Tíminn - 20.05.1983, Síða 10
ÍO
SKÓGRÆKT
RÍKISIINS
Garðeigendur,
sumarbústaða-
eigendur
Skógrækt ríkisins selur plöntur á eftirtöldum
stööum:
HVAMMI í SKORRADAL
Sími 93-7061
Opiö virka daga og um helgar eftir samkomulagi.
NORÐTUNGU í ÞVERÁRHLÍÐ
Sími um Síðumúla
Opiö virkadaga, og um helgareftirsamkomulagi.
LAUGABREKKU VIÐ VARMAHLÍÐ,
SKAGAFIRÐI
Sími 95-6165
Opiö virka daga og um helgar eftir samkomulagi.
VÖGLUMí FNJÓSKADAL
Sími 96-23100
Opiö virka daga og um helgar frá kl. 14-16.
HALLORMSSTAÐ Á FLJÓTSDALSHÉRAÐI
Sími um Hallormsstaö
Opið virka daga og um helgar eftir samkomulagi.
TUMASTÖÐUM í FLJÓTSHLÍÐ
Sími 99-8341
Opið mánudaga-laugardaga kl. 8-18.30.
Mismunandi er, hvaöa plöntur eru til, á hverjum
staö. Hafið samband við gróðrarstöðvarnar, þær
veita upplýsingar um það og benda yður á hvað
er til annars staðar, ef þær hafa ekki til þær
plöntur, sem yður henta.
Við bjóðum einungis plöntur, sem ræktaðar eru í
gróðrarstöðvum okkar, en engar innfluttar plöntur.
Við bjóðum aðeins tegundir og kvæmi, sem
reynsla er komin á hérlendis.
VERÐIÐ HVERGI LÆGRA
® UBO básmottur skapa betra heilsufar búpenings
• UBO básmottur einangra frá gólfkulda
• UBObásmottur eru slitsterkar og endingargóðar
• UBO básmottur er auðvelt að þrífa
UBO básmottur eru einnig hentugar fyrir
hestamenn
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ1983
FÖSTUDAGUR 20. MAÍ1983
íþróttirl
umsjón Samúel Örn Erllngsson
■ Hcitnir Karlsson Víkingur gefur fyrir í leik Víkings og Breiðabliks i
komið í veg fyrir það.
gær, en Valdimar Valdimarsson Bliki fær ekki
Tímamynd Ari
Víkingur og Breiða-
blik ollu vonbrigðum
— gerdu markalaust jafntefli f Laugardal í gær
■ Víkingur og Breiðablik ollu áhorfend-
um, sem voru nokkuð margir, vonbrigðum
í gær, í kuldalegum leik á Hallarflötinni í
Laugardal. Færi í leiknum voru sárafá,
leikmenn einbeitlu sér um of að hraða sem
þcir réðu ekki við, og útkoman varð hörku-
leikur með löngum háloftaspyrnum, þó svo
stuttu spili brygði fyrir, sem skilaði sér ekki
í ncinum afgerandi færum svo að líklega
hefur mörgum leiðst.
Strangt tekið má líklega nefna þrjú færi
í fyrri hálfleik. Víkingar áttu tvö og Blikarn-
ir eitt. Blikarnir komust þrír inn í teiginn er
boltinn kom fyrir, en engum tókst að pota,
og Heimir Karlsson átti skot á Blikamarkið
á 40 mínútu, sem Guðmundur Ásgeirsson
varði. Hættulegasta færið átti Andri Mar-
teinsson, komst einn inn fyrir eftir varnar-
mistök, vippaði yfir markvörðinn en markið
líka. Andri átti annað slíkt færi, einnig eftir
varnarmistök Blikanna, en þá varði einn
slíkur á línu. Það var á 75. mín. Önnur færi
voru ekki í leiknum.
Dómari var Baldur Schewing, og dæmdi
þokkalega, mátti þó gefa fleiri gul spjöld.
Þrír^fengu slík, Ólafur Ólafsson Víkingi og
iSigurður Grétarsson og Valdimar Valdi-
marsson UBK.
