Tíminn - 07.05.1983, Blaðsíða 3

Tíminn - 07.05.1983, Blaðsíða 3
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983. Undirskriftasöfnun meðal sjálfstæðismanna: VIUA TAKA STJORNAR- MYNDUNARUMBOD AF GBR \ „Undirskriftirnar vonum framar/’segir Guðmundur Guðmundsson, stjórnarmaður í samtökum sjálfstæðismanna í Fella og Hólahverfi ■ „Það er kannski of mikið sagt að þessi undirskriftarlistar séu til höfuðs formanni flokksins. Hins vegar teljum við sem að þessu stöndum, að þeir 60, sem kjörnir voru til setu á Alþingi, eigi að stjórna landinu og reka þjóðarbúið, en ekki þeir sem falla í kosningum," sagði Guðmundur Guðmundsson stjórn- armaður í samtökum sjálfstæðismanna í Fella- og Hólahverfl, en hann er einn forvígismanna undirskriftarlista, sem nú ganga meðal sjálfstæðismanna í Reykja- vík og víðar. Á listunum stendur skrifað: „Við undirritaðir stuðningsmenn Sjálfstæðis- flokksins skorum á miðstjórn flokksins að flýta landsfundi eftir föngum. Jafn- framt skorum við á þingflokk sjálfstæðis- manna að kjósa nefnd þriggja alþingis- manna til að semja um væntanlega stjórnarmyndun/' „Undirtektir hafa verið vonum framar miðað við að við erum rétt að fara af stað,“ sagði Guðmundur, en gat þó ekki nefnt tölur í því sambandi. Hann vildi heldur ekki segja hversu stór hópur það væri sem þarna stæði að baki. _ Þegar Guðmundur var beðinn að nefna nöfn einhverra sem þarna koma við sögu sagði hann að það væri ekki tímabært: „Ég við þó taka fram að Albert Guðmundsson kemur þarna hvergi nærri, þótt margir standi í þeirri trú,“ sagði Guðmundur. Þá vildi Guðmundur að fram kæmi að hann stæði í þessu sem óbreyttur sjálf- stæðismaður en ekki sem stjórnarmaður í Fella- og Hólasamtökum flokksins. -Sjó Á annað þúsund færri ferðamenn í aprll sl. ■ Á annað þúsund færri íslenskir ferðamenn komu til landsins nú í aprílmánuði s.l. heldur en í sama mánuði 1982, eða aðeins 5,058 í ár á móti 6.292 í fyrra. Munurinn er um 20%. Komur útlendinga til landsins voru hins vegar álíka margar - 3.762 nú en 3.888 í aprílmánuði t fyrra, samkvæmt yfirliti útlendingaeftirlits- ins. Frá áramótutn til aprílloka komu nú 15.930 íslendingar til landsins en voru 17.050 á sama tíma 1982. Munurinn er 1.120 manns, eða u.þ.b. sem nemur fækkuninni í apríl s.l. Komur útlendinga þessa fyrstu fjóra mánuði ársins voru nú 10.917, sem er 277 manns færra en á sama tíma árið áður. , -HEI ■ Aðalstræti 10. Hér var hluti „Innréttinga“ Skúla fógeta til húsa og er húsið hið elsta í Reykjavík. (Tímamynd Róbert) Allir borgarstjórnarflokkarnir vilja friða Aðalstræti 10: Reynt til þrautar að semja við eigandann ■ Á borgarstjórnarfundi í fyrradag lýstu ailir flokkar sig þess fýsandi að hús- ið Aðalstræti 10 verði friðað. Eigandinn Þorkell Valdimarsson, hefur leigt húsið út til reksturs spilavítis og samþykkti borgarstjórn viljayfirlýsingu um það að sá samningur verði ekki endurnýjaður, þegar hann rennur út 27. ágúst á næsta ári. Fyrir fundinum lá tillaga frá borgar- fulltrúum Alþýðubandalagsins um að Reykjavíkurborg friði húseignina og láti endurbyggja hana með það fyrir augum að því verki verið lokið á 200 ára afmælí Reykjavíkur árið 1986. Tillögunni var vísað til borgarráðs til umfjöllunar að tillögu borgarstjórans, Davíðs Oddsson- ar og lýstí hann því yfir að hann vildi reyna til þrautar að ná samkomulagi við eigandann um kaup á húsinu. Hefur eigandinn fram að þessu sett það skilyrði fyrir samningum að þeir taki til allra eigna hans í Grjótaþorpinu, sem hann verður að bera mikinn kostnað af. Þá mælti borgarstjóri með því að frestað yrði breytingum á lögreglusam- þykktinni um rekstur spilakassa og var það samþykkt. Beiðni um það hafði komið frá barnaverndarráði og einnig lá fyrir tillaga frá fulltrúum kvenna- framboðsins sama efnis. Hyggst barna- verndarráð gangast fyrir málþingi um þau mál á næstunni. -JGK ■ Nýskipaður sendiherra Bretlands hr. Richard Thomas afhenti forseta íslands trúnaðarbréf sitt á fimmtudag að Bessastöðum að viðstöddum Ólafi Jóhannessyni, utanríkisráðherra. Síðdegis þáði sendiherrann boð forseta að Bessastöðum ásamt fleiri gestum. Sendiherra Bretlands hefur aðsetur í Reykjavík. ISUZU/1TROOPER ^pD) ISUZU TROOPER JEPPINN, sem er án efa fjölhæfasta farar- tækið sem völ er á. ISUZU TROOPER er byggður á heila sterka grind. - Drif á öllum hjólum. - Hátt og lágt drif. - Framdrifslokur . - Vökvastýri. — Sportfelgur o.fl. Sparneytin bensín- eða díeselvél, byggð af reyndasta vélaframleiðanda Japan, „ISUZU." HUGSIÐ FRAM í TÍMANN og tryggið ykkur nýjan ISUZU TROOPER strax á tollgengi þessa mánaðar. Við erum nokkuð vissir um að þeir lækka ekki á næstunni. VEIADEILD SAMBANDSINS BlFREiÐAR Ármúla 3 Reykjavik S. 38 900

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.