Tíminn - 07.05.1983, Page 12
Er ekkí mál tíl komíð að smakka gamla pakkaskyrið á ný?
Þú þynnír það með vatní eða mjólk - alveg eíns og áður.
Veistu,
• að skvr er einstakiega próteinrík en fttusnauð og
holi fæða?
• að próteinið er aðal byggingarefni líkamans?
• að konur á meðgöngutíma og böm og unglíngar
á vaxtarskeiði þurfa meíra prótein en ella?
• að skyr er afar hentugt megmnarfæðí?
• að oft má nota skyr í stað majoness í saiöt, sósur
og ídýfur?
nmr
LAUGARDAGUR 7. MAI 1983.
LAUGARDAGUR 7. MAI1983.
Lewis að
komast á
toppinn
■ Bandaríkjamaðurinn Carl Lewis, sem al-
mennt er talinn besti langstökkvari og 100
metra hlaupari í heimi er nú kominn í gott
form. Á dögunum hljóp Lewis 100 metra á
skemmri tíma en núgildandi heimsmet er.
Lewis hljóp á 9.93 sekúndum, en gildandi
heimsmet er 9.95. Vindstuðullinn mældist hins
vegar of hár þegar Lewis hljóp þetta hlaup, sem
var á móti í Kaliforníu, og heimsmetið því ekki
viðurkenn . V.ndstuðullinn mældist 2.3 í hlaup-
inu, en hámarkið er 2.0. Heimsmetið í 100
metra hlaupi á Jimmy Hine, Bandaríkjamaður,
og var það sett í Mext'kó.
Best í tug-
þraut á árinu
■ Besti árangur á árinu í tugþraut náðist um
daginn á frjálsíþróttamóti í Walnut í Kaliforn-
íu, þegar Bandaríkjamaðurinn Mark Anderson
hlaut 8251 stig. Anderson er upprennandi tug-
þrautarmaður, en þeir bestu sem taldir cru í
tugþraut Daley Thompson frá Bretlandi, og
Júrgen Hingsen frá V-Þýskalandi hafa ekki
keppt enn á árinu, þeir huga að undirbúningi
sumarsins, þar sem toppurinn á að nást.
Hingsen og Thompson bitust um heimsmetin í
fyrrasumar, og munu að öllum líkindum gera
það einnig í sumar. Þó gæti Anderson blandað
sér í málin, taki hann töluverðum framförum
fram eftir árinu.
KSI selur
auglýsingar
M Knattspyrnusamband ísland hefur selt
svissneskri auglýsingaskrifstofu 100 metra langt
auglýsingasvæði á Laugardalsveilinum 29.maí
næstkomandi, en þá verður á vellinum lands-
leikur (slands og Spánar í Evrópukeppni A-
landsliða í knattspyrnu. Það sem gerir það að
verkum að hægt er að selja þctta svæði í þessum
leik, er að Spánvcrjar hafa gífurlegan áhuga á
honum, og verður lciknum sjónvarpað beint á
Spáni. Það verkefni hefur íslenska sjónvarpið
tekið að scr. Svisslendingar munu koma hingað
til að ganga frá auglýsingum á svæðinu.
Inter Mílanó
fékk sekt
■ ítalska stórliðið Inter Mílanó fékk 50.000
svissneskra franska sekt vegna skrílsláta áhang-
enda liðsins á leik Inter og Real Madrid í
Mílanó á dögunum. Þessir frankar samsvara
uin 550 þúsundum fslenskra króna. Þá má Inter
ekki leika tvo næstu heimaleiki sína í Evrópu-
keppni á heimavelli, heldur verður að leika í
minnst 300 kílómetra fjarlægð.
Skrílslæti áhangcnda Intcr fólust f því að
kasta ávöxtum og hinu og þessu rusli í dómara
leiksins og leikmenn Real Madrid. Það var
dómstóll Knattspyrnusambands Evrópu UEFA
sem dæmdi í málinu.
Stökk 5.32 á
stöng
■ Ungur piltur fmnskur, Arto Peltoniemi
setti um daginn finnskt drengjamet í stangar-
stökki. Peltoniemi stökk 5.32 metra, sem hlýtur
að teljast gott hjá 17 ára gömlum peyja. Strákur
átti sjálfur eldra metið, 5.30, og á einnig
heimsmet drengja utanhúss í greininni, 5.35
metra.
