Tíminn - 07.05.1983, Side 15
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1983.
15
fólk í listum
■ Hafstcinn Austmann
Hafsteinn Austmann sýnir
vatnslitamyndir
■ I dag, laugardaginn 7. maí, opnar Haf-
steinn Austmann sýningu á fjörutíu og
einni vatnslitamynd í Listasafni ASÍ.
Hafsteinn fæddist á Vopnafirði 1934,
stundaði myndlistarnám í Reykjavík og
síðar í París, auk þess sem hann hefur
farið á fjölda námskeiða víða erlendis.
Verk eftir Hafstein eru víða á söfnum,
hér á landi og erlendis. Hann hefur
aðailega unnið með olíuliti, en á þessari
sýningu sýnir hann eingöngu vatnslita-
myndir.
Sýning Hafsteins Austmanns stendur
yfir dagana 7.-22. maí og er opin alla
virka daga nema mánudaga kl. 14.00-
19.00 og um helgar ki. 14.00-22.00.
■ Sigríður Hannesdóttir syngur gömul revíulög o.fl. við undirleik Aage Lorange ■
menningarmiðstöðinni við Gerðuberg nk. sunnudag.
Einstæð skemmtun í
menningarmiðstöðinni
við Gerðuberg
■ Sunnudaginn 8. maí verður einstæð
skemmtun í menningarmiðstöðinni við
Gerðuberg. Þá munu þau Sigríður
Hannesdóttir og Aage Lorange spila og
syngja fyrir kaffigesti, m.a. gömul revíu-
lög og fleira gamalt og gott.
Eins og áður sagði verður þetta í
menningarmiðstöðinni við Gerðuberg
sunnudaginn 8. maí og hefst kl. 16.00
Útitónleikar á Lækjartorgi
■ Sunnudaginn 8. maí næstkomandi
gengst Satt - Samband alþýðutónskálda
og Tónlistarmanna fyrir útitónleikum á
Lækjartorgi ef veðurguðir leyfa.
Fram koma nokkrar af þekktustu
hljómsveitum landsmanna í dag. Tón-
leikarnir eru meðal annars haldnir til að
vekja athygli á myndlistarsýningu sem
haldin er til styrktar SATT í Gallery
Lækjartorgi. Fjöldi nafnkunnra mynd-
listarmanna eiga verk á sýningunni, en
ágóði rennur til kaupa á húsnæði undir
starfsemi SATT
Listamenn styðja tónlistarmenn
■ Nú stendur yfir sýning á vcrkum
nafnkunnra listamanna í Gallerí Lækjar-
torgi. Sýningin er til styrktar SATT,
Sambandi alþýðutónskálda og tónlist-'
armanna, en helmingur söluandvirðis
rennur til húsnæðisbygginga sambands-
ins. Boðið er upp á hagstæða greiðslu-
möguleika og kjör í 3-6 mánuði. Hér er
gott tækifæri fyrir einstaklinga og stofn-
anir að eignast listaverk á góðum kjörum
og um leið að sýna í verki stuðning við
íslenska tónlistarmenn, en SATT vinnur
að því að ýta undir tónlistarflutning í
landinu og jafriframt að bæta kjör ísl.
tónlistarmanna.
Meðal þeirra sem verk eiga á sýning-
unni eru Bat Yosef, Dieter Roth, Einar
Hákonarson, Haukur Hálfdánarson,
Guðrún Svava, Hringur Jóhannesson
Jóhann G. Jóhannsson, Megas, Páll
ísaksson, Jón Þór Gíslason, jóhann G.
Jóhannsson, Gísli Sigurðsson, Hregg-
viður Hermannsson, og fjöldi annarra.
Tónmenntaskóli Reykjavíkur:
Síðustu vortónleikarnir
■ Síðustu vortónleikar Tónmennta-
skóla Reykjavíkur verða haldnir í Aust-
urbæjarbíói n.k. laugardag 7. maí kl. 2.
e.h.
Á þessum tónleikum koma einkum
fram eldri nemendur skólans. A efnis-
skránni verður einleikur og samleikur á
ýmiss konar hljóðfæri.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Samvinnan 1. hefti 1983
í þessu hefti er margvíslegt efni. Þar má
nefna: „Stórslys getur orðið, ef látið verður
reka á reiðanum", Erlendur Einarsson for-
stjóri svarar spurningum Samvinnunnar.
Myndbandstækjum fjölgarört, Sigríður Har-
aldsdóttir skrifar um neytendamál, Byggjunt
ofan á þann grunn, sem lagður hefur verið
eftir Aðalbjörn Benediktsson. Hvamms-
tanga, Á leið til Islands heiti myndasyrpa
eftir Nönnu Búchert Ijósmyndara. Birt er
elsta myndin af aðlfundi Sambandsins, Fimm
fengu starfsaldursmerki, frasögn og mynd af
þeim sem hlutu merkin. Kvæði er í bíaðinu
eftir Pálma Eyjólfsson „Bláa kaffikannan
hennar ömmu“. Margt annað efni er í þessu
hefti. Forsíðumynd er úr Svínahrauni tekin
af Mats Wibe Lund. Útgefandi er Samband
ísl. samvinnufélaga, en ritstjóri er Gylfi
Gröndal.
