Tíminn - 07.05.1983, Blaðsíða 8

Tíminn - 07.05.1983, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983. Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísii Sigurösson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Jóhanna B. Jóhannsdóttir. Afgreiöslustjóri: Siguröur Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjórar: Kristinn Hallgrímsson og Atli Magnússon. Umsjónarmaöur Helgar-Tímans: Guömundur Magnusson. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriöason, Heiöur Helgadóttir, Jón Guöni Kristjánsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja Jónsdóttir. Útlltsteiknun: Gunnar Trausti Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guöjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttlr. Prófarkir: Flosi Kristjánsson, Kristín Þorbjarnardóttir, María Anna Þorsteinsdóttir. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Sföumúla 15, Reykjavik. Sími: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86392. Verð í lausasölu 18.00, en 20.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 210.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaöaprent hf. Útvarpshúsið ■ Það má telja til sögulegra atburða, að hornsteinn Útvarpshúss- ins var lagður í fyrradag af Ingvari Gíslasyni menntamálaráðherra. Það var verðskuldað, að það féll í hlut Ingvars Gíslasonar að leggja hornsteininn. Ingvar Gíslason hafði mikil áhrif á að hraða byggingu hússins, þegar hann ákvað á 50 ára afmæli Ríkisútvarps- ins 20. desember 1980 og veita leyfi til að halda áfram byggingu þess. Hún hafði þá tafizt í tvö ár vegna tregðu annarra stjórnarvalda. Barátta forustumanna Ríkisútvarpsins fyrir byggingu Útvarps- húss er orðin löng og hefur ekki gengið þrautalaust. Fyrsti útvarpsstjórinn, Jónas Þorbergsson, fékk því framgengt, að stofnaður var sérstakur byggingarsjóður. Jafnframt lét Jónas Þorbergsson gera teikningu að Útvarpshúsi, sem hefði orðið vegleg bygging á þeim tíma. Vegna ýmissar tregðu og efnahagslegra örðugleika, varð ekki neitt úr framkvæmd. Byggingamálið lá síðan í dái þangað til í árslok 1970, þegar Gylfi Þ. Gíslason beitti sér fyrir stofnun byggingarsjóðs og skipaði byggingarnefnd í framhaldi af því. Síðan var unnið áfram að málinu, en ekki hófust þó aðgerðir að ráði fyrr en í menntamálaráðherratíð Vilhjálms Hjálmarsson- ar. Hann var mikill áhugamaður um bygginguna og átti frumkvæði að því að fjárráð byggingarsjóðsins voru stóraukin. Viss stjórnar- völd stóðu samt gegn framkvæmdum, unz Ingvar Gíslason hjó á hnútinn eins og áður sagði. Síðan hefur byggingarframkvæmdum verið haldið sleitulaust áfram og er nú svo komið, að hin nýja rás hljóðvarpsins mun ge^ fengið nokkurn hluta byggingarinnar til starfrækslu sinnar síðar á þessu ári. Á næstu árum ætti svo öll starfsemi hljóðvarpsins að geta flutzt þangað og síðar starfsemi sjónvarpsins. Þá verður öll starfræksla Ríkisútvarpsins undir einu þaki. Það mun skapa útvarpinu stórum betri skilyrði, að öll starfsemi þess getur farið fram í einu og sama húsi. Jafnframt verður hægt að koma við miklu betri tæknibúnaði en ella. Ríkisútvarpið er vafalítið áhrifamesta mennta- og menningar- stofnun þjóðarinnar og sú þeirra, sem nær til flestra landsmanna á öllum aldri. Þótt starfsskilyrðin ein nægi ekki til að tryggja menningarhlut- verk þess, eru þau eigi að síður mikilvægur þáttur í því. Þess vegna ber að fagna því, að Útvarpshúsið er að verða veruleiki. skrifað og skrafað Margir spámenn á meðal vor ■ Eins og þjóðin hefur lítil- lega orðið vör við standa nú yfir stjórnarmyndunarvið- ræður og mýgrútur spámanna er upp risinn á meðal vor. Fjölmiðlar ausa út upplýsing- um og tilgátum um hverjir mynda stjórn með hverjum. Rætt er við ónefnda þing- menn sem telja þetta eða telja hitt og ályktanir dregnar eftir því sem hverjum sýnist. Hið frjálsa og óháða DV og þingflokkur sjálfstæðis- manna cru komin í hár saman vegna fréttar sem birtist um ósætti innan raða þingliðs Sjálfstæðisflokksins. At- hugasemdir ganga á víxl og meira að segja Morgunblaðið er dregið inn í málið þar sem birt er tilkynning frá þing- flokknum sem hnykkir á um að fréttir um ósætti meðal þingmanna Sjálfstæðis- flokksins séu úr lausu lofti gripnar og tilhæfulausar. En þeir hjá DV svara fullum hálsi og segja ummælin um ósættið höfð eftir þing- manni Sjálfstæðisflokksins og „annars eftir fleiri þing- mönnum í öðrum flokkum." En viðræðurnar hafa sinn gang hváð sem öllum frétta- skýringum líður og vonandi hljóta þær farsælan endi og þingræðisstjórn verði mynduð, hvernig svo sem hún verður samansett þegar upp verður staðið. 