Tíminn - 19.05.1983, Síða 11
10
11
Raflagnir
Fyrsta flokks
þjónustá
Ef þú þarft að endurnýja, gera við, bæta við
eða breyta raflögnum, minnir Samvirki
á þjónustu sína með harðsnúnu liði rafvirkja,
sem ávallt eru tilbúnir til hjálpar.
samvirki
SKEMMUVEGI 30 - KÓPAVOGI - SÍMI 44(5 66
Húsbyggjendur!
Ávallt fyrirliggjandi
★ Dönsk glerullareinangrun
★ Amerísk JM glerullareinangrun
★ Steinull
★ Glerullarhólkar
★ Álpappír
★ Spónaplötur og grindarefni
★ Milliveggjaplötur
•k Þakpappi og þakjárn
★ Mótatimbur og steypustyrktarjárn
★ Rör og fittings
Tryggjum góða vöru á góðu verði
Opið:
Mánudaga - fimmtudaga frá kl. 8-18
föstudaga kl. 8-19
laugardaga 9-12
BYGGINGAVORUR
HRINGBRAUT 120:
Byggingavbrur
Gollteppadeild
Simar: Timburdeild 28-604
28 600 Malningarvbrur og verklæri 28 605
28 603 Flisar og hreinlætistæki 28 430
Allt fyrir bygginguna á ótrúlega hagstæðum
greiðslukjörum
LENGSTI KÖRFUBÍLL LANDSINS
SÍMAR:
86815,
72661,
82943
Guðmundur & Agnar
Mimm
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1983
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1983
Sigurvegari og verðlaunahafi í getraunaleik Tfmans tekinn tali
„Fékk hluta af kerfinu að
láni hjá keppinaut”
— þetta er eins og gullin kveðjugjöf, segir Flosi Kristjánsson
sem fer til Lundúna á vegum Samvinnuferða-Landsýnar í dag
til að sjá Man. Utd.-Brighton á Wembley
■ „Svona hlutir eru alltaf háðir töluverðri
heppni, en þetta kemur til mín eins og
gullin kveðjugjöf, þar sem ég er nú að
hætta störfum hjá Tímanum sem prófarka-
lesari, en það er starf sem ég hef haft með
höndum ásamt kennsiunni undanfarin 5
ár,“ sagði Flosi Kristjánsson kennari og
prófarkalesari Tímans í samtali við íþrótta-
fréttamann blaðsins í gær. Flosi er sigurveg-
ari í getraunaleik Tímans 1983, og hlýtur
að launum ferð á Wembley í Lundúnum
með Samvinnuferðum-Landsýn og Flug-
leiðum, til að sjá úrslitaleik Manchester
United og Brighton í ensku bikarkeppn-
Getraunaleikur Tímans hefur staðið frá
því enska knattspyrnan og getraunir hófust
um mánaðamótin ágúst-september í haust.
Þegar 7 umferðir voru eftir af getraunum,
hófst úrslitakeppni, en keppnin var lengst
af í formi útsláttarkeppni. 12 getspökustu
kappar síðunnar spreyttu sig þá í síðustu 7
leikjunum, og spáði Flosi 6 sinnum rétt. -
Fyrir þá sem ekki skilja þetta, er rétt að
geta þess að hver spámaður fékk í hvert
sinn í sinn hlut einn leik til að spá um úrslit.
„tg fékk nú eiginlega hluta af kerfinu
sem ég spáði eftir að láni hjá keppinaut,
'Braga Garðarssyni prentara," sagði Flosi,
er hann var inntur eftir því hvernig hann
hefði farið að þessu. „Þessi hluti er fólginn
í vegalengdunum miili heimaborga lið-
anna. Ef t.d. Lundúnalið var að fara langt
í burtu til að keppa, svo sem til Swansea
eða Sunderland, þá minnkuðu möguleikar
liðsins. Síðan tók ég tillit til heimavallarins,
stigatölu liðanna og úrslita úr innbyrðis
leikjum þeirra, og svo úrslita úr fjórum
síðustu leikjum hvers liðs.“
- Eigin knattspymuferill?
„Hann náði yfir eitt sumar, í 6. flokki
hjá Víkingi fyrir um tuttugu árum. Þá
fengum við strákarnir boðsmiða á leiki í
Laugardalnum, og þá gat maðurfylgst með
innlendum köppum þess tíma, svo sem
Helga Dan í markinu, Ríkharði Jónssyni,
Þórólfi Beck og fleirum. Síðan lagðist
knattspyrnuiðkun mín niður, nema allra
síðustu ár að ég hef spriklað í fótbolta með
samkennurum innanhúss."
- Ertu innfæddur Víkingur?
