Tíminn - 19.05.1983, Blaðsíða 4
4
FIMMTUDAGUR 19. MAI1983
Lóðaúthlutun
í Kópavogi
Auglýst er eftir umsóknum um lóðir í Sæbóls- og
Marbakkalandi. Úthlutað verður 9 lóðum fyrir
einbýlishús og 55 lóðum fyrir raðhús.
Skipulagsuppdráttur ásamt úthlutunarskilmálum
liggja frammi á tæknideild Kópavogs, Fannborg
2, þriðju hæð kl. 9.30 til 15.00.
Umsóknum skal skilað á eyðublöðum sem þar
fást . Umsóknarfrestur er til 30. maí n.k.
Bæjarverkfræðingur.
Styrkir til háskólanáms í Búlgaríu
Búlgörsk stjórnvöld bjóöa fram í aðildarlöndum UNESCO átta styrki
til háskólanáms í Búlgaríu um sex mánaða skeið á háskólaárinu
1983-84. Styrkirnir eru ætlaðir til framhaldsnáms í búlgarskri tungu
og bókmenntum, listum, sögu, verkfræði eða búvísindum. Umsækj-
endur skulu ekki vera eldri en 45 ára og hafa lokið háskólaprófi áður
en styrktímabil hefst. Umsóknum skal komiðtil menntamálaráðuneyt-
isins, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, fyrir 11. júní n.k. - Sérstök
umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
13. maí 1983.
Eftirsóttu „Cabína" rúmsam-
stæöurnar komnar aftur.
Verð með dýnu kr. 9.300.
1
Húsgögn og
innréttíngar
Suðurlandsbraut 18
Sími 86-900
Söluskattur
Viðurtög talla á söluskatt tyrir aprít mánuð 1983. hafi hann ekki verið
gretddliur S siðasta lagi 25. |(un.
Viðurifyemtt&hMffaÍHúmsðlusl&Sfyrirhvem byijaðanvirkan
dag eftir eindaga unsþaueruoiðm20%, en síðan eru viiðurtögin 5%
til viðbótar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og med 16 júni.
Fjármálaráðuneytið, 17. maí 1983.
ÍSSKÁPA- OG FRYSTIKISTU
VIÐGERÐIR
Breytum gömlum ísskápum
i frystiskápa.
Góð þjónusta.
araslvarh:
REYKJAVIKURVEGI 25 Há'fnarfirði simi 50473
útibú að Mjölnisholti 14 Reykjavík.
fréttir
Aðeins einn Sauðárkrókstogaranna
í gangi eins og er:
VÉLARBILUN í DRANGEY OG
HEGRANESIÐ í SLIPP
Sauðárkrókur: Sauðkræklingar hafa
aðeins afla af einum togaranna sinna
nú þessa dagana og fram undir mán-
aðamótin. Hegranesið, sem verið hef-
ur í breytingu í Slippstöðinni á Akur-
eyri frá því snemma í vetur er enn ekki
alveg tilbúinn, og nú fyrir síðustu helgi
bilaði vélin í Drangeynni. Það er því
aðeins Skafti sem er á veiðum þessa
dagana.
„Þessa vikuna erum við að vinna
aflann sem kom úr skipunum báðum
s.l. föstudag, Skafta og Drangey.
Skafti var sendur strax út aftur og er
væntanlegur inn n.k. þriðjudagsmorg-
un. Við eigum svo von á að Hegranesið
verði afhent á laugardeginum fyrir
hvítasunnu. Standist það verður bæjar-
búum leyft að skoða það síðari hluta
hvítasunnudags og það svo sent á
veiðar upp úr miðnætti 2. hvítasunnu-
dag.. Þessi fyrsti túr Heganessins verð-
ur varla mjög langur, þar sem þetta
yrði veiðarfæraprófun um leið“, sagði
Marteinn Friðriksson, framkvæmda-
stjóri Fiskiðjunnar á Sauðárkróki í
gær.
Hann sagði afla togaranna hafa
verið tregan. í vetur, svo þetta hafi nú
verið hálfgert hallæri með að ná í
nægan fisk til vinnslu. En smávegis
hafi þeir fengið til uppfyllingar frá
Siglfirðingum öðru hverju, sem verði
varla mikið á næstunni, nema að afli
glæðist töluvert. „Það eina sem við
erum sæmilega ánægðir með, er að það
verður þó vart við smáfisk, þannig að
það er þó eitthvað í uppeldi á þessum
slóðum.
En það er líka mjög fyrirhafnarsamt
og dýrt að ná í fiskinn. Hólfum er t.d.
oft lokað og þá þurfa togararnir að fara
að leita fyrir sér á nýjum slóðum.
þetta er því mikil keyrsla", sagði
Marteinn. -HEI
■ Forstöðumenn leikfangasafnanna höfðu um margt að ræða og bera
saman bækur sínar á fundinum í Borgamesi. Tímamynd Ragnheiður.
Sex leikfanga-
söfn í landinu
Rækjuvertíðinni
lauk í apríl:
Um 17%
minni afli
en i fyrra
Vestfirðir: Alis komu á land á Vest-
fjörðum 3.959 lestir af rækju á rækju-
vertíðinni sem lauk á öllum veiðisvæð-
unum þrem nú í apríl. 1 fyrravetur varð
aflinn 4.759 lestir, þannig að hann er
nú nær 17% minni enn þá. Rækjubát-
arnir voru 47 í vetur, eða tveim fleiri
en í fyrra.