1. júní grúfir eins og skuggi yfir þeim viðræðum sem nú fara fram, en þá á kaup að hækka samkvæmt vísitöluútreikn- ingum og í kjölfarið verða enn meiri hækkanir og hugsa ábyrgir menn með hryllingi til þess að ef heldur sem horfir án þess að gripið verði í taumana muni verðbólgan að lokum kaffæra allt efna- hagslífið. Stjórnarmyndunarvið- ræður taka oft langan tíma á íslandi þar sem samræma þarf viðhorf og stefnu ólíkra stjórnmálaflokka. Það eru því heldur erfiðar aðstæður sem stjórnmálamennirnir standa nú frammi fyrir að koma saman starfhæfri stjórn á stuttum tíma. En flas er sjaldan til fagnaðar og varla verður stjórn mynduð aðeins til þes að gera óvinsælar ráð- stafanir til að fyrirbyggja verðbólguholskefluna sem yfir ríður um næstu mánaða- mót eingöngu. Vinsældakapp- hlaup í stað ábyrðar Síðasta þing bar ekki gæfu til að afgreiða frumvarp um breytingu á viðmiðunarkerfi lána sem framsóknarmenn og sjálfstæðismenn í ríkisstjórn báru fram í vetur. Þá guggn- uðu bæði aðrir stjórnarsinnar og stjórnarandstæðingar. Hefði það frumvarp verið samþykkt væri mun auðveld- ara að fást við þau hrikalegu vandamál sem nú steðja að. En alltof margir stjórnmála- menn eru hræddir við að missa vinsældir ef 'þeir sýna ábyrgð, og má vera að það sé rétt hjá þeim ef þeir álíta að seta á þingi sé ekki annað en að gera það eitt sem þeir halda að öllum líki og neita að taka á sig þá ábyrgð sem þingstörfum fylgir. Einar í Mýnesi víkur að þessu í grein sem hann skrifar í Morgunblaðið undir fyrir- sögninni Styrkjum stöðu Al- þingis. Einar skrifar: „Framsóknarmenn og sjálf- stæðismenn í ríkisstjórn höfðu tilburði í þá átt að koma á nýju viðmiðunarkerfi í stað gamla vísitölukerfisins. Forsætisráðherra flutti frum- varp þar að lútandi. Það hefði stillt af hina háskalegu dýrtíðarskrúfu í bili, þar til svigrúm hefði fengist til á- kveðnari aðgerða, ef stjóm yrði mynduð sem hefði til þess þingstyrk. En kommúnistar skelltu við þessu skollaeyrum og sjálfstæðismenn í stjórnar- andstöðu og kratar héldu að sér höndum. Vegaáætlun var ekki afgreidd og margt fleira látið reka á reiðanum. Við þessar aðstæður var þing rof- ið og efnt til kosninga 23. apríl sl. Stjórnmálabaráttan og vinnubrögðin á Alþingi eru oft með þeim hætti, að hvarfl- ar að fólki hvort þeir sem þar sitja séu af öðrum þjóðflokki en almenningur í landinu. Slík er sundrungariðjan að háski er að og ekki í samræmi við líf og starf fólksins, er vinnur hin fjölbreytilegustu störf af mikilli eljusemi í sátt og samlyndi. Á að halda áfram þeim tröllaslag er geisað hefur á stjórnmálasviðinu eða finna sameiginlega leiðir, er sam- eina þjóðina um málefni hennar, sem við blasa á þessum viðsjárverðu tímum? Það er rétt að benda á að ræðustóll landsins í neðri deild er sá sami er reistur var á Lögbergi við stofnun Al- þingis í árdaga og var hvati þjóðveldis á Islandi. Það má því enginn stíga í þann stól sem ekki skilur að hann er tákn og aflgjafi í baráttu þjóðarinnar til að tryggja lífs- kjör hennar, framfarir og búsetu í landinu og jafnræði meðal manna.“ Valdið í höndum Alþingis Allt síðasta þing fór í karp um bráðabirgðalög og lítið sem ekkert var aðhafst til að halda þjóðarskútunni á rétt- um kili þótt allir sæu að stefndi í óefni og einhver mesti bjarnargreiði sem stjórnmálamennirnir gerðu sjálfum sér var að standa ekki af manndómi og ábyrgð að samþykkt laga á breytingu á viðmiðunarkerfinu. Þá væri ekki verið að reyna að mynda meirihlutastjórn núna í tíma- þröng, sem vel getur orðið til þess að stjórnarmyndun verði enn erfiðari en ella og gæti jafnvel farið svo að mynduð yrði utanþingstjórn. En slíktstjórnarform leysir þingmenn engan veginn und- an þeim vanda að taka af- stöðu til þeirra ráðstafana sem slík stjórn kynni að gera. Alþingi hefur eftir sem áður síðasta orðið og löggjafar- valdið er í þess höndum þótt utanþingsstjórn verði sett á Iaggirnar. -O.