Tíminn - 19.08.1983, Page 20
‘ Opið virka daga > 9-19. laugardaga 10-16 HEDD? , 1 Skemmuveg' 20 Kopavogt ( Stmar (91)7 75 51 & 7 80 30 N N Varahlutir Miklö úrval Sendum um land allt Ábyrgö á öllu \ Kaupum nýlega ' bíla til niðurrifs SAMVINNUI TRYGGINGAR &ANDVAKA ARMULA3 SIMI 81411 Ciabriel cQ r HÖGGDEYFAR 11 u QJvarahlutir .SSKST'V.
gfamtm Ritstjofn 86300 - Auglysingar 18300 - Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvoldsimar 86387 og 86306 0 FÖSTUDAGUR 19. ÁGÚST 1983
Ríkisstjómin ráðstafar gengismuni vegna gengisfellingarirmar:
STÆRSTR UPPHÆDIN RENNUR
f STOFNFJARSJÓÐ FISKISKIPA
■ Ríkisstjórnin gekk í gxr frá
skiptingu þeirra 550 millj. króna
sem áætlað er að komi til ótdeil-
ingar úr gengismunasjóði. Að
sögn Halldórs Ásgrímssonar,
sjávarútvegsráðherra mun taka
langan tíma að allt það fé skili
sér í sjóðinn, en tæpar 162 millj.
voru komnar inn í júlflok s.l.
Stærsta upphæðin, 300 millj,
rennur í stofnfjársjóð fiskiskipa.
Sextíu millj, verður varið í lán-
veitingar til loðnuskipa og 15
millj, til loðnuverksmiðja. Tíu
milljónum verður varið til orku-
sparandi aðgerða í útgerð og
öðrum 10 millj, til að efla gæði
og vöruvöndun. Sextíu millj.
fara í saltfiskdeild Verðjöfnunar-
sjóðs. U.þ.b. 55 millj, tilgreiðslu
eftirstöðva skulda Olíusjóðs
fiskiskipa. 37 millj, renna til
sjómannasamtakanna, 4 millj,
til Styrktar- og Iánasjóðs fiski-
skipa og 1,2 milljónum verður
varið til sérstaks átaks í loðnuleit
í haust.
Af fyrrnefndum 300 millj, í
Stofnfjársjóð fara 100 milljónir
kr. inn í reikninga fiskiskipa í
sjóðnum, með hliðsjón af afla-
verðmæti þeirra frá júlíbyrjun í
fyrra til júníloka í ár. Upphæðin
dreifist á 609 skip, mest að
sjálfsögðu til togaranna. Um 50
þessara skipa fá yfir 500 þús. kr.
en ekkert þó yfir eina milljón
króna. Hinar 200 milljónirnar
renna í Stofnfjársjóð til lækkun-
ar á skuldum alls um 400 fiski-
skipa vegna lána sem tekin hafa
verið eftir 1. júlí 1975. Ekkert
skip fær þó meira en 2,5% af
heildarfjárhæðinni, þ.e. 5 millj,
króna. Uppreiknaðurógjaldfall-
inn höfuðstóll skulda þeirra sem
miðað er við var um 4.500 mill-
jónir króna þann 25. maí s.l.,
þannig að 200 milljónirnar jafn-
gilda því aðeins 4.44% af þeirri
upphæð. Verulegar vanskila-
skuldir, skuldir við Byggðasjóð,
olíuskuldir og ýmsar aðrar eru
ekki meðtaldar í fyrrnefndri
4.500 millj. króna upphæð.
Lánin til loðnubátanna skipt-
ast á 51 skip í hlutfalli við
loðnukvóta. Hæsta upphæðin er
1.662 þús., en sú lægsta 930 þús.
Lán þessi, verða verðtryggð, en
vaxtalaus og eiga að greiðast
með 1% af aflaverðmæti.
Fyrir þær 1,2 millj, sem verja
á til sérstaks átaks i loðnuleit á
að fjármagna leiðangur Árna
Friðrikssonar til loðnuleitar, í
stað þess að gert hafi
verið ráð fyrir að hann yrði
bundinn við bryggju sökum
fjárskorts. Sjávarútvegsráðherra
kvað brýnt að fá sem fyrst svar
við því hvort hægt verður að
stunda loðnuveiðar í haust.
• Verði það ekki taldi hann komið
upp enn þá alvarlegra ástand en
menn hafi gert sér grein fyrir
ennþá.
Af þeim 37. millj, króna sem
renna eiga til sjómannasamtak-
anna eiga 30 millj, að fara í
Lífeyrissjóði sjómanna, en hinum
7 verði ráðstafað til annarra
velferðarmála í þágu sjómanna,
með samráði við þá. _ upi
Markús Örn:
Gefur út er-
lent tímarit
Modern lceland mun þad
heita og kemur út í haust
■ „Það er ekkert leyndarmál
að ég er að undirbúa útkomu
crlends tímarits og stefnan er að
blaðið komi út fijótlega í haust,“
sagði Markús Orn Antonsson,
borgarfulltrúi, í samtali við
Tímann, en heyrst hafði fleygt
að hann hefði í hyggju að gefa nt
erlent tímarit sem ætti að heita
Modcrn Iceland.