„Já, það má segja það. Ég ólst upp í
smáíbúðahverfinu í nágrenni félagsheimilis
Víkings fyrstu 16 árin af ævinni, en síðan
lá leiðin í Vesturbæinn. Nú bý ég vestast í
Vesturbænum ásamt konu minni, Rögnu
Þórhallsdóttur og þremur sonum, þriggja,
sjö og níu ára. Þeir eru nú allir í KR-bún-
ingum alla daga, eins og eðlilegt er í
Vesturbænum.“
Flosi er kennari að mennt, útskrifaður
frá Kennaraháskóla íslands, og hefur kennt
við Hagaskólann í Reykjavík frá árinu
1972. Árin 1973-75 var hann við nám í
University of Wisconsin í Bandaríkjunum,
þar sem hann lauk háskólaprófi í ensku.
Síðan lá leiðin heim til íslands og í
Hagaskólann, þar sem hann hefur kennt
síðan.
Lundúnir óskrifað blað
„Lundúnir eru hvað persónulega reynslu
mína varðar, óskrifað blað. Þegar ég fór til
Bandaríkjanna árið 1973 hafði ég lengst
komið út til Viðeyjar ef fastalandið er
viðmiðun. Þó fannst manni alltaf hér áður,
að fyrsti staðurinn sem maður hlyti að
koma á þegar maður færi erlendis væri
Lundúnaborg."
„Hvað enska knattspyrnu varðar, þá
fylgdist maður stíft með boltanum á árum
áður, þá voru aðalkempurnar Bobby
Charlton, Bobby Moore og Geoff Hearst.
Síðan hvarf þetta alveg hjá mér um tíma,
en síðustu 4 árin hef ég horft reglulega á
ensku knattspyrnuna í sjónvarpinu á laug-
ardögum.“
Tilraunir með tölvuspá
íþróttafréttamaður Tímans hafði haft
pata af því að Flosi hafi dálítið gert
tilraunir með tölvu við að spa á getrauna-
seðilinn, og innti hann eftir því.
„Já, það er rétt, ég hef dálítið verið að
leika mér með að mata venjulega litla
heimilistölvu sem ég fékk lánaða hjá mági
mínum á upplýsingum og láta hana spá.
Fyrst var þetta afar einfalt, eins konar
teningakast. Talvan valdi af handahófi 1,
X eða 2. Hún veiddi síðan fram 12 línur,-
og 10 merki í hverri línu, eins og tíu raða
seðillinn er. Einu forsendurnar sem ég gaf
henni voru þær að líklegur fjöldi 1-merkja
væri 7, x-merkja 2 og 2-merkja 3. Þetta var
svipað og að nota tening.
Seinna barði ég saman annað prógram,
þar sem talvan fékk stig liðanna til viðmið-
unar, heimaliðið fékk 10 stig í plús vegna
heimavallarins, og útiliðið fékk handahófs-
tölu frá cinum og upp í þá tölu sem
mismunurinn á efsta og neðsta liði var
hverju sinni. En óvissan í þessu er samt svo
mikil, að ég hafði oftast betur með brjóst-
vitinu einu saman. Þó komst hún í að spá
8-9 réttum.“
Kemur víða við
Flosi er nú að hætta störfum hjá Tíman-
um, þar sem hann hefur verið prófarkales-
ari síðastliðin 5 ár. Hann hefur haft með
höndum helminginn af kvöldvakt prófarka-
lestursins hjá blaðinu, ásamt því að kenna
í Hagaskóla. „Það má segja að þessi
Wembleyferð sé eins og „golden hand-
shake“, svona í lokin“, sagði Flosi. „Héðan
af verð ég bara á varamannabekknum í
prófarkalestrinum, en aðallega í kennsl-
unni.“
Þess má geta, að fljótlega eftir að Flosi
kemur frá Lundúnum úr verðlaunaferð-
inni, sem stendur frá deginum í dag fram á
sunnudagskvöld, mun hann fara að vinna
að því að skera hval hjá Hval hf í Hvalfirði,
en það sumarstarf hefur hann stundað á
hverju sumri frá 1977.
- Hvaða tómstundaiðju stundarðu þeg-
ar þú ekki ert að kenna eða lesa?
Ég stunda íþróttir, sund, skokk, skíði og
lyftingar, lyftingarnar heldur reglubundn-
ara en hitt, en frístundirnar fara í þetta
þegar maður er ekki að sinna fjölskyld-
unni.“
Flosi Kristjánsson með farseðilinn, og miðann á Wembley.
Tímamynd Árni Sæberg
,Ég hef aldrei komið áður til Lupdúna, reyndar er
það í eina skiptið sem ég hef farið erlendis, þegar
ég fór í háskólanám í Bandaríkjunum á sínum tíma.
