Tíminn - 19.05.1983, Blaðsíða 9

Tíminn - 19.05.1983, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 19. MAI1983 9 á vettvangi dagsins | ■ Vatnsdalsá á Barðaströnd. Myndin er tekin skammt neðan við útrennsli úr Vatnsdalsvatni. Mynd Einar Hannesson. ■ Vitjað um í laxveiðilögn í Hvítá hjá Skeiðum. Útbúnaður af þessu tagi er algengur á vatnasvæði Ölfusár - Hvítár. Virkjanir og veidivötn ■ -Fróðlegt er að kanna hvaða veiðiár og silungsvötn muni líklega fá virkjun í sitt vatnakerfi í náinni framtíðeða síðar. í grein „Veiðispjöll virkjana í ár og vötnum“ sem höfundur þessa pistils reit hér í blaðið í nóvember s.l., voru gerðar að umtalsefni virkjanir í veiðivötnum. Tók þetta til tíu staða og þar á meðal Blöndu, en orkuver þar er reyndar í undirbúningi, eins og kunnugt er. Spjall þetta um framtíðina í þessum efnum er því í beinu framhaldi af nefndri grein. Við þessa samantekt er m.a. stuðst við rit Orkustofnunar. Við sum vatnasvæði, sem þegar hafa verið virkjuð til raforkuframleiðslu, verður haldið afram að ná meiri orku úr vatnsaflinu með nýjum virkjunum. Þetta á sérstaklega við um Þjórsársvæðið, sem býður í þessu efni einkar hagstæða kosti á ýmsum stöðum í vatnakerfinu. Mætti t.d. nefna virkjun við Búðafoss hjá Árnesi, við Urriðafoss, í Fossá í Þjórs- árdal og við Tungnaá. Auk Þjórsár, má , nefna Laxá í Aðaldal og Lagarfljót hvað varðar viðbótarorkuöflun. Vesturland Um mörg ný virkjunarsvæði verður að ræða í framtíðinni. Þannig má búast við að virkjað verði við Hvalvatn í Hvalfirði, sem Botnsá fellur úr. Hið sama má segja um Reyðarvatn, en upptök Grímsár í Borgarfirði eru úr því vatní. Langt er síðan athygli manna beindist að Hvítá hjá Kljáfossi sem virkjunarstað þó að af framkvæmdum hafi ekki orðið enn. Rætt hefur verið um að nýta fallið úr Hraunsfjarðarvatni á Snæfellsnesi í Hraunsfjörðinn. Af slíku leiddi að Baul- árvallavatn yrði einnig notað til miðlunar fyrir þessa virkjun. Það hefði aftur á móti í för með sér, að Straumfjarðará, sem upptök á í því vatni, yrði líklega eyðilögð sem laxveiðiá. Fyrrgreind vötn eru bæði góð veiðivötn. Á Vestfjörðum eru tvö lax- og silungs- svæði sem á dagskrá hafa komið sem væntanlegir virkjunarkostir. Þetta er Vatnsdalsá ásamt samnefndu stöðuvatni á Barðaströnd og vatnakerfi Laugardals- ár við ísafjarðardjúp. Blanda og Héraðsvatnasvæðið Á Norðurlandi vestra eru auk Blöndu, ein þrjú veiðisvæði, þar sem ætla verður að virkjað verði. Eru þetta Laxá ytri, skammt frá Blönduósi, Héraðsvatna- svæðið, vestra og eystra; annars vegar í Svartá hjá Reykjafossi og hinsvegar Hofsá í Vesturdal. Við Eyjafjörð eru tvær veiðiár, sem líklegar eru taldar í sambandi við raf- orkuver. Þetta eru Fnjóská, hjá Laufás- fossum, og Eyjafjarðará, við efsta hluta hennar. Skjálfandafljót Skjálfandafljót býður marga kosti í sambandi við raforkuöflun; bæði við efsta hluta svæðisins og neðar, eins og hjá Goðafossi og fl. Talað hefur verið um íshólsvatn og Ljósavatn sem miðlun- arlón vegna virkjana á þessu svæði. Á sínum tíma voru uppi áætlanir um vatna- flutning frá svæðinu til Laxár (Gljúfur- versvirkjun) og sömuleiðis hcfur vatni frá þessu svæði verið veitt til Þjórsár, en hvorttveggja hefur mætt mikilli and- stöðu heimamanna, sem kunnugt er. í Vopnafirði hefur verið bent á Þuríð- arfoss sem virkjunarstað, og talað hefur verið um miðlun í vötnum á Jökuldals- heiði vegna hugsanlegrar virkjunar við Hofsá í