„Það sem fyrst og fremst vakir
fyrir mér með þessu er að kynna
þá aðila hér innanlands, sem eru
með sambönd við útlönd og eru
að reyna að kynna sína vöru og
þjónustu á erlendum markaði.
Ég geri ráð fyrir að svona lagað
færi í gegnum utanríkisþjónust-
una og sendiráð íslands erlendis.
Ég þekki það af heimsóknum
mínunt í sendiráðin að þeir sem
þar starfa, kvarta oft undan því
að prentað efni af þessu tagi sé
ekki fyrirliggjandi. Forráða-
menn og fulltrúar fyrirtækja leita
til sendiráðanna og biðja mikið
um upplýsingar um íslenskar
vörur til dæmis. Ætlunin er því
einnig að kynna þær nýjungar
sem eru á döfinni hjá okkur á
þessu sviði.“
Ljóst er að blaðið verður fyrst
og fremst viðskiptalegs eðlis.
Aðspurður sagði Markús Örn
að Modern Iceland væri það
nafn sem hefði verið kynnt sem
vinnuheiti blaðsins í þeim kynn-
ingarbréfum sem hann hefðj sent
út. Jafnframt sagði Markús' að ef
einhverjar stórsnjallar hug-
myndir kæmu um betra nafn yrði
Modern Iceland tekið til endur-
skoðunar. „Eins og staðan er í
dag er mjög líklegt að þetta nafn
verði ofan á,“ sagði Markús.
„Á þessu stigi málsins treysti
ég mér ekki til að segja til um
útgáfutíðni blaðsins, það verður
bara að koma í ljós“, sagði
Markús.
Að lokum sagðist hann standa
einn að undirbúningnum á blað-
inu en það væri ekki ósennilegt
að einhverjir fleiri aðilar myndu
tengjast þessu síðar meir.
- Jól.
■ Útimarkaður var á Ráðhústorgi á Akureyri í gærdag og 'mæltist það vel fyrir. Hér fara fram viðskipti og varan er ávextir.
Vonandi fékk frúin rétt til baka. Tímamynd GE
dropar
Ef allt væri
á eina bókina...
■ Það vakti að sönnu veru-
lega athygli þegar Tíminn upp-
lýsti að Sighvatur Björgvins-
son, fyrrum alþingismaður Al-
þýöuflokksins, hefði verið ráð-
inn til sérstakra starfa hjá
Framkvæmdastofnun ríkisins,
en hann var einn af þeim
mönnum sem harðast barðist
gegn stofnuninni á þingi og
mun helst hafa viljað leggja
hana niður i núverandi mynd.
Mönnum er að vonum hugs-
að til fleiri fall-kandidata Al-
þýðuflokksins frá síðustu al-
þingiskosningum. Hafa gár-
ungarnir m.a. staldrað við nafn
Magnúsar H. Magnússonar
minnugir þess að eitt hans
baráttumál var að leggja niður
Fasteignamat ríkisins. Segjast
þeir allt eins búast við því að
Magnús taki fyrr eða síðar við
yfirmannsstöðu í þeirri
stofnun, ef fleira verður á
sömu bókina lært og hjá Sig-
hvati.
En talandi um fall-kandidata
Alþýðuflokksins. Árna Gunn-
arssyni, einum þeirra, mun hafa
verið boðið starf hjá bókafor-
laginu Erni og Örlygi sem ein-
hvers konar hxgri hönd
Örlygs. Ekki mun hann þó
hafa getað hugsað sér að taka
tilboðinu, þar sem kveðið mun
hafa verið á um það að hann
kæmi ekki nálægt pólitík í eitt
til tvö ár ef af ráðningunni
yrði. Ámi hefur hins vegar
metið pólitískt ástand hérlend-
is svo, að fyrr en seinna gæti
dregið til kosninga, og þvi gott
að vera laus allra mála ef út í
slaginn færi.
Kona í buff???
■ Dropateljari las sér til
furðu i Morgunbiaðinu í gær
að ákveðinn veitingastaður hér
í borg auglýsti eftir: „Konu í
bufP‘ Ekkert kemur hins vegar
fram um hvernig „bufi" er að
ræða, né verð á kílói í því
sambandi. Að vísu hefur verið
uppi umræða um hvernig hugs-
jm eftir aö ráöa í eftirtalin störf:
Konu í sal
Konu í buff
Vaktavinna.
Konu i elahús
Vaktavinna.
Konu í eldhús
Dagvlnna.
plýsingar á staðnum trá kl. 4—7 i i
Veitlngahöllin,
Húsi verslunarinnar.
anlega mætti ráðstafa kjötmeti
sem fram kæmi vegna niður-
skurðar á hrossum eða sauðfé,
en Dropar kannast ekki við
niðurskurð á „konum“ sem
hugsanlega gæti skilað sér í
„bufP‘-gerð veitingahússins.
Krummi ...
...sér að nú á að veita Iceland
Review samkeppni