Aflinn skiptist þannig eftir svæðum:
Arnarfjörður 9 bátar með alls 507
lestir (539 í fyrra), ísafjarðardjúp 28
bátar með 2.316 lestir (3.019) og
Húnaflói 10 bátar með 1.136 lestir
(1.201).
- HEI
Næg virkjana-
vinna fyrir
karla í Rangár-
þingi í sumar
— en alltaf
þrengra um störf
fyrir konurnar
Rangárþing: „Héðan er allt gott að
frétta - það er komið sumar hjá okkur.
Atvinnuútlitið er líka gott, því það eru
svo miklar framkvæmdir inni í
fjöllum", sagði Sigurður Óskarsson,
formaður Verkalýðsfélagsins Rangæ-
ings á Hellu.
„Framkvæmdir eru núna að fara í
gang við Kvíslarveiturnar og Sultar-
tangi er í gangi. Við erum því ekki í
neinum vanda með vinnu fyrir karl-
menn í sumar. Það er aftur á móti
verra með vinnu fyrir konurnar, en þó
ekkert öðruvísi en verið hefur. Það eru
alltaf erftðleikar í saumaskapnum t.d.
- framboðiðvirðist meira en markaður-
inn“, sagði Sigurður.
- En sækja konurnar ekki fast á að
komast í eldhúsin hjá virkjana-
mönnum?
„Við höfum engin afskipti af eldhús-
unum. Eldhúsverkstjórarnir ráða al-
veg í þau störf - og greinilega þær sem
eru vanar, sem eru nú orðnar býsna
margar. Sumar konurnar eru búnar að
vera þarna innfrá á hverju sumri frá
því árið 1970. Það er smá hreyfing á
yngra fólkinu, en mikið til er þetta
sama fólkið þarna innfrá.
-HEI
Borgarnes: Sameiginlegur fundur for-
stöðumanna leikfangasafna var nýlega
haldinn í Borgarnesi. í landinu eru nú
starfandi sex leikfangasöfn, í Reykja-
vík, Borgarnesi, Blönduósi, Keflavík,
Akureyri og innan Kópavogshælis.
Hlutverk þeirra er að veita þjónustu
börnum sem vikið hafa frá eðlilegum
þroska um lengri eða skemmri tíma og
er þá bæði átt við andleg og líkamleg
frávik.
1 frétt frá forstöðumönnum safnanna
Suðurland: Fyrstu tveir stúdentamir
voru brautskráðir frá Fjölbrautaskól-
anum á Selfossi við skólaslit scm þar
fóru fram í gær. Um 300 nemendur
hafa undanfarið verið í skólanum, en
þeir verða um 400 á næstu haustönn.
Sýslufélögin á Suðurlandi hafa nú
samþykkt að ganga til samstarfs við
Selfossbæ um byggingu og rekstur
Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi.
Samkvæmt lögum um Fjölbrautaskóla
er hlutur ríkissjóðs í byggingarkostn-
aði 60% en heimaaðila 40%. Hlutur
heimaaðila skiptist síðan þannig: Vest-
ur-Skaftafellssýsla 2,5%, Rangárvalla-
sýsla 8,5%, Árnessýsla 41% og Sel-
fossbær 48%. Um skiptingu rekstrar-
kostnaðar fer síðan eftir nemenda-
fjölda er sækja skólann af hverju
svæði.
Heimaaðilar hafa óskað eftir að
byggingadeild menntamálaráðuneytis-
ins gangi nú þegar til samninga um
bygginguna. Jafnframt hefur skóla-
segir að söfn af þessu tagi séu víða um
lönd. Hafi sýnt sig að með hnitmiðaðri
notkun leikfanga geti þau nýst vel til
þjálfunar og kennslu.
1 söfnunum er veitt einstaklingsleg
og uppeldisleg ráðgjöf í leikþjálfun og
eru leikföng, bækur og önnur hjálpar-
gögn lánuð heim til barnanna endur-
gjaldslaust. Einnig aðstoða söfnin út á
við í sambandi við val og innkaup
leikfanga.
- HEI
nefnd óskað formiegs samþykkis ráðu-
neytisins á teikningum þeim sem
kynntar hafa verið þeim er um þær
eiga að fjalla og hlotið hafa einróma
samþykki heimamanna. Áætlað er að
uppbygging 1. áfanga taki rúm 2 ár, en
kostnaður sá mundi dreifast á 3 ár.
Umræður um samstarf framhalds-
deildanna á Laugarvatni og Skógum
hafa verið í gangi, enda slíkt samstarf
þáttur í samningi heimaaðila.
Þá hefur verið gefið út skólablað til
dreifingar fyrir alla grunnskólanem-
endur sem nú eru að Ijúka grunn-
skólaprófi í Suðurlandskjördæmi. Hef-
ur blaðið að geyma allar upplýsingar
um framhaldsskólana á svæðinu hvað
námsbrautir og annað snertir.
Skólameistari, Heimir Pálsson lætur
nú af störfum, en við því starfi tekur
Þór Vigfússon. Reikningshaldari skól-
ans hefur verið ráðinn Erlendur Hálf-
dánarson.
- HEI
Sýslufélögin til samstarfs um
rekstur Fjölbrautaskóla Suöurlands:
Fyrstu stúdentarnir
útskrifaðir á Selfossi