íþróttir
i umsjón Samuel Örn Erlingsson i
■ Fjöldi fólks var kominn saman við Breiðholtslaugina í gær. Keppendur á annað hundrað, og mikill fjöldi krakka og
fullorðinna að fylgjast með. Tímamynd Árni Sæberg
Þróttur og Valur í mfl. karla, en sá leikur
byrjar klukkan 19.00. Úrslitaleikurinn á
þriðjudag hefst klukkan 20.00.
í Litlu Bikarkeppninni eru úrslitin
orðin ljós, Keflvíkingar hafa sigrað.
Síðustu leikirnir eru um helgina, Skaga-
menn fá Breiðablik í heimsókn og FH og
Haukar mætast í Firðinum.
Hlaup
■ Síðasta viðavangshlaup vetrarins er
í Kópavogi í dag. Hlaupið hefst klukkan
14.00 við íþróttavöllinn í Kópavogi.
Fimleikar
■ Það helsta í fimleikunum er Evrópu-
meistaramótið í Gautaborg, þar er
Kristín Gísladóttir helsta stolt íslend-
inga í fimleikum við keppni í dag og á
morgun.
Goif
M Nú eru kylfingar farnir að slá, fyrsta
mótið á golfvelli GN á Seltjarnarnesi er
í dag. Leiknar verða 18 holur um
Nesbjölluna. Mótið hefst klukkan 13.30.
Þá er einnig golfmót á Hvaleyrarvelli í
Hafnarfirði hjá Golfklúbbnum Keili.
Kna ttspyrna:
M Reykjavíkurmótið er að verða búið
í knattspyrnunni. I dag keppa KR og
Fram í mfl. karla klukkan 15.30 á
Melavellinum. Þá leika í mfl. kvenna
Fylkir og Víkingur á sama velli klukkan
13.30.
Á morgun keppa í mfl. karla Fylkir og
Ármann á Melavelli klukkan 19.00 en
keppni í Reykjavíkurmótinu lýkur á
þriðjudag með leik liðanna tveggja sem
eru efst á mótinu og berjast um sigurinn,
Fram og Víkings. Þá leika á mánudag
Sundkeppni skólanna
í Breiðholti í gær:
Hólabrekkuskóli
vann í sundinu
■ Hólabrekkuskóli bar sigur úr býtum
á miklu sundmóti sem haldið var í
Breiðholtslauginni í Reykjavík í gær.
Sundsveitin úr Hólabrekkuskóla rauf
þar með sigurgöngu Fellaskóla, sem
hefur sigrað í þessari keppni síðustu ár.
Krakkarnir úr Hólabrekkuskóla fengu
105 stig í keppninni, en FeUaskóli 94.
Tveir aðrir skólar tóku þátt í keppn-
inni, Ölduselsskóli og Breiðholtsskóli.
Keppt var í 16 greinum á mótinu, þar af
8 boðsundsgreinum, þar sem 6 krakkar
voru í sveit. Þátttakendur í mótinu voru
á annað hundrað og mikill keppnisbrag-
ur á öllu.
■ Hólabrekkuskóli sigraði í sundkeppninni í gær. Hér sjást krakkar úr skólanum
hampa bikarnum, sem keppt var um. Tímamynd Ámi Sæberg
■ Ragnhciður Ólafsdóttir hlaupadrottning úr FH eftir síðari sigurinn sumardaginn
fyrsta, er í miðið á þessari mynd með verðlaunin fyrir Víðavangshlaup Hafnarfjarðar.
Vinstra megin á myndinni er Súsanna Helgadóttir sem varð önnur og hægra megin
Rakel Gylfadóttir sem varð þriðja í kvennaflokknum.
■ Ungir og upprennandi víðavangshlauparar, verðlaunahafar í 15-17 ára flokki pdta
í Víðavangshlaupi Hafnarfjarðar. I miðið er sigurvegarinn, Ómar Hólm vinstra megin
er Viggó Þórir Þórsson sem varð í örðu sæti, og til hægri Helgi Freyr Kristinsson sem
varð þriðji.
