknum fiskaði kappinn auk þess vítaspyrnu og lagði upp eitt mark. Blöðin á Italíu hafa fjallað mjög um þennan 18 ára danska knattspyrnuungling, og þegar er farið að áfellast Juventus fyrir að lána Lazio strák. Þegar leikmenn Lazio yfirgáfu knatt- spyrnuvöllinn í Vibertese, þar sem seinni leikurinn af áðurnefndum var leikinn, var Laudrup hundeltur af áhangendum Lazio, en hinn Giordani, stjarnan sem kostaði Lazio 140 milljónir króna, var einn á ferð á sömu leið. „Eins og gangurinn er hjá Juventus, virðist þar ekki veita af nýjum kröftum, og furðu- legt að þessi frábæri sóknarleikmaður frá Danmörku skuli hafa verið lánaður til keppinauts í deildinni", segja ítölsku blöðin, og sá söngur á sjálfsagt eftir að verða háværari ef strákur heldur áfram á þessari braut. - En ekki er nú allt sagt með þeim söng, Juventus er eitt besta félagslið heims, og hefur innanborðs 6 leikmenn úr HM liði ítala, auk pólsku stjörnunnar Bonieks og franska snill- ingsins Platini. Þar er því ekki alveg hlaupið í lið, enda lék liðið til úrslita í Evrópukeppni meistaraliða í ár. - En Danir geta verið ánægðir með nýja goðið sitt, Laudrup strákurinn virðist ætla að standa undir þeim vonum sem við hann hafa verið bundnar... Edwin Moses sinn eigin herra og þjálfari: „UM HELMINGUR OKKAR UÐS HEFUR NOTflÐ DÖP' — kappinn ekki par vinsæll medal félaganna ■ Bandaríkjamenn hafa eignast nokkra heimsmeistara í Heimsmeistara- mótinu í Helsinki, Carl Lewis vann hug og hjörtu áhorfenda, og það gerði Edwin Moses einnig. Edwin Moses sigraði í 400 metra grindahlaupi, og vann þar með sinn 81. sigur á alþjóðlegu móti í röð. Grindahlauparinn ósigrandi er hann kallaður. En Moses er ekkert sérstaklega vel liðinn af löndum sínum í frjálsíþrótt- ■ Edwin Moses, enginn smákall að sjá, cnda árangurinnn eftir því. unum, hann er ákveðinn, bæði í keppni og í skoðunum, og er ekkcrt feiminn að láta þær uppi. Edwin Moses er dálítið sérstakt fyrir- brigði í frjálsíþróttaheiminum. Hann hefur aðeins einu sinni tapað hlaupi síðan hann varð Olympíumeistari í Montreal 1976. Það var árið 1977, þá var hann sigraður af Vestur-Þjóðverjanum Harald Scmied. Sá sami Harald Scmied varð að láta í minni pokann fyrir Moses á HM nú. síðan 1977 hafa keppinautar hans aðeins getað horft á bakið á honum meðan keppnin stendur. Enda trúa því fáir að kappinn geti yfirleitt tapað, þó Skiptar skoðanir um val danska HM liðsins: SKILDU DANIR l>A BESIll EFTIR HEIMA? V íðisstúlkunum. U rslit þar 6-0 KR í hag. Breiðablik stendur enn best í fyrstu deild, hefur leikið einum færri leik færra en KR, sem er á toppnum með UBK með jafnmörg stig. ÍA og Valur fylgja fast á eftir og KR á bæði leik eftir við Breiðablik og Val. Breiðablik á ÍA eftir einnig en á heimavelli. Staðan: Breiðablík........... 7 6 0 1 16- 4 12 KR .................. 8 5 2 1 19- 7 12 Akranes.............. 8 4 2 2 22- 6 10 Valur................ 8 4 2 2 15- 5 10 Vikingur............8 1 07 3-18 2 Víðir...............7 0 0 7 4-39 0 ■ Danir velta nú vöngum mjög yfir því hvort besti maraþonhlaupari þeirra í kvennaflokki hefði unnið verðlaun á HM eða ekki, ef henni hefði verið Ieyft að fara til Helsinki og keppa. Dorthe Rasmussen heitir daman, og er dálítið sérvitur. Hún segir að íþróttaforystan í Danmörku hafi tekið frá sér verðlaun á HM, og margir íþróttasérfræðingar eru henni sammála. Dorthe Rasmussen hefur keppt víða í maraþonhlaupi kvenna undanfarið ár. Hún hefur verið önnur á eftir hlaupa- drottningunni norsku, Grete Waitz, sem er nánast ósigrandi í greininni um þessar mundir og sigraði í Helsinki nú á sunnudag. „Ég hef keppt tvisvar við Gretu á þessu ári“, segir Dorthe, „og í bæði skiptin verið önnur. Ég hef keppt við bæði bandarísku stúlkuna og þá rússnesku, sem urðu í öðru og þriðja sæti, og sigrað þær báðar. Besti tími sem Dorthe hefur náð í maraþonhlaupi er 2 klst og 36 mínútur. Michael Laudrup Hún var ekki valin í danska HM liðið, vegna þess að hún vildi ekki keppa í mörgum hlaupum, sem átti að velja