Tíminn - 19.08.1983, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983
5
fréttir
WHO fundar um lyfjameðferð aldraðra:
„MÖRG VANDAMAL TENGD
LYFJAMEÐFERD ALDRADRA”
— segir dr. D.
Macfadyen
öldrunar
frædingur
hjá WHO
■ „Okkur hjá Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnuninni er Ijóst að lyfjanotkun
meðal aldraðra er hlutfallslega mun
meiri en hjá yngri aldurshópum. Það er
hins vegar ekki fyrr en á allra síðustu
árum sem mönnum hefur orðið Ijóst hve
vandamálið er stórt. Þess vegna vinnur
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin nú að
fyrirbyggjandi aðgerðum á þessu sviði,
m.a. í gerð upplýsingabæklinga fyrir
lækna og kennara í læknisfræði og er þar
að finna hvaða leiðir helstar eru til
úrbóta. Ég hygg að vandinn við lyfja-
meðferð hjá öldruðum liggi fyrst og
fremst í margháttuðum breytingum í
sálarlífi og líkamsstarfsemi þeirra. Eins
og við vitum eru sum lyf þeirrar náttúru
að auka verður skammtinn hjá öldruðum
auk þess sem önnur lyf hafa öflugri
verkun með aldrinum", sagði dr. D.
Maefadyen framkvæmdastjóri þeirrar
deildar WHO sem fer með málefni
aldraðra á blaðamannafundi í gær.
Þessa daga stendur yfir hér á landi
notkun lyfja". í þeirri mynd kom flest
það fram sem dr. D. Macfadyen minntist
á, einkum hversu erfitt það er oft fyrir
aldraða að fara eftir skriflegum leiðbein-
ingum og munnlegum, því fyrir aldurs
sakir vildi slíkt oft gleymast. Á vegum
WHO er nú unnið að öruggari aðferðum
til að koma í veg fyrir ranga notkun lyfja
og öruggari aðferðum fyrir aldraða við
að notfæra sér þau á réttan hátt.
í handbók þeirri sem fyrirhugað er að
gefa út kemur fram að vandamál þau
sem læknar eiga við að stríða varðandi
úrskurð um gildi lyfja, eru margskonar.
Almar Grímsson læknir sem sæti á í
stjórn WHO sagði á fundinum í gær, að
læknar hefðu fram til þessa ekki getað
sýnt fram á að eitt lyf væri öðru betra
hvað snertir t.d. þurra slímhúð í hálsi.
Þess vegna væri alveg eins réttlætanlegt
að benda á glas af heitu vatni sem ráð
við þeim kvilla eins og að benda á
einhver lyf.
-ÞB.
■ Nokkrir fulltrúar WHO á fundinum í gær. F.v. Almar Grímsson læknir, Ingólfur Petersen, dr. M.N.G. Dukes, dr. D.
Macfadyen og prófessor F.I. Caird. Tímamynd: G.E.
fundur Alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
arinnar um lyfjameðferð hjá öldruðum,
en markmið fundarins er m.a. að Ijúka
við gerð handbókar fyrir lækna og
starfsmenn í heilbrigðisþjónustunni.
Þátttakendur á þessum fundi eru sér-
fræðingar í læknisfræði, lyfjafræði og
hjúkrun með sérstaka þekkingu á lyfja-
meðferð hjá öldruðum.
1 gær efndu fundarmenn til kvik-
myndasýningar þar sem sýnd var
fræðslumynd sem bar heitið „IJm örugga
* • m
• í —
A4MJ J 'i jL ^
■ Á æfingu í Hagaskólanum í gær. Það hefur ekki verið slegið slöku við æfingarnar,
heldur á tónsprotanum.
Zukofsky-námskeiðið:
þær hafa staðið 6 tíma á dag, 6 daga vikunnar. Það er auðvitað Zukofsky sem
Tímamynd GE
Tónleikará laugardaginn
■ Sjöunda námskeiðið sem bandaríski
tónlistarmaðurinn Poul Zukofsky heldur
með ungum hljóðfæraleikurum í
Reykjavík hefur staðið yfir í Hagaskóla
síðan 5. ágúst. Þátttakendur eru 75
talsins, þar af eru 8 erlendir. Æft hefur
verið 6 tíma á dag 6 daga vikunnar bæði
í fullskipaðri hljómsveit og í smáhópum.
Aðstoðarmenn Zukofskýs eru Nancy
Elan, Karen Olson og James Sleigh sem
þjálfar strengina, Bernard Wilkinson
sem þjálfar blásara og Eggert Pálsson
sem þjálfar slagverksleikarana.