— fjöldi keppenda í
víðavangshlaupi Hafnarfjaröar
■ Ragnheiður Ólafsdóttir FH sigraði í
tveimur víðavangshlaupum i á Sumar-
daginn fyrsta, hljóp fyrst víðavangshlaup
IR og sigraði með yfirburðum, og síðan
brá hún sér heimí Hafnarfjörð og sigraði
þar í Víðavangshlaupi Hafiiarfjarðar sem
var klukkustund síðar. Þar sigraði Ragn-
heiður líka örugglega , geysisterk hlaupa-
kona, Ragnheiður. Magnús Haraldsson
FH sigraði í karlaflokki, en úrslit í
hlaupinu í Hafnarfirði urðu þessi:
Karlaflokkur 1550-1600 m
Magnús Haraldsson 4:23.5
Sigurður Haraldsson 5:17.5
Drengjaflokkur 1350-1400 m
Omar Hólm 3:55.0
Viggó Þórir Þórisson 3:56.0
Helgi Freyr Kristinsson 4:07.0
Piltaflokkur 1200 m
Einar Páll Tamini 3:46
Finnbogi Gylfason 3:58
Þorsteinn Gíslason 4:08
Strákar 8-9 ára 650-700 m
Olafur Björn Stephensen 2:58
Örvar Rudólfsson 3:04
Bjarni Þór Traustason 3:06
Strákar 7 ára og yngri 650-700 m
Jón Rúnar Guðjónsson 3:43
Vignir Grétar Stefánsson 3:44
Jón Hákon Gunnarsson 3:48
Konur 15 ára og eldri 1200 m
Ragnheiður Olafsdóttir 3:57
Súsanna Helgadóttir 4:15
Rakel Gylfadóttir 4:25
Telpnaflokkur 1200 m
Guðrún Eysteinsdóttir 4:21
Svana Huld Linnet 4:34
Shara Haraldsdóttir 4:35
Stelpur 8-9 ára 650-700 m
Guðrún Guðmundsdóttir 3:15
Jenný Rakel 3:16
Hildur Loftsdóttir 3:17
Stelpur 7 ára og vngri 650-700 m
Alma Hallgrimsdóttir 3:48
Anna Mjöll Guðmundsdóttir 3:55
Berglind Jónsdóttir 4:00
Verðlaun í Víðavangshlaupi Hafn-
arfjarðar voru vegleg, bikarar og verð-
launapeningar, sem gefnir voru af mörg-
um aðilum. Bikara í hlaupið gáfu
Glerborg, Olís, Hagsýn, Janus og Þórir
Guðlaugssynir, Haukar, Hagsýn, Sveinn
Magnússon, Þórður Guðlaugsson og
Janus Guðlaugsson. Þeir sem eru tyítald-
ir hafa gefið tvo bikara. Sparisjóður
Hafnarfjarðar gaf verðlaunapeninga
ásamt Samvinnubankanum, og Sigurður
og Júlíus gáfu Vverðlaunaskjöl. fþrótta-
búðin Austurbakki gaf Ragnheiði Ólafs-
dóttur, sigurvegara kvennaflokksins
veglega keppnisskó af Nike eerð.
Saga knattspyrnufélagsins
Víkings komin út:
ÍGÆT BÓK
■ Út er komin bókin Áfram Víkingur
eftir Ágúst I. Jónsson blaðamann, en í
bókinni er rakin saga Knattspyrnufélags-
ins Víkings, frá stofnun félagsins árið
1908 til dagsins í dag. Bókin er 235
blaðsíður í stóru broti, prýdd fjölda
mynda af Víkingum og ýmsu sem þeim
tengist, og hin eigulegasta á allan hátt.
í bókinni er eins og áður er nefnt rakin
saga knattspsyrnufélagsins Víkings, rætt
við marga gamla Víkinga, og frum-
kvöðla hinna ýmsu greina sem stundaðar
eru innan félagsins. Gamlir Víkingar
segja ýmsar skemmtilegar sögur úr starfi
féiagsins, og er óhætt að segja að bókin
sé góð eign fyrir alla þá sem tengjast, eða
eru í Víkingi.
Bókin er gefin út í tilefni af 75 ára
affnæli Víkings, og sá Anton Örn
Kjærnested, fyrrum formaður félagsins
um útgáfuna. Ágúst Ingi Jónsson var
ráðinn í febrúar sl. til að skrifa bókina,
og er hún nú til sölu á almennum
markaði hjá Bókaverslun Sigfúsar Ey-
mundssonar, Austurstræti 18, í verslun-
inni Sportval Laugavegi 116 og í Félags-
heimili Víkings við Hæðargarð.
JuöMGQR
■ Kápa bókarinnar Áfram Vðúng-
«ur lítur svona út.
Atli skoraði tvö mörk og Pétur eitt, Pétur allt í öllu hjá Dussel-
dorf — Stuttgart sigraði líka, og Ásgeir lagði upp mark
- Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
■ Islendingarnir í Vestur-þýska fót-
boltanum voru allir heldur betur í
sviðsljósinu í gærkvöld, Pétur Ormslev
og Atli Eðvaldsson áttu báðir mjög góða
leiki með Fortuna Dússeldorf í 5-0
stórsigri liðsins á Eintracht Braunsch-
weig, Pétur lykilmaður Dússeldorf í
leiknum skoraði fyrsta markið með
fallega úthugsuðum skallabolta, og
reyndar annað mark fyrir leikhlé, sem
dæmt var af vegna rangstöðu, og þótti
■ Pétur Ormslev hefur vakið mikla
lukku í Dússeldorf undanfarið, og
ekki ólíklegt að samningur hans verði '
endurnýjaður.