úr útfra.' „Ég veit best sjálf hvernig maður undirbýr sig undir svona hlaup“, segir Dorthe. Og í stað hennar voru tvær aðrar danskar stúlkur sendar á HM. Það var álit margra sérfræðinga að Dorthe mundi koma til greina sem verðlaunahafi á HM, og furðuðu þeir hinir sömu sig á, hvers vegna hún hefði ekki verið valin t' liðið. Sumir segja að Danir hafi þannig kastað frá sér helstu verðlaunavon sinni. ■ Dorthe Rasmussen, besti kven- maraþon-hlaupari Dana. Hjólreidakeppni innanbæjar — í Hafnarfirði um helgina ■ Önnur innanbæjarkeppnin í hjól- reiðum á íslandi verður haldin í Hafnar- firði nk. sunnudag, 14. ágúst. Það er Hjólreiðafélag Reykjavíkur og JC í Hafnarfirði sem standa að keppninni en hún er haldin með dyggri aðstoð lögregl- unnar í Hafnarfirði. Eftir þriggja ára keppnisreynslu á þjóðvegum tókst að fá leyfi fyrir þessari keppni, innan bæjarmarka, en ein keppni hefur farið fram innan bæjarmarka hér- lendis fram að þessu, 17, júní sl. í Reykjavík. - Þessi keppni hefur þó algera sérstöðu að sögn hjólreiðasér- fræðinga, að því leyti að með henni verður hægt að fylgjast á einum stað. Hjólað verður í hring. Keppnin hefst klukkan 14 á sunnudag við Lögreglu- stöðina í Hafnarfirði, og verður hjólað hringurinn Lækjargata, Hringbraut, Öldugata, Reykjanesbraut, Þúfubarð, Suðurgata, Lækjargata fimm sinnum í keppnisflokki, og þrisvar í opnum flokki. Hjólreiðar eru vaxandi íþrótt á ís- landi, en um alla Evrópu eru hjólreiðar með allra vinsælustu íþróttum. Á Ítalíu og í Frakklandi er ætíð mikill viðbúnað- ur þegar keppni er, og víða leggst vinna niður þegar stjörnurnar mæta á svæðið. Brautryðjendur hjólreiðaíþróttarinnar sem keppnisgreinar hérlendis hafa lagt mikið á sig, en eiga þó við ramman reip að draga þar sem íslensk veðrátta er. Keppnin á sunnudag hefst klukkan 14, mæting er klukkan 13 og aldurstak- mark er 13 ára. hann hafi verið frá keppni mestan hluta ársins 1982, en þá átti hann við meiðsli að stríða í læri, og fékk einnig slæma inflúensu sem hann átti í langri baráttu við. Hann fyrirlítur þann leiða hlut sem sumir frjálsíþróttamenn gera sig seka um, að nota örvandi lyf eða hormónalyf, það sem á alþjóðlegu íþróttamáli er nefnt „doping". „Doping" erstærsta vandamál frjálsra íþrótta í dag“, segir Moses í viðtali við bandaríska blaðið Daily News. „Það eru ekki aðeins Austur Evrópubúar sem nota þetta, heldur einnig Bandaríkja- menn. Um hclminguraf HM-liði Banda- ríkjanna hefur notað þessi efni. Ég tilheyri í dag minnihlutahópi, sem ekki hefur notað dóp.“ Þessar fullyrðingar Moses hafa á unnið honum óvinsældir meðal félaga hans í bandaríska liðinu. En það snertir Moses ekki, hann er sinn eigin herra, án félags og þjálfar sig sjálfur. „Ég ætla að halda áfram að sigra, oggeri það þangað til ég hef unnið hundrað sigra í röð. Sá sigur má gjarnan vinnast í úrslitakeppn- inni á Ólympíuleikunum í Montreal enda er það áætlun mín“ segir Moses. Tiyggvi setti íslandsmet ■ Tryggvi Helgason frá Selfossi setti um síðustu hclgi nýtt íslandsmet í 100 metra bringusundi á móti í Karlsruhe í Þýskalandi. Tryggvi synti á 1:10,62 mín., en gamla metið sem hann átti sjálfur var 1:10,77 mín. Tryggvi keppti scm gestur á mótinu sem var þriggja landa keppni V-Þýskalands, Svíþjóðar og Ástralíu, en Tryggvi æfir nú með sænska landsliðinu í sundi. Ástralía sigraði í keppninni, Þjóðverjar urðu í öðru sæti og Svíar ráku lestina. Frí á HM í Helsinki ■ Algert frí var frá keppni á Heims- meistaramótinu í frjálsum íþróttum í Helsinki í gær. Á morgun mun keppni hefjast þar að nýju af endumýjuðum krafti. ■ Þessi mynd er tekin þegar fyrsta keppni í hjólreiðum innan bæjarmarka var háð 17. júní sl. Það er verið að ræsa út Guðmund Jakobsson hjólreiðakappa, en auk þess sem hann hefur náð ágætum árangri í hjólreiðunum, er hann mikill og ötull starfsmaður uppbyggingar hjólreiðaíþrótttarinnar hér á landi... Tímamynd Árni Sæberg .1 umsjón: Samúel Örn Erlingsson íþróttir

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.