Tíminn - 20.05.1983, Síða 4

Tíminn - 20.05.1983, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 20. MAÍ 1983 TungumálanámskeiÖ og fraeðsluþættir á myndböndum 2. Paint - Listmálun Getur þú málað? Stærsta Ijón- ið í veginum er e.t.v. einhvers konar hræðsla við að byrja. John FitzMaurice Mills sýnir hér hvernig hægt er að „byrja" á einfaldan hátt. 1. Having a baby - með- ganga og fæðing Sérlega áhugavert erindi um verðandi foreldra og með- gönguna. Fylgst er með fjór- um verðandi foreldrum á með- göngutímanum. 2. Business Skemmtilegar æfingar og út- skýringar á ensku viðskipta- og verslunarmáli. Æfingarnar byggja á kennslubók, hljóð- kassettu og myndbandi. Snfrbjðrn^ónsson^tb.h.f Hafnarstræti 4 og 9 símar 11936 og 14281 Akureyrarumboð Bókval ítölsk sófasett Margar gerðir - Tau- og leður- áklæði. Verð frá kr. 24.900.- Húsgögn ogc . Suðurlandsbraut 18 mnrettmgar srmi 86-900 Raflagnir Fyrsta flokks þjónusta Ef þú þarft að endurnýja, gera við, bæta við eða breyta raflögnum, minnir Samvirki á þjónustu sína með harðsnúnu liði rafvirkja, sem ávallt eru tilbúnir til hjálpar. samvirki -=V SKEMMUVEGI 30 - KÓPAVOGI - SÍMI 44t5 66 Skagafjörður: Bændaskólanum að Hólum var slitið í Hóladómkirkju að viðstöddum fjölda gesta laugard. 14. maí, á lOl.afmælisdegi skólans. Helgi- stund annaðist sr. Sighvatur Emilsson og ávörp fluttu Pálmi Jónsson, land- búnaðarráðherra og Jónas Jónsson, búnaðarmálastjóri. Tólf nemendur voru frá skólanum að þessu sinni, 8 með 1. einkunn og 4 með 2.einkunn. Hæst á burtfararprófi varð María Anna Clausen í Kópavogi, er hlaut viður- kenningu frá Búnaðarfélagi íslands og jafnframt frá Hólalaxi hf. fyrir árangur í fiskeldi. Annar varð Heimir Haraldsson úr Reykjavík er hlaut viðurkenningu fyrir bestan árangur í fiskirækt frá landssamb. veiðifélaga. Þriðji Sveinn Orri Vignisson frá Hólaskóla slitið á lOl.afmælisdaginn: Kópavogsmær hæst á búfræðiprófi Ásmundarstöðum og fjórða Soffía Björgvinsdóttir, Garði er hlaut verð- laun Stéttarsambandsins fyrir bestan árangur á bústjórnarsviði. Þá hlaut Haukur Sigurbjarnarson, Nýhóli á Fjöllum viðurkenningu Hrossaræktar- sambands Skagafjarðar fyrir hrossa- rækt og Sigrún Harpa Baldursdóttir Bjarnarnesi í Hornafirði verðlaun fyrir bestan árangur í loðdýrarækt. Einnig hlutu viðurkenningu fyrir námsárang- ur Ólafur Ásmundsson í Reykjavík og Magnús Baldursson frá Akureyri. Alls stunduðu 34 nemendur nám við skólann í vetur. Aðsókn að skólanum hefur verið mjög góð s.l. tvo vetur, svo að eigi hefur verið hægt að veita öllum skólavist er sótt hafa. Umsóknir eru þegar farnar að berast fyrir næsta skólaár. Auk hefðbundna búnaðarnámsins, sem allir nemendur taka, velja þeir sér tvær valgreinar. í vetur mátti velja á mill: Loðdýraræktar, hrossaræktar, fiskeldis og fiskiræktar. Auk þess fengu þeir er óskuðu tilsögn í: Málmsmíði, trésmíði og bókbandi. „Við höfum reynt að finna vaxtar- brodda landbúnaðarins á hverjum tíma, laða þá fram, benda á þá og hlúa að þeim. Islenskur landbúnaður á enn mikla þróunarmöguleika, ekki aðeins í hinum hefðbundnu greinum.heldur á svo fjölmörgum öðrum sviðum sem nú eru vannýtt. Með þeirri aðstöðu sem nú er hér, í loðdýrum, hrossum og fiski, eigum við að geta boðið upp á. allgóða sérkennslu í þessum greinum", sagði Jón Bjarnason skólastjóri m.a. í ræðu sinni. Miklar framkvæmdir hafa verið í gangi á Hólum um tveggja ára skeið. Húsnæði 'skólans stórum endurbætt, hitaveita lögð til upphitunar allra húsa staðarins og laxeldisstöð byggð og starfrækt. Nú í vor fékk skólinn 300 minkalæður frá Danmörku og í haust eru ráðgerð kaup á 50 refalæðum. Yfirhirðir loðdýranna er Álfheiður Marinósdóttir. Síðast en ekki síst má nefna hina fullkomnu sundlaug sem gamlir nem- endur og nokkur fyrirtæki létu byggja í fyrra og gáfu Hólastað í tilefni 100 ára afmælis skólans. Sundlaugin og hin góða íþróttaaðstaða. var þungamiðjan í félagslífi nemenda í vetur. Við skóla- slitin afhenti Gísli Pálsson á Hofi, form. Sundlaugarnefndar, veggtöflu með skrautrituðum nöfnum gefenda. Fyrra árs nemendur eru nú í verk- námi hjá bændum, en sumir þeirra geta lokið því í fiskirækt, fiskeldi eða loðdýrarækt. í sumar verður tek- in upp sú nýlunda að starfrækja ungmennabúðir í Hólaskóla í sam- vinnu við þjóðkirkjuna. Þá munu gest- ir sem leggja leið sína.