Tíminn - 21.08.1983, Síða 16

Tíminn - 21.08.1983, Síða 16
SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983 16 r i> nutíminri KURTEIST KULTÚR- PRUMP... ■ ÞAÐ TÓK OKKUR NOKKRAR VIKUR AÐ MÆLA OKKUR MÓT FYRIR ÞETTA VIÐTAL SEM HÉR FER Á EFTIR. ÞORSTEINN VAR í HLJÓÐRITA ALLA DAGA OG NÆTUR EN ÉG EKKI, ÞANNIG AÐ VIÐ URÐUM EKKI VARIR VIÐ HVORN ANNAN NEMA í GEGNUM SÍMA. LOKS KOM ÞÓ AÐ ÞVÍ AÐ VIÐ HITTUMST AUGA FYRIR AUGA OG ÞAÐ EINVÍGITÓK EKKI NEMA ÞRJÁR KLUKKUSTUNDIR. í STAÐINN FYRIR AÐ GREIÐA ÞORSTEINI HÖGG í HNAKKANN GAF ÉG HONUM KAFFI OG OFAN í BOLLANUM RÆDDUM VIÐ UM ÞAÐ SEM ÞYKIR HÆFA SEM UM- RÆÐUEFNI VIÐ MÚSÍKANTA. ÞÓ ER EKKI HELMINGURINN AF ÞVÍ SKRAFI PRENTHÆFUR FYRIR MARGAR SAKIR. LÍFSHLAUP STEINA ÞÆTTI EFLAUST MÖRG- UM ANSI SAFARÍK SAGA OG ÞÁ EINKUM ÞÁ SEM KLÆJAR AF SPENNINGI VIÐ AÐ HEYRA MIÐ- UR SIÐSAMLEGAR SÖGUR UM NÁUNGANN. OG ÞÁ SÉRSTAK- LEGA SÖGUR UM POPPARA ÞVÍ ÞEIR HAFA ÆTÍÐ ÞÓTT GÓÐUR BITI MILLI TANNANNA. VIÐ STEINI KOMUM OKKUR SAMAN UM AÐ KYNDA EKKI FREKAR UNDIR KJAFTGLEÐI SÓMAKÆRRA ÍSLENDINGA OG AÐ HALDA OKKUR VIÐ AÐAL- EFNIÐ, Þ.E. TÓNLISTINA, ÞÓTT ÞAÐ SÉ NÁNAST ÓUMFLÝJAN- LEGT AÐ ÖNNUR EFNI OG ÝMIS VAFASÖM. FYLGI TÓNLISTAR- GRUFLI ÞVÍ SEM ÞESSARI SÍÐU ER ÆTLAÐ AÐ KYNNA. ÞORSTEINN ER EKKI ÁBER- ANDI í HINUM TAKMARKAÐA POPPHEIMI HÉR Á LANDI. ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ ÉG VALDI HANN TIL AÐ FYLLA ÚT í ÞESSA SÍÐU ER SÚ AÐ HANN ER ÞESSA DAGANA AÐ LEGGJA DRÖG AÐ NÝRRI PLÖTU í SAM- VINNU VIÐ TONY COOK OG AÐ AUKI AÐ SPILA MEÐ HINUM OG ÞESSUM, M.A. FRÖKKUNUM OG JÓNASI R. JÓNSSYNI. ÞAÐ ER STAÐREYND, ÞÓTT MÖRGUM SÉ ÞAÐ EKKI UÓST VEGNA LEIÐIN- LEGRA ORSAKA SEM VERÐA RAKTAR HÉR Á EFTIR, AÐ ÞOR- STEINN GAF ÚT SÍNA FYRSTU SÓLÓPLÖTU, EINNIG í SAM- VINNU VIÐ TONY, SEINT Á SÍÐ- ASTA ÁRI OG VAR SÚ PLATA TALSVERT í ÖÐRUM ANDA EN HEFÐBUNDNAR ÚTGÁFUR ÍS- LENSKRA HLJÓMPLATNA. VIÐ SKULUM GRÍPA NIÐUR í ÞAR SEM KAFFISULLIÐ BYRJAÐI: NT: Ég ætla að byrja á öfugum enda. Skamm- astu þín fyrir eitthvað sem þú hefur gert? PM: Ég sé ekki eftir neinu. Þaðerþó margtsem maður mundi vilja gera aftur þegar hlustað er á það núna en það þýðir bara ekkert að vera að svekkja sig yfir einhverju sem verður ekki tekið aftur. NT: Ég er nú strax farinn að sjá eftir þessari spurningu. En hún verður ekki aftur tekin. Við komum okkur saman um að tala ekki mikið um fortíðina en mig langar að spyrja þig aðeins út í Þeystímabilið og hvaða áhrif það hafði á þig eftir að hafa verið svona lengi í Eik og fleiri gjörólíkum hljómsveitum. ÞM: Þeyr var mikil nýjung fyrir mig og góð. Þótt það hafi verið mikil nýsköpun og margt að gerast á meðan Eikin var á lífi fékk ég miklu frjálsari hendur með Þeysurum og miklu fleiri möguleikar opnuðust. Þú getur rétt ímyndað þér, eftir að Eik hætti 1977 eða 8 liðu tvö ár í rugli og vitleysi, síðan spilaði ég með Geimsteini, það má segja að það hafi opnast nýr heimur fyrir mig með Þey. NT: En nú fannst mér Þeyr ekki vera neitt mjög nýir þegar ég sá þá í fyrsta skipti. Það var í Norræna húsinu og