Árangur alls þessa starfs getur að
heyra í Háskólabíói laugardaginn 20.
águst. Kl. 14.00þanndaghefjasttónleik-
ar þátttakenda í Zukofskýnámskeiðinu
undir stjórn hans. Flutt verða verkin
Dauði og uppljómun, Tod und Verklár-
ung eftir Richard Stauss, Uppstigningin,
L’ascension eftir Oliver Messiaen, flutt
hér til að minnast 75 ára afmælis tón-
skáldsins á þessu ári, og loks Myndir á
sýningu eftir Modest Mussorgsky í
hljómsveitarbúningi Maurice Ravels.
Það er Tónlistaskólinn í Reykjavík
sem gengst fyrir Zukofsky-námskeiðun-
um en í ár hafa Flugleiðir veitt umtals-
verðan fjárstuðning. Styrktarfélagar
hafa þegar fengið miða á tónleikana á
laugardaginn en miðar verða einnig
seldir við innganginn. - JGK
Veitingahöllin:
„Ævintýri
líkast”
segireigandinn Stefán Ólafsson
■ „Þetta hefur verið ævintýri líkast,"
sagði Stefán Ólafsson, eigandi Veitinga-
hallarinnar en nú eru tveir mánuðir
síðan þessi veitingastaður hóf göngu
sína. Stefán á einnig Múlakaffi og hefur
rekið það í 21 ár.
„Alveg síðan við opnuðum hefur verið
mikið að gera og þetta hefur farið fram
úr björtustu vonum okkar,“ sagði
Stefán.
„Veitingahöllin er í raun og veru þrír
veitingastaðir. Það er í fyrsta lagi matur-
inn sem við sendum í bökkunum í
fyrirtæki og stofnanir, í öðru lagi kaffi-
terían þar sem menn geta fengið sér að
borða í einum grænum og síðast en ekki
síst rólega hornið okkar þar sem kúnninn
lætur dekra við sig,“ sagði Stefán.
Að sögn Jóhannesar Stefánssonar,
framkvæmdastjóra Veitingahallarinnar,
verður um miðjan september opnaður
40nr bar fyrir innan rólega hornið, þar
sem menn geta fengið sér fordrykki og
fleira áður en sest er að borðum.
Veitingahöllin er í Húsi Verslunarinn-
ar og húsnæði veitingastaðarins er í eigu
Lífeyrissjóðs Verslunarmanna. Hefur
Veitingahöllin gert leigusamning til 10
ára. Yfirmatsveinn er Diðrik Ólafsson
og yfirþjónn er Hörður Haraldsson.
-Jól.
■ Hið vistlega „rólega horn“ í Veitingahöllinni þar sem dekrað er við kúnnann.
Tímamynd: GE
Bliki
Nýtt tímarit
um fugla
komið út
■ Út er komið nýtt tímarit um fugla
sem ber heitið Bliki, og eru útgefendur
þess dýrafræðideild Náttúrufræðistofn-
unar íslands í samvinnu við áhugamenn
um fugla og Fuglaverndarfélag íslands.
Bliki er fyrsta rit sinnar tegundar sern
gefið er út hér á landi og er því ætlað að
birta sem fjölbreytilegast efni um ís-
lenska fugla, bæði fyrir leikmenn og
lærða.
í ritinu verður sóst eftir að koma á
framfæri nýjum upplýsingum um ís-
lenska fugla sem geta verið margvísleg-
ar. Til dæmis verða birtar árlegar skýrsl-
ur um ákveðna þætti fuglaathugana,
einnig niðurstöður fuglatalningá sem
fram fara milli jóla og nýárs. Þá er
fyrirhugað að birta árangur fuglamerk-
inga, en þær hafa verið birtar á fslandi
s.l. 60 ár.
Sem dæmi um annað efni má nefna
samantektir um fuglalíf ákveðinna staða
og nýjar upplýsingar um varpútbreiðslu
fugla. Ritinu er ætlað að vera vettvangur
athugana frá stöðum sem lítt eru kann-
aðir með tilliti til fugla. Þá verða styttri
eða lengri greinar um ýmsar fugla-
nýjungar og þá fjallað um niðurstöður
rannsókna um sjaldgæfar eða nýjar
fuglategundir.
Bliki mun koma út óreglulega en
a.m.k. eitt hefti á ári. Þeim sem óska að
fá ritið sent, er boðið að vera á útsend-
ingarlista. Þetta fyrsta hefti Blika kostar
130 kr. og er innheimt með gíróseðli.
Afgreiðsla ritsins er að Laugavegi 105,
125 Reykjavík í Náttúrufræðistofnun
íslands, en síminn er (91)—29822.
-ÞB.