Aður en ég fór þangað hafði ég komist lengst frá
fastalandinu til Viðeyjar. En hér áður fannst manni
einhvern veginn að Lundúnaborg hlyti að verða
fyrsti staðurinn sem maður kæmi til, þegar maður
einhvern tíma færi til annarra landa.“
Fjögur mörk
og jafntefli
hjá röndóttuni
umsjún Samúel Örn Erlingsson
Námskeið fyrir
trimm-
leiðbeinendur
■ Trimmnefnd Iþróttasambands Islands mun
gangast fyrir námskeiði fyrir leiðbeinendur í
almenningsíþróttum, trimmi t.d. innan fyrir-
tækja og stofnana. Námskeiðið verður í íþrótta-
miðstöð ÍSÍ að Laugarvatni dagana 24. júní til
1. júlí í sumar. Námskeiðið er liður í þeirri
áætlun trimmnefndarinnar að ná betri samstarfi
við stjórnendur og starfsmannafélög stofnana
um að hvetja starfsfólk til að stunda trimm í
frítíma sínum, og að því verði gefinn kostur á
léttum örvunaræfingum á vinnustað í stuttum
hléum.
Markmið námskeiðsins er að veita þátttak-
endum undirstöðuþekkingu til að leiðbeina og
stjórna örvunaræfingum á vinnustað. Fyrirtæki
eru hvött til að styðja aðiid í því að sækja
námskeiðið, og jafnvel greiða kostnaðinn, sem
er kr. 3000 - pr. þátttakanda. Þátttökutilk.
berist skrifstofu ÍSÍ Laugardag, sími 83377 fyrir
1. júní nk.
Styrkur til fim-
leikanáms
■ Fimleikasamband íslands hefur auglýst eftir
umsóknum um námsstyrk úr minningarsjóði
Áslaugar Einarsdóttur. Styrkur þessi er veittur
til náms í fimleikakennslu, og er miðað við að
umsækjandi stundi nám við viðurkennda menn-
tastofnun í a.m.k. 6 mánuði, námsárið 1983-84.
Umsóknir eiga að greina aldur umsækjanda,
iðkun fimleika, þjálfun og kennslu, ásamt
meðmælum. Umsóknir sendist Fimleikasam-
bandi íslands Laugardal, 104 Reykjavík merkt
sjóðnum fyrir 20. júní 1983.
Enginn með
12 rétta
■ í síðustu leikviku getrauna, þeirri 36. og
síðustu á þessu keppnistímabili kom engin röð
fram með 12 rétta, 11 raðir voru með 11 rétta
og vinningur fyrir hverja röð var kr. 15.550. -
Með 10 rétta voru 232 raðir og vinningur á
hverja kr. 459. Fyrsti leikdagur í ensku knatt-
spyrnunni í haust er 27. ágúst, og verða þá
getraunir hafnar að nýju af fullum krafti vikuna
áður.
íþróttir
Fyrsti leikur íslandsmótsins
í knattspyrnu:
■ Fjögur mörk voru skoruð í jafnteflis-
leik KR og Þróttar sem var fyrsti leikur
Islandsmótsins í knattspyrnu og leikinn
á Hallarflötinni í Laugardal í gærkvöldi.
2-2 og leikurinn kaflaskiptur. Oskar
Ingimundarson skoraði fyrsta mark
leiksins fyrir KR á 43. mín., Ásgeir
Elíasson jafnaði á 56. mínútu fyrir Þrótt,
Páll Ólafsson skoraði annað mark Þrótt-
ar á 60. mín og Ágúst Már Jónsson
jafnaði fyrir KR á 68. mín.
Mikil barátta var í leiknum lengst af,
og fremur lítið um færi framan af, Ekki
tók því að taka upp minnisbók fyrr en
Ajiderlecht
varð LJFA A
meistari
■ Belgíska liðið Anderlecht, sem Arn-
ór Guðjohnsen gerði nýlega samning
við, varð í gærkvöldi UEFA meistari í
knattspyrnu. Liðið gerði þá jafntcfli við
portúgalska liðið Benfica í Lissabon, og
vann því samanlagt 2-1, vann 1-0 heima
í Brússel fyrir hálfum mánuði. Sheu
skoraði fyrst fyrir Benfica í lciknum, en
Juan Lozano jafnaði með fallegum
skalla eftir fyrirgjöf Franky Vercauter-
en. Benflca þótti ekki gott, þrátt fyrir
góðan leik Svíans Glenns Stromberg.
vel var liðið á fyrri hálfleik. Þá áttu
KR-ingar tvö hættuleg tækifæri, Ágúst
Már Jónsson átti skalla í þverslá Þróttar-
marksins og Sæbjörn Guðmundsson pot-
aði knettinum rétt framhjá eftir að hann
komst í gegnum Þróttarvörnina, en hafði
nauman tíma og þröngt athafnasvæði.
