Tíminn - 07.05.1983, Blaðsíða 1
Ræða Jóns Sigurðssonar um efnahagsmálin - bls. 9
Bla 1 ð 1 Tvö blöð ídag
Helgin 7.-8. maí 1983 103. tölublað - 67. árgangur
UM 54 TONN AFSKREW SEND
OT An TILSKIUNNA PAPPÍRA?
— Sjávarútvegsráðuneytid hefur málið nú til rannsóknar
■ Sjávarútvegsráðuneytið hef-
ur nú til atugunar mál sem snýr
að ólöglegum útflutningi á
skreið, það er 1800 bölum af
hertum þorskhausum eða 54
tonnum. Þetta mun hafa verið
sett um borð í eitt af skipum
Hafskips á leið til Nígeríu án
þess að tilskildir pappírar væru
til staðar, það er pappírar frá
Framleiðslueftirliti sjávaraf-
urða.
RÚSSNESKUR
„RYKSUGU-
FLOTl” ÚT AF
REYKIANESI
- um 45
skip á
karfaveiðum
undan 200
mílna
mörkunum
■ „Þetta er einn anginn af
svokölluðum „ryksuguflota“ en
þarna eru nú um 45 skip á
karfaveiðum og halda þau sig
allt frá 200 mílna mörkunum og
3040 mflur þar út“ sagði Guð-
mundur Kjærnested í samtali við
Tímann er við spurðum hann um
hinn rússneska flota sem nú er að
veiðum út af Rcykjanesi en
nokkuð hefur verið um að þeir
hafi beðist aðstoðar héðan úr
landi vegna veikra og slasaðra
sjómanna sinna.
„Karfinn sem þeir veiða er
ekki sá sami og við veiðum.
Þetta er sérstakur stofn sem
heldur sig þarna á 5-600 m dýpi
en hafdýpið á þessum slóðum er
1600-2000 m. Þeir segjast fá 5
tonn í hali eftir 5 tíma sem er
ekki mikill afli í sjálfu sér. í fyrra
aftur á móti sáum við þá taka
þetta 30-40 tonn í hali en það var
að vísu aðeins seinna í mánuðin-
um eða um miðjan maí.
Stofninn sem þeir veiða þekkj-
um við ekki vel, þetta er lítill
fiskur þetta 30-35 sm stór og þeir
heilfrysta hann um borð og nýta
hann allan,“ sagði Guðmund-
ur.
Hann sagði ennfremurað flot-
inn væri byggður upp af 3000
tonna fiskiskipum en síðan væru
aðstoðarskip af ýmsum stærðum.
-FRI
„Þetta mál er alveg á byrjun-
arstigi og við erum með það til
athugunar. Sú athugun snýst um
hvort þessi skreið hafi verið send
út samkvæmt lögum og reglum
þar að lútandi. Framleiðslueftir-
litið þarf að taka út allan slíkan
vaming sem fer til útlanda og
spurningin er hvort því hafi verið
framfylgt eða ekki“ sagði Jón B.
Jónasson í sjávarútvegsráðu-
neytinu í samtali við Tímannen
hann vildi ekki tjá sig nánar um
málið.
Jóhann Guðmundsson for-
stjóri Framleiðslueftirlitsins
sagði í samtali við Tímann að
þeir vissu um þetta mál en það
væri á þannig stigi nú að þeir
vildu ekkert um það segja. Hann
gat þess ennfremur að ef þessir
pappírar væru ekki til staðar
gæti sendandi enga greiðslu feng-
ið fyrir varninginn.. „Ef skipað
er út tiltekinni vöru og ekki
fylgja réttir pappírar með þá er
allt bankakerfið lokað“ sagði
hann og gat þess einnig að mjög
sjaldgæft væri að þeir þyrftu að
hafa afskipti af svona málum.
Samkvæmt þeim heimildum
sem Tíminn hefur aflað sér í
þessu máli þá mun þessi skreið
vera mjög léleg að gæðum og því
hefðu ekki fengist fyrir hana
útflutningsskjöl, búið hefði verið
að hafna henni sem útflutnings-
, hæfri vöru í langan tíma áður en
' hún fór út.