Sjófnannafcteðið
VIKINGUR 83
HRíNQBÖROSUMRÆÖim UM WíOANPAC.UOMAB f.i SKRAPIO
A StoUSTU S rUNDL! O UTAN Ufi HTí.V i : FfítVAWTiH O
HEIMSO«N i PLASTONANGPUN 1 NVT r >« MmÁOHUM
Sjómannabladið Víkingur
2. og 3. tölublað 45. árg. hefur borist
Tímanum. í blaði nr. 2 er sagt frá „Hring-
borðsumræðum um undanþágur", greinar
eru í blaðinu sem nefnist Skrapið, fréttir frá
Noregi, Á síðustu stundu heitir grein eftir
Jónas Guðmundsson, Svo er frívaktin o.fl.
í 3. tbl. er m.a. Svona var lifið á
síðutogurunum, Tölvutæknin ryður sér til
rúms, Fréttir af norskum sjávarútvegi, Fé-
lagsmál, Krossviðarplötur fyrir fiskiðnaðinn,
Bylting í fiskimjölsverksmiðjum, Krossgátan
o.fl.
Túnaritið FLUG, 1. tölublað, 20. árgangur
er komið úr. Flug er málgagn Flugmálafé-
lags Islands og er þetta fjórða tölublaðið,
sem birtist á einu ári, eða frá því að útgáfa
FLUGS var endurskipulögð snemma á árinu
1982.
Meðal efnis að þessu sinni er viðamikil
grein um pílagrímaflutninga Flugleiða hf.,
fyrir alsírska flugfélagið Air Algérie, og er
greinin prýdd fjölda ljósmynda. M.a. eru
litmyndir af Boeing 747 flugvélinni sem
Flugleiðir tóku á leigu fyrir þetta verkefni, á
forsíðu og í miðopnu tímaritsins.
„Fallinn frumherji“ nefnist grein, sem Örn
Ó. Johnson skrifar um Agnar Kofoed-
Hansen, en leiðir þeirra Agnars og Arnar
lágu saman um hálfrar aldar skeið og voru
þeir samherjar á þróunartímabili atvinnu-
flugs á Islandi.
Með þessu tölublaði hefst svo kynning á
aðildarfélögum Flugmálafélags íslands með
lýsingu á sögu og starfsemi Flugklúbbs
Selfoss, en á Selfossi er starfandi mjög virkur
félagsskapur flugáhugamanna.
Hvað vissi
Kári Sölmundarson
um brunavamir,
. sem
Skarphéðinn Njálsson
vissi ekki?
Brunamalastofnun ríkisins
auglysir eftir upplýsingum
um allskonar búnað til brunavama.
Kári slapp úr Njálsbrennu en Skarphéðinn brann inni
ásamt flestum frændum sínum. Það er alls óvíst
hvort vitneskja um brunavamir
nútímans hefði komið þeim á Bergþórshvoli að
nokkmm notum á söguöld. Hins vegar er fullvíst
að á 20, öldinni er nauðsynlegt að
allir eigi greiðan aðgang að slíkum upplýsingum.
Bmnamálastofnun ríkisins þarf
á degi hverjum að svara fyrirspurnum þess efnis, hvar
unnt sé að fá ýmsan búnað, tæki og vömr til
brunavama. Stofnunin vill gjaman
geta gefið hlutlægar upplýsingar hveiju sinni.
Þess vegna biðjum við íslenska framleiðendur og
umboðsmenn erlendra aðila
að senda bmnamálastofnuninni sem ailra fýrst
greinagóðar upplýsingar um hvað þeir kunna
að hafa á boðstolum.
Eftirtalin atriði eru einkum ahugaverð:
— Sjálfvirk viðvömnarkerfi.
— Sjálfvirk slökkvitæki.
- Heimilisreykskynjarar og eldvamar-
teppi.
- Handslökkvitæki.
- Bmnaslöngur á keflum.
— Eldvamarhurðir.
— Neyðarlýsingarkerfi.
— Útgönguljós ogeldvarnarmerkingar.
— Eldþolin byggíngarefni og
klæðningar.
— Eldþolin húsgögn, gluggatjöld og
gólfteppi.
— Eldþolnar málningar og lökk.
- Bmnalokur í loftræstikerfi.
— Bmnaþéttingar fyrir rafkapia og
pípur.
— Björgunarbúnaður fyrir efri hæðir
húsa.
- Hurðarbúnaður fyrir dyr í rýmingar-
leiðum húsa.
— Bmnahanar fyrir vatnsveitur bæjar-
félaga.
- Slökkvibílar, slökkvidælur, slöngur
og annar búnaður fyrir slökkvilið.
— Hlífðarfatnaður fyrir slökkviliðs-
menn.
— Reykköfunartæki og tilheyrandi
búnaður fyrir slökkvliðsmenn.
— Talstöðvar og ýmiss annar sérbún-
aður og tæki fyrir slökkvilið.
BRUNAMÁLASTOFNUN
RÍKISINS
LAUGAVEGI 120 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 25350
LD Bílaleiga ^
IH Carrental #
Dugguvogi 23. Sími 82770
Opið 10.00-22.00.
Sunnud. 10.00-20.00
Sími eftir iokun: 84274 - 53628
Leigjum út ýmsar
gerðir fólksbíla.
Sækjum og sendum
Þvoið, bónið og
gerið við bílana
ykkar í björtu og
. rúmgóðu húsnæði.
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN