Tíminn - 21.08.1983, Blaðsíða 23

Tíminn - 21.08.1983, Blaðsíða 23
SUNNUDAGUR 21. ÁGÚST 1983 23 Sellhorn og bankastjórinn voru nú skjótir að átta sig á hlutunum. Fékk Sellhorn brátt góða hugmynd. Sem verðbréfasali vissi hann um nokkra bændur, sem gjarna vildu selja bú sín, en kærðu sig ekki um reiðufé og vildu fá greiðslu í tryggara formi. Voru þá ekki eðalsteinar, sem Fuhrmann hafði ábyrgst, rétta greiðsluformið? Fyrsta fórnarlambið var ríkur gósseigandi í Schwelbeck í Holstein, en hann vildi selja aðra af tveimur jörðum sem hann átti í grennd við Kiel. í skrifstofu bankastjóra Herms-bankans voru hon- um sýndir steinarnir og hin virðulegu skilríki sem sönnuðu að þeir væru ekta. Seldi gósseigandinn að lokum jörðina, sem var 57 hektarar, fyrir eina milljón marka út í hönd og 1.8 milljónir greiddar í 'eðalsteinum, - verð dr. Fuhrmanns! Eftir að Scllhorn hafði leikið á iand- eiganda nokkurn í grennd við Lúneburg með sömu brellunni, tók Wilhelm bankastjóri að leika þetta einnig. Hann keypti ódýra steina hjá Fröber gim- steinasala og lagði Fuhrmann enn aftur á steinana sitt dýra mat. Bankastjórinn varð þó brátt að gefa Sellhorn upp á bátinn sem milligöngumann er útvegaði viðskiptavini, þar eð hann hafði verið dæmdur til þess að sitja í fangelsi í tvö ár og fjóra mánuði. 5% AF MATINU Wilhelm gerði því Siegfried nokkurn Lehrer frá Karlsruhe að viðskiptafélaga sínum. Sá var margreyndur í ýmsu og hafði minnst fimmtíu sinnum komið fyrir rétt vegna gruns um skjalafals og svikastarfsemi í tengslum við gimsteina- sölu, en nær alltaf sloppið við refsingu. Lehrer dró viðskiptavini að úr öllum áttum. Wilhelm bankastjóri bauð góð lánakjör, en lánin voru jafnan að þriðj- ungi gimsteinar. Nefna má dæmi af verksmiðjueiganda frá Rínarlöndum sem sárvantaði tíu milljónir og bauð lóð í Köln sem tryggingu. Maðurinn fékk lánið, sjö milljónir í peningum, en þrjár milljónir í gimsteinum og skartgripum. Þegar viðskiptavinurinn frá Köln vildi slá lán út á gimsteinana sína hjá banka sínum í Bremen, spurði hann Herms bankann hvað líklegt væri að fengist út á þá. „Svo sem 35% af mati sérfræðings- ins,“ var svarið. Enn einn sérfræðingur var fenginn til þess að skoða steinana og sá sagði: „Þetta er ódýr fjöldafram- leiðsla. Þeir eru hæfilega metnir á 5% af matinu." Gimsteina-sérfræðingurinn Elisabeth Strack í Hamborg, sem á undanförnum árum hafði oftsinni skoðað steina sem Fuhrmann hafði ábyrgst sagði: „Ég hef oftsinnis aðvarað þá hjá Herms-bankan- um. Ábyrgðir Fuhrmanns eru svik og lygi." Þeir hjá Herms-banka vildu þó ekki láta þetta fargan setja sig út af laginu og á viðskiptaárinu 1982 gerði bankinn opinbert að hagnaður hefði aukist úr 45 milljónum í 115 milljónir marka. Þetta vakti athygli bankaeftirlitsins og þegar rannsókn hafði farið fram var þessari 157 ára gömlu viðskiptastofnun lokað í ársbyrjun 1983. „Við sitjum enn uppi með eðalsteina, sem við getum ekki selt fyrir átta prósent af matsverðinu," sagði Wilhelm við blaðamenn. MARGUR SVIKINN Svindl með ódýra eðalsteina sem metnir hafa verið til mikils fjár er nýjasta uppátæki svindlara í viðskiptalífi Evrópu og víðar. Þeir taka milljónalán og láta eðal- steina sem tryggingu. Á síðustu þrem árum urðu einir tuttugu þýskir bankar fyrir skaða vegna þannig viðskipta. Til dæmis tapaði Spar- und Darlehensbank éinum 900 þúsund mörkum á slíku, þ.e. ■ Dr. Werner Fuhrmann hefur víða komið við sögu og aðstoðað við að narra stórfé út úr áhrifamiklum bönkum. ■ Hér má sjá þá þremenningana Hans R. Wilhelm, bankastjóra, (t.v.) Dirk Sellhorn og loks Frans Maurice Verbruggen, sem var einn þeirra sem vottaði ágæti steinanna. um 9 milljónum