Vopnafirði. Suðurland - orku- gjöfulasta svæði landsins Virkjunarstaðir cru margir í veiðiám og vötnum á Suðurlandi. Þar hiætti nefna virkjun Skaftár og Tungufljóts í Skaftártungu, en síðarnefnda rafstöðin nyti þá væntanlega vatns úr fyrrnefnda svæðinu. Vatnasvæði Rangánna; í Eystri- Rangá hjá Tungufossi og Ytri-Rangá við Árbæjarfoss. Sömu sögu er að segja um vatnakerfi Hvítár í Ámessýslu. Virkj- unarstaðir eru margir á Hvítársvæðinu, svo sem hjá Haukholtum í Hrunamanna- hreppi, en sú virkjun myndi væntanlega verða til þess að Gullfoss yrði í hættu, í Tungufljóti hjá fossinum Faxa, í Brúará ■ Einar Hannesson hjá Haga, er myndi kalla á miðlun úr Apavatni, einu besta silungsvatni á landinu, og síðast en ekki síst orkuver við Hestavatn. Við þá framkvæmd kæmi stífla í Hvítá á Skeiðum, þar sem vatni úr ánni yrði veitt um Slauku í Hestvatn. Fallið úr Hestvatni í Hvítá hjá Kiðja- bergi yrði síðan hagnýtt til orkufrant- leiðslu. Hér að framan er ekki um tæmandi upptalningu að ræða í sambandi við væntanlcga virkjunarstaði í vciðiám og stöðuvötnum í framtíðinni. Þá er ekki nefnd stórvirkjun, eins og myndi verða þegar Jökulsá á Fjöllum yrði beisluð eða virkjun við Hvalá í Ófeigsfirði á Ströndum, og fl. svo sem virkjun Geit- hellnaár í Suður Múlasýslu og Fossár t Berufirði. Einar Hannesson. Stríðandi fylkingar sameinast í Norðurlandskjördæmi vestra: „Eldri félagar mega taka okkur sér til fyrirmyndar“ — segja fundarmenn ■ „Á þessum fundi sameinuðust tvær stríðandi fylkingar", sagði Valdimar Guðmannsson, endurkjörinn formaður FUF á Blönduósi, en sl. föstudagskvöld var aðalfundur FUF á staðnum og á honum var efnt til stjórnarkjörs. Greini- legt var að fundarmenn vildu grafa stríðsöxina, enda eru núverandi stjórn- armenn úr báðum framboðunum, þ.e. úr B og BB. „Eldri félagarnir mega svo sannarlega taka okkur til fyrirmyndar", sagði einn fundarmanna þegar stjórnar- kjörið var afstaðið.og ég á von á því að þeir geri það“. Fundarmenn sameinuðust um einn lista og var fjölgað um tvo í stjórninni og eiga nú sjö sæti í henni. Fundurinn var óvenju fjölmennur og sagði Valdimar að ■ Valdimar Guðmannsson. honum teldist til að rösklega 50 manns hefðu verið í salnum þegar flest var. „Þessi fjöldi sýnir glögglega mikinn áhuga fólks á málefnum Framsóknar- flokksins“, sagði Valdimar. Eins og fyrr sagði var Valdimar endur- kjörinn formaður félagsins en aðrir í stjórn eru: Stefán Þ. Berndsen, Lárus B. Jónsson, Vilhjálmur Pálmason, Magnús Jónsson, Áslaug Finnsdóttir og Ægir Sigurgeirsson. Gestirfundarinsvoru þeir Finnur Ingólfsson, formaður SUF, og Áskell Þórisson, framkvæmdastjóri SUF. Nýtt FUF félag á Sauðár- króki ■ Síðast liðinn laugardag var stofnað nýtt FUF félag (félag ungra framsóknar- manna) á Sauðárkróki. Stofnfundurinn var fjölsóttur og var Guðrún Sighvats- dóttir kjörin formaður félagsins. Það kom fram í máli fundarmanna að mikill áhugi er fyrir starfi Framsóknar- flokksins í kjördæminu og á fundinum var kjörið í ýmiskonar nefndir, sem eiga að undirbúa jarðveginn fyrir frekara starf. f stjórn félagsins voru kjörin: Guðrún Sighvatsdóttir, María Lóa Frið- jónsdóttir, Ingi Vilhelm Jónasson, Kristján Ólason og Þorleifur Hólm- steinsson. I varastjórn: Hörður Þórarins- son og Ragnheiður Ástvaldsdóttir. Gest- ir fundarins voru þeir Finnur Ingólfsson, formaður SUF, og Áskell Þórisson, framkvæmdastjóri SUF.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.