„heim að Hólum" til að njóta fegurðar og helgi staðarins geta fengið keyptar þar veit- ingar að deginum. - G.Ó./Sauðárkróki. Enginn fiskur í Skagafirði — smábátarnir veroa að leita á önnur mið Sauðárkrókur: „Skagafjörðurinn er svo gjörsamlega dauður að þar fæst ekki branda - ekki einu sinni rauðmagi í matinn, hvað þá að grásleppan gjóti í tunnur eins og hún er vön að gera,“ sagði Marteinn Friðriksson, fram- kvæmdastj. Fiskiðjunnar á Sauðár- króki spurður hvort rétt væri hermt að ekki fengist orðið branda á Skagafirði. „Allmörg undanfarin ár var það alveg árvisst að smábátarnir voru á netum hér á Skagafirði - byrjuðu svona í mars og voru fram í maí og fengu þá gjarnan verulegan hluta af sínum ársafla. Þeir voru jafnvel svo grunnt að maður sá til þeirra hér rétt fyrir frartian. Nú reynir enginn bátur - þeir eru allir í burtu héðan til ;.ð reyna að bjarga sér einhversstaðar annars- staðar. Sumir hafa farið tiÞSiglufjarðar og aðrir á Norð-austur og jafnvel austur fyrir land. Þetta er bara sjávarkuldi sem breytir lífinu í sjónum. Við finnum og vitum að sjávarstraumar hafa breyst - það er kaldara í sjó en verið hefur. Vorið er ekki komið í sjóinn á sama tírna og undanfarin ár“, sagði Marteinn. -HEI „Söngvatnsafgreiðslan" eftirsótt Sauðárkrókur: Alls voru það 29 manns sem sóttu um að hafa yfirumsjón með afgreiðslu á „söngvatninu" fyrir Skag- firðinga þegar nýja „Ríkið" þeirra verður opnað á Sauðárkróki. Fjórir þeirra óskuðu nafnleyndar, en auk Ste- fáns Guðmundssonar, sem embættið hlaut, sóttu þessir Sauðkrækingar: Arnór Sigurðsson, Dóra Þorsteins- dóttir, Eva Sigurðardóttir, Guðmund- ur Óli Pálsson, Halldóra Helgadóttir, Hallfríður Hanna Ágústsdóttir, Har- aldur Hermannsson, Hörður Ingimars- son, Jón Snædal, Magnús Sverrisson, Ólafur H. Jónsson, Óttar B. Bjarna- son, Pétur Valdimarsson-, Sigurður Björnsson, Sólrún Steindórsdóttir, Þorvaldur G. Óskarsson og Sigurður Jónsson. Auk þeirra sóttu um embættið: Guðrún Eyþórsdóttir á ísafirði, Her- mann Jónasson á Sigluffrði, Júlíus Kristjánsson á ísafirði, Margrét Guð- mundsdóttir, Pálmi Einarsson og Birna Tyrfingsdóttir úr Reykjavík og Rut Marsibil Héðinsdóttir úr Mosfells- sveit. -HEI Menningarvika á Siglufirði Siglufjörður: Síðan 1975 hafa Siglfirð- ingar haft eins konar menningarviku í sambandi við 20. maí. sem er afmælis- dagur Siglufjarðarkaupstaðar. Núna í ár hefst menningarvikan föstudaginn 20. maí kl. 17 með sýningu á mynd- verkum Birgis Schiöths í Ráðhússaln- um. Sýningin verðuropnuð með ávarpi og hljóðfæraleik. Birgir, sem er Sigl- firðingur, sýnir þarna 126 myndir, teikningar og málverk. Sýningin mun standa til 26. maí. Kl. 20.30 um kvöldið hefst hátíðar- samkoma í Nýja bíó með ávarpi Óttars Proppé bæjarstjóra. Þá flyturdr. Alda Möller hátíðarræðuna, og er þetta í fyrsta sinn, sem kona gegnir því hlutverki á menningarviku. Þar næst mun skáld dagsins, Matthías Jo- hannessen, lesa úr verkum sínum og loks syngur Karlakórinn Vísir undir stjórn Andrew Hurel. Inni á milli fyrrgreindra atriða verður samleikur þeirra Andrew Hurel og Sigurðar Hlöðverssonar á horn og trompet og einnig leikur blásarakvintett Tónskól- ans. Kynnir á samkomunni verður Júlíus Júlíusson. Kl. 23.00-03.00 verður dansleikur að Hótel Höfn. Það skal tekið fram, að aðgangur cr ókeypis að málverkasýningunni og dagskránni í Nýja bíó. Það eru þjón- ustuklúbbar bæjarins og hátíðarnefnd kaupstaðarins, sem sjá um menningar- vikuna.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.