Tíminn - 07.05.1983, Síða 6
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983.
Er fortíð
Marlene
Dietrich
hnökralaus?
■ Marltne Dietrich er urðin
81 árs og finnst nú tíniabært að
skrifa sjálfsxvisögu sína.
Keyndar gerir hún það sam-
kvæmt pöntun þýsks útgáfufyr-
irtækis.
Útgefandinn hafði í huga
langan og Ijölbreyttan feril
Marlene, bæði á hvíta tjaldinu
og utan. Þótti honum ekki
ólíklegt, að Marlenc hcfði frá
mörgu að segja og myndi feta í
fótspor annarra gamalla stór-
stjarna, sem hafa ekki sett sig
úr færi aöjjóstra upp um gömul
ástarævintýri og önnur hneyksli,
sem legið hafa i þagnargildi til
þcssa. Má sem dæmi um þetta
nefna frásögn Gloriu Swanson
af ástarsambandi hennar og
Joscphs Kennedy, sem hljótt
hafði verið um, þar til ævisaga
hennar kom á þrykk. Ekki
álcit hann ástæðu til að ætla
annað cn að Marlene lumaði á
einhverjum leyndarmálum,
sem ekki gæfu þessu eftir.
Nú hcfur Marlcne sent út-
gefandanum drög að bókinni,
en fékk þau umsvifalaust send
beint í hausinn aftur. Þar var
nefnilega ekki stafkrók að
finna, sem gæfi til kynna að
Marlene hefði nokkurn túna
upplifað neitt merkilegt eða
sérstakt, hvað þá að hún
kæmi upp um einhver krass-
andi leyndarmál úr fortíðinni.
- Þessa bo'k þýðir ekkert aö
gefa út, segir útgefandinn. - Ef
Marlene gerir ekki bragarbót
og kemur fram emö eitthvaö
nýtt og safaríkt, verður ekkert
af birtingu ævisögunnar.
Marlene
Dietrich
■ Marlene Dietrich var einu sinni sögð hafa fallegustu fótlcggi
i heimi. Á tíinabili var henni gefinn titillinn „Fallegasta amma í
hcimi“. Aðdáendur hennar voru legíó og margir voru þeir
herrarnir.sem voru rciðubúnir að gera hvað sem var til að ávinna
sér hylli hennar. En nú hregður svo við, að Marlene man ekki
eftir ncinu spennandi úr fortíðinni.
Opna úr kvennablaðinu Woman.
ASmnEVMTYRD VARD
K00 TL FRAMDRAJTAR
■ Ekki ulls fyrir löngu kom-
ust systkinin Anna og Ándrew,
börn Elísabctar Bretadrottn-
ingar, i heimsfréttirnar á sama
tíma og hlutu harla ólíka um-
fjöllun. Þó var það ekki alls-
endis ólikt, sem þau höfðust
að, munurinn fólst aðallega í
því, að Anna var að sinna
skyldustörfum, en Andrew var
hara að sinna egin skcmmt-
anafýsn.
Það hefur ekki gerst síðan á
dögum Játvaröar 7., sonur
Viktoríu drottningar, að með-
limur brcsku konugsfjölskyld-
unnar hefur látið sjá sig á
Rauðu myllunni, skennnti-
staðnum fræga í París. Fyrr en
nú, að Anna prinsessa og maður
hennar Mark Phillips heiðruðu
staðinn með nærveru sinni.
Með þeim var í för hópur
velskra varömanna, sem ásamt
frönskum heiðursverði tók á
móti þeim hjónum með gjall-
andi lúðrablæstri. Hætt er við,
að Játvarði 7. hefði þótt sýn-
ingin lieldur þunnur þrettándi
að þessu sinni, því að dansmeyj-
arnar höfðu huliö brjóst sín í
nærveru hinna hátígnarlegu
gesta. Ágóðinn, sem inn kom
af sýningu kvöldsins, rann til
sjóðsins. Bjargið börnunum,
en Anna tekur mikinii þátt í að
safna fé til hans.
Á sama tíma bárust fréttir
um það, að Andrew væri held-
ur betur að sletta úr klaufunum
á Barbados og það í heldur
vafasömum félagsskap. Ekki
var þó Koo Stark í fylgd með
honum að þessu sinni, enda er
þeirra vinskap slitið. Hins veg-
ar var tilnefnd Vicki Hodge,
nektarfyrirsæta, sem eitt sinn
var í kunningjahópi Margretar
Liza Minelli hélt
födur sínum veislu
■ - Hæfileikana fékk ég frá mömmu, en draumana frá pabba, hefur Liza Minelli sagt.