það hæpinn dómur. Atli skoraði tvö
mörk, það þriðja og fjórða, í síðari
hálfleik, og var annað þeirra fallegasta
mark sem ég hef lengi séð. Ásgeir
Sigurvinsson lék með Stuttgart í 3-2 sigri
liðsins á Borussia Mönchengladbach,
var að venju kjölfesta liðsins, og átti
allan heiður af einu marki Stuttgart
Pétur Ormslev fékk mjög lofsamlega
dóma fyrir leik sinn í gærkvöld. Pétur
skoraði fyrsta mark Dússeldorf, með
skalla af 10-11 metra færi með þrumu-
skalla í hornið fjær. Pétur lagði þar með
línuna fyrir það sem koma skyldi, og
skoraði annað mark fyrir leikhlé eftir að
hafa leikið í gegnum vörn Braunschweig
og skoraði með þrumuskoti úr vítateign-
um efst í markhornið óverjandi. Flestum
á óvart var markið dæmt af, vegna
rangstöðu, sem þótt hæpinn dómur.
Eftir að staðan hafði verið 1-0 í hálfleik
skoraði Holger Falck annað mark Dúss-
eldorf, og síðan hófst Atla þáttur
Eðvaldssonar. Atli skoraði þriðja mark
liðsins eftir mikinn barning á markteig
Braunschweig, og síðan bætti Atli öðru
við stuttu síðar, með miklu þrumuskoti
sem átti upptök sín rétt utan vítateigs og
hafnaði í bláhorninu marksins efst. Rudi
Gores skoraði síðan fimmta mark Fort-
una Dússeldorf, og á liðið nú góða
möguleika á að ná 9. sæti Búndeslígunn-
ar.
„Það eru allar líkur á að Pétur Orm-
slev verði áfram hér hjá Dússeldorf
sagði Atli Eðvaldsson í stuttu spjalli við
Tímann í gærkvöld. „Hann átti geysi-
góðan leik, svo að allir hér eru í sjöunda
hirnni."
Nýr markvörður hjá Dússeldorf, 23
ára gamall, Frank Kurt að nafni átti
einnig mjög góðan leik í liði Dússeldorf,
fékk mjög góða dóma, og segja má að
leikur Dússeldorf í gær hafi verið leikur
ungu mannanna.
„Pétur átti stórgóðan leik,“ sagði Atli.
„Hann tók allar hornspyrnur liðsins, frá
hægri og vinstri, tók innköst, og skapaði
stórhættu með þessu. Við fengum eitt
mark upp úr hornspyrnu Péturs, og við
vorum óheppnir að skora ekki 3-4 mörk
eftir hornspyrnur hans, sem vöktu mikla
athygli.“
Stuttgart sigraði
Stuttgart lék gegn Borussia Múnc-
hengladbach, og sigraði 3-2. Ásgeir átti
góðan leik, og fékk góða dóma, og átti
allan heiðurinn af éinu marki Stuttgart
átti frábæra sendingu í Kampe, sem þá
var allt í einu á auðum sjó, og var einn
gegn markverðinum. Kempe var síðan
felldur af markverði „Gladbach", og úr
vítaspyrnunni sem dæmd var skoraði
Karl Állgöwer.
Atvik það er átti sér stað áður en
vítaspyrnan var dæmd var mjög um-
deild. Brot markvarðar Gladbach á
Kempe var mjög keimlíkt því sem
markvörður Stuttgart, Roleder, fram-
kvæmdi, þegar hann fékk fjögurra leikja
bann fyrir. Þessi fékk ekki einu sinni gult
spjald.
Önnur úrslit í Búndeslígunni í gær
urðu þau að Hamborg vann mikinn
heppnissigur 2-1 á Hertha Berlin, og var
Uli Stein markvörður Hamborgarliðsins
maðurinn bak við sigurinn.
MÓ/SÖE
■ Atli Eðvaldsson skoraði tvö mörk í gærkvöld, og er nú einn markahæstu
leikmanna Búndeslígunnar með 14 mörk. Þess má geta að Karl Heinz Rummcnigge
hefur skorað 18.
Ragnheiður sigraði
í tveimur hlaupum
sama daginn