Tíminn - 20.05.1983, Page 1

Tíminn - 20.05.1983, Page 1
■ Fái Alþýðuflokkurinn um- boð forseta íslands til stjómar- myndunar, þegar Svavar Gestsson, formaður Alþýðu- bandalagsins hefur skilað af sér umboðinu, sem talið er að verði í dag, þá mun Alþýðuflokkurinn einbeita sér að því að kanna möguleika á samsteypustjórn Alþýðuflokks, Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks, en líkurnar á því að slíkt samkomu- lag náist, em samkvæmt heimild- um Tímans hverfandi litlar, þar sem Alþýðuflokksmenn munu, eftir því sem Tíminn kemst næst, gera þá kröfu að samið verði um það í stjórnarsáttmála, að allir samstarfsaðilar hafí þingrofsrétt, en ekki einungis forsætisráð- herra og forseti Islands, en þessu munu Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur með öllu andvígir. Einn þingmaður Alþýðu- flokksins sagði í samtalj við Tím- ann í gær: „Það er þingrofs- heimild sem við viljum fá, til þess að tryggja okkar rétt, en forsætisráðherraembættið er aukaatriði í þessu sambandi, sem við sækjumst ekkert eftir.“ „Pað er ekki hægt að allir flokkarnir hafi þingrofsrétt," sagði Tómas Árnason, viðskipta- ráðherra er Tíminn innti hann í gær álits á þessari hugmynd Al- þýðuflokksmanna og Steingrím- ur Hermannsson, formaður Framsóknarflokksins sagði þeg- ar Tíminn spurði hann sömu spurningar: „Það væri mjög óvenjulegt, raunar mjög erfitt í framkvæmd. Ég myndi telja að samkomulag um að ríkisstjórnin segði af sér, ef slitnaði upp úr, væri samkomulag sem auðveld- ara væri að sameinast um, en þetta með þingrofsréttinn. Pá þyrfti að mynda nýja ríkis- stjórn." „Ég er þeirrar skoðunar, að það sé óeðlilegt að hver sam- starfsaðili í ríkisstjórn hafi þing- rofsrétt," sagði Geir Hallgríms- son, formaður Sjálfstæðisflokks- ins er Tíminn spurði hann hvern- ig honum litist á að allir aðilar í ríkisstjórn hefðu þingrofsrétt. „Þá væri farið þvert á móti því sem venja er í samsteypustjórn- um,“ sagði Geir, „en þá er þingrofsvaldinu ekki beitt nema með samþykki allra aðila stjórn- arsamstarfs. Mér skilst, og veit raunar, að slíkt samkomulag er til staðar í nuverandi ríkisstjórn. Hins vegar er ekki samkornulag um það í núverandi ríkisstjórn, að ríkisstjórnin segi af sér, ef einn stjórnarflokkurinn fer úr ríkisstjórn, og það kemur til greina, m.a. til að tryggja hags- mundi þriðja aðila í stjórnarsam- starfi, eins og Alþýðuflokksins t mögulegu stjómarsamstarfi Framsóknarflokks og Sjálf- stasðisflokks, að segja sem svo, að ríkisstjórnin muni segja af sér, ef einn aðili stjómarsamstarfs gengur úr ríkisstjórn." -AB nuroarvenn meo geimterjuna a tlugi ytir Keykjavik. Tímamynd Ami GEIMSKUTLAN YFIR REYKJAVIK ■ Reykvíkingum gafst kostur á að sjá geimferjuna Enter- prise er hún kom hingað tl lands á leið sinni til Parísar en henni var flogið, á baki burðarvélar sinnar, hringinn í kringum borgina í um 600 m hæð. Hingað komu vélarnar frá Goose Bay á Nýfundnalandi og var millilendingin hér, á Kefla- víkurflugvelli, gerð vegna elds- neytistöku enda mun burðarvél- in nokkuð frek á bensín sem ekki er óeðlilegt þegar haft er í huga að geimferjan sem hún ber vegur nær því 80 tonn en sjálf burðarvélin er af Boeing 747-123 gerð, nokkuð breytt með tilliti til þess farms sem hún ber. Á undan vélunum flaug svo Orion flugvél en hennar verkefni er að athuga ókyrrð í lofti og loft- strauma á leiðinni. Á Keflavíkurflugvelli tóku á móti áhöfn vélanna, þeir Stein- grímur Hermannsson sam- göngumálaráðherra og Brement sendiherra Bandaríkjanna á ís- landi auk fleiri embættismanna en leiðangursstjóri í förinni yfir Atlantshafið var Larry Griffin höfuðsmaður. Færði hann Bre- ment að gjöf mynd af ferjunni og burðarvélinni saman. Engir geimfarar eru með í þessari ferð, aðeins áhöfn burðarvélarinnar, undir stjórn Griffin auk manna frá bandarísku geimferðastofn- uninni NASA. -FRI Sjá á bls. 2-3 Er Alþýðuflokkurinn út úr myndinni í stjórnarmyndunarvidrædunum? VIUA FA mngrofsrétt f ÞRIGGJA FLOKKA STJÖRN Forustumenn bæði Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks andvígir slíku Dagskrá rlkisfjölmidlanna næstu viku - sjá bls. 13 FJOLBREYTTARA 0G BETRA BLAÐ! Föstudagur 20. maí 1983 114. tölublað - 67. árgangur

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.