Spurningin sem vaknar í þessu
sambandi er hinsvegar sú að
varla hefði átt að vera möguleiki
á að þessi atburður ætti sér stað.
Ef ekki eru til pappírar getur
sendandi ekki fengið greiðslu
gegn bankaábyrgð. Hér hafa
ekki fengist útflutningsleyfi í
viðskiptaráðuneytinu nema um
bankaábyrgð væri að ræða.
Sendandi á ekki að geta fengið
farmskírteini fyrr en hann er
búinn að tollafgreiða vöruna og
hann getur ekki tollafgreitt vör-
una fyrr en hann er búinn að fá
matsvottorð frá Framleiðslueft-
irlitinu en það var alls ekki til
staðar.
-FRI
Ef Reykjavíkurborg samþykkir tilboð ríkisins hefur hún eignast bæði Engey og Viðey og ef til vill verður þar byggingasvæði næstu ára. Myndin er af Engey.
Tímamynd Ámi Sæberg.
Tilboð rlkisins um skuldalúkningu vid Reykjavlkurborg:
BORGIN FÁIENGEY T1L EKNAR
■ Ríkið hefur boðið Reykja-
víkurborg Engey og land í Selási
til eignar og mun það koma fyrir
borgarráð í næstu viku. Forsaga
málsins er sú, að sögn Höskuldar
Jónssonar, ráðuneytisstjóra í
fjármálaráðuneytinu, að í fjár-
lögum 1981 var sett inn í fjárlög
að ríkið gerði upp skuldir sínar
við borgina, en þær voru einkum
tilkomnar vegna framkvæmda
við B ogG álmu Borgarspítalans
Flkniefnaneytandi tekinn á Hlemmi með 3 glös af banvænu eitri:
ÞEKKTUR FYRIR AD PRANGA
ÚT Vmsu sem fíkniefnum
— „þetta er alveg stórhaettulegt” segir Gísli Björnsson hjá f íkniefnalögreglunni
■ Fíkniefnalögreglan handtók
á Hlemmi í fyrradag fíkniefna-
neytanda en hann var í mjög
slæmu ástandi. í fórum hans
fundust síðan þrjú lyfjaglös eða
ambúlur með banvænu efni í,
cyannethaemotglobin, en það
mun vera notað við blóðrann-
sóknir.
„Þetta efni er alveg stórhættu-
legt enda banvænt" sagði Gísli
Björnsson hjá fíkniefnalögregl-
unni í samtali viðTímann. Málið
er ennfremur alvarlegt af þeirri
ástæðu að þessi maður er þekkt-
ur fyrir að reyna að pranga út
ýmsum efnum sem fíkniefnum,
til dæmis tei sem marijúana.
Gísli sagði ennfremur að þeir
teldu að þessum glösum hefði
verið stolið af sjúkrahúsi eða
rannsóknarstofu og óvíst væri að
ekki hefðu fleiri en þessi 3 glös
verið tekin.
Glösin sem efni þetta er í eru
úr gleri, brún að lit og yfirbrædd
eins og morfínglös en stærri.
-FRI
og við Arnarholt. Var þá gerð
tillaga um að áðurnefnd lands-
svæði yrðu látin upp í þessar
skuldir en fékk ekki næga um-
ræðu þá. Málið hefur nú verið
tekið upp aðnýjuog báðir aðilar
hafa kynnt umbjóðendum sínum
þessar hugmyndir að sögn Hösk-
uldar.
„Ef borgarráð samþykkir
þessa hugmynd þá er ekkert því
til fyrirstöðu að eignaskiptin geti
farið fram, sagði Höskuldur.
„Fjármálaráðherra þarf að vísu
að undirrita þetta, en tilboðið er
að sjálfsögðu gert með hans
vitund og sömuleiðis með vitund
landbúnaðarráðherra, en undir
hann heyrir Engey.“
-JGK