„Vid bræðurnir mætum
ekki á NM í lyftingum
—ef Lyftingasambandidendurskodar ekki afstöðu sína”,
segir Gylfi Gíslason lyftingamaður
■ „Ef lyftingasambandið stendur við þessa
ákvörðun sína, mætum við bræðurnir ekki
á Norðurlandamótið", sagði Gylfi Gíslason
lyftingamaður í samtali við Tímann þegar
deilumál vegna landsliðsvals lýftingasam-
bands íslands bar á góma.
Försaga þessa máls er sú, að valdir voru
tveir lyftingamenn úr 90 kg. flokki og tveir
úr 100 kg. flokki til að fara á NM í lyftingum
sem verður haldið í Laugardalshöll 28. og
29. maí. Baldur Borgþórsson og Guðmund-
ur Sigurðsson voru valdir í 90 kg. flokk, en
Gylfi og Garðar bróðir hans í 100 kg. flokk.
Gylfi keppir í 100 kg. flokki, en Garðar að
öllu jöfnu í 90 kg. Á lyftingamóti í
Skarðsmót
1983
■ Skarösmótið 1983 verður haldið á Siglu-
firði að venju, að þessu sinni sunnudaginn
22. maí. Fyrir þá scm ekki vita, þá er
Skarðsmótiðskíðamót. Keppt verður ígöngu
og svigi. I göngu verður keppt i eftirfarandi
flokkum: konur 15 ára og eldri 3,5 km..
karlar 15-34 ára 7,5 km, 35-49 ára 5 km og
50 ára og eldri 3 km. f svigi verður keppt i
karla og kvenna flokkum, og að auki i
flokkum 31-40 ára, 41-50 ára og 51 árs og
eldri.
Mótstjóri verður Guðmundur Ámason,
en þátttökutilkynningar skulu berast Ásgrími
Sigurbjömssyni í síma 71228 (heimasími
71755). Gisting á Hóli kostar kl. 200.- meö
morgunmat, kvöldmatur kr. 100,- og þátt-
lökugjalderkr. 80.-. Fararstjórafundurverð-
ur laugardaginn 21. maf kl. 20.00
sjónvarpssal á dögunum setti Baldur sem
kunnugt er Norðurlandamet unglinga, og
Guðmundur varð í öðru sæti. Þremur
dögum síðar lyfti Garðar tveimur og hálfu
kg. meira en Guðmundur lyfti í mótinu í
sjónvarpssal, en samt sem áður var Guð-
mundur valinn til að keppa í 90 kg. flokki.
Garðar var hins vegar fluttur í 100 kg. flokk,
þar sem hann á nánast enga möguleika
miðað við það sem hann hefur í 90 kg.
flokki. Auk þess er enginn möguleiki fyrir
hann að þyngja sig svo neinu nemi í árangri
fyrir mótið.
Málin standa þannig að ef ekkert verður
að gert, munu bræðurnir ekki fara til keppni
á NM í lyftingum. - gk Akurcyri
Þorgrímur skoraði
úma mínútu
■■■hMH-__________________
— og Valsmenn sigruðu verðskuldað 2:1
■ Þorgrímur Þráinsson lagði grunninn að
góðum sigrí Valsmanna á Keflvikingum í
fyrstu deildinni í knattspymu í gærkvöld, er
hann skoraði fyrsta mark leiksins eftir að
rúm mínúta var liðin af leiknum. Þrumugóð
byrjun, og ábyggilega fyrsta mark fyrstu
deildar, ef miðað er við skeiðklukku og
ferðaviðtæki. Sigurður Björgvinsson náði
að jafna fyrír Keflavík í fyrri hálfleik, en
Magni Pétursson skoraði sigurmark Vals-
manna í síðarí hálfleik.
Mark Þorgríms kom eftir langt innkast
Inga Bjarnar Albertssonar, og skoraði Þor-
grímur með þrumuskoti af 10 metra færi
eftir að boltinn hafði borist til hans, allsend-
ist óverjandi fyrir Þorstein markvörð, sem
var langbesti maður Keflvíkinga. Sigurður
Björgvinsson, sem var aðaldriffjöðrin í
sóknarleik Suðurnesjamannanna, jafnaði í
fyrri hálfleik með skalla, eftir að Björgvin
bróðir hans hafði átt skot í þverslá. Héldu
Keflvíkingar síðan stærri hlut í fyrri hálfleik.
í síðari hálfleik áttu aftur Valsmenn meira
í leiknum, og Magni Pétursson skoraði
einkar glæsilegt mark sem skrúfaðist í
bláhornið á Keflavíkurmarkinu, óverjandi
af 20 metra færi.
Valsmenn voru betri aðilinn í leiknum,
áttu fleiri færi, og lið þeirra heilsteyptara,
með Njál Eiðsson sem besta mann, og
Þorgrímur og Dýri Guðmundsson voru
góðir.
Dómari í leiknum var Friðgeir Hallgríms-
son, og tókst frumraun hans við dómgæslu
í fyrstu deild vel, hann hafði mjög góð tök
á leiknum. -TÓP/SÖE
Skagamenn knúdu
fram sigur á Þór
■ „Leikurinn var ekki góður af okkar
hálfu, en ég er engu að síður mjög ánægður
með stigin tvö. Okkur hefur ekki tekist að
sigra Akureyrarliðin hér fyrír norðan
undanfarin ár, svo þetta voru kærkomin
stig“, sagði Skagamaðurinn Árni Sveinsson
eftir að Skagamenn höfðu lagt nýliða Þórs í
fyrstu deild að velli á malarvelli Þórs í
gærkvöld. „Völlurinn var góður miðað við
malarvöll, en þeir henta okkur ekki, og
þessi leikur gefur ekki rétta mynd af getu
okkar'L bætti Árni við. Það var Sigþórn
Ómarsson sem skoraði eina mark leiksins í
gærkvöld, og kom það á 35. mínútu. Vörn
Þórs galopnaðist skyndilega, og tveir Skaga-
menn komust á auðan sjó inn fyrir. Hörður
Jóhannsson lék upp með boltann skaut
þegar hann kom inn í vítateiginn, Þorsteinn
Ólafsson varði, en hélt ekki boltanum,
eftirleikurinn var auðveldur fyrir Sigþór.
Það var ekki mikið um marktækifæri í
þessum leik. Þó komst Sveinbjörn Hákonar-
son í gott færi strax á níundu mínútu, en
Þorsteinn varði skot hans glæsilega. Nói
Björnsson fyrirliði Þórs var á ferðinni með
Dregið í happ-
drætti HSÍ
■ Nýlega var dregið í happdrætti
Handknattleikssambands fslands. Vinn-
ingar voru 10 utanlandsferðir með Sam-
vinnuferðum-Landsýn í ieiguflugi að
verðmæti krónur 20 þús. hver. Vinnings-
númer eru: 002, 078,192, 207,316,380,
521, 923, 942, 986. Vinninga má vitja á
skrifstofu HSI í íþróttamiðstöðinni
Laugardal.
Sídasti leikur 1. umferðar 1. deildar í knattspyrnu:
Leikið í Eyjum í kvöld
Keppni í nedri deildum hefst einnig í kvöld
■ Síðasti leikur fyrstu umfcrðar í fyrstu
dcild Isiandsmótsins í knattspyrnu er í kvöld
í Vestmannaeyjum. Þá leika Vcstmannaey-
ingar við Isfiruinga á grasvellinum við
Hástein, sem er víst orðinn grænn og sætur
á að líta. Önnur umferð íslandsmótsins
hefst síðan á mánudagskvöld og lýkur
næstum, þá eru fjórir leikir.
í annarri deild hefst keppnin í kvöld.
Þá leika Fylkir og Fram á Árbæjarvelli,
Reynir og KA í Sandgerði, KS og FH á
Siglufirði og Völsungur og Víðir á Húsavík.
Allir leikirnir hefjast klukkan 20.00, líka í
Eyjum.
Keppnin í þriðju og fjórðu deild karla
hefst einnig í kvöld, í þriðju deild eru 7
leikir, á Selfossi, í Borgarnesi,íÓlafsvík, á
Stykkishólmi, á Eskifirði, í Grenivík og á
Reyðarfirði. I fjórðu deild eru 6 leikir, í
Bolungarvík, á Patreksfirði, í Keflavík, á
Melavelli í Reykjavík, á Stokkseyri og í
Hveragerði.
A ðalfundur
blakdeiidar
Próttar
■ Aðalfundur blakdeildar Þróttar
verður haldinn sunnudaginn 29. maí
1983 klukkan 16.00, strax að loknum
iandsleik íslands og Spánar.í knatt-
spyrnu. Fundurinn verður haldinn í
félagsheimili Þróttar.
Keppni í kvennadeildum hefst á þriðju-
dag.
þrumufleyg á 34. mín., en of nærri Bjarna
markverði Sigurðssyni, sem varði örugg-
lega. - í síðari hálfleik sá ég hins vegar
aldrei ástæðu til þess að lyfta minnisblaðinu.
Skagamenn voru sterkari aðilinn í fyrri
hálfleiknum, án þess þó að sýna nokkuð
sérstakt. En Þórsarar höfðu yfirleitt undir-
tökin í síðari hálfleiknum. Þeim tókst þó
aldrei að ógna verulega þrátt fyrir nokkra
pressu. Helst að Helgi Bentsson skapaði
hættu með hraða sínum og dugnaði en hann
barðist eins og ljón. Nokkuð sem ekki er
hægt að segja um alla leikmenn Þórs.
Aftasta vörn Þórs er ekki traustvekjandi, og
verður að taka sig á, ef hún ætlar að sneiða
hjá stóráföllum í komandi leikjum. Skaga-
menn, þetta reynda lið, sem aldrei nær sínu
besta á malarvöllum, gerði enga lukku á
Akureyri í gærkvöld. En þeir voru fastir
fyrir með Sigurð Lárusson fyrrum Þórsara
sem brimbrjót í vörninni. Á miðjunni sýndi
hinn ungi Sigurður Jónsson hversu gífurlegt
efni er þar á ferð. Aðrir áttu ekki umtals-
verðan leik.
-Skagamenn heim með tvö dýrmæt stig,
en Þórsarar sem hefðu verðskuldað annað
þeirra, sátu eftir með sárt ennið.
-gk Akureyri.
,1
I
I
I
I
a
i
i
i
i
a
i
s
a
i
i
i
i
a
i
i
i
Ármann stofnar
íþróttaskóla
— fyrir börn og unglinga
■ Glímufélagið Ármann hefur stofnað
íþróttaskóla fyrir börn og unglinga sem
starfræktur verður í íþrótta og félagsmið-
stöð Ármanns við Sigtún. Með þessu hefur
Ármann gert stórt átak til að veita börnum
og unglingum sem ekki komast í sumardvöl
utanbæjar, eða í vinnu í borginni holl
viðfangsefni í ágætum íþróttamannvirkjum,
hjá þekktum og viðurkenndum íþróttakenn-
urum, sem eru í fremstu röð í sínum
íþróttagreinum auk almennrar þekkingar.
Nú í sumar verður skólinn með á sínum
vegum námskeið í fimleikum, leikfimi,
frjálsum íþróttum, knattleikjum og leikjum
fyrir börn á aldrinum 8-14 ára.
Kennarar á námskeiðunum verða Ásta
ísberg, Erna Jónsdóttir, Guðni Sigfússon,
Þór Álbertsson og Þórir Kjartansson. Hvert
námskeið varir í hálfan mánuð, sem þátttak-
endur geta svo framlengt. Nemendur geta
valið tímana 9-12, eða 13-16, en námskeið-
in munu standa í þrjár klukkustundir dag
hvern.
Þessi tilraun Glímufélagsins Ármanns er
virðingarverð, íþróttabúðir þurfa ekki endi-
lega að vera utan borgarinnar, þar eð mörg
íþróttamannvirki eru ágæt innan hennar og
auk þess býður Reykjavík upp á ýmislegt
Norræna trimmlands-
keppnin gengur vel
eins og kajakróður og hestamennska lítið
verið stundaðar í keppninni.