tónlistin var frekar hefðbundin miðað við það sem seinna varð. ÞM: Nci, Þeyr var ekki mjög „ný“ til að byrja með. Ég áttaði mig ekki alveg á þeim strax, þeir koma allir úr mismunandi tónlistarumhverfi og eru ólíkir persónuleikar. En útkoman kom síðan alveg af sjálfu sér, engin sérstök áhrif heldur hafði hver og einn mjög frjálsar heldur. Fyrir mig persónulega var þessi svokallaða sprenging í íslensku poppi 1981 mikið stökk. Ég hef starfað mikið sem session maður og í þannig spilamennsku er maður oft heftur þótt persónan skíni alltaf leynt eða Ijóst í gegn. T.d. var manni sagt hérna áður að spila kannski eins og einhver ákveðinn gítarleikari... NT: Ertu gítarleikari? Svei mér þá, ég.... ÞM:.... einsog t.d. EricClapton. Einu sinni var ég beðinn að spila J.J. Cale og ég hafði aldrei heyrt í honum. En ég spilaði víst eins og hann og byrjaði upp frá því að hlusta á hann. NT: Var ekki alltaf verið að líkja þér við ákveðnar gítarhetjur? ÞM: Jú jú, fyrst var það aðallega Clapton og síðar John Mclaughlin. En ég held ég hafi grætt mikið á fyrri árum, maður hefur fengið góða reynslu í stúdíóum sem kemur manni í góð nyt. Þegar ég lék á plötu Megasar, Fram og aftur blindgötuna, fékk ég í hendurnar allar nótur og svo var bara spilað beint af blaði. Það eru annars nokkrir hlutir á þeirri plötu sem ég mundi vilja gera aftur. NT: Já en Steini, þú sagðir áðan að þú sæir ekki eftir neinu sem... í framhaldi af þessari athugasemd reyndi Þor- steinn að koma á mig höggi en ég gaf honum þá meira kaffi. Umræðurnar snerust þá í áttina að hálfgerðri vitleysu og ég sýndi honum mynd af mér sem var tekin þegar ég var í gagnfræðaskóla. ÞN: Þú hefur breyst. NT: Hvers vegna hættirðu í Þey? ÞM: Það var nú aðallega vegna þess að ég vildi gera eitthvað annað, var reyndar búinn að taka upp Líf og svo urðu smá árekstrar. Enda voru ólíkar persónur innanborðs og þegar kom eitthvað upp á skiptumst við í tvo þrjá hópa. Killing Joke vesenið skýrði síðan skoðanir okkar og flýtti fyrir því hvernig fór. Annars kom Killing Joke mér aldrei við. NT: Fannst þér gaman af Killing Joke? Þessari spurningu svaraði Steini aldrei því mér datt hún ekki í hug fyrr en hann var farinn og mér fannst ekki taka því að vera að ná í hann fyrir eina spurningu sem skipti í sjálfu sér ekki svo miklu máli. Svo datt mér líka í hug fleiri spurningar eftir að hann var farinn út en þær koma bara næst. NT: Svo ertu að spila með Frökkunum... ÞM: Já. NT: Þú ert að spila með Frökkunum. ÞM: Með þeim er ég frekar sem session maður, æfi bara fyrir tónleika og svo mun ég óverdöbba gítar á plötuna þeirra. Sú hljómsveit er mjög skemmtileg og mér leyfist að gera það sem ég vil. Það er oft sem ég fæ hugmyndir fyrir mig sjálfan þegar ég spila með öðrum, hugmyndir sem ég geymi fyrir okkur Tony. Ég á erfitt með að segja öðrum músíköntum fyrir verkum og þess vegna fellur mér best að vinna einn að eigin verkefnum, spila allt einn og syngja og sjá um alla effekta með Tony. Eiginlega var Líf 50% mín plata