Ó. IVIenraingarleg stórvirki í menntamálaráðherratíð Ingvars Gíslasonar hafa verið unnin fleiri stórvirki en Útvarpshúsið, sem reynast munu menningu þjóðarinnar mikilvæg í framtíðinni. Það ber fyrst að nefna Þjóðarbókhlöðuna, en sú bygging er komin undir þak og verður vonandi fljótlega tilbúin til notkunar. Það mun stórbæta aðstöðu til margvíslegrar fræðimennsku og vísindastarfa. Bygging fyrir Listasafn ríkisins verður sennilega tekin til notkunar á þessu ári. Það mun stórbæta möguleika almennings til að geta notið þeirrar listar, sem Listasafnið hefur að geyma. Operustarfsemi hefur verið hafin á myndarlegan hátt og verður vonandi framhald á því. Vert er að geta þess, að listasafnsbyggingin og óperan hafa notið rausnarlegra gjafa einstaklinga, sem gert hafa þessar framkvæmdir mögulegar. Þar er vissulega um góð fordæmi að ræða. Ríkið hefur jafnframt stutt þessi mál eftir föngum fyrir atbeina Ingvars Gíslasonar. Loks er þess að geta, að Ingvar Gíslasyni hefur eftir margra ára baráttu forustumanna Sinfóníusveitarinnar tekizt að fá sett lög um starfsemi hennar. Þau eiga vafalaust eftir að tryggja henni mun betri starfsskilyrði en hún naut áður. Þ.Þ starkaður skrifar Ómaklegar árásir ■ TILRAUNIR eggjaframleiðenda til að koma bættu skipu- lagi á dreifingu og heilbrigðiseftirlit á eggjum hefur fengið fjandskaparmenn landbúnaðarins til að froðufella síðustu dagana, nú siðast í makalausum leiðara síðdegisblaðsins. Hefur verið ráðist að eggjaframleiðendum og Framleiðsluráði landbúnaðarins með ósönnum fudyrðingum og stóryrðum, sem síst eru höfundum sínum til sóma. Það er vitað að margt má betur fara í dreiflngu eggja hér á landi og eftirliti með þeim. Þannig hefur það lengi verið vitað að heilbrigðiseftirlitið er ekki með þeim hætti, að erlendir aðilar geti keypt íslensk egg. Með því nýja fyrirkomulagi, sem eggjaframleiðendur hyggjast koma á með aðstoð Framleiðslu ráðsins, myndi að verulegt stökk fram á við á því sviði. AUar fullyrðingar um að verið sé að koma upp einokun eru út í hött, eins og talsmenn eggjaframleiðenda og Framleiðslu- ráðsins hafa margtekið fram. Sömuleiðis eru fúUyrðingar um að verð á eggjum muni fara hækkandi við þessa breyttu skipan mála út í hött. Ef eitthvað er þá er jafnvel talið að nýskipan dreifingarmálanna kunni að leiða tU verðlækkunar. ÞAÐ er hins vegar svo í þessari umræðu, sem svo oft í umræðum um landbúnaðarmálin, að suma varðar ekkert um staðreyndir. Ásakanir eru settar fram án þess að þær eigi sér nokkra stoð í veruleikanum, og þeim svo dembt yfir forystumenn í landbúnaðinum með stóryrðum og kjafthætti götustráka. Þetta hafa landsmenn átt að búa við nú um nokkra hríð og má kannski segja í því efni, að of seint sé að kenna gömlum hundi að sitja. Þessari óprúttnu áróðurstækni verður því vafalaust áfram beitt af fjandskaparmönnum landbúnaðar- ins. Það er hins vegar ástæðulaust að láta slíkum fullyrðingum ómótmælt. Það eru gömul sannindi og ný, að þegar sami hluturinn er endurtekinn hvað eftirannað í víðlesnum fjölmiðlum, þá fer fólk smátt og smátt að trúa því að hvítt sé svart. Landbúnaðurinn og samvinnuhreyfingin eiga sér svarna óvini, sem hafa tök á víðlesnustu dagblöðum landsins og þar koma í sfbylju árásir á samvinnumenn. Þetta hlýtur auðvitað að leiða hugann að stöðu samvinnumanna í heimi fjöliniðl- anna. Tíminn er eina málgagnið, sem beitir sér í sókn og vöm fyrir samvinnuhreyfinguna, en því miður hefur ekki enn tekist að efla blaðið nægilega í þéttbýlinu til þess að rödd þess nái til nægilegra margra. Þótt nokkur árangur hafi náðst í því efni í vetur, þá er Ijóst að mikið átak þarf að gera til viðbótar til þess að tryggja blaðinu þá útbreiðslu, sem öllum samvinnu- mönnum er nauðsynleg. Þar er því enn mikið verk fyrir höndum. Samvinnuhreyfingin er önnur af tveimur öflugustu félags- málahreyfingum í þessu landi. Hún þarf að auka enn styrk sinn m.a í þéttbýlinu suðvestanlands. Það gerir hún best meðal annars með því að koma sjónarmiðum sínum í auknum mæli á framfæri með verulega aukinni fjölmiðlun. -Starkaður

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.