Tíminn - 07.05.1983, Page 5
LAUGARDAGUR 7. MAI 1983.
5
fréttir
Ný mjólkurmjölsgerd á Selfossi:
FRAMLEIÐIR ÚR 8000 LÍTRUM
AF UNDANRENNU A KLST.
■ Stálgrind mjólkurmjölgerðarhúss
Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi er nú
risin. Búist er við að hægt verði að taka
nýja húsið í notkun á miðju sumri, og
mun það þá leysa það gamla áf hólmi.
Jafnframt verða tekin í notkun ný tæki
til mjólkurmjölsgerðar. Eru þau mjög
fullkomin og stjórnað af einum manni úr
sértökum stjórnklefa, þar sem hægt er
að fylgjast með allri vinnslurásinni. Af-
köst tækjanna eru um 8000 lítrar af
undanrennu á klukkustund, eða um 800
kíló af mjólkurdufti.
Einnig gefa tækin möguleika á að
framleiða vörur sem hingað til hafa ekki
verið framleiddar hjá Mjólkurbúi
Flóamanna.
Tveir 100 rúmmetra duftgeymarverða
við hlið þurrkunarhússins. Pá getur
pökkun duftsins farið fram eftir þörfum
og duft sem nota á til endurvinnslu til
skyrgerðar verður geymt þar og ekki
sekkjað, heldur flutt í leiðslum á notkun-
arstaðinn.
-Sjó.
■ Mjólkurmjölsgerðin verður að líkindum flutt í stálgrindarhúsið í sumar.
Tímamynd: Sigurður Sigurjónsson / Selfossi
KLM gerir
athugasemd
við frétt
Flugleiða
■ Vegna frétta í íslenskum fjölmiðl-
um um umboð fyrir KLM, Konunglega
hollcnska flugfélagið, vill KLM gefa
eftirfarandi viðbótarupplýsingar:
Árið 1953 gerðu Flugfélag íslands
og KLM gagnkvæman samning um að
vera aðalumboðsaðili hvors annars í
eigin heimalandi.
Vcgna vissra skipulags- og áætlun-
arflugsbreytinga hættu.Flugleiðir þann
01.02. ''83 að hafa KLM sem aðalum-
boðsaðila í Holiandi.með samþykki
KLM.
Sömu ástæður gera að verkum að
KLM verður að endurskoða um-
boðsmál sfn á íslandi. Fluglciðir hafa
samþykkt að halda áfrain umboði sínu
fyrir KLM á íslandi þar til niðurstöður
þessarar cndurskoðunar liggja fyrir.
Bókanir í ferðir með KLM cr hægt
að gcra í gegnunt íslehskar ferðasknf-
stofur, umboðsaðilann og í gegnum
CORDA, tölvubókunarkerfi Arnar-
flugs sem cr í beinu sambandi við
bókunarkerfi KLM.
■ Frétt Tímans frá 24.3. 1983.
Málaferli NESCO íBelgíu:
„Ekkert samband
milli íslenska
dómsins og mála-
ferlanna í Belgíu”
—segir F. Godard aðstoðar-
framkvæmdastjóri Marantz
■ „Að okkar áliti er að því er virðist
ekkert samband milli hins íslenska dóms
í Nesco málinu og þess máls sem nú er
rekið fyrir dómstólum í Belgíu'- þetta
segir m.a. í bréfi sem Tímanum hefur
borist frá F. Godard aðstoðarfram-
kvæmdastjcra Marantz fyrirtækisins í
Belgíu en bréfið er sent
vegna skrifa blaðsins um fjárkröfumál
Nesco á hendur Marantz í Belgíu. í
þessu bréfi segir ennfremur:
„An þess að leggja dóm á yfirstand-
andi mál fyrir belgískum dómstólum,
sem Nesco hóf, þá hefur Marantz S.A,
lagt fyrir dóminn rök að því að engar
ástæður finnist fyrir máli gegn okkar
fyrirtæki, heldur þvert á móti geta kröfur
verið lagðar fram af Marantz S.A. gegn
Nesco fyrirtækjunum (eitt þeirra í Nor-
egi er óvirkt, annað í Svíþjóð hefur sagt
sig gjaldþrota) fyrir nokkur samnings-
brot eins og lagaleg gögn okkar sýna
fram á svo óyggjandi sé. Lagaleg staða
Marantz hefur verið kunn viðkomandi
dómstólum í Belgíu síðan 24. júlí 1981.
Síðan þá er okkur ekki kunnugt um að
Nesco hafi gert athugasemdir eða svarað
þeim og virðist hafa hætt lögsókn þeirri
er það hóf upphaflega í Belgíu gegn
Marantz S.A.
Að reyna að samtvinna bæði málin, á
íslandi og það sem er í gangi í Belgíu,
getur aðeins þjónað þeim tilgangi að
flækja efnið og draga úr orðstír og áliti
okkar merkis sem við getum ekki sætt
okkur við“.
I frétt Tímans um málið þann 24.3. s.l.
undir fyrirsögninni Nesco í stórfelldum
fjárkröfumálum ytra: Krafan um 150
mOljónir belgískra franka sagði Óli A.
Bieltvedt forstjóri Nesco m.a. í samtali
við Tímann:
„Þetta er einn þátturinn í miklu stærra
máli, ýmsir aðilar á Norðurlöndunum
gerðu fjárkröfur á hendur okkur sem
námu 2,5-3 milljónum dollara, en við
gerðum aftur á móti fjárkröfur á hendur
Marantz af stærðargráðunni 5 milljónir
dollara eða 150 milljónir belgískra
franka..." en þegar þetta var skrifað
hafði nýlega gengið dómur fyrir bæjar-
þingi Reykjavíkurþarsem Inter-Nesco-
Norge var dæmt til að greiða fjárkröfur
að upphæð 30 millj. kr.
Síðar í samtalinu sagði Óli svo:
„Kjarni málsins er sem sagt sá að þetta
er tvíhliða mál og það er summan úr
báðum hliðunum sem skiptir okkur máli,
ekki önnur hliðin ein sér, því er þetta
(það er dómurinn í Bæjarþingi Reykja-
víkur inntkot blm.) ekki áhyggjuefni fyrir
okkur“.
Þessi orð og þau fyrrgreindu eru
væntanlega það sem F. Godard á við og
skrifar okkur bréfið út af en í lok bréfs
síns segist hann vona að það hafi varpað
betra ljósi á þessi mál öll.
/
óóra
ryövarnar
abyraó
Peugeot bjóða nú fyrstir allra á íslandi 6 ára ryðvarnar-
ábyrgð á allar gerðir bíla sem þeir framleiða. Til að hindra
ryðmyndun þá fara bílarnir í gegnum 10 þrepa meðferð á
mismunandi framleiðslustigum
Sjálfstæð fjöðrun á öllum hjólum, sem gerir bílana ákjósan
lega í akstri á vondum vegum.
Bílarnir eru bæði framhjóla- og afturhjóladrifnir.
Frönsk smekkvísi hvar sem litið er á bílana.
HAFRAFELL
VAGNH0FÐA7O 85-2-11
-FRI