ísl. króna. í peninga- skápum sínum geyma þessir aðilar ógrynni af verðlitlum gimsteinum. Toll- yfirvöld segja að um fjórðungur sé ekkert annað en glerbrot. Margir bankar vita því raun harla lítið um þau verðmæti sem þeir liggja með sem tryggingu. Fallega lágu þeir í því Svisslendingarnir sem lánuðu 80 milljón- ir franka (260 milljónir ísl. króna) út á gimsteina, sem voru sáralítils virði. Spánski aðalsmaðurinn og fjármála- spekúlantinn Jaime-Ballestero-Aguilar hafði leitað eftir 80 milljón franka láni í Sviss í því skyni að koma upp hótelbygg- ingum á Mallorca. Spánverjinn leitaði eftir láninu með tilstyrk nafnfrægs fjár- málaráðgjafa fyrirtækis „Villiger", sem m.a. er ráðgefandi í fjármálum Biskups- dæmisins í Basel, sem á geysilegar eignir. Bauð hann tryggingu í liteðal- steinum að verðgildi 140 milljónir franka. Ábyrgðarbréfin mcð gimsteinunum fylgdu voru flest frá „Eðalsteinarann- sóknastöðinni í Antwerpen" og undirrit- uð af Frans Maurice Verbrúggen og vini hans dr. Werner Fuhrmann, sem lesend- ur munu nú kannast við. Smiðshöggið á allt saman sló svo prófessor dr. Júrgen Pense, forstöðumaður eðalsteinafræða við háskólann í Mainz. Þann 10. maí 1980 ritaði prófessorinn Ballestero svo bréf, þar sem hann tjáði honum að frá áramótum hefði verð á smarögðum, rúbínum og safírum hækkað um minnst 20 eða 30%. „Það á auðvitað ekki síður við um eðalsteina yðar,“ sagði í bréfinu, „þá steina sem ég sjálfur hef rannsakað þrívegis." Ekki lét Ballestero sér þó nægja þetta bréf. Hann bauð þessum frömuði eðal- steina í Þýskalandi til Zúrich og lét hann persónulega lýsa ágæti steinanna fyrir bankastjórunum. Svisslendingarnir létu nú undan og reiddu af höndum áður umgetnar 80 milljónir. 1 ársbyrjun 1982 flaug svo fiskisagan um hneykslið út, því Ballestero greiddi ekki lánið. HEIMSKA BANKANNA? Nú fengu bankarnir eigin sérfræðinga til þess að skoða steinana. Úrskurður þeirra var voðalegur: „Við vorum hingað kvaddir til þess að rannsaka lit eðalsteina," sagði svissneski sérfræðingurinn Gúbelin, „en ekki hrat....“ Þeir töldu verð steinanna ekki 140 milljónir franka, heldur um það bil fimm milljónir. Vinur Bállestero, Antonius Hadzin- estoros, öðru nafni Anton baron af Kassel, tókst að narra á sama hátt út úr Standard Chartered Bank í London 2.4 milljónir svissneskra franka. Það var prófessor Pense sem staðfest hafði ágæti steinanna. „Þetta er heimsku bankanna að kenna" segir starfsmaður Verbrúggen, Albert Stoffels. „í stað þess að lesa ábyrgðarvottorðin eins og þau koma fyrir, þá láta þeir blindast af stærð steinanna. Hefðu þeir gætt sín betur mundu þeir hafa komist að muninum sem er á heildsöluverði og verði á sérpöntuðum steinum." Vafi leikur þó á hvort Verbrúggen og fleiri komast upp með þennan skilning á málunum. Yfirleitt vissu sérfræðingarnir að nota átti steinana sem veð í bönkum og að áliti samtaka sérfræðinga um eðalsteina hefði átt að geta þeirrar upphæðar sem steinarnir gátu staðið fyrir sem veð. Bankar í Þýskalandi, Sviss, Englandi og Austurríki hafa tapað jafnvirði 2000 milljóna ísl. krónaáþennan hátt. Svindl- ararnir gátu lengi áfram leikið sama leikinn, vegna þess að bankarnir kusu heldur að þegja um skakkaföll sín og gera grein fyrir tapi sfnu á skattaskýrsl- um sínum, en kæra meðferðina! (Þýlt-AM) Kýr óskast til kaups. Einnig mjaltakerfi Tilboö sendist augl. deild Tímans merkt „Kýr“ 1790 Sími 44566 RAFLAGNIR Nýlagnir - Breytingar - Viöhald jB samvirki § Skemmuvegi 30 — 200 Kópavogur. PLASTPOKA OG PRENTUN FÆRÐU HJÁ lliistos lll* BÍLDSHÖFÐA 10 ( VIÐ HLIÐ BIFREIÐAEFTIRLITSINS SÍMI: 82655

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.