íþróttasamband fatlaðra hvetur alla þá
sem ekki hafa nú þegar hafið þátttöku í
Trimmkeppninni að verða sér úti um þátt-
tökukort og vera með síðustu dagana.
Hvert stig skiptir nefnilega máli í keppni
sem þessari.
Að lokum eru allir þeir sem taka þátt í
keppninni minntir á að skila útfylltum
þátttökukortum til trúnaðarmanns eða til
íþróttasambands f atlaðra fyrir 10. júní.
■ Nú fer að líða að lokum Norrænu
Trimmlandskeppninnar í íþróttum fyrír fatl-
aða, en eins og flestum er væntanlega
kunnugt lýkur henni 1. maí.
Eins og áður hefur komið fram hefur
þátttaka í keppninni víðast hvar verið með
miklum ágætum. Sem fyrr hafa ganga, sund
og hjólastólaakstur verið vinsælustu grein-
arnar. Vitað er einnig um allmarga sem hafa
hjólað og fengið þannig stig í keppninni.
Eins og búist var við í upphafi hafa greinar
■ Knattleikir verða meðal greina á
námskeiðum Ármenninga.
sem tengst gæti slíku sumarbúðastarfi, t.d.
í sambandi við skoðunarferðir sem fyrirhug-
aðar eru og annað, sem vert er að skoða og
Iæra um.
Hvert áðurnefndra íþróttanámskeiða
kostar krónur 500 á hvert barn í hálfan
mánuð og njóta systkini afsláttar. Innritun
er frá þriðjudeginum 24. maí til föstudagsins
27. maí daglega kl. 10.30 til 12 og kl. 14 til
16 í Ármannshúsinu við Sigtún, eða síma
38140.
MÚRFILL
■. . i
Klæddu hús þitt
með okkar hjálp
Múrfill klæðning er:
50-60%
ódýrari en flestar aðrar kiæðning-
ar
★ ervatnsþétt
★ er samskeytalaus
★ hindrar að vatn leiti inn í
sprungur
★ andar og hleypir út raka án
þess að leka
★ eródýrari
★ er í mörgum litum
Okkur yrði það mikil ánægja að
líta á huseign þína og gera þér
tilboð þér að kostnaðarlausu.
S. Sigurðsson h/f.
Hafnarfirði
Síma: 50538 - 54535.
Vönduð og góð vinnubrögð
/^TILLITSSEMI
y-ALLRA HAGUR
■ «
« « m m B
Bi HB Bi Bi l
H8B
BB BB BBI BB BH HB BB
Afmælistilboö:
afsláttur!
Kond’í STUÐ
Þar færð þú nefnilega:
— 10% afslátt á öllum
plötum út maí. STUD
er nefnilega eins árs
um þessar mundir.
— Nýju plötuna meö:
Comsat Angels • Tomj
Robinson • Work •
Marianne Faithful •
Pink Floyd •
og öllum hinum.
— Gamlar sjaldgæfar
plötur með:
Yardbirds • Woody
Guthrie • Pete Seeger •
og ötlum hinum.
— Vinsælustu skandinavísku rokkplöturnárT
— Gott úrval af reggíplötum.
— Vinsælu „new wave“-sólgleraugun.
— Kiukkur SSfTFSkrlte; W!S
— Reglustikur með innbyggðri reiknitölvu og klukku.
— Klístraðar köngulær sem skríöa.
— Ódýrir silfureyrnalokkar(ekta)með kannabisformi o.m.fl.
— Músíkvídeóspólur (VHS) leigöar meö: Sex Pistols •
Genesis • Bob Marley • Grace Jones • Roxy Music •
Doors • Madness • Kate Bush
• Blach Uhuru • o.m.fl.
Já, kond’í STUÐ. Þar er stuöið!
^4^ heíiaa
Upp á ®
Í>í°\T!ð á
' ^ do.1?
pT’
hvað