Rétt eftir þetta var hætta við KR markið,
en engum Þróttara tókst að skjóta alvar-
lega á markið. Fyrsta markið kom síðan
á 43. mín7markamínútunni, Óskar Ingi-
mundarson fylgdi vel á eftir er knöttur-
inn hrökk út af stönginni, eftir auka-
spyrnu Sæbjarnar.
í síðari hálfleik voru Þróttarar mun
sprækari. Páll Ólafsson gaf tóninn með
einleik upp allan hægri kantinn og átti
þrumuskot rétt yfir KR markið. Á 10.
mín. s. hálfleiks kom svo næsta mark,
Ásgeir Elíasson þjálfari og fyrirliði skor-
aði úr vinstra vítateigshorninu með skoti
yfir Stcfán markvörð Arnarson eftir að
hann komst á auðan sjó eftir góða
sendingu frá Þorvaldi I. Þorvaldssyni,
1-1. Skömmu síðar átti Júlíus Júlíusson
lausan skalla í slá KR marksins, og þar
skall nú hver sóknin af annarri yfir. Páll
Ólafsson átti skot í Júlíus félaga sinn og'
þaðan framhjá.
Páll var aftur á ferðinni á 25. mínútu,
skoraði þá annað mark Þróttar. Páll,
sem búinn var að vera mjög ógnandi,
skoraði úr hægra vítateigshorninu með
öruggu skoti sem fór hátt yfir Stefán
markvörð og í netið, 2-1.
KR-ingar hresstust eftir þetta, og áttu
næsta kafla. Glæsilegasta mark leiksins
átti eftir að koma, þar var Ágúst Már
Jónsson á ferðinni, skoraði með mjög
góðum skalla, skutlaði sér fram og
negldi fyrirgjöf Óskars Ingimundarsonar
í netið, og Guðmundur Erlingsson mark-
vörður Þróttar kom engum vörnum við.
Þetta inark var skorað á 68. mín., en
lítið var um færi eftir það.
Bestu menn Þróttar voru Páll Ólafsson
og Ásgeir Elíasson, einnig átti Baldur
Hermannsson góða spretti eftir að hann
kom inn á. Hjá KR voru bestir Ágúst
Már og Óskar Ingimundar, og Sæbjörn
átti spretti. Leikurinn í heild var ekki
frábær, en mun betri en flestir leikirnir í
fyrra. - Sem sagt góð byrjun.
■ Stefán Arnarson grípur vel inn í lcikinn í gærkvöldi.
Tímamynd: Róbert
Víravirki KYNNINGARVERÐ
Á ÍSLENSKA ÞJÓÐBUNINGINN
sem áöur var selt hjá Gullhöllinni, Laugavegi, verður
einungis selt miliiliðalaust eftirleiðis. Dreifbýlisfólk, óg
sendi ykkur myndalista. Geymið auglýsinguna.
Kópavogskaupstaðar I*8|
--------—
Útboð
Tilboð óskast í eftirtalda verkþætti í íþróttahúsi
við Skálaheiði í Kópavogi.
Útboð 1: Tréverk: Hurðir, innréttingar og klæðn-
ingu á veggi.
Útboð 2: Málun
Útboðsgögn verða afhent á tæknideild Kópavogs,
Fannborg 2, gegn 500 kr. skilatryggingu frá og
með 17. maí n.k. Tilboðum skal skila á sama stað
fyrir kl. 11.00 þriðjudaginn 24. maí n.k. og verða
þá opnuð að viðstöddum bjóðendum.
Bæjarverkfræðingur
Tungumálanámskeið
og íiæðsluþættir
á
myndböndum
2. Palnt - Llstmólun
Getur þú máiað? Stærsta Ijón-
ið í veginum er e.t.v. einhvers
konar hræðsla við að byrja.
John FitzMaurice Mills sýnir
hér hvernig hægt er að „byrja"
á einfaldan hátt.
1. Having a baby - með-
ganga og fæðlng
Sórlega áhugavert erindi um
verðandi foreldra og með-
gönguna. Fylgst er með fjór-
um verðandi foreldrum á með-
göngutimanum.
2. Business
Skemmtilegar æfingar og út-
skýringar á ensku viðskipta-
og verslunarmáli.Æfingarnar
byggja á kennslubók, hljóð-
kassettu og myndbandi.
$ngbjörnHów5S(m&Cbh.f
Hafnarstræti 4 og 9 símar 11936 og 14281
Akureyrarumboð: Bókval