Tíminn - 07.05.1983, Page 11

Tíminn - 07.05.1983, Page 11
LAUGARDAGUR 7. MAÍ1983. 11 ítölsk sófasett Ótrúlega hagstœðir greiðsiuskilmá/ar AHt niður í 20% Guðrún Gunnars- dóttir Fædd 5. maí 1958 Dáin 28. apríl 1983 Á þessum vordögum þegar öll náttúr- an er að vakna af vetrardvala og loftið fer að óma af glöðum söng farfuglanna hefur dimmt sorgarský lagst yfir heimili vina minna sem hafa þurft að sjá á eftir einkadóttur sinni yfir landamæri lífs og dauða. Guðrún var aðeins 25 ára gömul er hún lést eftir að hafa barist lengi við erfiðan sjúkdóm. Hún ólst upp hjá foreldrum sínum á Hvolsvelli, Ásu Guðmundsdóttur og Gunnari Guðjónssyni, við ást og um- hyggju. Hún stundaði barna- og grunn- skólanám heima á Hvolsvelli, og lauk síðan námi frá Menntaskólanum á Laug- arvatni en hóf síðan nám í hjúkrun og átti stutt eftir af því námi þegar krafta þraut. Erfiður tími hefur þetta verið fyrir aðstandendur hennar og vini, en sæl er minningin um þessa fallegu og ljúf u stúlku. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég og fjölskylda mín til eiginmanns hennar, foreldra svo og annarra vandamanna. Jónas Ragnar Guðmundsson. í dag kveðjum við Gullu, bekkjarfé- laga okkar frá Menntaskólanum að Laugarvatni. Fyrstu kynni okkar af henni voru haustið 1974 þegar við kom- um þangað til náms. Þá fjóra vetur sem við vorum samferða henni minnumst við hennar sem trausts og góðs félaga. Gulla varð brátt vinsæl og vel liðin vegna hlýs viðmóts og hjálpsemi, sama hver í hlut átti. Gulla var rólynd að eðlisfari, en ákveðin við það sesm hún tók sér fyrir hendur hvort sem um nám eða félags- störf var að ræða. Að Laugarvatni kynntist hún unnusta sínum, Sigurði Davíðssyni, bekkjarfélagaokkarogvini. Ári eftir stúdentspróf fluttu þau til Reykjavíkur og hófu þar nám. Gulla fór í hjúkrunarfræði, og lýsir það hugarfari hennar betur en margt annað. I Reykjavík lágu leiðir flestra bekkjar- félaganna aftur saman. Kynntumst við þá enn betur gestrisni þeirra og ljúf- mennsku á hlýlegu heimili þeirra. Það fékk mjög á okkur þegar við fréttum að Gulla ætti við alvarlegan sjúkdóm að stríða. En Gullu brást ekki kjarkur fremur en fyrr, heldur sýndi aðdáunar- verðan styrk og æðruleysi. Gulla og Siggi voru alla tíð mjög samrýmd og kom það ekki síst í ljós í veikindum hennar, þar sem hann, ásamt foreldrum hennar, stóðu við hlið hennar þar til yfir lauk. Okkur er öllum mjög mikil eftirsjá af Gullu, mikið og vandfyllt skarð er höggvið í hópinn við fráfall hennar. Við sendum Sigga og foreldrum Gullu okkar innilegustu samúðarkveðjur og megi minning hennar lifa. Samstúdentar frá Menntaskólanum að Laugarvatni, 1978. Hverjum , bjargar það jfi næsXJzr y FLÍSAR • HREINLÆTISTÆKI • BLÖNDUNARTÆKI • BAÐHENGI • BAÐTEPPI • BAÐMOTTUR MÁLNINGARVÖRUR • VERKFÆRI • HARÐVIPUR • SPÓNN • SPÓNAPLÖTUR • GRINDAREFNI VIÐARÞILJUR • PARKETT • PANELL ♦ EINANGRUN ÞAKJÁRN <• ÞAKRENNUR • SAUMUR • RÖR • FITTINGS O.FL., O. FL. Margar gerðir - Tau- og leður- áklæði. Verð frá kr. 24.900.- Húsgögn og • r ■. Suðurlandsbraiit 18 mnrettmgar simi 86-900 OPIÐ. mónudaga — fimmtudaga kl. 8—18. Föstudaga kl. 8—19. Laugardaga 9—12. Flekamót Notuö ABN flekamót til sölu. Mjög hentug fyrir búnaðarfélög og smærri verktaka. Álrammar mótanna gera þau létt á höndum. Magn ca: 400 ferm. Upplýsingar í síma 99-6833. jiTWrBYGGlNGAWORlfB] I Hrinabraut 120 — simi 28800 Hringbraut 120 — simi 28800 (aðkeyrsla frá Sólvailagötu). Sveit Drengur á 13. ári óskar eftir aö komast á gott sveitaheimili. Hefurkynnstsveitastörfum lítillega. Upplýsingar í síma 91-31628. BILASYNING LAUGARDAG og SUNNUDAG KL. 2-5 Sýndir verða: DÁTSUN CHERRY — sá ódýrasti miðað við útlit og gæði. DATSUN SUNNY — Fallegur og rennilegur DATSUN CABSTAR — vörubifreið SUBARU 1800 OG TRABANT. Þeir þurfa engin slagorð Komdu bara ogskoðaðu þá Verið velkomin og auðvitað verður heitt á könnunni INGVAR HELGASON HF. s,,,,, 33550 SÝNINGARSALURINN / RAUÐAGERÐI minning

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.