- Með slíka forcldra er óhjákvæmilegt, að eitthvað verði úr mér.
Þessi orð lét hún falla í stórri veislu, sem hún hélt föður sínum, Vincente Minelli sem í eina tíð
var þekktur og velmetinn kvikmyndaframleiðandi, en móðir hennar var sem kunnugt er söng- og
leikkonan fræga Judy Garland. Tilefnið var áttræðisafmæli gamla mannsins.
Vincente, sem hefur arfleitt dóttur sína að fleiru en draumum, þ.á.m. víðfrægum stórum dökkum
augum og stóru brosi, varð hrærður, þegar í veisluna flykktust margar frægar stjörnur, sem áður
unnu undir hans stjórn. Meðal þeirra má telja Gregory Peck, Kirk Douglas og Lucille Ball. Sjálfur
Frank Sinatra söng, ásamt Lizu, afmælisbarninu til heiðurs. - Og ég sem hélt, að allir væru búnir
að gleyma mér, sagði gamii maðurinn.
En allra vænst þótti honum um orð, sem dóttir hans lét falla í ræðu til hans. Hún sagði: - Eg er
þakklát föður mínum. Ef hans hefði ekki notið við, væri ég ekki hér. Og þar að auki á ég það
honum að þakka, að ég er gift Mark Gero. Pabbi taldi mig á það!
■ Afmælisbarnið Vincente Minelli (3. f.v.) í hópi gamalla vinnufélaga. Talið f.v. Gregory Peck,
Liza Minelli, faðir licnnar, Frank Sinatra, Kirk Douglas og Lucille Ball.
vidtal dagsins
„EINN MAfHJR GERIR
EKKI ÚTVARPSSTÖD”
segir Þorgeir Ástvaldsson,
nýrádinn forstödumaöur Rásar - 2
■ „Þessi ráðning kom mér svo
á óvart að ég er satt að segja
ekki enn farinn að gera mér
grein fyrir hvernig starfsemi Rás-
arinnar verður háttað. Auðvitað
hef ég mínar hpgmyndir um
hvernig standa skal að þessu - en
mcðan þær eru ekki alveg fast-
mótaðar held ég að best sé að
biða með að skýra frá þeim í
smáatriðum,“ sagði Þorgeir Ást-
valdsson, nýráðinn forstöðu-
maður Rásar-2 hjá Ríkisútvarp-
inu, sem væntanlega hefur út-
sendingar með haustinu.
„Þó get ég sagt að það er alveg
ljóst að Rás-2 kemst ekki í gang
nema með starfi fjölda hug-
myndaríkra manna og kvenna
því einn maður býr ekki til
útvarpsstöð“.
- Einhverjar línur varðandi
dagskrárgerð hljóta að liggja
fyrir?
„Það er alveg Ijóst að megin
uppistaðan verður tónlist með
léttu yfirbrágði - eða eins og
einhver orðaði það: „Undirspil í
amstri dagsins." Einnig er ljóst
að rásin verður að standa undir
sér sjálf með sölu auglýsinga,
þótt stefnt sé að því að þær taki
ekki of mikinn tíma. Á því sviði
verður sú nýlunda að fluttar
verða leiknar auglýsingar,“ sagði
Þorgeir.
- Hvað koma margir til með
að starfa við Rás-2?
„Það er alveg óráðið ennþá og
það liggur heldur ekki fyrir hvort
um verður að ræða fastráðningar
dagskrárgerðarmanna eða hvort
fólk verður fengið til að sjá um
einn og einn eða fasta þætti. Það
mun markast mjög af því hvað
dagskráin verður löng og hvað
við fáum mikla peninga úr að
spila. En ég vænti þess að til
verði kallaðir bæðir vanir út-
varpsmenn og nýir starfskraft-
ar.“
- Þú hefur komið víða við -
geturðu sagt mér undan og ofan
af ferlinum?
„Það er satt - ég hef komið
víða við. Enda lenti ég í hálf-
gerðum vandræðum þegar spurt
var um fyrri störf í umsókninni.
Það endaði með því að ég svaraði
■ Þorgeir Ástvaldsson, nýráðinn forstöðumaður Rásar-2