og 50% Tonys. Tony er fyrir mér ekki bara hljóðupptökumaður þótt það sé hans starfsgrein., Hann er mjög músíkalskur og án hans hefði mín eigin músík orðið allt öðruvísi. Hvernig veit ég ekki. NT: Segðu mér eitthvað um tilurð og efni fyrstu plötu þinnar, Líf. ÞM: Aðaluppistaðan í þessari tónlist eru ljóðin. Það hefur tekið mig sjö átta ár að þróa þetta form sem ég nota, það er mjög knappt og bundið og tónlistin verður algjörlega til eftir hljómfalli orðanna. Túlkunin er myndræn og ef fólk á kannski erfitt með að sætta sig við að þetta sé músík þá er hægt að kalla það hljóðlist. Alls kyns hljóð og mikill ásláttur er aðal byggingin og mér finnst gott að vinna lengi að lögunum því þau eru nákvæm eins og textarnir: Fyrir mig framan/ er furðuleg sjón;/ fáein flón, / sem finnst ekki gaman/ að vera vakin/ úr villtum draumi,/glens ogglaumi,/ganga um nakin./Svífa um salinn/ í syfjaðri vímu/ með gleðinnar grímu,/ gráturinn falinn./ Lífið er leikur/ í lyganna klæðum/ skáldverk í skræðum/ skrifarinn veikur.../ Hér sit ég ásvið,/ sálarfriði rúinn./ Veð ég villu?/ Veld ég illu?/ Búinn...(Af sviði) NT: Við fyrstu sýn virðast textarnir þínir ekki vera á samtíma íslensku og eflaust eiga sumir erfitt með að skilja sum orðin. Finnst þér þetta form og þessi orðaforði vera rétti miðillinn ef þú ert að miðla einhverju. Og ef þú ert að því, hvað er það þá helst? ÞM: Það eru margir sem ekki skilja, eða segjast ekki skilja, en þetta er bara venjuleg íslenska. Ég er ekki að hreyta einhverjum boðskap framan í fólk, það hefur enginn efni á því að vera að skíta út aðra á meðan hann er sami syndgarinn sjálfur. Auðvitað eru alls kyns bendingar í textunum og það þarf að segja öllum til syndanna, en um leið er ég að skamma mig. Það sögðu nokkrir um Líf að hún væri eingöngu sjálfsskoðun, sem var ekki satt, en það er vonandi að orðin geti smitað út frá sér. Ég hef engar sérstakar pólitískar ástríður, trúi á Guð fyrir sjálfan mig og vonast til þess að geta lagað sjálfan mig áður en ég fer að laga aðra. NT: En þú svaraðir aldrei spurningunni um yrkisefnið. Þú ert oft ansi klámfenginn... Áður en Steini svaraði þessari spurningu bauð ég honum meira kaffi sem hann afþakkaði vegna þess að hann var á bíl. En svo tók hann sjensinn og við sötruðum kaffið rétt eins og drengirnir í Vatnaskógi sötra kvöldkakóið. Það er annars mikill munur á Steina og dreng úr Vatnaskógi. ÞM: íslendingar eru nú bara klámfengnir. Þú getur sagt að ég sé þjóðlegur, yrkisefnin eru mannlífið yfirleitt og það er fleira í mannlífinu en fólk sér og vill sjá. NT: Jæja, ég sé að þú ætlar ekki að svara spurningunni, en ertu að meina að íslendingar séu andlaus kvikindi? ÞM: Lundin er Ijót/ sem leirugt grjót;/ illt er að búa á ísaslóð/. Úti er allt/ ísjökulkalt;/ frýs í æðum frónarblóð./ Andaleysið okkur hrjáir/ endilega í kvöld/ grandalausir, getusmáir,/ grundin enda köld,/ vand er fundin vísuhending,/ valda kulda- gjöld./ I am through with understanding/ our nasty world..(Lund) Eiginlega var það nú ég sem svaraði þessari spurningu en ég held að Steini hefði bara ekki getað svarað henni betur en með þessum texta sínum. ÞM: Ókey, ég skal svara þessari andskotans spurningu þinni. Ég er mjög bjartsýnn. Það er mikil svartsýni sem grasserar í popptextum og mikið áf henni er tilbúið. Mönnum sem semja svoleiðis hlýtur að líða ægilega illa. NT: skulum við breyta um umræðuefni. Hvað viltu segja um t.d. popppressuna? Það þurfti ekki miklar gáfur til að sjá að Líf var hálfvegis kaffærð í fjölmiðlum, ekki með neinu ofbeldi heldur þögn. ÞM: Já, hún var nokkurn veginn ignoreruð og ég held að þar hafi komið til ótti hjá blaðamönnum við að fjalla um hana. Jafnvel bara vankunnátta. Svo er pressan svolítið dauf á vissan hátt, t.d hef ég verið efnilegur eða frambærilegur í tíu ár. Ég held að pressan sé bara sterk á einu sviði í sambandi við popptónlist, það eru auglýsingarnar. „Fastur í formi að fornum hætti rímandi rekald á röngum tíma!“ (Fattast af fáum frónversk þó orðin) Eins og fleirtala af fólki finnst vart á blaði nema sem kurteist kúltúrprump kýldur í punginn af fávísi og þögn skyldu þeir vera skeindir af mönnum? skammarlaust að pissa á sig? I sambandi við Líf, þá var meiri áhugi fyrir henni fyrir utan skerið, t.d. í Hollandi og Bretlandi. Ég hugsa að nýja platan verði sungin á ensku og að ég leiti meira út með þessa tónlist Eg er búinn að fá inngöngu í tónlistarháskóla í Hollandi og vonast til þess að komast þangað. Það er slæmt að hafa ekki nein réttindi á pappírum því það er erfitt fyrir mig að fá einhverja fyrirgreiðslu þar sem ég flokkast ekki undir „æðra“ tónskáld eða hreinan poppara. í þessum skóla er kennd sónólógía og ég verð að fást við elektróníska tónlist.í framtíðinni. NT: Áður en ég bið þig að passa þig á myrkrinu langar mig að spyrja þig hvernig þér hefur fundist fólk á þínum aldri eldast og hvað þér finnst um þína kynslóð. ÞM: Það er misjafnt, ég hef lítið kynnst fólki sem lifir því sem kallað er normal lífi og hef ekki mikið lagt mig eftir því. Sjálfum finnst mér ég ekki hafa elst í tíu ár. En ef við lítúm á poppara á mínum aldri sem flestir eru kallaðir skallapoppar- ar finnst mér ljótt að horfa upp á suma sem hafa drukknað í peningaspilamennskunni. Margir af þeim sem ég hef kynnst í gegnum spilamennsku hafa stoppað mig á götu og hrósað mér fyrir plötuna Líf en sumir hafa litið á mig með tortryggni og haldið kjafti. Þögn er ekki góð einkunn. Og þá var nóg eftir af kaffi en minna af spurningum svo að við kölluðum þetta bara dag. NT: Varaðu þig á myrkrinu, Steini. Bra Bubbi og Baraflokkurinn í Safari ■ Þann 24. ágúst kemur Bubbi fram í Safari með gestum. Þar mun hann syngja lög af plötu sinni Fingraför og kannski eitthvað fleira sem ég hef ekki hugmynd um hvað er. Kvöldið eftir kemur Baraflokkurinn frá Akureyri. Það er orðið langt síðan að þeir hafa spilað í Reykjavík og það þarf enginn að segja okkur að þeir verða með mikið af nýju efni. -Bra

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.